Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
Fréttir________________________________________________pv
Guömundur Árni Stefánsson gefur kost á sér til formennsku í Alþýðuflokknum:
Segist geta unnið með
hverjum sem er í flokknum
- og aö hann sé fulltrúi nýrrar kynslóðar sem viH hraða sameiningu jafnaðarmanna
„Eftir að hafa rætt við mikinn
fjölda flokksmanna um flokkinn,
stöðu hans og framtíð, tel ég mig
geta komið honum að gagni í
þeirri vinnu sem fram undan er.
Sömuleiðis á þeim spennandi tím-
um sem eru innan seilingar í ís-
lenskri pólitík og meðal íslenskra
jafnaðarmanna. Þess vegna hef ég
tekið þá ákvörðun að gefa kost á
mér til formennsku í Alþýðu-
flokknum," sagði Guðmundur
Ámi Stefánsson, varaformaður
flokksins, á fréttamannafundi í
gær, á 41. afmælisdegi sínum.
Hann benti á að Jón Baldvin hefði
verið 45 ára þegar hann tók við
formennsku í flokknum.
Guðmundur Árni var spurður
hvort hann myndi taka varaform-
annssæti með Sighvati ef hann
tapaði í formannskjöri. Hann
sagðist ekki hafa tekið neina
ákvörðun þar um. Hann væri bara
í framboði tO eins embættis á
fundinum, formannsembættisins.
Hann sagði hins vegar aö hann
gæti unnið með hverjum sem væri
í Alþýðuflokknum.
„Ég er bara 41 árs og tel mig því
vera fulltrúa nýrrar kynslóöar og
boðbera nýrra viðhorfa bæði í Al-
þýðuflokknum og í íslenskum
stjómmálum. Auk þess hef ég ver-
ið varaformaður flokksins síðustu
tvö árin og þvi oft gegnt for-
mennsku í fjarveru formannsins.
Ég vil því gefa flokksfólki kost á
því að fella sína dóma um mig og
mín störf með kosningu á flokks-
þinginu. Ég býð mig ekki fram
gegn einum né neinum. Ég gef
bara kost á sjálfum mér til þessara
forystustarfa fyrir Alþýðuflokk-
inn,“ sagði Guðmundur Ámi.
Hann sagði að stór verkefni
væru fram undan og þar væri
langstærsta verkefniö samstarfs-
mál og sameiningarmál jafnaðar-
manna. Hann sagðist vera með
markvissar hugmyndir í þeim efh-
um sem byggðust á verkefha- og
tímaáætlun.
„Ég vil sjá þaö með ákveðnum
tímasettum markmiðum að þeir
flokkar sem eru að verulegu leyti
jafnaðarmannaflokkar, eins og Al-
þýðubandalagið, Þjóðvaki og
Kvennalisti, hefji samstarf. Ég
undanskil ekki Framsóknarflokk-
inn. Og ég undanskil ekki verka-
lýðshreyfinguna sem á sitt skjól
hjá þessum fyrmefndu flokkum,"
sagöi Guðmundur Ámi.
Hann sagðist vilja sjá samstarf
þessara flokka um allt land í næstu
sveitarstjómarkosningum og jafn-
vel sameiginlegan flokk í næstu
þingkosningum eftir tvö og hálft
ár. -S.dór
Hæstaréttardómur vegna vanskila korthafa:
Kortafyrirtæki
endurgreiði
ábyrgðarmanni
- sem ber ábyrgö á 2 greiðslutímabilum
Guðmundur Árni Stefánsson býður sig fram til formennsku i Alþýðuflokkn-
um. Hann segist munu leggja höfuðáherslu á sameiningu jafnaðarmanna úr
öllum flokkum. DV-mynd ÞÖK
Akureyrarbær:
Engar húsaleigu-
bætur að óbreyttu
Hæstiréttur dæmdi í gær Kredit-
kort hf. til að greiða ábyrgðarmanni
á tryggingavixli vegna greiðslukorts
811 þúsund krónur sem telst sú upp-
hæð sem fyrirtækiö ofreiknaði hon-
um að greiða þegar korthaflnn stóð
ekki í skilum.
Deilt var meðal annars um það
, hve mikið viðkomandi átti að
greiða miðað viö að hámarksfjár-
hæð var ekki færð inn á trygginga-
víxilinn. Fram kom í málinu að
ábyrgðarmaðurinn notfærði sér
ekki þann kost að færa ákveðna
fjárhæð inn á víxilinn sem ekki var
háður takmörkunum.
Dómurinn tók siðan mið af því að
skuld og þar af leiöandi ábyrgð
heföi náð til tveggja greiöslutíma-
Maöur slasaðist mikið þegar bif-
reið, sem hann ók, valt nálægt Esju-
skála á Kjalamesi i nótt.
Þegar lögregla og sjúkrabíll komu
á staðinn var maðurinn fastur inni
í bílnum og þurfti að kalla á tækja-
bíl slökkviliðs til að ná honum út.
Maðurinn var fluttur á Sjúkrahús
bila. Þar var stuðst við aö gjalddagi
í viöskiptum fyrra tímabilsins var
ekki fyrr en næsta tímabil var
hálfnað. Því hefði korthafinn getað
nýtt sér að fullu úttektarheimild
vegna síöamefnda tímabilsins áður
en leitt yrði í ljós hvort greiðslufall
yrði.
