Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1996, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
Spurningin
Ætlar þú aö virða
bindindisdaginn?
(Spurt á bindindisdaginn)
Marteinn Sveinsson meindýra-
eyöir: Ég læt tímann leiða það í
ljós.
Marín Kristjánsson nemi: Já, því
skyldi ég ekki gera það i dag eins og
alla aðra daga?
Sveinn Jónsson verkamaður: Ó,
nei.
Guðjón Aðalsteinsson stýrimað-
ur: Auðvitað.
Grétar Sigurðsson verkamaður:
Já.
Bjarni Ágústsson: Já, það ætla ég
að gera.
Lesendur______________
llla menntuö og
ofdekruö þjóö
Sigrún Guðmimdsdóttir skrifar:
Þeir segjast hafa orðið fyrir áfalli,
prófessoramir, dósentarnir og lekt-
oramir, sem rætt er við vegna nið-
urstöðu fjölþjóðlegu rannsóknarinn-
ar á þekkingu nemenda í stærð-
fræði og náttúrufræðigreinum. ís-
lensku börnin komu mjög illa út.
Vora í neðstu sætunum, og samt
teljum við íslendingar okkur til
menntaðra þjóða með háan lífs-
standard. Menn standa á öndinni og
spyrja spuminga, sem þó er alveg
óþarfi að spyrja. - Svör við þessu
era einföld: agaleysi og ofdekur á
bömum, sambandsleysi við forráða-
menn (foreldra, ekki kennara) og
þrákelkni við að halda í úrelt
menntakerfl.
Ég heyrði utan að mér viðtal í
einni útvarpsstöðinni þar sem rætt
var einn forystumann á kennslu-
sviðinu. Hann gaf kannski ekki
mikla vísbendingu um hvað væri að
hér, en hann fullyrti að ekki væri
ráð að ganga jafn langt í aðhaldi og
aga og t.d. tíðkaðist í Japan. En aga-
beitingu þar gagnvart skólafólki er
við bragðið. Og ekki er það síðra i
Singapore, sem kom best út úr
hinni fjölþjóðlegu rannsókn á þekk-
ingu nemenda.
Nei, auðvitað ekki. - Það á ekki
að leita orsakanna í agaleysi ís-
lenskra bama og ungmenna. Það
má heldur ekki minnast á þegn-
skylduvinnu unglinga. Allar aðrar
þjóðir hafa herskyldu sem auðvitað
gengur mest út á aga og hlýðni. Það
situr eftir hjá foreldrunum við upp-
eldi bamanna. Við viljum ekki svo-
leiðis, við viljum bara fá aðkeypta
vörn fyrir land og þjóð. - En það er
svo annar handleggur og miklu
lengri.
Það sem hér þarf til fyrst og
fremst er gjörbylting í skólamennt-
un barna, allt frá byrjunarferlinum.
Kennsla í tjáningu, munnlegri og
líkamlegri, er fyrsta skrefið. Annað
skrefið er tungumálakennsla frá 7
eða 8 ára aldri. Byrja á ensku, síðan
einu Norðurlandamáli og þá
spænsku, þýsku eða frönsku eftir 10
ára aldur. - Og það sem þessu á að
fylgja í stórauknum mæli, líka frá
7-8 ára aldri, er aukin kennsla í
stæröfræði, eðlis- og efnafræði.
Móðurmálskennslu á líka að auka
þá með raunhæfari hætti en nú er.
Láta krakka lesa upp standandi fyr-
ir framan bekkinn og tjá sig um það
sem þau lásu og fá bekkinn til að
gagnrýna eða taka undir.
Hér væri um gjörbreytingu að
ræða. Og byrja á strax. Það þarf
enga nefnd í málið. Bara samþykkja
lagafrumvarp, svo að menntamála-
ráðuneytið geti hafist handa um út-
gáfu nýrrar tilskipunar fyrir skól-
ana.
Kennsla í tjáningu, munnlegri og líkamlegri, er fyrsta skrefið, segir hér m.a.
Ríkisútvarpið með nefskatti
Haraldur Guðnason skrifar:
Enn einn doðranturinn um Ríkisút-
varpið og um rætt í bili. Svo upp í
hillu og gleymist eins og allir hinir.
Árangur vinnu skýrsluhöfunda,
m.a. laun þeirra. Þar er þó sitthvað
að athuga.
Ýmislegt í tillögum höfunda kæmi
notendum (nú neytendum) vel, en
verður ekki framkvæmt - eins og til
dæmis, að Ríkisútvarpið hverfi al-
veg af auglýsingamarkaði. Það væri
nú munur! - Öll morðin og spreng-
ingamar frá kvikmyndahúsunum,
heiti potturinn Háskólans og annað
af verri endanum sæist ekki meir.
Tekjuöflun af „kostun“ félli niður,
þessar endemis sníkjur.
Útvarpsráð lagt niður (mætti alveg
missa sig). Þessi flokkapólitíska
ráðstjóm færi frá sem fyrst og stofn-
unin sæi um sig sjálf. Hún er vel
fær um það. Og afnotagjöldin lögð
niður en Rikisútvarpinu verði aflað
tekna með nefskatti af öllum lögað-
ilum.
Sumir vilja selja rás 2. - Hvað þá
um geðheilsu allra þeirra góðu
karla og kvenna sem gera sig þar
heimakomna og tuða um allt og
ekkert til að heyra rödd sína í út-
varpi? Og hvað um vesalings Gróu?
Að lokum: Ég er á móti þvi að „gam-
all Árnesingur" fari heim. - Alls-
herjargoðann til Þingvalla. Engin
spurning.
