Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 42
50 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996 Afmæli Hermann Gunnarsson Hermann Gunnarsson, dagskrár- gerðarmaður hjá ríkissjónvarpinu, Rekagranda 3, Reykjavík, er fimm- tugur í dag. Starfsferill Hermann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófum frá Ví 1966. Hermann var blaðamaður og aug- lýsingastjóri Vísis 1967-69, atvinnu- knattspyrnumaður í Austurríki 1969, skrifstofumaður hjá Sjóvá og þjálfari hjá ÍBA á Akureyri 1970, skrifstofumaður á Skattstofu Reykjavíkur 1972-77, fréttamaður á RÚV 1977-85, dagskrárgerðarmaður hjá Bylgjunni 1986-87 og hjá ríkis- sjónvarpinu frá 1987. Auk þess var hann fararstjóri hjá Útsýn og Ver- öld 1986-91. Hermann hefur setið í stjóm handknattleiksdeildar Vals, aðal- stjóm Vals, aðalstjóm Vemdar og var formaður Samtaka íþróttafrétta- manna um skeið. Hann skemmti með Sumargleðinni í nokkur ár og hefur sungið inn á ýmsar hljómplöt- ur. Hermann var í meistaraflokki Vals í handknattleik og knattspyrnu í fjórtán ár, varð íslandsmeistari nokkrum sinnum og þrisvar marka- kóngur 1. deildar í knattspymu, lék tuttugu landsleiki í knattspymu og fimmtán landsleiki í handknattleik. Hann var sæmdur gullmerki Knatt- spymufélagsins Vals og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og verð- laun fyrir afrek í íþrótt- um. Fjölskylda Systkini Hermanns eru Sigrún, f. 11.2. 1948, húsmóðir í Danmörku; Ragnar, f. 3.2.1956, blikk- smiður í Reykjavik; Kolbrún, f. 13.5. 1961, húsmóðir i Kópavogi. Foreldrar Hermanns: Gunnar Gíslason, f. 14.7. 1922, vélstjóri í Reykjavík, og k.h., Björg Sigríður Hermannsdóttir, f. 27.6.1924, d. 30.4. 1990, húsmóðir. Ætt Gunnar er bróðir Jóhanns lög- fræðings og Guðmundar forstjóra, fóður Gísla, forstjóra Bifreiða og landbúnaðarvéla. Gunnar er sonur Gísla, skipstjóra og hafnsögumanns í Reykjavík, Guömundssonar, b. á Amamúpi í Þingeyrarhreppi, Gisla- sonar. Móðir Gísla skipstjóra var Guðmunda Guðmundsdóttir. Móðir Gunnars var Sigríður Jó- hannsdóttir, sjómanns í Reykjavík, Níelssonar. Móðir Sigríð- ar var Þóra, systir Mar- grétar, langömmu Aðal- steins Ásbergs Sigurðs- sonar rithöfundar. Þóra var dóttir Gamalíels, b. í Riftúni, Guðmundssonar, og Ingveldar Þorsteins- dóttur, b. í Riftúni, Magn- ússonar. Móðir Þorsteins var Þuríður, systir Odds í Þúfu, forfóður séra Gunn- ars Bjömssonar í Holti. Móðir Ingveldar var Sig- ríður Guðmundsdóttir. Móðir Sigríðar var Ingveldur Þór- ólfsdóttir, b. í Háeyrarhverfi, bróð- ur Beinteins, langafa Magnúsar í Litlalandi, langafa Ellerts B. Schram, forseta ÍSÍ. Þórólfur var sonur Ingimundar, b. á Hóli, Bergs- sonar, ættfoður Bergsættar, Stur- laugssonar. Björg Sigríður var systir hins gamalkunna markvarðar, Her- manns í Val, og systir Kristbjargar, móður Kolbeins Pálssonar, lands- liðsmanns í körfuknattleik, og Vig- dísar Pálsdóttur, landsliðskonu í handknattleik. Björg Sigríður var dóttir Hermanns, trésmiðs í Reykja- vík, Hermannssonar, b. í Fremstu- húsum í