Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 39
I MANUDAGUR 9. DESEMBER 1996 47 DV Fréttir Bændur ósáttir með hve hægt gengur í framfaraátt hjá Bændasamtökunum: Forystan er ósamstillt og hana skortir kjark PHILIPS GSNI í ÖLLUM LITUM 39.900 - segir viðmælandi DV Samkvæmt heimildum DV er nokkur ólga innan Bændasamta- kanna þar seffi fjöldi bænda er ósátt- ur með hversu hægt hefur gengið í framfaraátt frá því að Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda sameinuðust. Þykir mönnum sem lítið hafl gerst og einfoldunin, skil- virknin og hagræðingin, sem til hafi staðið að ná, láti á sér standa. Bóndi í forsvari í stórri búgrein sagði við DV að kannski skorti forystumenn bara kjark til þess að takast á við þau vandamál sem væru uppi og taka ákvarðanir sem skiptu máli. „Málin hafa verið tekin vettlinga- tökum og þau látin rúlla einhvern veginn áfram. Það þarf sterk bein til þess að taka á þessu og því miður virðist mér forystan ekki vera nógu samstillt," sagði bóndinn í gær. Enginn klofningur „Mín skoðun er sú að bændur hafi greitt atkvæði um miklu ein- faldari og skilvirkari yfirstjóm. Það virðist ekki hafa gengið eftir. Menn eru kannski missáttir en ég sé ekki að neinn klofningur sé í aðsigi,“ sagði Guðmundur Lárusson, for- maður Landssambands kúabænda, þegar DV leitaði til hans í gær. Hann sagði að hlutimir yrðu aldrei í lagi fyrr en hver búgrein bæri ábyrgð á sinni framleiðslu og sölu eigin afurða. Völd og peningar Annar viðmælandi DV úr land- búnaðargeiranum sagði að menn væm fyrst og fremst ekki sammála um hverjir ættu að ráða. Bæn- dasamtökin væra annars vegar byggð upp á búnaðarsamböndun- um, leiðbeiningarmiðstöðvum vítt og breitt um landið og hins vegar búgreinafélögunum. Fundur hafi verið haldinn með formönnum bú- greinafélaganna í síðustu viku en formenn búgreinafélaganna ekki verið boðaðir. Þeir hafi orðið ósátt- ir við það og boðað sjálfir til fundar þennan sama dag í sama húsi. „Þetta er allt spuming um völd og peninga. Búnaðarsamböndin eru að sinna leiðbeiningum heima i héraði og búgreinafélögin annast meira markaðsmál og sérmál hverr- ar greinar. Sérhæfingin er orðin svo mikil að það er útilokað að reka þetta allt á einni hendi,“ segir við- mælandinn og bendir á að bú- greinafélög svína- og garðyrkju- bænda séu mjög sjálfstæð og að þau hafi náð býsna góðum árangri. Þar geti menn tekið ákvarðanir sjálfir án þess að þurfa að leita til ótal að- ila í kerfinu. Sauðíjárbændur séu hins vegar svo flæktir í félagskerf- inu að þeim sé ómögulegt að taka þær ákvarðanir sem þarf að taka. Stétt í efnahagserfiðleikum eðlilega óánægð: Höfum vissulega hagrætt - segir Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna „Eg vísa því á bug að ekki hafi neitt verið gert i sambandi við hag- ræðingima og skilvirknina því við teljum okkur vera búna að fækka hér um fimm stöðugildi frá samein- ingunni. Það kemur mér hins vegar ekki á óvart að bændastéttin sé óán- ægð. Allar stéttir sem standa illa efnahags- og kjaralega eru óánægð- ar. Hinu má ekki gleyma að við eram að reyna að veita þjónustu á ýmsum sviðum og ef menn vilja halda henni sæmilega öflugri má ekki skera of mikið niður,“ segir Ari Teitsson, formaður Bændasam- taka íslands, við DV. Ari viðurkennir að togstreita sé á milli búnaðarsambandanna og bú- greinafélaganna. Hann segir Bændasamtökin samanstanda af þeim báðum og það sé hlutverk stjómarinnar að stilla saman strengina. Hann segir engar raddir heyrast um að menn vilji kljúfa sig frá samtökunum á einn eða annan hátt. „Varðandi sölu- og markaðsmálin þá spyr ég hvort