Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Qupperneq 26
34
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996
vefur og
Atli Rúnar Halldórsson hjá Athygli, G. Valdimar Valdimarsson, kerfisfræöingur hjá Ferli, og Guðmundur
Lúðvíksson myndlistarmaöur eru mennirnir bak við vefsíöu Hvalfjarðarganganna. DV-mynd Hilmar Þór
„Við byrjuðum að vinna í síðunni
i júní. Við hjá Athygli höfðum áður
lagt til að hluti af kynningastarfi
vegna Hvalfjarðarganga færi fram á
Intemetinu en það hlaut ekki nægi-
legan hljómgrunn. Við ákváðum
samt að setja síðuna á vefinn og
halda henni við þar enda höfðum
við þegar lagt mikla vinnu í hana,“
segir Atli Rúnar Halldórsson hjá al-
mannatengslafyrirtækinu Athygli
en hann og félagar hans, G. Valdi-
mar Valdimarsson, kerfisfræðingur
í Ferli, og Guðmundur R. Lúðvíks-
son myndlistarmaður hafa sett upp
umfangsmikla vefsíðu um Hval-
fjarðargöngin.
Reynslan er ágóðinn
Að sögn Atla Rúnars liggur ágóði
þeirra félaga af því að setja síðu
eins og þessa á vefinn helst í því að
þeir geti prófað sig áfram með þenn-
an nýja miðil. „Enginn okkar hefur
líka unnið að nákvæmlega svona
verkefhi áður og það er þvi mjög
lærdómsríkt og gefur okkar góðar
hugmyndir fyrir framtíðina," bætir
Guðmundur við. Atli Rúnar segir að
það sé margt við Hvalfjarðargöngin
sem bjóði upp á að áhugaverð vef-
síða sé sett upp um þau. „Bygging
þeirra er mál sem hefur vakið mikla
athygli í þjóöfélaginu og það eru
stöðugar fréttir af framkvæmdinni.
Eins og gefúr að skilja þá erum við
í góðri aðstöðu til að fá nýjustu
fréttir af gangi mála í Hvalfirðinum
enda sér Athygli um kynningarmál
Spalar. Samt sem áður erum við rit-
stjórar og eigendur vefsins. Grunn-
upplýsingamar um göngin eru til
dæmis yfirfamar af sérfræðingum.
Enda á þetta að vera áreiðanlegur
vefur.“ Valdimar bendir á að hvergi
sé jafnmikið af upplýsingum um
gangagerðina til á einum stað og
samsinna félagar hans honum og
nefna dæmi um að ýmsir fjölmiðlar
hafi fengið fréttir um Hvalfjarðar-
mál frá vefsíöu þeirra.
Þeir félagar hafa boðið fyrirtækj-
um sem tengjast Hvalfjarðargöng-
um að taka þátt í að kosta vefsíðuna
og að sögn Atla Rúnars lofa við-
brögðin góðu.
Áhersla
á innihald
Þeir leggja áhersiu á að Intemet-
ið sé ágæt viðbót við aðra miðla og
að með því séu þeir að ná til annars
hóps en til dæmis horfir á sjón-
varpsfréttir. „Með vefsíðu af þessu
tagi getur hver sem er komist fram
hjá fjölmiðlakerfinu. Ég held til
dæmis að við séum að ná til yngra
fólks með síðunni en við myndum
gera með öðrum miðlum,“ Guð-
mundur telur að erlendir sérfræð-
Vefsíða Hvalfjarðarganganna:
ingar og skólafólk geti haft góð not
af þvi sem þar er að finna og þvi er
Atli Rúnar sammála. „Það er líka
ætlunin að það sé raunverulegt
innihald á okkar siðu. Það er mikið
af mjög yfirborðskenndum síðum á
veraldarvefnum sem innihalda fátt
annað en flotta grafík. Við erum að
reyna að tvinna saman mikið af
texta og góða grafik og búa þar með
til fræðandi og gagnlega síðu.
Þeir félagar segjast hafa haft gam-
an af samstarfinu og segja í gríni að
nokkur togstreita ríki milli texta-
höfundarins, Atla Rúnars, og Guð-
mundar myndlistarmanns. „Þar
lendir kerfisfræðingurinn á milli,“
segir Atli Rúnar og hlær við.