Dýrafirði, Jónssonar. Móð- ir Hermanns smiðs var Guðbjörg Torfadóttir. Móðir Bjargar Sigríðar var Sigurbjörg, systir Vilhelmínu á Vatnsleysu, móður skipstjóranna og aflaklónna Auðunssona. Sigurbjörg var einnig systir Gísla, foður Steina box, málningarkaupmanns, og syst- ir Þorsteins skipstjóra, föður Ingva, landsliðsmanns í handbolta, foður Ellenar Ingvadóttur sunddrottning- ar. Sigurbjörg var dóttir Þorsteins, útgerðarmanns á Meiðastöðum í Garði, Gíslasonar, b. á Augastöðum, bróður Þorsteins á Húsafelli, langafa Halldórs Jónssonar stjóm- arformanns, foður Garðars, húsa- meistara ríkisins. Annar bróðir Gísla var Guðmundur á Vatnsenda, afi Páls, afa Páls, fyrrv. veðurstofu- sijóra, foður Bergþórs óperasöngv- ara. Gisli var sonur Jakobs Blom, b. á Húsafelli, Snorrasonar, prests og skálds á Húsafelli, Bjömssonar. Móðir Þorsteins var Halldóra Hann- esdóttir, b. í Norðtungu, Sigurðsson- ar. Móðir Sigurbjargar var Kristín Þorláksdóttir, b. á Hofi á Kjalarnesi, Runólfssonar, b. á Hofi, Runólfsson- ar, b. á Ketilsstöðum, Magnússonar, b. á Bakka á Kjalamesi, Hallgríms- sonar, b. á Bakka, Þorleifssonar. Móðir Hallgríms var Guðrún Eyj- ólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hallgríms- sonar, prests og sálmaskálds í Saur- bæ, Péturssonar. Hermann tekur á móti vinum og vandamönnum á Hótel íslandi í kvöld, frá kl. 19. Hermann Gunnarsson. Guðríður Steindórsdóttir Guðríður Steindórs- dóttir, húsmóðir, kenn- ari og handverkskona, Arabæjarhjáleiga í Gaul- veijabæjarhreppi, er fer- tug í dag. Starfsferill Guðríður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og i Kópavogi til 1971. Hún flutti þá á Sauðárkrók með foreldr- um sínum en aftur til Reykjavíkur 1975. Guðríður stundaði nám á Akur- eyri 1974-75, tók meira- og rútupróf í Reykjavík 1977 og 1978, stundaði nám í Loftskeytaskóla íslands 1978-80, hóf nám í öldungadeild framhaldsskólans í Vestmannaeyj- um 1986, stundaði nám við öldunga- deild MH 1987-89 og lauk prófi frá KHÍ 1993. Guðríður stundaði ýmis verslun- arstörf framan af, m.a. hjá foður sín- um, hjá KEA og HeimÚistækjum í Reykjavík auk skrifstofu- starfa. Hún flutti til Vest- mannaeyja 1980 og vann á Vestmannaeyjaradíói með hléum frá 1980-87, dvaldi á ísafirði hluta árs 1987 en flutti þá á Reykjavíkur- svæðið. Loks flutti hún að Arabæjarhjáleigu 1991. Guðríður gekk i hand- verkshópinn á Þingborg í Hraungerðishreppi 1993 og hefur ritstýrt frétta- bréfi hópsins síðan 1995. Fjölskylda Guðriður giftist 1992 Gunnari Þorvaldssyni, f. 5.8. 1945, rafvirkja og rafmagnseftirlitsmanni. Hann er sonur Þorvalds Guðmundssonar frá Bryggju í Biskupstungum, f. 25.9. 1900, d. 26.6.1975, og Aðalbjargar Eg- ilsdóttur, f. 7.9. 1908, d. 8.2. 1994, frá Galtalæk í Biskupstungum, bænda í Lambhúskoti í Biskupstungum, Syðri-Gróf í Villingaholtshreppi og síðast á Selfossi til dánardægurs. Börn Guðríðar eru Jóhanna Mar- ía Elena Matthíasdóttir, f. 11.9.1975, iðnnemi og húsmóðir í Reykjavík en sambýlismaður hennar er Amar Hrólfsson og er dóttir þeirra Guð- ríðm- Jana; Sunja Gunnarsdóttir, f. 8.5. 