Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Side 31
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 39 Fréttir 8 I I I I 8 Djúpivogur: Ráðherrastofa Eysteins I i I I I > V; Djúpavogl: Það var mikill hátíðisdagur á Djúpavogi 13. nóvember þegar for- seti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði ásamt Sigríði Ey- steinsdóttur safn til minningar um Eystein Jónsson ráðherra og konu hans, Sólveigu Eyjólfsdótt- ur, í Löngubúð. Hefur safnið hlotið nafnið Ráðherrastofa Ey- steins Jónssonar. Fjölmenni var við athöfnina, afkomendur og ættingjar Ey- steins og Sólveigar og margt mætra manna var saman komið í Löngubúð. Halldór Ásgríms- son, formaður Framsókn- arflokksins, flutti ávarp, Vil- hjálmur Hjálmarsson minntist Eysteins á léttum nótum og ávarp fyrir hönd aðstandenda flutti Eyjólfur Eysteinsson. Ólaf- ur Ragnarsson sveitarstjóri flutti einnig ávarp. Kór Djúpa- vogskirkju söng við undirleik og stjórn Daníels Arasonar. Dagný Erla Ómarsdóttir, nemandi i tón- skólanum, lék á píanó ásamt Daníel. í lokin opnaði forsetinn safnið ásamt Sigríði. Kven-félagskonur sáu um kaffiveitingar. Forsaga málsins er sú að 1995 gáfu erfíngjar Eysteins og Sólveigar Djúpavogshreppi rausnarlega gjöf úr dánarbúinu og framfylgdu með því hinsta vilja þeirra hjóna. Þetta eru allt persónulegir munir hjón- anna. Má þar nefna skrifborð sem Eysteinn notaði alla tíð við störf sín og skrifborðsstól með útsaumi Sól- veigar. Þá eru myndir af þeim ríkis- stjómum sem Eysteinn sat í. Eiimig fylgdu hannyrðir Sólveigar, þar á meðal síðasti púðinn sem hún saumaði, 83 ára. Meðal éldri muna má nefna hnakktösku og svipu Jóns Finns- sonar, föður Eysteins, og signet Kristínar Finnsdóttur, systur Jóns. Þá lögðu ættingjar fram 2,4 milljón- ir til að hægt væri að koma ráð- herrastofunni upp. Seint verður gjöf þessi metin til fjár og ber hún því vitni hve mikinn hlýhug þau hjónin báru til staðarins. Eysteinn Jónsson fæddist í Hrauni á Djúpavogi 13. nóv- ember 1906. Foreldrar hans voru Sigríður Hansdóttir Beck og Jón Finnsson prest- ur. Bróðir Eysteins var séra Jakob Jónsson. 1933 var Ey- steinn kosinn sem þingmað- ur S-Múlasýslu, aðeins 26 ára að aldri, og gegndi þing- mennsku óslitið til 1974. Hann varð fjármálaráðherra 1934, yngstur allra, 27 ára. Eysteinn kvæntist Sólveigu Eyjólfsdóttur 20. febrúar 1932 og eignuðust þau 6 böm. 1989 var brjóstmynd af Ey- steini reist á Hliðarenda- kletti og var hún sett upp í virðingar- og þakklætisskyni. Verk- ið var unnið af Ríkarði Jónssyni frá Strýtu en Langabúð mun jafnframt hýsa listasafn Ríkarðs sem afkom- endur hans gáfu Djúpavogshreppi 1994. Gert er ráð fyrir að það verði opnað formlega í júní 1997 en þá verður endurbyggingu Löngubúðar fulllokið. Synir Eysteins, Eyjólfur og Jón, til vinstri, Viihjálm- ur Hjálmarsson, Ólafur Ragnarsson og forseta- hjónin. Póstur 6 daga til Hafnar V, Hö£n: Homfirðingar finna á ýmsan hátt fyrir vegasambandsleysinu eftir Skeiðarárhlaupið og það getur til dæmis tekið hátt í sex daga að koma pósti milli Reykjavíkur og Hafnar. Það væri vel skiljanlegt ef engar ferð- ir væru milli staðanna en svo er ekki. Tvær til þrjár flugvélar koma daglega. Þetta hefði ekki þótt umtalsvert fyrir nokkrum árum en síðustu árin hefur póstþjónustan verið mjög góð - póstur kominn til viðtakenda dag- inn eftir að hann var póstlagður. Starfsmaður pósthússins á Höfn sagði að þaðan færi póstur daglega í flug en hann færi líklega ekki milli staða nema þegar stóru flugvélarnar kæmu. Júlía usssss... er pressan í gangi? jt/N-Am ? Já. auðvitað. Það er hins- vegar ekki víst að þú heyrir í henni, því að í yfir 30 ár hefur Jun-Airverið brautryðjandi í framleiðslu á hljóðlátum loft- pressum og er leiðandi á þeim markaði. Þurfir þú hljóðláta loftpressu, vetdu Jun-Air. JUN-AIR - þessar htjóðlátu! SKÍIIASOH SJÓHSSOH VERSLUN ■ SKÚTUVOGI 12H • REYKJAVÍK ■ SÍMI 568-6544 „í&lendingar eru hamingjn&ama&ta þjóð í heimi" - hluti hamingjunnar ftelót náttúrlega í því að gera góð kaup Góð kaup þurþa ekki að þýða lœgita verð. Gœðin ikipta tíka máli. Berðu alltat iaman verð og gœði. í&len&kur iðnaður á heim&mœlikvarða SAMTÖK IÐNAÐARINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.