Vefsíðu Hvalfjarðarganganna er
að finna hjá Nýherja
http://itn.is/gong
-JHÞ
Heitustu
tölvuleikirnir
PC
1. (-) Red Alert
2. (-) FIFA 97
3. (1) Champ. Manager II
4. (-) Ultim. Soccer Manager II
5. (3) Screamer n
6. (10) Flight Simulator 6.0
7. (-) Tomb Raider
8. (-) Full Throttle
9. (AI) Tie Fighter Collection
10. (-)Classic Comanche II
Vinnuþjarkur á hagstæðu verði
Apple-umboðið býður nú Power Macintosh 7600/132
tölvur á tilboði sem endist til jóla. Slíkar tölvur eru bún-
ar 132 megariða PowerPC 604 örgjörva, 120 MB hörð-
um diski og 48 megabæta vinnsluminni. Minni tölv-
unnar er stækkanlegt upp í 512 megabæt og hægt
verður að skipta út örgjörvanum þegar öflugri örgjör-
var koma á markaðinn. Með tölvunni fylgir 17" App-
leVision skjár en tölvan hefur 2 megabæta skjáminni.
Það dugar til að birta 16,7 milljónir punkta samtím-
is. Með tölvunni fylgir nýjasta útgáfan af Microsoft
Office og með viröisaukaskatti kostar hún 361 þúsund.
-JHÞ
jliúlyjj -> Uu.j.jijJyiJ -> júa/J
iiyjjj ÍjJjj -> iiU/jJid jj.jj -
j'JiJi JJ - íij
Írjjij ijjjj.
/j/jjíuLmJC
lofk Holmpv.
» Mokinq ID4
♦ j5r(wfp> Sfiikr
ííffTírt • Wippoul 2097
1 CmixocIpi • Hmvp\fpi
looinfnuk
Engin
landamæri virt
Eins og allir vita sem vilja vita þá er Intemetið ansi stjómlaust fyr-
irbæri þar sem lög og reglur einstakra landa mega sín oft lítils enda
virða notendur netsins engin landamæri. Margir vilja hins vegar koma
reglu á óreiðuna en gallinn virðist vera sá að Intemetið virðir engin
landamæri. Til dæmis gæti reynst snúið að stöðva róg gegn fyrirtækj-
um og einstaklingum. Rógurinn gæti verið settm’ fram af íslendingi og
beinst gegn aðilum hér á landi en verið komið á framfæri með miðlara
í Kanada. Rógberinn gæti líka haft lögheimili sitt í Kanada en notað ís-
lenskan miðlara til þess að setja efnið fram. Það er sennilega endalaust
hægt að deila um það í hvoru landinu fórnarlömbin ættu að leita á náð-
ir dómstóla. Sama gildir um fyrirbæri eins og fjárhættuspil. Fyrirsjáan-
legt er að hægt verði að greiða fjárhæðir með öraggum hætti í gegnum
Internetið og þegar það verður að veruleika er ekki erfitt að ímynda sér
aö spilafíklar hér á landi og annars staðar sæki í spilavíti á netinu.
Erfitt gæti reynst að stöðva slíkt og greinilegt er að mörgum spuming-
um er ósvarað um það hvemig einstök ríki ætla að aðlaga sig þessum
nýja veraleika.
Eins og oft vill verða þegar tæknin veldur möimum heilabrotum hafa
komið fram ýmsar ansi nýstárlegar hugmyndir um hvemig eigi að
bregðast við. Sumir halda því fram að netið sé í rauninni nýr heimur
þar sem lög sem byggjast á landfræðilegum markalínum gildi ekki. í
þeirra stað verði aö semja ný lög og gera skýr mörk milli „netheimsins"
og hins raunverulega heims. Aðrir vilja að ríki heims komi sér saman
um lagabálk um Intemetið og minna hugmyndir þeirra um margt á Ha-
fréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það er hins vegar erfitt að fá þjóð-
ir heims til að semja slík lög og margir „netbúar" era lítt hrifnir af
hvers konar hugmyndum um lög og reglugerðir um netið. Einmitt þess
vegna hafna þeir flestir þriðju hugmyndinni um lög og reglu á netinu
en hún gengur út á að sérstakur dómstóll úthluti öllum Intemet-notend-
um númeri sem veiti þeim aðgang að netinu. Dómstólliim geti svo svipt
brotamönnum aðgengi í lengri eða skemmri tíma.
Samantekt: JHÞ
Apple
Macintosh
1. Warcraft II
2. Descent n
3. Mech Warrior II
4. Abuse
5. Bad Mojo
Sony
Playstation
1. Tomb Raider
2. Soviet Strike
3. Tekken n
4. Wipeout 2097
5. Star Gladiator
Sega
1. NBA Live 97 (Megadrive)
2. Fifa 97 (Megadrive)
3. Sonic (Megadrive)
4. NBA Action (Satum)
5. Destraction (Satum)
Super
Nintendo
1. Toy Story
2. Donkey Kong Country D
3. Donkey Kong Country II
4. Donald in Maui
5. Super Mario World II