Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996 Fréttir Halim kom ekki með börnin til Sophiu Hansen um helgina: Aðdáunarvert hve vel hún stóð vonbrigðin af sér - sagði Ólafur Egilsson sem telur forsendur til samninga við Halim að mestu brostnar „Það er fullljóst af framkomu Halims A1 að honum er ekki treystandi. Hann virðist ekki skiija annað en dóma og vald. Það verður reynt að hafa samband við hann næstu daga og gera honum ljóst hvað til hans friðar heyrir. Að öðr- um kosti er ekkert annað að gera en að bíða niðurstöðu sakadóms en næsta réttarhald er 23. desember,“ sagði Ólafur Egilsson sendiherra sem staddur er í Istanbúl á vegum utanríkisráðuneytisins vegna mála- reksturs Sophiu Hansen. Það eina sem Halim A1 bar fyrir sig sem ástæðu fyrir því að hann kom ekki með dætur sínar til fundar við Sophiu eins og samið hafði verið um í vitna viðurvist fyrir rúmri viku, var að Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu hefði hringt í sig á mánudag í síðustu viku vegna „samkomulags" sem yrði að gera skriflegt. Síðan hefði Hasip ekkert haft samband við sig. Þegar Hasip Kaplan var spurður um þetta sagði hann að Halim hefði hringt í sig á mánudeginum. Hasip sagði hins vegar að fyrir 20 dögum hefði hugsanleg gerð samkomulags komið til tals á miili sín, Halims og lögræðings hans - ekki hefði frekar verið unnið að því en Hasip sagði að hann myndi eiga frekari viðræður við Halim og lögmanninn. Vangaveltur hafa verið uppi um hvort Halim hafi fundist þau tengsl sem greinilega komu fram hjá mæðgunum þremur fyrir viku of mikil - þess vegna hafi hann ekki getað hugsað sér að þær hittust ein- ar aftur, tvo daga í röð. Atburðarásin Á laugardagsmorgun fór Ólafur Egilsson á lögreglustöðina til þess að fara yfir það sem fram undan væri á grundvelli samkomulagsins sem gert var á lögreglustööinni fyr- ir rúmri viku. Samkomulagði hafði verið gert í lok fundar Sophiu og dætranna í viðurvist Ólafs, lögreglu- stjóra og fleiri aöila. Halim hafði heitið því að stúlkumar kæmu aftur til Sophiu á laugardag og sunnudag. Þegar farið var yfir það sem fram undan væri á laugardag var ákveðið að kvenlögregla yrði viðstödd á hót- elinu þegar Sophia hitti dætur sínar. Haft var samband við Halim A1 frá lögreglustöðinni til að fá staðfest- ingu á að hann væri á leiðinni en þá kom í ljós að hann ætlaði ekki að standa við gefin loforð. Hann bar því við aö síðastliðinn mánudag hefði Hasip Kaplan, lög- maður Sophiu, hringt til sín og sagt að gera yröi skriflegt samkomulag um umgengnina en hann hefði síðan ekkert frá Kaplan heyrt. Ólafur sagði að Halim hefði verið brýndur á því að fyrir lægi skýrt fýrirheit um áframhaldandi fundi Sophiu og dæt- ranna. Af Halims hálfu hafði á fúnd- inum fyrir viku verið lögð áhersla á að fallið yrði frá refsimálun- um sem hafa verið höfðuð gegn honum í Bakirkoy, hverfi hans. Honum hafði verið svar- að því að um leið og eðli- legt samband kæmist á milli Sophiu og telpnanna, Rúnu Aysegul og Dagbjartar Vesile, þá kæmi slíkt tO greina - það er þegar Halim heföi sýnt fram á að honum mætti treysta. Hann heföi því tíma núna fram til 23. desember þeg- ar fyrsta réttar- haldið i saka- málinu færi fram til að sanna sig. Ef allt gengi vel á þvi tímabili kæmi til greina að fresta sakamálinu