Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaftur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiðsla, áskrlft: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setnlng og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Þrældómur og hungur Enn einu sinni hafa Sameinuðu þjóðirnar efnt til glansráðstefnu fyrir þjóðarleiðtoga. Að þessu sinni hafa stjómmálaforingjar frá um eitt hundrað ríkjum átt góða daga í Rómaborg og rætt þar um hungrið í heiminum inn á milli veisluhalda sem vafalaust hefðu nægt til að bjarga þúsundum bama frá hungurdauða í Afríku. Að mati sérfræðinga hjá Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna þjást nú um 840 milljónir manna af næringaskortir - það er svelta hálfu eða heilu hungri. Nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við þess- um ósóma hafa verið af skomum skammti þótt búum við í veröld sem á næg matvæli til að fæða alla jarðar- búa. Enn einn glæsifundur á vegum Sameinuðu þjóð- anna mun litlu breyta. Fyrir nokkrum árum héldu þessu samtök til dæmis fjölmenna og rándýra leiðtogaráðstefhu um málefhi barna. Það var um svipað leyti og fréttir bámst af óvenjuóhugnanlegum aðgerðum gegn bömum í Ríó, en þar stunduðu sérstakar dauðasveitir þá iðju að skjóta böm af færi að næturlagi. í Brasilíu lifir íjöldi bama enn á öskuhaugum og á götum úti - og deyr á æskuárum. Á þessari ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna vom fluttar hástemmdar ræður um allt það sem gera ætti fyrir böm- in í heiminum. Og hver skyldi nú árangurinn vera? Eitt lítið dæmi þar um má lesa út úr nýrri skýrslu Al- þjóða vinnumálastofnunarinnar, ILO. Sérfræðingar hennar héldu því fram fyrir ekki löngu að um 73 miUj- ónir bama á aldrinum tíu til fjórtán ára í um 100 lönd- um væm skikkaðar til að þræla fullan vinnudag. Nýja skýrslan sýnir að bamaþrælkun er núna miklu algeng- ari en áður var talið. Þar er áætlað að um 120 miUjónir bama frá fimm ára aldri séu látnar vinna langan vinnu- dag, og að um 130 milljónir til viðbótar þurfi að þræla hluta úr deginum. Samtals em þetta um 250 miiljónir bama, sem er álíka fjöldi og allir íbúar Bandaríkjanna. Bamaþrælkunin er að sjálfsögðu algengust í þeim löndum þar sem fátækt og efnahagslegt misrétti er mest, og þar er aðbúnaður barnanna á vinnustað líka verstur og oft hættulegur heilsu þeirra. Það á til dæmis við um mörg þau ríki Asíu sem vakið hafa hvað mesta aðdáun sumra Vesturlandabúa fyrir efiiahagslegar framfarir. Þar er þrælkun bama algengust, enda hafa lífskjör mik- ils hluta íbúanna lítið sem ekkert breyst þar sem efha- hagsbatinn skilar sér einungis á fárra hendur. En enginn skyldi ætla að bamaþrælkun væri bundin við fjarlæg lönd í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Fram kemur í skýrslunni að bömum er líka þrælað út í hin- um vestræna heimi, svo sem í Bandaríkjunum, Bret- landi, Ítalíu og Portúgal, svo nokkur dæmi séu nefiid, og í Austur-Evrópu er aukinn þrældómur bama ein af mörgum alvarlegum skuggahliðum þeirra miklu þjóðfé- lagsbreytinga sem þar eiga sér stað. Bamaþrælkun er að sjálfsögðu afleiðing fátæktar sem fer vaxandi um allan heim þrátt fyrir efnahagslegar framfarir, líka í