Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 19
ÐV MANUDAGUR 9. DESEMBER 1996 menning Nick Dodds: Þaö borgar sig að fjárfesta í listum. List breytir lífi fólks Nick Dodds er framkvæmdastjóri listahátíðarinnar sem haldin er á hverju sumri í Edinborg í Skotlandi. Hann hefur verið þar „í sjö hátíðir", eins og hann orðar það og undirbýr nú þá áttundu með list- rænum stjórnanda hátíðarinnar. í síðustu viku kom hann til íslands til að halda fyrirlestur á ráðstefnu um menningu og ferðaþjónustu og við króuðum hann af stutta stund. - Hvaða þýðingu hefur hátíðin fyrir Edinborg? „Hún hefur komið borginni á heimskortið. Edinborg er miðlungs- borg með 400 þúsund íbúa á jaðri Evrópu. Án listahátíðarinnar og orðstirsins sem hún hefur aflað sér á fimmtíu árum held ég að borgin væri eins og hver annar útkjádka- bær. En hún er heimsborg og það er hátíðinni að þakka. Um það bil hálf milljón gesta kemur til borgarinnar þessar þrjár vikur sem hátíðin stendur. íbúa- fjöldinn tvöfcddast. Við fáum styrki frá ríki og borg sem mæta fjörutíu prósentum útgjaldanna, tuttugu prósent fáum við frá einkaaðilum en þau fjörutíu sem upp á vantar koma inn í miðasölu." Opinberu styrkirnir nema um tveim milljónum punda, segir hann, eða um tvö hundruð milljónum is- lenskra króna, en alls veltir hátíðin um það bil fimm og hálfri milljón punda eða tæpum sex hundruð milljónum íslenskra króna. - Guð minn góður, hvíslar blaða- maður agndofa og Nick segir að bragði:,, Já, finnst þér það lítið? Það finnst mér líka!“ - Hvað telurðu þá að Listahátíð í Reykjavík geti gert með 30 milljónir króna? „Ég hef séð dagskrá frá henni og finnst ótrúlegt hvað þið hafið getað gert, ekki síst í ljósi þess hvað það er langt hingað frá öðrum löndum og ferðakostnaður hlýtur að vera óheyrilegur. Edinborgarhátíðin hefur komist langt á því að listamenn langar til að koma til okkar og taka ekki eins háa upphæð fyrir að koma fram og ella. Kannski er það vegna þess hvað hátíðin fær mikla athygli í fjölmiðlum víðs vegar, kannski vegna þess hvað við hugsum vel um gesti okkar. Ég held að listamenn séu forvitnir um ísland og marga langi til að koma hingað til að sjá landið og myndu lækka verðið þess vegna. En svo skiptir miklu máli að þeim líði vel og þeir skemmti sér vel. Ráð mitt til ykkar er að leggja áherslu á að hugsa vel um þá sem koma til ykkar, ekki í peningum heldur tíma. Við erum með fjölda manns í því að sinna gestum okkar, enda vilja þeir koma aftur og aftur. Það sem ég á við eru einfaldir hlutir eins og að sækja þá á flugvöll- inn, koma þeim milli staða, bjóða þeim í mat, sýna þeim það sem þá langar að sjá. Þetta hljómar ósköp hversdagslegt en það er alls ekki alls staðar hugsað út í svona smáat- riði. Víðast hvar er þeim bara kom- ið fyrir á hóteli og ætlast til að þeir sjái um sig sjálfir. En þeir vilja vera hluti af hátíðinni, vera með. Lista- menn sem ferðast víða eru hund- leiðir á hótellífi og vilja hitta mann- eskjur. Annað sem Edinborgarmenn hafa lært er að það verður að fjárfesta í listum. Það borgar sig, þó að það liggi ekki alltaf í augum uppi. Opin- berir styrkir til okkar eru um tvær milljónir punda, eins og ég sagði, en skattar og gjöld sem hið opinbera innheimtir beint frá hátíðinni nema mörgum sinnum hærri upphæð. Nýjustu tölur eru 120 miújónir punda sem koma inn í skoskt efna- hagslíf frá hátíðinni! Tvær inn, 120 út, jafnvel stjórnmálamenn skilja svoleiðis tölur! Og gróðinn er ekki aðeins efna- hagslegur. Markmið hátíðarinnar kemur peningum ekkert við, ekki heldur ferðamennsku. Aðalmálið er að skapa lifandi list sem breytir lifí fólks. Edinborgarmenn eru sjálfir stærsti hluti áhorfenda. Hátíðir af þessu tagi geta ekki lifað án stuðn- ings heimamanna. Vissulega heyr- ast gagnrýnisraddir. Það kunna ekki allir við allan þennan fjölda ferðamanna á sama tíma. Ekki nokkur leið að komast um göturnar fyrir mannþröng! En það er einmitt það góða við hátíðir, þá gengur ein- hver í veg fýrir mann!“ 19 njjðu verð I Litosjónvarp TVC14 ____!r. 26.900 sfgr. OKDL5TEF STVS18G _____lr. 36.900 sfgr. es Schneider • IslensHf rexiavarp • Fullhomin fjarsTpring • 40 sTöðvo minni - Sjálfvirh sröövaleifun • Svefnrofi 15-120 mín. • flllar aögerðir á shjá • ScarHengi TVC21 ___lr. 39.900 sfgr. 1X9 KE) L5TEF • Bloch Line mqndlampi parsem svarlersvarT og hvífT er hvíTT • Nicam Slereo •íslensOlfexlflvarp • Rllðr ðögerðiráshjá • Sjálfvirh srððvðleifun • 40 sfööva minni •Tenging fgrir auha háfalara • SvefnrojllS-120 mín. • 2Scarf-fengi • Fullhomin fjarsfpring TVC281 59.900 sfgr. £iÍLJiJiyJLJLÁ LJ - 5ÍJVJJ fJLL £ID DD Hinbolsiieu n land alli: VESTIHUADD: Hljámsýn. AJaaresi. Kauplélag Borgfiiðinga. Borgansesi llgmstnellii. Hellíssandi. Euini Hallgrimsson. MaiH.VISIFim: lalbúl Jónasar búis, Palieksfirði. Póllion. Isaliiii. HOHDDRFAIID: II Sleingiimsfjaiðar. Hólmavik. IIV-Húnielainia. Hvammsiaoga. II Hónveminga. Blínúuúsi. Skaefirðlsigabúð. Sauðárkróki. IEA. Oalvik. Hljómver. Akureyrl. Onrggl Húsavík. Ilil. Baufarböln. AUSIURFAIID: II Héraisbúa. Egilsslöðjm. (F Vogntirðinga. Vopnafirði. If Héraðsbóa. Seviislirði. If fáskrúðsfiarlai. FáskróðsfiriL (ASK. Diúpavogi. KASK. Húla Hornalóði. SIIHHIAIII: II Amesinga .HvolsveUi. Uasfelf Hellu. Orvert Selfossi. Radiórás. Selfossi. II Ámesinga. Sellossi Rás. Porláksboln. Brinsnes. Veslmannaeyjom. HFIUAHFS: Halloig. Giindavik. Rallagnavmnusr. Sig. Ingvarssonar. Gaili. Ralmmtli. Hafnarlirli. Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV aW mii// him, 'ir>s0i % 9- Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.