Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 22
30 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 Fréttir Jarðhitaleit við Svignaskarð DV, Vesturlandi: Jarðhitaleit í landi Svigna- skarðs í Borgarhreppi í Borgar- firði hefst á næstu dögum. Um er að ræða fyrstu athuganir á jarð- hita fyrir hreppinn. Boraðar verða nokkrar tilraunaholur og er það Kristján Sæmundsson hjá Orku- stofhun sem hefur umsjón með jarðhitaleitinni. Finnist nýtanlegt vatn á þessu svæði er hugmyndin að það verði lagt í þann hluta hreppsins sem liggur að Gljúfurá og aö bæjar- mörkunum við Borgarnes. Eini möguleikinn fyrir hinn hluta hreppsins er að tengjast Hita- veitu Akraness og Borgarfjarðar. Mikil íjöldi sumarbústaða er á þessum slóðum og ef heitt vatn finnst þar munu hitaveitufram- kvæmdir i Borgarhreppi byggjast á því að meirihluti sumarbústað- anna taki inn heitt vatn og allar bújarðir. Þá hefur aö undanfómu farið fram könnun á vegum Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar um hugsanlega tengingu bæja og sum- arbústaða í Andakílshreppi við veituna. Um er að ræða þar 12 að- ila og var áætlað að þeir og sljóm Hitaveitu Akranes og Borgarfjarð- ar mundu funda um málið í vik- unni. -DVÓ Komdu á Bragagötuna og upplifðu nýja vídd í Pizzum, þar sem pizzur eru ekki „bara pizzur" heldur ein besta fáanlega varan á markaðnum og okkar framlag til listar og menningar. Á Eldsmiðjunni geturðu valið úr tæplega 50 áleggstegundum úr öllum áttum. Nóvembertilboð: 16" 1 kjötál. og 2 önnur, 2 I. Coke kr. 1490,- 12 ” 1 kjötál. og 2 önnur, og 'A I. Coke kr. 1150,- Heiödís Halla, Katrín Högnadóttir og Rúnar Snær voru meöal þeirra sem fluttu framsöguerindi. DV-mynd Sigrún Málþing barna á Egilsstöðum: Meiri fræðslu um fjármál og kynlíf DV, Egilsstöðum: Meiri umfjöllun um jákvæð við- fangsefni bama og unglinga, munur á aðstöðu til náms í dreifbýli og þéttbýli, meiri fræðsla um fjármál og fíkniefni, meiri kynfræðsla, rýmri útivistarreglur. Þetta var meðal annars það sem kom fram í framsöguerindum á Málþingi barna sem haldið var á Egilsstöðum. Frummælendur voru unglingar og vora þeir ófeimnir við að segja þeim fullorðnu til synd- anna. Þau sem fluttu erindi vora Amar Birgisson og Auður Anna Antons- dóttir, Eskifirði, Katrín Högnadótt- ir, Fáskrúðsfirði, Heiðdís Halla Bjamadóttir og Rúnar Snær Reynis- son, Egilsstöðum og Sandra Bald- vinsdóttir Neskaupstað. Á eftir framsöguerindum vora pall- borðsumræður þar sem frammá- menn í héraði og á Alþingi sátu fyr- ir svöram; Halldór Ásgrímsson, Ambjörg Sveinsdóttir, Amgrímur Blöndal, Þuríður Bachmann og Helgi Halldórsson. Unga fólkið not- aði óspart tækifærið og lagði ófeim- ið fram spurningar framan úr sal. Milli erinda vora skemmtiatriði. Þar komu fram tvær telpur úr Fella- bæ, Berglind Guðgeirsdóttir, 14 ára, söng tvö lög og Þórann Gréta Sig- urðardóttir las kafla úr Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson. Málþingið var haldið að fram- kvæði umboðsmanns bama, Þór- hildar Líndal, og sagði hún i viðtali við DV að það hefði tekist frábær- lega vel og greinilega verið vel und- irbúið af hálfu heimamanna. í fram- sögu hinna ungu fyrirlesara hefðu komið fram athyglisverðir punktar. Þar mætti nefna að þau vildu fá meiri fræðslu um fjármál og kynlíf. Þau lögðu áherslu á að þau byggju ekki við jafnan rétt til náms, að útivistarreglur væra strangar og ekki gerður nógu mikiil munur á útivistarreglum eftir aldri og þau lögðu mikla áherslu á hve umfjöllun fjölmiðla um ungt fólk væri nei- kvæð. Alltaf væri tíundað það sem miður færi en gleymdist að fjalla um allt það jákvæða sem böm og unglingar væru að fást við. Þórhild- ur sagðist vera ánægð með þá at- hygli sem þingið hefði fengið. Hún hefði heimsótt fræðsluumdæmi á Vesturlandi og því hefði sér fundist rétt að efha til málþings hér eystra. Hermann Valsson, æskulýðs- og íþróttafulltrúi á Egilsstöðum, var einn þeirra sem stóðu að undirbún- ingi þingsins fyrir austan. Hann sagði að nú þegar væri unnið að tveim málum í beinu framhaldi af ábendingum irnga fólksins. Annars vegar að koma upp aðstöðu fyrir skellinöðrueigendur og hins vegar að leggja áherslu á mjög aukna flkniefnafræðslu, áfengi og tóbak að sjálfsögðu meðtalið. Fjölmenni sótti þingið og var unga fólkið greinilega í meirihluta. -SB Áskrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV 4 Smáauglýsingar 550 5000 Neskaupstaður: Stefnir í söltunarmet DV, Neskaupstað: Síldarsöltun hér í Neskaupstað gengur mjög vel og það stefhir í nýtt met hjá Síldarvinnslunni. Búið er nú að salta í 37000 tunnur og er það meira en búið var að salta þann 20. desember í fyrra. Þá voru saltaðar á allri vertíðinni 43000 tunnur hjá Síldarvinnslunni. Það eru skipin Börkur NK 122 og Jón Sigurðsson GK sem hafa séð síldarvinnslunni fyrir hráefhi. Mikil aflaskip. -HS Börkur og Jón Sigurösson við bryggju á Norðfirði. DV-mynd Hjörvar éé| - „' - -V,, o,,,. : ! C! ef þú greiðir áskriftina meö beingreiðslum o o 0 Þeir sem greiöa áskriftina meö beingreiöslum fá 5% afslátt af áskriftarveröi miðaö viö þá sem greiöa meö gíróseöli. Þú græöir því einn og hálfan sjónvarpsdag í hverjum mánuöi og sparar þér auk þess ferö í bankann. Allar nánari upplýsingar um beingreiðslu færöu hjá viöskiptabanka þínum eöa áskriftardeild Stöövar 2, (sími 515 6000) - ( grænt númer 800 6161 ) í 18 Philips 29” sjónvarpstæki Heimi^ekiht Á V i vcrðlaun til jóla fyrir þá sem greiða áskriftina nieð beingreiðsju J í beingreiðslu er áskriftargjaldið millifært bcint af reikningi þínu í banka/sparisjóði. / / sm-2 FJOLVARP svn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.