1985; Þorvaldur Gunnarsson f. 19.6. 1991; Gunnar Þorbjöm Gunn- arsson f. 13.6. 1994; Steindór Kári Gunnarsson f. 13.6.1994 d. 14.6.1994; Þorlákur Snær Gunnarsson f. 18.6. 1996. Önnur böm Gunnars: Hafsteinn Þór, f. 26.6. 1964, verslunarmaður Reykjavík; Andrea f. 24.11. 1964, húsmóðir í Innri-Njarðvík en sam- býlismaður hennar er Sturla Ör- lygsson og eiga þau þrjú böm; Brynja, framreiðslumaður á Sel- tjamamesi, f. 8.12.1965, gift Ásbirni Morthens og eiga þau tvö böm. Systkini Guðríðar era Guðrún Þorbjörg Steindórsdóttir f. 11.12. 1949, d. 15.10. 1988, gift Þorgeiri Lawrence og eru böm þeirr tvö; Herdís Bjamey Steindórsdóttir, f. 12.12. 1959, gift Snæbimi Þór Ingv- arssyni og eiga þau þrjú böm. Foreldrar: Steindór Marteinsson f. 6.11. 1923, d. 31.7 1996, gullsmiður í Reykjavík, og Jóhanna María Bjamadóttir, f. 16.6. 1919, d. 22.2. 1992, húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík, á Sauðárkróki og í Mos- fellsbæ. Steindór flutti til Guðríðar i Arabæjarhjáleigu 1995 og bjó þar til dánardægurs. Ætt Steindór var sonur Marteins Steindórssonar, kaupmanns og bú- fræðings, og Guðríðar Gísladóttur frá Oddgeirsbæ í Reykjavík. Foreldrar Marteins voru Steindór Jóhannesson, búfræðingur og kaup- maður með meim, og Guðrún Páls- dóttir handavinnukona, frá Tuma- brekku í Óslandshlíð. Foreldrar Guðríðar voru Gísli Þórðarson, sjómaður í Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Ólafsdóttir frá Vog- um á Vatnsleysuströnd. Jóhanna María var dóttir Bjama Magnúsar, netagerðarmeistari og sjómanns á Isafirði, Péturssonar, og Herdísar Jóhannesdóttur. Guöríður Steindórsdóttir. Matthías Björnsson Matthias Björnsson, loftskeyta- maður og kennari, Duggufjöru 12, Akureyri, er sjötiu og fimm ára í dag. Starfsferill Matthías fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar 1942, frá Loftskeytaskóla íslands 1943, lauk vélstjóranámskeiði á Akureyri 1952, kennaraprófi frá smiðadeild KÍ1959, stundaði og síðan frekara réttinda- nám við KHÍ. Matthías var til sjós og sigldi á stríðsárunum, fyrst á íslenskum togurum en síðan bandarískum kaupskipum til 1946 og var síðan loftskeytamaður til sjós og í landi. Hann stundaði kennslu i Reykjavík, á Húsavík, við Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi og var síðast skóla- stjóri við Grunnskóla Mýrahrepps í Austur-Skaftafellssýslu. Matthías og kona hans keyptu jörðina Gíslabæ á Hellnum í Breiðavíkur- hreppi og stofnuðu þar fyrstu ferðaþjónustu á sunnanverðu Snæfells- nesi. Þar bjuggu þau í fjórtán ár og kenndu á vetrum. Matthías sat í hrepps- neínd Breiðavíkurhrepps í sjö ár og var oddviti Mýrahrepps í tvö ár er hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir. Þau hjónin bjuggu síðan í Varmahlíð í fjögur ár en fluttu þá til Akureyrar þar sem þau hafa átt heima síðan. Fjölskylda Matthías kvæntist 6.5. 1951 Fjólu Guðjónsdóttur, f. 3.5. 