Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Page 9
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997
9
dv Stuttar fréttir
Útlönd
Hótar skæruliöum
Alberto Fujimori, forseti Perú,
hét því í gær að þurrka út hreyf-
ingu skæruliðanna sem halda 73
manns í gíslingu í bústað jap-
anska sendiherrans í Lima.
Enn gegn ESB
Thorbjarn Jagland, forsætis-
ráðherra Noregs, segir ekki í bí-
gerð að sækja um aðild að Evr-
ópusambandinu, ESB, í nánustu
framtíð.
Lofar greiðslum
Á fundi með Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, lofaði
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti að greiða
skuldir Banda-
ríkjanna til
samtakanna.
Annan lofaði á
móti að gerðar
yrðu víðtækar endurbætur á
starfsemi Sameinuðu þjóðanna.
Vopnaðir verðir
Alþjóða Rauði krossinn íhugar
að láta vopnaða verði gæta starfs-
fólks samtakanna í Rúanda í kjöl-
far morðanna á þremur spænsk-
um hjálparstarfsmönnum.
Djöfladýrkendur teknir
45 ungir Egyptar voru í gær
úrskurðaðir í gæsluvarðhald í 15
daga vegna gruns um djöfladýrk-
Papon fyrir rétt
Hæstiréttur Frakklands úr-
skurðaði í gær að réttað yrði yfir
Maurice Papon, æðsta fulltrúa
Vichy-stjórnarinnar í stríðinu.
Hann er sakaður um aö hafa flutt
1500 gyðinga í útrýmingarbúðir
nasista.
Leiðtogum sleppt
Lögreglan í S-Kóreu sleppti í
gær úr haldi íjórum verkalýðs-
leiðtogum eftir að ákæra á hend-
ur þeim var felld niður.
Vilja heim
Fimm af sextán liðsmönnum
eþíópíska landsliðsins í knatt-
spymu, sem leituðu pólítísks
hælis á Ítalíu, vilja nú halda
heim.
Jemima i baráttuna
Jemima Khan, auðug eigin-
kona fyrrum pakistanska
krikketleikar-
ans Imrans
Khans, tók í
gær í fyrsta
sinn þátt í
kosningabar-
áttu manns
síns sem
myndaði
stjómmála-
flokk fýrir 9 mánuðum. Imram
hefúr verið sakaðrn- um þiggja fé
af tengdafoður sínum sem er gyð-
ingur.
Misskildir leiðtogar
Franski hægrimaðurinn Jean-
Marie Le Pen, sem er í heimsókn
í Pale í Bosníu, hyllti í gær leið-
toga Bosníuserba og sagði þá
misskilda.
Myrða óbreytta borgara
Hermenn í Rúanda hafa myrt
rúmlega 50 óbreytta borgara í
þessari viku, að því er hjálpar-
starfsmenn greina frá. Reuter
Þingmaöur rotaður í aðgerðum lögreglu í Serbíu í gær:
Löggan réðst á
fólkið með kylfum
Mikil harka hljóp í mótmælaað-
gerðir í borgum og bæjum Serbíu í
gær eftir að lögregla hafði ráðist til
atlögu gegn mótmælendum á þjóð-
vegi 140 km suður af Belgrad og lát-
ið kylfuhöggin dynja á fólkinu.
Lögregla lét til skarar skríða í
nokkrum borgum og í tilraim til að
leysa upp mótmæli sem staðið hafa
67 daga í röð. Krefjast mótmælend-
ur þess að stjómvöld viðurkenni
kosningasigm stjómarandstöðunn-
ar í 14 borgum, þar á meðal
Belgrad, en stjórn sósíalista ógilti
sigurinn vegna meints kosninga-
svindls.
Óeirðalögregla var send til þjóð-
vegarins nærri bænum Kragujevac
þar sem hundruð mótmælenda
höfðu lokað veginum til að mót-
mæla yfirráðum sósíalista yfir
sjónvarpsstöð héraðsins. Þingmað-
urinn Zoran Simonovic var rotaður
með kylfiun og fluttur meðvitund-
arlaus á sjúkrahús. Hann komst til
meðvitundar í gærkvöld en verður
nokkrar vikur að ná sér af höfuð-
meiðslum, að sögn lækna.
Simonovic sagði fréttamanni
Reuters, þar sem hann lá á sjúkra-
húsinu, að hann furðaði sig á því
hatri og hreinræktaða æði sem
runnið hefði á lögreglumennina.
Þeir hefðu vaðið fyrirvaraiaust á
fólkið sem sat friðsamt á veginum
og látið kylfuhöggin dynja á því.
