Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 40
> C3 O FRÉTTASKOTIÐ CC <—J LU SÍMINN SEM ALDREI SEFUR ^ o Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. s un |E h— LTD 550 5555 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 Forsetaheim- sókn til Danmerkur Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans, Guörún Katrín Þorbergsdótt- ir, halda í dag til Danmerkur í fyrstu opinberu heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar til útlanda. Heimsóknin stendur til 21. nóvem- ber en í Danmerkurheimsókninni biður forsetahjónanna fjölbreytt dagskrá. Auk hefðbundinna við- hafnarkvöldverða munu forseta- hjónin meðal annars verða viðstödd opnun á sýningunni Nordatlanten í Kaupmannahafnarháskóla, heim- sækja stofnun Árna Magnússonar og Pizza 67 sem íslenskir aðilar opn- uðu nýlega í Kaupmannahöfn. -JHÞ Nýr vegur í Fljótum: Lagður á skökk- um stað að hluta - verktakinn fékk röng mæligögn, segir Vegagerðin Um 2-300 metra kafli af 4 km vegarspotta skammt norðan við Hraun í Fljótum í Skagafirði hef- ur verið lagður á skökkum stað vegna þess að verktakinn sem unnið hefur að lagningu vegarins fékk í hendur rangar staðsetning- ar á veglínunni frá Vegagerðinni. Verktakinn, V. Brynjólfsson sf. á Skagaströnd, hafði boðið 22 miiljónir í verkið en vegna vill- unnar á teikningunum sem hann fékk í hendur bætist í kringum ein milljón við þá upphæð, að sögn Gunnars H. Guðmundsson- ar, umdæmisverkfræðings Vega- gerðarinnar á Sauðárkróki. „Verktakinn var nú ekki að leggja veg á allt öðrum stað en hann átti að gera. Hann var hins vegar ekki með rétt útsetningar- gögn fyrir hluta af vegarkaflan- um sem þess vegna er ekki alveg á þeim stað sem hann átti að vera.“ Gunnar segir að þegar ver- ið sé að hanna veglínur komi oft margir kostir til greina um hvar þær skuli liggja. Menn hafi þama tekið í misgripum úr tölvu tillögu að vegiinu sem búið var að haöia. Veglínur eru, að sögn Gunnars, teiknaðar í tölvu sem mötuð hef- ur verið á mæligögnum eða hnit- um. Það sem gerðist í þessu til- felli hafi senniiega verið það að menn hafi prentað út rangt skjal og verktakinn þess vegna fengið í hendur röng mæligögn og þessi tiltekni vegarkafli þess vegna lít- Ulega færst til frá því sem upp- haflega var ráðgert. „Þessi mistök höfðu vissulega kostnaðarauka í för með sér en við notuðum tækifærið um leið og hækkuðum veginn sem þá verður vonandi betri með tilliti til snjóa svo að þegar upp var staðið voru menn í sjáífu sér ánægðir með þetta,“ segir Gunn- ar. Hann segir að áætla megi að heildarumframkostnaður vegna þessarar villu sé um ein milljón króna. -SÁ Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld og kennari, fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrst manna og afhenti Björn Bjarnason menntamálaráðherra þau við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands á laugardag. Fyrir aftan þau stendur Ögmundur Helgason. Vilborg er einnig handhafi Menningarverðlauna DV. DV-mynd Teitur Barði hús- bóndann tvlvegis í andlitið „Ég sat og talaði í símann þegar maðurinn gægðist hérna upp á stigapallinn. Ég hélt þetta væri eitt- hvert grín en síðan kom hann inn ganginn í átt að mér og lét mig hafa það óþvegið. Hann sagði: „Þarna ertu, helvítið þitt, nú er nóg komið.“ Síðan barði hann mig tvívegis í and- litið með krepptum hnefa,“ segir Jó- hann Alexandersson, íbúi í Kefla- vík, um það þegar karlmaður réðst inn á heimili hans og konu hans, Kristínar Árdal Antonsdóttur, á föstudagskvöld. Jóhann og Kristín er bæði öryrkjar á sjötugsaldri. Jóhann segir manninn hafa veist fyrst að sér með höggum í andlitið, slitið síðan símtólið úr sambandi og barið sig með því. „Ég náði að verja mig með hönd- unum og fékk þá tólið í handlegg- inn. Þegar hann síðan sneri sér að konu minni og ætlað að ráðast á hana spurði hún hvort hann ætlaði að ráðast að gamalli konu með hækjur. Þá virtist hann átta sig og gekk rólegur út. Ég hef aldrei séð þennan mann áður og veit ekki hvað honum gekk til,“ segir Jó- hann. Hann segist þess þó fullviss að þau hjónin myndu þekkja hann ef þau sæju hann aftur. Jóhann segir þau hjónin bæði sjokkeruð eftir atburðinn. Hann var sjálfur hálfvankaður eftir högg mannsins en teliu: árásarmanninn vera 35-40 ára. Maðurinn var snyrtilega klæddur en lyktaði af áfengi. Hann var ófundinn í gær- kvöld en rannsóknardeild lögregl- unnar í Keflavik mun rannsaka málið. -sv Fokker í vanda: Nefhjólið vildi ekki niður Fokkervél Flugleiða, sem var að koma frá Akureyri um hádegisbil í gær, þurfti að lenda á Keflavíkur- flugvelii þar sem ljós i flugstióm- arklefa gaf til kynna að nefhjól vélar- innar færi ekki niður. Vélinni var því snúið af leið frá Reykjavíkurflug- velii og allt sett í gang í Keflavík til þess að undirbúa magalendingu. Til þess kom þó ekki því hægt er að setja nefhjól vélanna niður hand- virkt og gekk það í þessu tilviki. Þrjátíu og einn farþegi var um borð í vélinni og voru allir fluttir með langferðabílmn til Reykjavíkur. -sv L O K I Veðrið á morgun: Él fyrir norð- an, léttskýjað fyrir sunnan Á morgun er gert ráð fyrir frek- ar hægri norðlægri átt. Norðan til og norðaustan verður dálítill élja- gangur en léttskýjað sunnan til. Frost verður á öllu landinu, kald- ast inn til landsins, en við strönd- ina verður frostið á bilinu 1 tfl 8 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 BpiHÍ Corsa Verð frá 980.000.- Bílheimar ehf. '#. □ G3 © Sævarböfba 2a Sími: 525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.