Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 28
-9-
Alla laugardaga
Vertu viðbúinfn)
vinningi!
Vinningstölur
23.1/97
6.
I
I
s
CQ
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst.óháð dagblaö
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997
Alein
- og blind
í Helgarblaðinu kennir margra
grasa. Opnuviðtalið er við blinda ein-
setukonu á Uppsölum í Borgarfirði
sem hefur kosið einveruna fram yflr
elliheimili. Hún heldur lífsgleðinni
og kjarkinum þrátt fyrir einmanalegt
líf í myrkrinu. Laddi varð fimmtugur
í vikunni og af því tilefni eru rifjuð
upp mörg þau andlita sem hann hef-
ur sýnt í gegnum tíðina. Rifjuð verða
upp nokkur af bestu sandkomum síð-
asta árs. Einnig verður í blaðinu
fylgst með Árna Sigurðssyni sem
misst hefur 32 kíló á hálfu ári og fjall-
að verður um kjarnorkuvopn Banda-
ríkjamanna á Grænlandi. -em
Formaður Dagsbrúnar:
Stefnir í átök
„Þetta siglir bara eina leið og ég
get ekki séð annað en allt þjóðfélag-
ið geri ráð fyrir því að það verði
tekist á,“ sagði Halldór Bjömsson,
formaður Dagsbrúnar, við DV f
morgun. Dagsbrún og Framsókn,
sem ganga saman til kjarasamn-
inga, eiga fund með VSl hjá sátta-
semjara í dag og Halldór kveðst
ekki eiga von á að út úr honum
'"r komi mikið.
Jón Sigurðsson, hagfræðingur
Vinnumálasambandsins, hefur gert
athugun á afleiðingum þess að
lægstu laun verði 70 þúsund á mán-
uði og telur hann að slík launa-
hækkun myndi valda skriðu á
vinnumarkaðnum, þenslu og ýmiss
konar misgengi og víxlverkun geng-
isfellinga og launahækkana, í stuttu
máli héldi gamla verðbólguástandið
innreið sína.
„Þessar hugsýnir endurspegla að-
eins það álit viðsemjendanna að
þessi hópur sem við erum að semja
fyrir og hefur borið hitann og þung-
ann af niðurfærslu verðbólgunnar
sktfli bara vera þama niðri áfram
til að hinir geti haft það sæmilega
gott,“ segir Halldór Björnsson, for-
maður Dagsbrúnar. -SÁ
Zenith Elaine, 4ra ára, afhent móöur sinni í gærkvöld - fara utan í dag:
Ráðherra féllst á
kröfu sendiherrans
- íslensk stjórnvöld eru aö undirbúa aö vísa Hanes-hjónunum úr landi
„Fyrirfram höfðum við í raun-
inni engar eftirvæntingar um að
þetta færi svona. En við erum
þakklát íslenskum stjórnvöldum
að þau skuli hafa brugðist við
eins og gert var. Móðir og dóttir
eru nú hamingjusamlega samein-
aðar á ný. Þegar þær hittust
urðu viðbrögð þeirra mjög eðli-
leg. Þær eru báðar mjög ánægð-
ar,“ sagði Richard Lundberg,
talsmaður sendiráðs Bandaríkj-
anna í samtali við DV um þá
ákvörðun Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra og banda-
ríska sendiherrans hér á landi í
samráði við stjórnvöld í Was-
hington um að Kefly Jean Helton
frá Arizona fengi íjögurra ára
dóttur sína, Zenith Elaine, af-
henta í gær. Til stendur að
mæðgumar haldi áleiðis tfl
Arizona í dag.
Samkvæmt heimildum DV í
morgun er í undirbúningi af
hálfu íslenskra stjórnvalda að
vísa Connie Jean og Donald
Hanes úr landi en þau hafa ekki
dvalarleyfl hér lengur og reynd-
ar orðið uppvís að því, og viður-
kennt, að hafa farið heimildar-
laust með Zenith frá Bandaríkj-
unum í október 1995. Þeirra bíð-
ur því væntanlega ekkert annað
en handtaka ytra og ákærur fyr-
ir alvarleg brot á bandarískum
hegningarlögum.
Örn Clausen, lögmaður
Kellyar, sagði í samtali við DV í
morgun að sendiherra Banda-
ríkjanna hér á landi hefði síðdeg-
is í gær haft samband við stjóm-
völd í Washington þar sem hon-
um var heimilað að ganga á fund
Þorsteins Pálssonar dómsmála-
ráðherra og kreijast þess í krafti
svoksfllaðs Haag-samkomulags
að barnið yrði afhent móðurinni.
Þar er um að ræða viðurkenn-
ingu á fullnustu erlendra ákvarð-
ana um forsjá barna - það er af-
hendingu þeirra ef um brottnám
hefur verið að ræða.
Lögmenn sem DV hefur rætt
við fullyrða að kæra Hanes-hjón-
anna til Hæstaréttar í gær, þar
sem þau krefjast þess að úr-
skurður Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að barnið hafi verið tekið
af þeim verði felldur úr gildi hafi
engin áhrif á þá ákvörðun sem
þegar hefur veriö tekin af stjórn-
völdum. -Ótt
Leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus var frumsýnt i Þjóðleikhúsinu í gær. Hér sést Guðrún Katrín Þorbergsdóttir for-
setafrú heilsa upp á leikara aö sýningu lokinni. Sýningin þótti bæði stíihrein og fjörug og jafnvel yngstu börnin höfðu
yndi af. Sjá leikdóm á bls. 11.
DV-mynd Hilmar Þór
Patreksfjörður:
Kvenfélagið
frestar þorrablóti
„Ég verð áfram hér í húsinu þar til
bæjarstjóm svarar með formlegum
hætti hver verði þeirra viðbrögð í
málinu," segir Sigurður Ingi Pálsson,
veitingamaður í Felgunni, sem held-
ur enn til í Félagsheimilinu á Pat-
reksfirði. Sigurður segir að Felgan
verði opin um helgina.
Kvenfélag Patreksfjarðar hefur
frestað þorrablóti félagsins vegna
óviðráðanlegra orsaka, eins og stend-
ur í tilkynningu félagsins, en þorra-
blótið átti að vera í félagsheimilinu
annað kvöld. -RR
Hnífsdalur:
Maður og þrjú
börn hætt komin
Maður og 3 böm voru hætt komin
í ofsaveðri í Hnífsdal á sjötta tíman-
um í gær.
Maðurinn var að aka bíl á vegin-
um hjá frystihúsinu Leiti, sem er fyr-
ir ofan bæinn, og var með bömin aft-
ur í. Bíflinn fauk tii í vindhviðu og
ákvað maðurinn þá að yfirgefa bilinn
ásamt bömunum.
Skömmu eftir að þau voru farin út
úr bílnum fauk hann lengra og niður
brekku og valt þar á annan tug
metra. Billinn er talinn ónýtur. -RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Allhvöss
suðvestanátt
Á morgun verður aflhvöss
suðvestanátt með éljum á vestan-
verðu landinu en víða léttskýjað
austan til. Frost verður á bflinu
0 til 7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-2QQ
islenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær llnur
Verð kr. 6.995
■
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443