Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996
29
Fréttir
Trassað að sækja hross í Oddsstaðaafrétt:
Þau hafa það gott
í grösugu landi
segir Kristján Davíðsson, bóndi á Oddsstöðum
„Vissulega þurfa menn aö sækja
þessi hross en ég hef ekki nokkrar
áhyggjur af þeim, veit reyndar fyrir
víst að þau hafa það gott. Þau eru í
afrétti hér sem liggur að landinu
okkar, í svokaUaðri Lundartungu,
og þar er gott og grösugt land,“ seg-
ir Kristján Davíðsson, bóndi á Odds-
stöðum í Lundarreykjadal, en DV
hafði spumir af því að bændur þar
í sveit hefðu trassað að sækja hóp
hrossa í sameiginlegan afrétt Lund-
arreykjadalshrepps og Andakíls-
hrepps og að enginn vissi hvernig
þeim reiddi af.
Kristján segir að þegar hafi verið
smalað tvisvar og síðan flogið yfir
landið. Til hafi staðið að sækja það
sem sást í því flugi en menn hafi
ekki sett það í forgangsröð. Menn í
sveitinni greinir á um fjöldann,
sumir segja að þama séu tuttugu
hross en Kristján segir þau vera að-
eins sjö. Undir það tekur Jón Böðv-
arsson, oddviti Lundarreykjadals.
„Eitthvað af þessum hrossum
-slapp yfir girðingu eftir að búið var
að smala og þau em ýmist utan eða
innan heimalands Oddsstaða. Tiðar-
farið hefur verið mjög gott að und-
anfomu og því ætti ekki að væsa
um þau. Ég veit ekki til þess að
neinar reglur segi til um það
hvenær menn eigi aö vera búnir að
sækja hross í afrétt en meðan veðr-
ið er ekki verra en þetta hef ég eng-
ar áhyggjur. Ég hugsa þó að farið
verði að nálgast hrossin á næstu
dögum,“ segir Jón Böðvarsson odd-
viti. -sv
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Vírinn settur fastur á endastaurana.
DV-mynd ÖÞ
Ahrif slyddu og ísing-
ar á raflínur mæld
Afmælis-
tilboi á
BK
kjúklingi
tilefni 2ja ára afmæiis Boston kjúkiings bjóöum
við eftirfarandi dúndur kjúklingatilboö:
DV, Fljótum:
í haust hafa starfsmenn Raf-
magnsveitna ríkisins á Sauðárkróki
reist þrjár staurasamstæður
skammt frá Brúnastöðum í Fljótum.
Þessi raflína, sem þó er enginn
straumur á, er 220 metrar að lengd
og talsvert sterklegri en venjuleg
háspermulína enda er hún sett upp
til að afla margvíslegra upplýsinga
um áhrif veðurs á staura og línu-
búnað. Raflinan samanstendur af
tveimur þriggja straura samstæðum
og einni tveggja í miðjunni.
Raflínuvír að mismunandi gild-
leika er notaður og á hann - í
millimastrinu - eru fest mælitæki.
Eiga þau að veita upplýsingar um
margvíslegt álag á línunni, ekki síst
af völdum slyddu og ísingar en
einnig um hitastig og vindstyrk.
Nægilegt er að lesa af mælitækjun-
um tvisvar á ári.
Þessi mæling er ein af 40 slíkum
sem framkvæmd er hér á landi og
er liður í alþjóðlegu samstarfsverk-
efni sem fjöldi þjóða tekur þátt í. Er
einn umsjónarmaður með verkefh-
inu í hverju landi. Fyrir ísland er
það Árni Jón Elíasson á Kirkjubæj-
arklaustri.
Þess má geta að upphaflega átti að
nota gamla línu sem komin var úr
notkun til mælinganna í Fljótum.
Hún hnmdi hins vegar í októberá-
hlaúpinu í fyrra og var því brugðið á
það ráð að reisa nýja og styrkja hana
sérstaklega með stöngum enda stend-
ur línan á þeim slóðum sem ísing
hefur oft valdið miklum skemmdum.
Guðmundur Hjálmarsson hjá Rarik
hafði umsjón með uppsetningu lín-
unnar í Fliótum. -öi>
Kjúklingabitinn á aðeins
Grillaður kjúklingur
m/stórum frönskum
99 kr.-
999 kr.
Yfir 500 þúsund kjúklingabitar seldir á 2 árum.
Tilboðið gildir frá 18.11 - 81.11 1996.
íÍSK^
Grensásvegi 5 • S: 588 8585
Essó Blönduósi
„Seldist nýja
aarnið upp?
Nœsta sending
verður komin
norðurá
morgun!a
Hvern virkan daga ekur fjöldí bíla frá
Reykjavík til Akureyrar, með margskonar
farm - allt frá smápökkum til þungavöru.
Þar taka bílstjórar FMN, samstarfsaðila
Landflutninga-Samskipa, við vörum og
pökkum og aka þeim áfram til
viðskiptavina um allt Norðurland.
dmtningar
J SAMSKÍP
Skútuvogi 8, Reykjavík. Sírni: S69-8400. Fax: 569-86S7.
Afgreiðslutími: Mánudaga-fimmtudaga 8-17,föstudaga 8-16
ARGUS & ÖOKIN /SÍA