og síð- an eftir atvikum jafnvel áð feíía það niður. Samtölin við Halim Halim var á vinnustað sínum þeg- ar talað var við hann frá lögreglu- stöðinni á laugardag og var honum eindregið bent á hve mikið væri í húfi fyrir hann. Ólafur og stöðvar- stjóri lögreglustöðvarinnar, sem var viðstaddur fundinn fyrir viku þegar samkomulagið var gert, töluðu báðir við Halim. Stöðvarstjór- ixm féllst síðan á að senda menn til að kanna hvort telpumar væru á heimilinu en svo reyndist ekki vera. Þegar Hasip Kaplan var spurður um símtalið á mánudag hélt hann því fram að Ha- lim hefði hringt í sig. Fram hefur komið hjá stuðnings- mönnum Sophiu að það hafi verið óheppilegt að málið skyldi lenda svona á skjön við þann farveg sem það hafði komist í með endurfund- um Sophiu og dætranna fyrir viku. Þegar leið á laugardaginn var aft- ur rætt við Halim en hann gaf sig hvergi, fór undan í flæmingi og reyndi með yfirvarpi að koma sér undan því að svara fyrir umgengni mæðgnanna. Hann sagði reyndar meðal annars að erfitt væri að treysta sér í svona máli. Ólafur EgOsson sagðist hafa átt klukkustundarlangan fund með lögreglustjóranum í Bakirkoy á skrifstofu hans á laugardags- kvöldið. MikO vonbrigði hafi komið fram hon- um með málið héldi Þær hittust ekki um helgina eins og vonir stóðu til. Grunur leikur á aö föður telpnanna hafi þótt nóg um þau tengsl sem mynduðust með mæðgunum um síðustu helgi. í vikunni verður tekin ákvörðun um næstu skref í málinu. DV-myndir Óttar Sveinsson. ekki þeirri stefnu sem það hafði tek- ið fyrir viku. Lögreglustjórinn sagð- ist áfram mundu reyna að ná sam- bandi við Halim tO að gera honum grein fyrir alvöru málsins og jafn- framt að afla skýringa á því hvers vegna hann hefði ekki staðið við sinn hlut. Skilningsríkur lögreglustjóri „Lögreglustjórinn hefur beitt sér í málinu af næmum skilningi og mik- Oli skynsemi og reynt að stuðla að vinsanOegu samkomulagi. Á fundin- um fyrir viku ríkti góður andi enda féUst Halim þá á að koma af fúsum vOja. En þama hefur orðið eitthvert hughvarf sem engin skýring liggur fyrir á,“ sagði Ólafúr. „Málið í dag er miklu verra fyrir Halim enda hafa ýmsar forsendur tO samninga brostið," sagði Ólafur Eg- Osson. Sophia Hansen var döpur í gær vegna atburða helgarinnar. Von- brigði voru henni í hug. Sophia dvaldi um helgina að mestu leyti á hótelinu sem Ólafur EgOsson og Katrín Fjeldsted læknir gista á - þar haföi verið undirbúið að Sophia hitti dætur sinar. Ólafur sagði aðdáunar- vert hve vel hún hefði staðið von- brigðin af sér og lagt mest upp úr því að hafa þó fengiö tækifæri fyrir viku tO að hitta dætur sínar á ný eftir fjög- urra og hálfs árs aðskUnað. Ólafur var í sambandi við lög- reglustjórann fram eftir kvöldi í gær. Margsinnis var reynt að ná sambandi við Halim en ávaUt án ár- angurs. Tvívegis var farið á heimUi hans en í bæði skiptin var enginn heima. Hasip Kaplan kom með þær frétt- ir tO Ölafs á laugardag að dómur áfrýjunarréttarins í Ankara mundi verða birtur í forsjármálinu innan tíu daga. Engar skýringar hafa verið gefnar á þeirri töf sem orðin er á niðurstöðu í málinu. -ótt Dagfari Framsóknarmaddaman glottir Sameiningarraunir svokaUaðra félagshyggjuflokka eru margfræg- ar. Þar hefur hvert mikilmennið á fætur öðru ætlað sér stóra hluti