sauðfjárbændafé- lögin séu tilbúin til þess að taka á sig sömu eða svipaðar skyldur og t.d. svínaræktarfélagið. Félagslega hefúr það ekki tekist enn vegna ósamstöðu sauðfjárbænda. Menn hafi ekki komið sér almennilega saman um það hvaða vægi félög sauðabænda eigi að hafa. Sam- þykktir gera ráð fyrir að gerðir séu samningar og verkaskipting sé skýrð í öflum greinum. Það hefur verið gert hjá svína- og grænmetis- bændum og verður vonandi í fleiri greinum áður en langt um líður,“ segir Ari Teitsson. -sv Daglegar ferðir frá Höfn þrátt fyr- ir hlaupið DV; Höfn: „Þetta hefur gengið vonum fram- ar, enginn útafakstur eða óhöpp ef frá er talið að einn bill lenti utan í brúarhandrinu á Fossá í Berufirði. Þar var fljúgandi hálka og kröpp beygja að brúnni,“ sagði Júlíus Guðmundsson, bílstjóri hjá HP og sonum á Hornafirði. „Daglegar vöruflutningaferðir eru milli Hornafjarðar og Reykja- víkur og hélst sú áætlun þó fara þyrfti norðurleiðina. Við vorum frá 16 tímum upp í 30 á milli Hafnar og Reykjavíkur. Voram heppnir með veður og færð með örfáum undan- tekningum," sagði Júlíus. Bílstjórarnir voru sammála um að það hefði verið heilt ævintýri að aka norðurleiðina. Fannst jólalegt að fara um Mývatnssveitina í 30 gráða frosti. 26. nóvember komst Júlíus á flutningabílnum yfir Skeið- arársand og hafði á orði að það hefði verið eins og að koma heim eftir langa fjarveru, notaleg og hlý tilfinning. Heimir Heiðarsson, fram- kvæmdastjóri og eigandi HP og sona, sagði að flutningur meö bílun- um hefði minnkað mikið. Einkum það sem flutt var frá Höfn og mun- aði þar mest um fisk af fiskmarkaði Homafjarðar en þetta væri allt að komast í lag aftur og fyrsti fiskfarm- urinn var að fara á þriðjudagskvöld sl. -JI Prír bílstjórar HP, Júlíus Guömundsson, Alfgeir Gíslason og Guömundur Guömundarson. DV-mynd Júlía Meiðir sætið þig? Láttu okkur kippa því í lag strax í dag! Gerum föst verðtilboð f hvers lags nýsmíði, breytingar og viðgerðir á inn- réttingum og yfirbyggingu. Líttu við og sjáðu hversu auðvelt er að leysa málið! Ármúla 34 • Sími: 553 7730 Fasteignamatið hækkar: Mest hækkun á Hvolsvelli „Þó að fasteignamat á eignum úti um land hækki þá hækka fasteigna- skattamir ekki meira en sem nem- ur 2% heildarhækkuninni vegna þess að úti á landi er álagningar- stofn fasteignaskatts miðaður við fasteignamat sambærilegs húss í Reykjavík," segir Magnús Ólafsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins. Yfirfásteignamatsnefnd ákvað ný- lega framreikning fasteignamats fyrir yfirstandandi ár og hækkar það á landinu öllu um 2%. Hækkun- in skiptist misjafnlega á milli lands- hluta og hækkar mest í þéttbýli í Eyrarsveit, Rangárvallahreppi, Stokkseyri og Eyrarbakka, eða um 12%. Við framreikning fasteignamats er stuðst við kaupsamninga um húsnæði og á matið að endurspegla markaðsverð fasteigna á hverjum tíma. Ástæða mikiflar hækkunar á fyrmefndum stöðum er talin vera bætt atvinnuástand og aukin eftir- spum eftir húsnæði, t.d. á Hvol- svefli, en þar eru höfuðstöðvar Slát- urfélags Suðurlands. -SÁ ajunmlak* J C' p/l VoruHl9 I Sængur og koddar Aerelle, hvít sæng 9.424,- kr. stgr. Aerelle, blá sæng ^öóöjdín 7.524,- kr. stgr. Heilsukoddi ^909?dín 2.964,- kr. stgr. Heilsukoddasett 2pk^S39©öícEn 4.560,- kr. stgr. Hollofil 4 koddi 1.748,- kr. stgr. Hugsaðu hlýtt . ; til þinna nánustu - Gefðu ajUUgllaJk Þekking Reynsla Þjónusta fálkinn SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 581 4670 ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 567 0100 Umboðsmenn um allt land

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.