Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996
ÍKOLÍJPORTIÐ
Onifl
©
Opið um helgar kl. 11-17
VIRKA DAGA ki. 12-181
* Gott verð
frá kr. 350,-
©
..í jólapakkann
hennar mömmu
Thailenskar nœlur kr. 450,- geisladiskar kr. 399,-
Dömuskór kr, 990,- kasmírtreflar kr. 600,-
Gullhúðuð armbönd kr, 900,- peysur kr. 1200,-
sjálflýsandi hálsmen kr. 500,- og varalitir kr, 350,-
ic Gott verð
m íjólapakkann IffimilJB
1 hans pabba
Van Gils, Blaser og Jamison jakkaföt nr. 48-54 á
kr. 4900,- og stakir jakkar á kr. 3200,- Herrabuxur
á kr. 1990,- og smokingskyrtur á kr. 2100,- Einnig
herraskór kr. 990,- inniskór kr. 500,- 2 pólóskyrtur
kr. 2500,- og geisladiskar kr. 399,-
-k Gott verð
..í jólapakkann I ffl'WTTH
hja ömmu og afa
Kertaiólaenglar sem snúast kr. 550,- Mikið úrval
af kertaskreytingum, servéttum, kertum og
kertastjökum frá kertagalleríinu Flóru þar sem þú
kaupir fjóra eins hluti og fœrð þann fimmta frían.
Kertaiólaseríur kr. 490,- borðklukkur kr. 1500,- og
borðspeglar frá kr. 1500,- i
Gottverð x
/ • / I II w w ■ « * W ■ w
..i jolapakkann
hja krökkunum
Lion King inniskór kr. 650,-, fallegir jólakjólar
frá kr. 1200,- bílabraut kr. 999,- Blur drengjahúfur
á kr. 990,- tölvuúr kr 600,-mikið úrval af spilum,
leikföngum og geisladiskum frá kr. 399,-.
.... . * Gottverð
..i jolamatinn
handa öllum
Lambakjöt, svínakjöt, hangikjöt, síld, reyktur og
grafinn iax, humar. rœkjur, kartöflur, laufabrauð,
jólakökur, tertur, ný og kœst skata, hákari,
saltfiskur, harðfiskur og margt, margt fleira.
..og þetta er aðeins sýnishorn af
vöruúrvalinu. Einnig antikvara
og antikhúsgögn á frábæru verði
Komdu í Kolaportið
©
frá kr. 189,-
©
-þar sem allt fæst
í jólapakkann
og jolamatinn
á góðu verði
* *
^ KÖLAPORTIÐ
Fréttir__________________________pv
Atvinnuþróunarfélag VestQaröa stofnaö:
Undirtektir fram úr
björtustu vonum
- segir Brynjólfur Gíslason, formaður undirbúningsnefndar
Um 95 fulltrúar fyrirtækja, einka-
rekstrciraðila og einstaklinga sóttu
stofnfund Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða sem haldinn var á Hótel
ísafirði laugardaginn 16. nóvember.
Að sögn Brynjólfs Gíslasonar, sveit-
arstjóra á Tálknafirði, sem jafn-
framt var formaður undirbúnings-
nefndar, fóru undirtektir fram úr
björtustu vonum.
Fulltrúar 47 fyrirtækja mættu til
fundarins, 11 aðilar í einkarekstri
og 37 einstaklingar voru þar skráð-
ir. Fyrsta áfanga er lokið og næst-
komandi mánudag kemur nýkjörin
stjóm saman og skiptir með sér
verkum. Þá verður eitt af fyrstu
verkunum að auglýsa eftir markaðs-
fulltrúa og setja niður dagskrá
næstu vikna og mánaða. Brynjólfur
segist vonast til að starfsemin fari
af stað með látum, því það megi
ekki taka það rólega þó nú séu að
koma jól.
í nýkjörinni stjóm em Aðal-
steinn Óskarsson, framkvæmda-
sfjóri Byggðastofnunar á ísafirði,
Halldór Halldórsson, fi-amkvæmda-
stjóri Fj órðungssambands Vest-
fjarða, Magdalena Sigurðardóttir,
ísafirði, Gunncir Jóhannsson,
Hóbnavík, Sigurður Jónsson, ísa-
firði, Brynjólfur Gíslason, sveitar-
stjóri á Tálknafirði, og Áslaug Al-
freðsdóttir á ísafirði. í varastjóm
vom kjörin þau Angantýr Jónas-
son, Þingeyri, Kristinn Jón Jóns-
son, ísafirði, Guðrún Stella Gissur-
ardóttir, Bolungarvík, Bjami Hall-
dórsson, Reykhólum, Guðrún Guð-
mannsdóttir, ísafirði, Jóhannes
Haraldsson, Reykhólum, og Sigur-
borg Þorkelsdóttir, Isafirði. Stofnfé-
lagar em skráðir vítt og breitt af
Vestfjörðum þó ekki hafi margir séð
sér fært að mæta til fundarins utan
þátttakenda cif norðanverðum Vest-
flörðum, enda samgöngur til ann-
arra þéttbýliskjama á Vestfjörðum
mjög tvísýnar á þessum árstíma.
-HK
Sveitarstjórnarmenn af öllu landinu sátu ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga á Hótel Sögu helgi eina nýlega. Að kvöldi
fyrri dagsins var efnt til hátíðar til að efla andann og lífsblómið. Margt var til skemmtunar. ísólfur Gylfi Pálmason al-
þingismaður söng með þeim Margréti Einarsdóttur, Skógum, t.v., og Sigríði Sveinsdóttur, Ásmundarstöðum, en báð-
ar eru Rangæingar eins og þingmaðurinn. DV-mynd Kristján, Selfossi
■■ ••
Fjörmiklir
sveitar-
stjórnar
Á hátíð sveitarstjórnarmanna var
spurningakeppni þar sem þrjár Drif-
ur svöruðu erfiðustu spurningum
létt. Þær eru, frá vinstri: Drífa Hjart-
ardóttir, Keldum, Rangárvallasýslu,
Drífa Kristjánsdóttir, Biskupstung-
um, og Drífa Valdimarsdóttir, Eyrar-
bakka. DV-mynd KEI
Kaupfélag Borgfirðinga:
Mikil fjárfesting
og aukin sala
- Rekstur KB í jafnvægi fyrstu níu mánuðina
DV, Vesturlandi:
Samkvæmt 9 mánaða milliupp-
gjöri Kaupfélags Borgfirðinga, sem
nú liggur fyrir, varð nokkur hagn-
aður af starfsemi félagsins án tillits
til afkomu hlutdeildarfélaga. Milii-
uppgjör liggur ekki enn þá fyrir hjá
öllum hlutdeildarfélögunum og því
ekki hægt að segja með vissu hverju
það breytir.
„Við reiknum með að milliupp-
gjörið fyrir hlutdeildarfélögin liggi
fyrir í vikunni," sagði Þórir Páll
Guðjónsson, kaupfélagsstjóri hjá
KB.
Sala hefur aukist í flestum deild-
um, mest í mat- og byggingarvörum.
Kaupfélagið hefur fjárfest mikið á
árinu og endurbætt hús og það dreg-
ur úr hagnaði. Einnig hefur verið
samið við Kaupfélag Kjalnesinga um
að Bifreiðastöð Kaupfélags Borgfirð-
inga taki við flutningi mjólkur frá
Mosfellssveit vestur í Leirár- og
Melasveit. Um er að ræða ríflega 3,5
mifljónir lítra á ári. -DVÓ