Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Page 5
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 5 DV Fréttir Rætt um lækninga- mátt líkamans Náttúrulækningafélag Reykjavik- ur efnir til málþings í Þjóðleikhús- kjallaranum miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 20.30 þar sem fjall- að verður um lækningamátt líkam- ans og hvort innan heilbrigðiskerf- isins sé of mikið fjallað um sjúk- dóma og of lítið um heilbrigði. Kynntar verða kenningar banda- ríska læknisins Andrews Weils sem segir nútíma læknisfræði vera of háða tæknilegum framförum og leggja of mikla áherslu á að kveða niður sjúkdómseinkenni án þess að leita að rótum vandans. Hann telur einnig að læknisfræði Vesturlanda hafi of lítið lært af læknisfræði Austurlanda. Kjami kenninga Weils er að lækningamætti líkam- ans sé ekki nægilega sinnt. Dr. Andrew Weil er læknir frá Harvardháskóla, var um tíma yfir- maður National Institute of Mental Health og er nú forstöðumaður læknadeildar háskólans í Tucson i Arizona. Hann hefur skrifað mikið í blöð og tímarit, enn fremur nokkrar bækur sem flestar hafa orðið met- sölubækur. Sú síðasta, Spontaneous Healing, er nú komin út á íslenzku undir heitinu „Lækningamáttur lík- amans“. Á málþinginu les Gunnar Eyjólfs- son leikari kafla úr bókinni. Þor- steinn Njálsson læknir kynnir dr. Weil. Síðan verða pallborösumræð- ur undir stjóm Áma Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins. Þátttak- endur verða Gunnhildur Valdimars- Húsavík: Víkurblaðið til sölu eða leigu dóttir hjúkrunarforstjóri, Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðing- ur Manneldisráðs, Sigurbjöm Birg- isson, lyflæknir og sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur í smit- sjúkdómum, og Þórarinn Sveinsson, yfírlæknir krabbameinsdeildar Landspítalans. Guðmundur Bjöms- son yfirlæknir stjórnar málþinginu. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Nicotmell' Gott bragð til að hætta að reykja! DV, Akureyri: „Við erum að skoða alla mögu- leika sem felast í stöðunni og það kemur nánast allt til greina,“ segir Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri og einn þriggja eigenda Víkurblaðsins á Húsavík, en í síðasta tölublaði Víkurblaðsins var það auglýst til sölu eða leigu. Á þessu ári hefur Víkurblaðið verið í samstarfi við Húsvíska fjöl- miðlun hf. sem tók að sér rekstur og bókhald þess. Óvíst er hvort sá sam- starfssamningur, sem rennur út um áramótin, verður endumýjaður. Víkurblaðið hefur komið út síðan 1979. Það er í eigu Amars Bjömson- ar, íþróttafréttamanns Sjónvarps- ins, Kára Amórs Kárasonar, fram- kvæmdastjóra Lifeyrissjóðs Norður- lands, og Jóhannesar Sigurjónsson- ar sem hefur ritstýrt blaðinu alla tið og reyndar rekiö það einn um ára- bil. Jóhannes segir eitt ljóst í sam- bandi við framtíð blaðsins, sú staða að hann ritstýri blaðinu og sjái al- veg um þaö að öðra leyti komi ekki upp aftur. -gk Eyrnalokkagöt Nú einnig Nýjung - gull í gegn 100 gerðir af eymalokkum 3 stœrSir Nú er komið nýtt,ferskt og betra bragð í baráttunni við reykingarávanann; Nicotineli nikótíntyggjó. Ferska bragðið í Nicotinell nikótíntyggjóinu er einmitt bragðið sem þú þarft til þess að hætta að reykja. Nicotinell hefur sömu eiginleika og venju- legt tyggjó og fæst bæði með ávaxta- og pipar- myntubragði. Komdu í næsta apótek og fáðu bækling um það hvernig Nicotinell tyggjóið hjálpar þér best í baráttunni við tóbakið! Tyggðu frá þér tóbakið með Nicotinell! Nicotinell tyggigúmml er notað sem hjálparetni til þess að haetta reykingum. Það inniheldur nikótin sem losnar úr því þegar tuggið er, Irásogast í munninum og dregur úr tráhvariseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn en ekki má tyggja lleiri en 25 stk. á dag. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragði og (2 styrkleikum, 2 mg og 4 mg. Nikótlnið i Nicotinell getur valdið aukaverkunum s.s. svima, höfuðverk, ógleði og hiksta. Einnig ertingu í meltingartærum. Böm yngri en 15 ára moga ekki nota Nicotinell tyggigúmmí án samráðs við lækni. Barnshafandi konur og konur með bam á brjósti eiga ekki að nota nikótínlyf. Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota Nicotinell án þess að ráðfæra sig við lækni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.