en lítið orðið úr. Hver man ekki fræga ferð þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar um árið. Þá fóru þeir á rauðu ljósi um öU héruð og mikið stóð tU. Þeir voru þá nýlega orðnir formenn A-flokkanna og nú átti að láta drauminn rætast. En draumurinn breyttist í martröð. Jón Baldvin átti stutt ástarævintýri með Davíð í Viðey og úr því varð hjónaband. Eftir sat Ólafúr Ragnar hryggbrotinn. Hjónabandið varð þó fljólega ást- laust auk þess sem Jón Baldvin bjó við annað heimUisböl og meira. Hann réð ekkert við Jó- hönnu sem vOdi engin homkerl- ing vera. Jóhanna fór í fússi og stofnaði eigin flokk. Sá varð þó aldrei annað en loftbóla og endaði að lokum í breiðum kratafaðmi Jóns Baldvins. Ólafur Ragnar gafst upp á sameiningarbiðinni. Hann sá það af hyggjuviti sínu að hann gæti orðið húsbóndi á Bessastöðum sem og varð raunin. Miðað við það fínirí aUt saman var samein- aður krataflokkur hjóm eitt. Það er ekki að sjá að honum leiðist líf- ið þessa dagana. Hann er sitt á hvað í íslenskum afdölum eða út- lendum konungshöUum, bugtar sig og beygir og kannar heið- ursverði. Það er rétt eins og hann hafi lært tU þjóðhöfðingja þar sem hann veifar tO almúgans úr límósínum eða heOsar bömum með fána. íslenskur krataflokkur, lítiU eða stór, stenst engan saman- burð við satín í drottningardyngj- um. Það blés því ekki byrlega hjá sameiningarmönnum þrátt fyrir ungliðafund á Bifröst á dögunum. Krakkarnir sáu að vísu engin vandkvæði á sameiningunni. ÖU helstu deUmnál í samfélaginu mátti leggja tU hliðar. Þar skiptu Evrópumálin litlu og því síður landbúnaður og fiskveiðar. Þau smámál mátti semja um síðar. ' En þá gerðist undrið. Birt vár skoðanakönnun í Mogganum sem sagði að sameinaður krataflokkur yrði stærsti flokkur landsins. Stærri en íhaldið og nær tvöfalt stærri en Framsókn. Og þá var kátt í fleiri höUum en Friðriks- borgarhöU. Hinn kratíski söfnuð- ur aUur sá sér leik á borði, Stóra stundin virtist vera í sjónmáli. AUir vUdu vera meö, kommar jafnt sem kratar, kvennalis- takomur og einnig leifamar af Þjóðvakanum. Menn rifjuðu upp könnun sem kom Reykjavíkurlist- anum á flot, lista sem náði lang- þráðu takmarki æviráðinna minnihlutamanna í Reykjavík. Borgarstjórnaríhaldið féU. En sveitarstjóm er eitt og land- stjórn annað. Ekki er annað að sjá en könnunin nýja verði tU þess að sameina menn sem eiga ekkert sameiginlegt og hafa í raun marg- ir hverjir fyrirlitningu hver á öðr- um. En tilhugsunin er of freist- andi. Það er möguleiki á því að slá sjálfan Davíð út á landsvísu. Hvað gera menn ekki í þeirri stöðu? Þetta eru menn sem ekki vUa neitt fyrir sér. Muna menn enn tækifærið sem gafst um árið þegar Gunnar Thoroddsen mynd- aði sína frægu ríkisstjóm? íhaldið lá þá vel við höggi. En eitt hafa sameiningarkrat- arnir ekki hugsað tU enda. Nái þeir svipaðri stöðu og Sjálfstæðis- flokkurmn situr landslýður uppi með Framsókn í ríkisstjóm um aUa fyrirséða framtíö. Ekki verð- ur hægt að mynda ríkisstjóm án maddömunnar. Hafi könnunin komið brosvipr- um á sameiningarkratana þá varð hún tU þess að glottið nær eyma á mflli hjá framsóknarmönnum. Ef marka má könnunina viröist staða þeirra tryggð aUa næstu öld. Þjóðin fær víst þá stjóm sem hún á skUið. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.