Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 Fréttir Stuttar fréttir dv Karólína Natalía Karlsdóttir var ein fjögurra sem gengu í hús í Langholtssókn um helgina þar sem hugur fólks til almennra prestskosninga í sókninni var kannaöur. Hópur sá sem fyrir söfnuninni stendur fundaöi í'gærkvöld og í samtali viö einn úr hópnum I gær kom fram aö söfnunin er skammt á veg komin. Haldiö veröur áfram aö safna undirskriftum viö fjölfarna staöi næstu daga. . _. DV-mynd -rt kviöa Þú getur svarað þessari spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mtnútan Já 1 Nel 2 j rödd FÖLKSINS 904 1600 Á að taka upp samtímagreiðslu námslána? Árásin á bílstjórann á fóstudagskvöld ekki einsdæmi: Mennl síöustu ferð um helgar - segir fulltrúi hjá SVR - úrræðaleysi barnaverndaryfirvalda „Ég varð sjálfur fyrir því að ungur piltur réðst að mér og ógnaði mér í haust og við lítum þennan atburð um helgina alvarlegum augum þótt vel hafi farið. Ég veit af nokkrum skipt- um þar sem mönnum hefur verið ógnað og ég sé ekki annað en við verðum að ræða þessi mál af fúiiri al- vöru í okkar hópi. Við getum ekki bara beðið eftir aö eitthvað alvarlegt gerist,“ segir Sverrir Úlfsson, fyrsti fulltrúi 9. deildar hjá SVR. Tveir sextán ára piltar veittust að vagnstjóra í Grafarvogi á föstudags- kvöld og vildu frá fría ferð. Þegar bíl- stjórinn neitaði tók annar piltanna bílstjórann hálstaki en hinn tók upp hnif. Bílsljórinn náði að biðja um að- stoð til stjómstöðvar og þá tóku pilt- amir á rás. Lögreglan var skanunt undan og fann þá eftir stutta leit í íjölbýlishúsi skammt þama frá. Ann- ar piltanna hefúr ítrekað lent í vand- ræðum og em mál hans til meðferð- ar hjá bamavemdaryfirvöldum. Samkvæmt heimildum DV hefúr lögreglan áhyggjur vegna þess úr- ræðaleysis sem virðist ríkja um al- varleg mál eins og þessa pilts því vandamál hans em það mikil að kunnugir segja að ef honum verði ekki hjálpað vilji þeir ekki hugsa það til enda hvað geti gerst. Það sé með ólíkindum ef aðeins séu til úrræði fyrir smærri málin en þau alvarlegri séu látin sitja á hakanum. En hvað hyggjast menn gera hjá SVR? „Við höfum ekki rætt þetta form- lega innan okkar raða en menn em sammála um aö eitthvaö þurfi að gera. Sumir vilja t.d. fella niður síð- ustu ferðir, eftir miðnætti, á föstu- dags- og laugardagskvöldum því menn kvíða þeim alveg sérstaklega. Því miður er það oft svo að farþegar okkar þá em bara krakkaskríll sem vill komast ofan í miðbæ. Bílstjórinn er gersamlega berskjaldaður ef ein- hver hefur eitthvað við störf hans að athuga, vill endilega fá að reykja í bílnum, fá frítt far eða hvað svo sem þessum krökkum dettur í hug,“ segir Sverrir Úlfsson, fúlltrúi hjá SVR. -sv Utvarp og sjónvarp? Menntamálaráðherra vill að fulltrúar frá báðum stjómar- flokkunum fialli um stefnumörk- un fyrir Rikisútvarpið og aðra ljósvakamiðla. Björn vill að kannað verði hvort skipta ætti Ríkisútvarpinu í tvö fyrirtæki, útvarp og sjónvarp. RÚV sagöi frá. Ný Súla Loðnuskipið Súlan kom til landsins í gær eftir miklar end- urbætur í skipasmíðastöð í Pól- landi. Fátt er eftir af gömlu Súl- tmni en Bjarni Bjamason skip- stjóri er ánægður með breyting- amar. Kostnaðurinn nemur um 120 milljónum króna. Burðargeta