Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996 23 Fréttir Fljótaá í Fljótum: Leigan hefur hækkað um 100 prósent á fjórum árum DV, Fljótum: Gengið hefiir verið firá leigu- samningi á Fljótaá í Fljótum til næstu fimm ára. Leigutaki er Hannes Baldvinsson á Siglu- firði ásamt nokkrum félögum úr Stangveiðifélagi Siglfirðin'ga. Áin var boðin út í haust og átti Hannes hæsta tilboðið upp á liðlega 3,6 miiljónir króna. Undanfarin þrjú ár hefúr hef- ur Ferðaþjónustan Bjamargili í Fljótum hafa ána á leigu og greitt fyrir á ári 2,5 milljónir króna. Leigan hækkar því um -----------------------feiUgcnta. 44% við útboðið sem hlýtur að teljast veruleg hækkun, ekki síst í ljósi þess að leiga á veiðiám hefur í sumum tiifell- um lækkað síðustu árin. Þegar Fijótaá var boðin út árið 1993 var leiguupphæðin 1,8 milljónir króna og hefur því greiðsla fyrir ána hækkað um 100% á fjórum árum. Mjög mikil bleikjuveiði hefur verið í Fljótaá síðustu sumur en laxveiöi farið minnkandi. í sumar fengust 85 laxar úr ánni. -ÖÞ Höfn í Hornaflrði: Allt að færast í fyrra horf DV; Höfn: „Það er farin að lyftast brúnin á mér og þetta er allt að taka við sér aftur," sagði Egill Jón Kristjánsson á Fiskmarkaði Hornafjarðar þegar búið var að opna veginn um Skeið- arársand og fyrsti fiskfarmurinn var kominn á flutningabíl. Það -dró mikið úr framboði á markaðnum þegar vegasambandið rofnaði og ekki var hægt að koma fiskinum samdægurs til kaupenda. Fiskmarkaður Hornafjarðar, sem einnig er með útibú á Fáskrúðsfirði, selur fisk fyrir alla Austfirði. Sl. ár voru seld milli 5 og 6 þúsund tonn af fiski en það sem af er þessu ári er salan rúmlega 8 þúsund tonn. -JI Pósthús Fljóta- manna á Siglufirði DV, Fljótnm: Um síðustu mánaðamót var póst- húsið á Ketilási í Fljótum lagt niður og var 30. nóvember síðasti dagur- inn sem pósthúsið var opið. Við lok- unina fluttist Pósthús Fljótamanna til Siglufjaröar og mun allur póstur fara þangað til sundurlesturs. Póst- áritun, það er 570 Fljót, mun þó haldast óbreytt að minnsta kosti fyrst mn sinn. Við þessa breytingu verður tekin upp póstdreifing með landpósti alla virka daga um Fljótin en var áður þrjá daga í viku. í tilkynningu frá Pósti og síma kemur m.a. fram að fyrirtækið vænti þess að breytingin leiði til jafn góðrar eða jafnvel betri þjón- ustu en áður þar sem starf land- pósts er jafngildi þjónustu við heim- ili þegar þess er þörf. Eins og áður muni landpóstur skiia öllum al- mennum pósti í póstkassa við heim- reiðar en ef um ábyrgðarbréf, böggla og póstkröfur sé að ræða fari afhending fram við heimili og þar geti notendur einnig greitt gíróseðla og póstlagt sendingar. -ÖÞ Byggöasafn Skagflrðinga: Gestir liðlega 20 þúsund DV, Fljótum: Liðlega 20 þúsund manns komu i Byggðasafh Skagfirðinga í Glaum- bæ í sumar. Þetta er lítils háttar fækkun frá 1995 sem segir þó ekki alla söguna því nú voru sýningar frá safninu á tveimur stöðum í sum- ar - í Pakkhúsinu og Vesturfara- setrinu á Hofsósi og á Vindheima- melum. Á þessi staði komu 13 þús- und gestir og hafa því 33 þúsund manns skoðað það sem byggðasafn- ið hafði til sýnis i héraðinu í sumar. Sigríður Sigmrðardóttir safiistjóri sagði í samtali við DV að hún væri mjög sátt við þessa aðsókn. Byggða- safniö væri stöðugt í sókn og gesta- koma nokkuð árviss. -ÖÞ ^kr. 3.990—JHR2845 Blandari • 1,5 lítra • 3 hraðastillingar kr. 3.390- Gufustraujárn HD 1488 —kr. 2.590—jn04815 Toastissimo-brauðrist • Falleg hönnun kr. 2.980 HR 1490 Handþeytari • Kraftmikill m/3 hraðastillingum ^KENWOODV Djúpsteikincjar- -■kenwood;* * Hárblásari d* ^KENWOOD^ Rafmagnshnífur KENWOOD* Rafmagnspanna d

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.