þeim löndum sem næst okkur em. Þannig sýna tölur Evrópusambandsins að á árunum 1975 til 1988 fjölgaði fátæklingum innan sambandsins úr 38 milljónum manna í 52 mUljónir. í einu þessara ríkja, Bretlandi, lifðu um 5 milljónir manna undir fátæktar- mörkum árið 1979, en þeim hafði fjölgað í 14,1 milljón árið 1993. Fátækt og bamaþrælkun er því vaxandi vandamál allt í kringum okkur, og glæsiráðstefnur á vegum Samein- uðu þjóðanna breyta þar engu til batnaðar. Elías Snæland Jónsson Þrír af frumlegustu og djörfustu fræðimönnum á sviöi íslenskra fræða. Baröi Guðmundsson, Þórhallur Vilmund- arson og Einar Þálsson. - Nánast þagaðir í hel af hérlendum fræöimönnum en hafa vakið verðskuldaða athygli meðal erlendra kollega. Já-já-já eða je-je-je Kjallarinn Siguröur A. Magnússon rithöfundur nýstárlegar hugmyndir! Þessi árátta birtist á öll- um sviðum þjóðlífsins og tekur á sig hinar fjöl- breytilegustu myndir. Menn reyna hver um annan þveran að brynja sig gegn gagnrýni, jafnt hópar sem einstakling- ar. Úrræðin eru mörg svosem vænta má um svo bráðsnjalla þjóð. Al- gengast viðkvæði mun þó vera, að þeir sem bera fram gagnrýni eða nýstárlegar ábendingar séu uppblásnir sjáifbirg- ingar, sem endilega vilji hafa vit fyrir öðrum og helst hafa allt þeirra ráð „Þér nöldrarar og níðhöggar sjálf- umgleðinnar, látið af yðar óþjóð- legu iðju, svo þjóðin fái haldið svefnró sinni meðan værukærir leiðtogar hennar fanga handa henni óminnishegrannlu Andlegt mak- ræði er ein af eftir- lætisfylgjum ís- lendinga, þó þeir séu kappsamir og atorkumiklir í verklegum fram- kvæmdum. Þeir vilja hreint ekki láta raska ró sinni með aðfínnslum eða ábendingum um það sem betur mætti fara. Sist af öllu fá þeir umbor- ið gagnrýni að- komumanna. Og þeim er meinilla við að hróflað sé við viðteknum hug- myndum eða kenningum sem orðnar eru mosa- grónar í landinu. Til marks um það má meðal margs annars hafa aö þrír af frumleg- ustu og djörfustu fræðimönnum á sviði íslenskra fræða, þeir Barði Guðmundsson, Þórhallur Vil- mimdarson og Einar Pálsson, hafa nánast verið frystir úti eða þagað- ir í hel af hérlendum fræðimönn- um þótt kenningar þeirra hafi vakið verðskuldaða athygli meðal erlendra kollega. Ekki trufla svefnfriöinn íslendingar vilja semsagt mega búa að sínu í friði og spekt, horfa í spegilinn á hverjum morgni, ánægðir yflr óloknu dagsverki - og svo vilja þeir helst fá að gleyma speglinum til næsta morguns þeg- ar þeir geta á nýjaleik glaðst yfir óunnu dagsverki. Umfram allt enga aðfinningu eða smámuna- semi, engar erfiðar spumingar eða i hendi sér. Er ekki ótítt að þessi brynja sé nálega skotheld, því hver kærir sig um að vera vændur um ráðríki, frekju eða drottnunar- gimd? Svo eru að vísu til þeir sem gjarna era fúsir til að taka gagn- rýúi eða aðfinnslum, kannski vegna þess að það þykir fint og frjálslynt, en þeir vilja bara fá sér- staka tegund af gagnrýni, það er að segja gagnrýni sem ekki bítur, sem er meinlaus og allra helst þægileg. Þvílík gagnrýni gengur gjarna undir heitinu Jákvæð gagnrýni" og er líka stundum nefnd „hreinskilin“ eða „heiðar- leg“ eins og til bragðbætis en hún má bara undir engum kringum- stæðum vera