Dómurinn taldi óumdeilt að
ábyrgðin fyrir hvort tímabil næmi
tæpri 1,1 milljón króna og því sam-
tals tæpum 2,2 milljónum króna.
Skuld korthafans og þar með krafan
til ábyrgðarmannsins varð hins veg-
ar 811 þúsund krónum hærri en há-
marksupphæðin. Samkvæmt því
var greiðslukortafyrirtækið því
dæmt tO að endurgreiöa ábyrgðar-
manninum þá fjárhæð. -Ótt
Reykjavíkur og að sögn lækna þar
er hann mikið slasaöur en ekki í
neinni lífshættu. Hann mun hafa
slasast mest á kjálka og ökkla auk
þess sem hann var skrámaður víöa
á líkamanum.
Maðurinn er grunaöur um ölvun
við akstur. -RR
DV, Akureyri:
Akureyrarbær hyggst ekki
greiða húsaleigubætur á árinu 1997
og er ástæðan að lögin um bætum-
ar séu meingölluð. Þetta kom fram
á bæjarráðsfúndi í vikunni.
í afgreiðslu ráðsins segir að bæj-
arráö sé hlynnt greiðslu húsaleigu-
bóta en telji sér ekki fært að taka
upp þær greiðslur aö óbreyttum
lögum. „Bæjarráð átelur að lögin
skuli ekki hafa verið endurskoðuð,
heldur gert ráð fyrir óbreyttu fyrir-
komulagi næsta ár. Einnig mót-
mælir bæjarráð þeirri stefnu sem
fram kemur í mnburðarbréfi ráðu-
neytisins, að sveitarfélögin taki al-
farið að sér húsaleigubótakerfið.
Bæjarráð er andvígt því formi fjár-
mögnunar og afgreiðslu húsaleigu-
bóta sem lögin kveða á um og tek-
ur undir þá skoðun að ríkissjóður
eigi aö öllu leyti aö bera kostnað af
greiðslu bótanna og þær eigi að
greiða í gegnum skattakerfið á
sama hátt og vaxtabætur," segir í
ályktun bæjarráðs sem skorar á
ríkisvaldið að taka við endurskoö-
un laganna fullt tillit til þessara og
annarra þeirra sjónarmiða sem
fram hafa komið frá sveitarfélögun-
um varðandi þetta mál.
-gk
Stuttar fréttir
lllmælgi og óvild
Kristján Ragnarsson gagnrýndi
fylgismenn auðlindaskatts á aöal-
fundi LÍÚ í gær og sagði málflutn-
ing ritstjóra Morgunblaðsins
byggjast á illmælgi og óvild, síö-
asti alvöru sósíalistinn væri að
daga uppi sem ritstjóri Morgun-
blaðsins.
Lög gegn EES
Álitamál er hvort núgildandi is-
lensk lög um að ÁTVR annist inn-
flutning og heildsölu áfengis
standist EES-samninginn. Sam-
kvæmt RÚV er málið til athugun-
ar hjá Eftirlitsstofnun EFTA i
Brússel.
ísland í ECOSOC
ísland hefur verið kjörið til
þriggja ára setu í ECOSOC, efna-
hags- og félagsmálaráði Samein-
uðu þjóðanna. Samkvæmt RÚV er
ECOSOC ein af höfuöstofnunum
samtakanna.
Breytt í sjóö
Útvegsfélagi samvinnumanna
var í gær breytt í hlutabréfasjóð.
Samkvæmt RÚV nemur hlutafiár-
eign sjóðsins 1 milljarði króna í
um 25 sjávarútvegsfýrirtækjum.
Gróði af veiðum
Hagnaður af fískveiðum á síð-
asta ári er í kringum 1,4 milijarð-
ar króna, eða um 4% af tekjum.
Ólafur til Noregs
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, er á leiðinni til Noregs í
boöi norska Stórþingsins. Skrif-
stofustjóri Alþingis, Friðrik Ólafs-
son, verður með Ólafi í fór.
Opið prófkjör
Fyrirhugað er að hafa opið próf-
kjör hjá Reykjavíkurlistanum fyr-
ir næstu borgarstjómarkosningar.
Þetta mátti lesa í Degi-Tímanum.
Kirkja á Geirsstöðum
Alit bendir til að kirkja hafi ver-
ið á Geirsstöðum í Hróarshmgu
áriö 1000. Samkvæmt RÚV koma
þessa niðurstöður fomleifafræð-
inga verulega á óvart þar sem eng-
ar heimildir séu til um kirkju á
þessum slóðum.
Tómas til írlands
Skagfirski svanurinn Tómas er
kominn á vetrarstöðvar sínar á ír-
landi eftir gifhu-íkt flug frá íslandi
með gerfihnahasendi á bakinu.
RÚV greindi frá.
Útboð á hlutafó
Útboð í nýjum hlutabréfasjóði
Búnaðarbankans hefst í dag. Boðn-
ar em 300 milljónir króna. -bjb
BHvelta á Kjalarnesi:
Ökumaður
mikið slasaður
- grunaður um ölvun