1933, húsmóð- ur og kennara. Hún er dóttir Guðjóns Guðjóns- sonar, trésmíðameistara í Völundi í Reykjavík, og Guðlaugar Brynjólfsdótt- ur húsmóður. Böm Matthíasar og Fjólu eru Steingrímur, f. 27.8. 1951, vélstjóri í Þorláks- höfn, kvæntur Maríu Sallýju Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn; Karl Valgarður, f. 12.8. 1952, prestur í Grundarfirði, kvæntur Sesselju Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú böm; Oddný Soffia, f. 6.7. 1954, hjúkrunarfræðingur á Sauðárkróki, gift Stefáni Evertssyni og eiga þau þrjú börn; Einar Pálmi, f. 27.12.1955, trésmiður í Reykjavík, kvæntur Önnu Maríu Jónsdóttur og eiga þau eitt bam; Guðjón, f. 26.9. 1961, d. af slysförum 2.1. 1969; Inga Nína, f. 15.7. 1968, fatahönnuður í Reykjavík, gift Leifi Leifssyni og eiga þau eitt barn; Stefán Heimir, f. 15.7. 1968, trésmiður í Reykjavík, og á hann eitt barn. Systkini Matthíasar: Ásta, f. 4.9. 1918, hjúkrunarfræðingur í Reykja- vík; Þóra, f. 17.10. 1919, dó í fram- bernsku; Gerður, f. 22.10. 1920, hús- móðir í Reykjavík; Harpa María, f. 29.11. 1922, d. 21.10. 1982, húsmóðir; Grímur Mikael, f. 7.3. 1924, tann- læknir í Kópavogi; Jakobína Elísa- bet, f. 15.9. 1927, húsmóðir í Hafnar- firði; Karl Hans, f. 16.7. 1929, d. 28.10. 1991, kennari. Foreldrar Matthíasar voru Björn Grímsson, f. 15.5. 1891, d. 26.3. 1986, verslunarmaður og einn stofnenda Söltunarfélags verkamanna og Pönt- unarfélags verkalýðsins og fram- kvæmdastjóri þess, og Vilborg Soff- ía Lilliendahl, f. 15.1. 1888, d. 13.9. 1974, húsmóðir. Matthías Björnsson. Tll hamingju með afmælið 9. desember 75 ára Helgi Jasonarson, Jökulgranni 28, Reykjavík. Guðlaug Guðnadóttir, Urðum, Svarfaðardalshreppi. Þórður G. Halldórsson, Selvogsgmnni 22, Reykjavík. Sigurður Jónsson, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. 70 ára Þórir Leifsson, Miðsandi, Hvalfjarðarstrand- arhreppi. Bjami Jónsson, Holtsgötu 41, Reykjavík. Nikólina Halldórsdóttir, Þiljuvöllum 37, Neskaupstað. 60 ára Hreiðar Grímsson, Grímsstöðum, Kjósarhreppi. 50 ára Alfreð Már Alfreðsson, Strandgötu 20 A, Neskaupstað. Guðrún Harðardóttir, Ytri-Lambadal, Þingeyrarhreppi. Ómar Sigtryggsson, Háteigsvegi 19, Reykjavík. Óli H. Sveinbjörnsson, Víkurbraut 9, Grindavík. Þorbjörg Kristjánsdóttir, Fannarfelli 12, Reykjavík. Ragnar J. Skúlason, Þingási 32, Reykjavík. 40 ára Finnbogi Jakobsson, Víðihlíð 30, Reykjavík. Pálmi Ingólfsson, Hálsum, Skorradalshreppi. Kristján Þráinsson, Brávöllum 9, Húsavík. Margrét Sverrisdóttir, Tjamarmýri 21, Seltjamamesi. Kolbrún Einarsdóttir, Öldugötu 53, Reykjavik. Guðbjartur J. Sigurðsson, Flúðaseli 14, Reykjavík. Hákon Örn Matthíasson, Krossholti 8, Keflavík. Tryggvi Kárason, Hafsilfri, Raufarhafnarhreppi. Ingibjörg Ólafsdóttir, Austurbraut 17, Höfh i Horna- firði. Guðný Ágústsdóttir, Hrannarbyggð 15, Ólafsfirði. Sigurður Hávarðsson, Hólsvegi 11, Reykjavík. Elin Ema Markúsdóttir, Hæðarseli 8, Reykjavík. ■ & Askrifendur ;ii§l fá ’SgS- aukaafslátt af smáauglýsingum DV q\\t mil/j himins. trot -sH Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.