Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Síða 48
Vtomtotg&t&lw Imtgmáaigimi 7.12.^6
töSlr 27 33
Heildarvinningsupphæð
7.481.304
Vinningar Fjöldi vinninga Vinningsupphæð
l.BqfB iSÍ®-0 4.474.034
2.4qf5 + 149.230
3. 4<tfS 86 8.980
4. 3 4f5 2,930 610
ter @@@@
(24) (25) (28)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðást 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum aiian
sólarhringinn.
Ba550 5555
Frjalst ohað dagblaÖ
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996
EskiQörður:
Maður lést
á rjúpna-
* veiðum
Karlmaður á sextugsaldri lést á
rjúpnaveiðum skammt frá Eski-
firði í gær. Rjúpnaskyttur gengu
fram á manninn í fjallshlíð rétt
innan við Ytri-Þverá í Eskifjarðar-
dal um miðjan dag og var hann þá
látinn. Dánarorsök liggur ekki fyr-
ir en engir áverkar voru á mannin-
um.
Maðurinn fór snemma að heim-
an á Eskifirði í gærmorgun. Ágæt-
lega viðraði til rjúpnaveiða en
erfitt að fara yfir vegna mikilla
snjóa.
-bjb
L O K I
Fíkniefnaátak almennu lögreglunnar í Reykjavík um helgina:
Fundu hálft kíló
af hassi við leitir
- fimm handteknir en sleppt að loknum yfirheyrslum
Sérstakt átak almennu lögregl-
unnar í Reykjavík um helgina í
fikniefnamálum leiddi til þess að
hald var lagt á töluvert magn
fikniefna í nokkrum handtökum
og húsleitum. Alls var tekið um
hálft kíló af hassi, talsvert magn af
E-töflum, lítilræði af amfetamíni
og nokkurt magn óþekktra fikni-
efna sem eftir er aö efnagreina.
Fjöldi áhalda til fikniefnaneyslu
komst undir hendur lögreglunnar
í þessu átaki. Fimm karlmenn
voru handteknir vegna þessara
mála. í yfirheyrslum viðurkenndu
þeir brot sín og var þeim sleppt.
Mál þeirra verða send RLR og
embætti ríkissaksóknara til frek-
ari meðferðar.
Fyrsta handtakcm var að morgni
laugardags. Þá var farið inn í hús
í austurbæ borgarinnar og hald
lagt á rúm 100 grömm af hassi, 10
E-töflur, nokkur grömm af am-
fetamíni og talsvert af óþekktum
fíkniefnum sem þurfa nánari efna-
greiningu við. Tveir menn voru
teknir í þessari húsleit og viður-
kenndu þeir að hafa átt efnin.
Sögðu þau hafa verið til einka-
neyslu en ekki í sölu.
Að kvöldi laugardags fór lög-
reglan í hús í vesturbænum. Þar
fundust tæki og tól til fíkniefna-
neyslu en lítið sem ekkert af efn-
um. Tveir menn voru handteknir
en þeim sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Mótspyrna í Lækjargötu
Um þrjúleytið í fyrrinótt stöðv-
aði lögreglan mann á bíl við Lækj-
argötu. Þar reyndist þekktur fíkni-
efnasali á ferð. Hann veitti mikla
mótspyrnu þegar lögregiumenn
reyndu að koma á hann böndum.
Rúmlega 300 grömm af hassi fund-
ust í bíl hans auk tækja til fikni-
efnaneyslu. Hann viðurkenndi að
hafa átt hassið en sagði það ætlað
til eigin neyslu. Lögreglan tók það
lítt trúanlegt.
í framhaldi þessara mála gerði
lögreglan tvær húsleitir i austur-
bænum um miðjan dag í gær. Tals-
vert fannst af tækjum til fíkniefna-
neyslu en sama og ekkert af efn-
um. Enginn var handtekinn á
þessum stöðum.
-bjb
Lögreglan í Reykjavík haföi óvenjuvakandi auga meö fíkniefnum um helgina. Átakiö leiddi til þess aö fimm karlmenn
voru handteknir og hald lagt á um hálft kíló af hassi auk lítilræöis af amfetamíni og E-töflum. Hér handtekur lögregl-
an fíkniefnasala í Lækjargötu í fyrrinótt en hann veitti talsveröa mótspyrnu þegar koma átti honum í bílinn. Hann var
meö rúm 300 grömm af hassi f bíl sínum. DV-mynd s
Gamli Laxfoss:
íslenskur
háseti lést
í vinnuslysi
íslenskur háseti lést í vinnuslysi
um borð í flutningaskipinu Silke-
borg, gamla Laxfossi, á Ítalíu í fyrr-
inótt. Skipið var nýkomið tU hafnar í
borginni Livorno þegar slysið átti sér
stað. Það varð með þeim hætti að
verið var að opna aksturshlera á skut
skipsins þegar slaki kom á vír. Talið
er að vírinn hafi slegist í manninn
með þeim afleiðingum að hann lést
samstundis.
Hinn látni hét Einar Ingi Friðriks-
son. Einar var 45 ára að aldri, fráskil-
inn en lætur eftir sig þrjú börn.
SUkeborg hefur verið í siglingum
mflli Ameríku og S-Evrópu síðustu
mánuði sem leiguskip hjá dönskum
útgerðaraðUa. -bjb
Átján stútar
Óvenjumargir ökumenn voru tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur á göt-
um Reykjavíkurborgar um helgina,
eða aUs 18 fram að kvöldmatarleyti í
gærkvöld. Lögreglan bendir öku-
mönnum á að ef þeir lenda í árekstri
undir áhrifum áfengis eða annarra
vímuefna þá séu þeir undantekning-
arlaust gerðir ábyrgir fyrir því tjóni
sem þeir valda. -bjb
Veðrið á morgun:
Frost um
allt land
Það verður frekar kuldalegt um
að litast á landinu á morgun en
spáð er frosti um aUt land. Gert er
ráð fyrir norðaustankalda, élja-
gangi um norðanvert landið en
víða léttskýjuðu syðra. Frostið
verður mest við ströndina á Vest-
fjöröum eða aUt að sjö stig en
minnst 2-4 stig á Austfjörðum og
suðausturhorninu.
Veðriö í dag er á bls.52
ZEKIWA
□úkkuvagnar
Heildverslunln Bjarkey
Ingvar Helgason