Alls særðust 15 manns í átökunmn.
„Mig hafði aldrei dreymt um að
sjá þvilíkt hatur skína úr augum
nokkurs manns,“ sagði Simonovic.
Talsmenn mótmælenda hvöttu
sitt fólk til að halda ró sinni í gær-
kvöld og sögðu að rósemdin mundi
hitta ráðamenn verst fyrir.
Reuter
Óeirðalögregla beitti kylfum á mótmælendur á þjóðvegi skammt suður af Belgrad í gær. Réöst lögreglan fyrirvara-
laust á fólkið og slösuðust 14 manns. Þingmaður var rotaöur og verður nokkrar vikur að ná sér. Sfmamynd Reuter
Biður Clinton
að miðla mál-
um í Alsír
Einn helsti leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í Alsír, Hocine
Ait Ahmed, hvatti í gær Bill
Clinton Bandarikjaforseta til að
útnefna sáttasemjara til að
hjálpa til við að binda enda á
hryðjuverk íslamskra bókstafs-
trúarmanna. Undanfamar tvær
vikur hafa 170 manns látið lífið
í sprengjutilræðum og árásum
íslamskra skæruliða.
Ahmed sagði við fréttamenn í
Róm í gær að öngþveiti ríkti í
Alsír og að Frakkar, sem hefðu
náin samskipti við stjómvöld í
Alsír, bæm fyrst og fremst
ábyrgð á aðgerðaleysi umheims-
ins.
Félagar í mót-
orhjólagengj-
um skotnir
í Noregi
Skotið var á tvo félaga í
norska mótorhjólagenginu Út-
lögum á miðvikudagskvöld og
særðist annar þeirra alvarlega,
að því er norska lögreglan
greindi frá í gær. Annar maim-
anna var skotinn i bijóstið í
klúbbhúsi félagsins en hinn var
skotinn I fótinn fyrir utan bygg-
ingu í Ósló. Fimm manns vora
handteknir vegna málsins.
Útlagamir eru í tengslum við
mótorhjólagengið Bandidos sem
á í striði við Hells Angels.
Vara við
hungursneyö
I fyrrum
Júgóslavíu
Yfir tvær milljönii- manna í
fyrrum Júgóslavíu eiga á hættu
aö svelta með vorinu verði ekki
gripið til aðgerða, að því er tals-
menn Sameinuðu þjóðanna
greindu frá í gær.
í yfirlýsingu stofnunarinnar
sagði að hætta væri á óstöðug-
leika í Bosníu ef nær tvær millj-
ónir manna fengju ekki nægileg-
an mat. Matarskortur myndi
einnig hijá hundrað þúsunda
flóttamanna í Serbíu, Svartfjalla-
landi og austurhluta Slóveníu.
Hvetja Sameinuðu þjóðimar
til þess að strax verði hafist
handa því það taki þrjá mánuði
aö koma matargjöfúm til viðtak-
enda. Reuter
Hart sótt að Jeltsín
í báðum þingdeildum
Efri deild rússneska þingsins
hvatti í gær Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta til að reka einn helsta
ráðgjafa sinn, kaupsýslumanninn
Borís Berezovsky. Hann hefúr verið
gagnrýndur fyrir að leggja til að
kósakkar í suðurhluta Rússlands fái
að bera vopn 1 sjálfsvamarskyni.
Einnig hefúr verið hart sótt að
Jeltsín í neðri deild þingsins þar
sem rætt hefur verið um að hann
segi af sér vegna heilsubrests.
í dag verður fjárlagaframvarp
rússnesku stjómarinnar til um-
ræðu í neðri deild þingsins. Komm-
únistaflokkurinn, sem er stærsti
flokkurinn í neðri deildinni, segir
stuðning sinn við frumvarpið háðan
því hversu fljótt stjómvöld greiði
milljónum fátækra Rússa laun og
lifeyri.
Reuter
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjómar
og í önnur trúnaðarstörf Verkakvennafélagsins Framsóknar fyrir árið 1997,
og er hér með auglýst eftir tillögum um félagsmenn í þessi störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 31. janúar
1997. Hveijum lista þarf að fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipholti 50 A.
Stjórnin
HELGHRTI LBOfl # 4
MM Smiðjuvegi 2 MM Fákafeni 9 MM Reykjavíkurvegi 64
N autafram h ryggjafi le 1.250 kr./kg.
r Urbeinað svínalæri 650 kr./kg. Allt álegg með 10% afslætti um helpina.
Svínalundir 995 kr./kg.