Stórkarlarnir hjá Byggðastofnun
- hafa svörin og stuöninginn
Bjöm Bjömsson skrifar:
Málefni hinna ótæmandi sjóða
Byggðastofnunar og stórkarlanna
þar era enn i sviðsljósinu. Nú er
það stjórnarformaðurinn sjálfur,
sem er líka þingmaður og bóndi,
sem hefur svörin á hraðbergi þegar
hann er inntur eftir því hvort það
kallaði ekki á grandsemdir að nán-
ir ættingjar og sonur hans sjálfs
fengu lán úr þessum umdeilda
sjóði. - „Óskaplega kjánaleg og
gamaldags umræða."
Svona tala þeir einir sem era
staðráðnir í að gefa aldrei eftir í
neinu máli og jafnt þótt almenningi
ofbjóði vafasamt framferði og end-
urtekningar á siðferðisbrotum í op-
inberam embættmn.
Svona tala þeir líka í Belgíu í
En stórkarlamir hjá Byggða-
stofnun, stjómarformaðurinn og
varaformaðurinn, sem báðir létu
gott af sér leiða fyrir bömin sin í
Stórkarlarnir í Byggðastofnun: Egill Jónsson og Stefán Guömundsson al-
þingismenn. - Hafa þeir stuöninginn?
þingnefndinni sem gerir nú allt til
að verja aðstoðarforsætisráðherr-
ann sem ásakaöur er um óhugnan-
leg kynferðisbrot gagnvart bömum.
Þingnefndin belgíska mælir gegn
því að þessi óhugnanlega persóna
verði dregin fyrir lög og rétt. -
Skyldum við íslendingar kannast
við mál svipaðs eðlis hér?
gisti- og veitingabransanum, þeir
hafa bæði svörin og stuðninginn.
Stuðninginn frá stjómsýslunni eins
og hún leggur sig. Það er ekki leið-
um að líkjast: þingnefnd belgíska
þingsins og skjólstæðingum henn-
ar. - En: „Með lögum skal land
byggja." Ekki satt?
x>v
Forsetahjónin
vinna á
Halldór Guðmundss. hringdi:
Ég var ekki einn þeirra sem
kusu Ólaf Ragnar Grímsson og
var ekki tiltakanlega ánægöur
með kjör hans. Eftir á finnst mér
þó koma æ betur í ljós að Ólafur
Ragnar og kona hans eru líklega
þau einu sem hefðu getað valdið
því að sitja Bessastaði með
þeirri reisn sem við öll viljum.
Heimsókn forsetahjónanna til
Danmerkur er mikil skrautfiöð-
ur í forsetaembættið islenska.
Mér finnst Ólafur Ragnar Gríms-
son og frú Guðrún Katrín vinna
á eftir hverja opinbera athöfn.
Perlan umferð-
armiðstöð
Ragnar skrifar:
Ég tek undir skrif Bjöms
Valdimarssonar í Mbl. fóstudag-
inn 22. þ.m. undir yfirskriftinni
„Perlan er góð járnbrautarstöð“.
Auðvitað á að gjömýta Perluna.
Hún er baggi á okkur eins og
hún er í dag. Okkur vantar nýja
umferðarmiðstöð og hvað er
annað betur gert við þetta glæsi-
lega hús en koma þar fyrir um-
ferðarmiðstöð? Alhliða umferð-
armiðstöð fyrir langferðabíla,
innanlandsflug og það sem því
tengist: innritun og afhendingu
farangurs. En samhliða verður
að koma upp betra samgöngu-
kerfi milli Reykjavikur og Flug-
stöðvar Leifs Eirikssonar.
Sósíalisminn í
skólunum
B.B. skrifar:
Nú, þegar í ljós kemur að Is-
lenskir krakkar standa krökkum
annarra þjóða langt að baki í
stærðfræði og raungreinum, ber
okkur að leita skýringa. Ekki er
það bekkjarstærðin, því bekkim-
ir era mun fjölmennari í Kóreu
og námsárangurinn jafnframt
betri. - Mín skýring er blönduðu
bekkimir. Þeim sem geta lært er
gert að bíða eftir tossunum í
bekknum. Góðu námsmennimir
í íslenskum skólum eyða skóla-
ævinni í að biða eftir tossunum
samkvæmt skipun námsskrár. -
Þótt sósíalisminn sé dauður ann-
ars staðar lifir hann góðu lífi í
blönduðu (jafnréttis-) bekkjun-
um í íslenska skólakerfinu hjá
menntamálaráðherra. Mikil er
hans ábyrgð.
Lúsin ekki dauð
Sunna hringdi:
Ekki virðist lúsin enn vera út-
læg úr íslenskum skólum.
Kannski er það hún sem er söku-
dólgurinn í lélegum námsár-
angri. Líf lúsarinnar segja menn
lengjast við að fólk sé ekki nægi-
lega varkárt. Ég segi hins vegar:
Þetta er bara landlægur sóða-
skapur íslendinga. Svo einfalt er
það. En nú á að svelta lúsina til
bana þar sem hún hímir á stól-
bökunum og í fatageymslunum!
En er fólki svo leitt sem það læt-
ur? Er lúsin ekki sama ljúfa lús-
in og hún var? Var ekki sagt:
Linur er lúsarlaus maður?
Endurmat á
húsbréfakerfið
Óskar hringdi:
Mér finnst óeðlilegt matið
vegna 'húsbréfalánanna, og að-
eins vera miðað við 18 þúsund
króna afborgun af mánaðarlaun-
um vegna bréfanna. Flestir sem
myndu vilja kaupa sér húsnæði í
fyrsta sinn greiða í dag þetta
30-40 þúsund krónur í leigu á
mánuði. Þeir era því útilokaðir
frá húsbréfunum að veralegu
leyti. Og halda því áfram að
greiða dýra leigu, í stað þess að
greiða þá fjárhæð í afborgun af
húsbréfúm m.a.