framleg, neikvæð, hvöss, bítandi. Hún má með öðr- um orðum ekki ýta við mönnum, ekki trufla svefhfriðinn ekki raska hinni indælu ró vanahugsunar og hóglífis. Alþýöudómstóll hentisem- innar Ef einhver gerist svo fifldjarfúr að stugga við syfjuðum þjónum vana og þæginda er hann óðara dreginn fýrir alþýðudómstól henti- seminnar og borinn öllum hugsan- legum vömmum og skömmum, sakaður um nöldur, karp, afskipta- semi, hávaða, truflun á góðum sið- um og almannaró og þarmeð er mál hans að öllum jafnaði afgreitt. Það er semsé ekkert grín að verða ber að naggi og nöldri í sam- félagi þarsem allt gengur útá skemmtílegheit og hógvært sam- þykki við öllu sem misvitrum ráðamönnum eða skósveinum þeirra hugnast að bera á borð fyr- ir landslýðinn; þarsem menn hugsa helst ekki um annað en að kyrja sitt já-já-já eða je-je-je sam- kvæmt viðteknum þjóðarsið - nema kannski helst í „þjóðarsál" Ríkisútvarpsins; þarsem halelúja er andsvarið við öllu sem máttar- völdin hugsa og gera; þarsem lýð- urinn unir sæll við kjötkatlana og veit engan heim betri en þann sem er, ekkert samfélag ágætara en það sem við búum við, engar hug- myndir ákjósanlegri en þær sem teknar vora í arf frá forfeðranum og ekkert hlutskipti ánægjulegra en mega taka undir við háværan og fagnandi lofkór jábræðra og - systra. Þér nöldrarar og níðhöggar sjálfúmgleðinnar, látið af yðar óþjóölegu iðju, svo þjóðin fái hald- ið svefnró sinni meðan værakærir leiðtogar fanga handa henni óminnishegrann! Sigurður A. Magnússon Skoðanir annarra Bakhjarl menntakerfisins „Opinberir fjármunir eru helsti bakhjarl mennta- kerfisins, þess vegna er óhjákvæmilegt að fjárhags- legt svigrúm í þágu menntamála ráðist af stöðu rík- issjóðs hverju sinni. Ég hef hins vegar lagt mikla áherslu á að við forgangsröðun á verkefnum sem ríkið sinnir eigi að setja menntamál í öndvegi... Við skiptingu á takmörkuðu opinberu fjármagni kom- umst við einfaldlega ekki hjá því að forgangsraða í þágu menntunar, rannsókna og vísinda, ef við vilj- um ná árangri sem þjóð og bæta kjör okkar á varan- legum og traustum forsendum.“ Björn Bjamason í Mbl. 15. nóv. Lenging skólaársins „Vinna hefur ýmis jákvæð áhrif á mótun persónu- leika, en einnig neikvæð. Ríkidæmi íslenskra ungl- inga virðist valda því að þeir taka mun fyrr upp full- orðinsleiki en unglingar í nágrannalöndunum og þeir era ekki allir til góðs. Lenging skólaársins mun því hafa jákvæð áhrif á atvinnuleysi, unglingamenn- ingu, menntímarstig þjóðarinnar og framleiðni fjár- muna bundinna í skólamannvirkjum.“ Gunnar Páll Pálsson í Degi-Tímanum 15. nóv. Dýrkeyptur trassaskapur „Óneitanlega er það Alþýðuflokknum til nokkurr- ar hneisu að varðveita ekki arfleifð sína betur en svo, að á áttatíu ára afmæli skuli ekki einu sinni vera hægt að nálgast þokkalegan upplýsingapésa um flokkinn, að ekki sé talað um vandað og gagnrýnið yfirlitsrit um sögu hans. Þá hlýtur það að standa jafnaðarmönnum nærri, að stuðla að því að saga helstu áhrifamanna hreyfmgarinnar sé skráð af þeim sem best kunna til verka. Trassaskapur flokks- ins við eigin sögu hefur því miður orðið honum dýr- keyptur." Úr forystugrein Alþbl. 15. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.