skipsins var um 800 tonn en er nú um 1000 tonn. -sv Umdeild forsetaveisla í Kaupmannahöfn: Félögin undir- bjuggu samkomuna Vegna fréttar DV 16. nóvember um forsetaveislu er halda á í Kaup- mannahöfn 1 vikunni vill skrifstofa forseta íslands taka það fram að fyr- ir rúmlega tveimur mánuðum fékk skrifstofan boð frá íslendingafélag- inu í Kaupmannahöfn, Norræna fé- laginu á Friöriksbergi og styrktar- sjóöi dansk-íslenskrar samvinnu um að efnt yrði til samkomu í ráð- húsinu á Friðriksbergi í tilefni af opinberri heimsókn forsetahjón- anna til Danmerkur. Samkoman átti að verða opin öOum íslending- um og dönskum íslandsvinum. Einnig hefðu fyrmefnd félög veg og vanda af gerð dagskrár og undir- búningi samkomunnar. í frétt DV kom fram að óánægja ríkir með að selja á inn á samkom- una og kostar miðinn um 1700 ís- lenskar krónur. Enn fremur telja námsmenn í Kaupmannahöfh að gengið sé fram hjá þeim þar sem það hafi það komiö fram í Hafnar- póstinum að félagar þriggja Islend- ingafélaga eigi rétt á að mæta á samkomuna en Félag íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn sé ekki þar á meðal. -JHÞ ÓSKA EPTIK PVÍ AÐ NYR SÓKNARPRESTUR / LASGHOl , VERÐI VALINN í ALMENNIÍI kossisgv sóksarba Bæjarstjórn Húsavíkur: Völd bæjarstjóra verulega skert DV, Akureyri: Meirirhlutasamstarf Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks í bæjar- stjórn hefur verið samþykkt af for- svarsmönnum flokkanna tveggja og verður lagt fyrir flokksfundi beggja flokkanna strax í kvöld. Meginbreytingin sem verður á yfirsfiórn bæjarins verður sú að Einar Njálsson bæjarstjóri mun víkja úr nefndum og stjómum bæj- arins og minnihluti bæjarstjórnar fær mann í stjóm Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Sá verður Krisfián Ás- geirsson, oddviti Alþýðubandalags og óháðra, og vekja þessar fréttir mikla athygli. Krisfián Ásgeirsson og sonur hans, Helgi Krisfiánsson, sem verið hafa sfiómendur útgerðarfélagsins Höfða hverfa af þeim vettvangi, Hjalti Halldórsson verður fiármála- sfióri sameinaðs fyrirtækis Höfða og Fiskiðjusamlags Húsavíkur og Krisfián Bjöm Garðarsson útgerð- arsfióri. Starfslokasamningur hefur verið gerður við Kristján Ásgeirs- son en hann hefur ekki verið birtur og hvílir leynd yfir honum. Eftir er að fara yfir skipan ýmissa nefnda bæjarins í kjölfar myndunar nýs meirihluta en þau mál munu vera frá gengin strax eftir helgi og mál- efnasamningur nýs meirihluta þá birtur. -gk Sjómenn njósnuðu Breskir togarasjómenn njósn- uðu um ferðir sovéskra herskipa í norðurhöfum á7. og 8. áratugn- um. Skipherrar íslensku Land- helgisgæslunnar höfðu ekki hug- mynd um þetta. Bresku sjó- mönnunum fannst tímabært að greina frá þessu nú. RÚV sagði frá. Menning á villigötum Bandalag íslenskra lista- manna segir að menningarleg stéttskipting fari vaxandi hér á landi. Félagið vill styrkja stoðir menningarlífsins í landinu og segja sfiómvöld standa ráöþrota gagnvart flóði erlends afþreying- arefnis. RÚV sagði frá þessu. Vatnslaust í Smugunni Dæmi er um skip í Smugunni sem hefur verið vatnslaust í tiu daga. Á öðm hafa sjómenn að- eins mátt fara í bað einu sinni í viku vegna vatnsskorts. RÚV sagði frá þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.