Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Page 11
JLjX: laugardagur i. febrúar 1997
11
t
L
»
yflr rústum þriðja ríkisins í Berlín,
í kanslarahöllinni. Einnig kom
Sverrir við í Niimberg og var við-
staddur stríðsglæparéttarhöldin
yfir öllum þeim ráðamönnum
þriðja ríkisins sem sigurvegararnir
leiddu fyrir dómstól.
Dagblaðssprengjan há-
punkturinn
„Hápunkturinn á blaðamannsferli
minum, sem spannar nú hátt 150 ár,
var stofnun Dagblaðsins haustið
1975. Ég var algjör Jónasarmaður í
þeim átökum sem áttu sér stað á
Vísi mánuðina áður og lauk með
þeirri sprengingu sem varð þegar
Dagblaðið fæddist,“ segir Hallur
Simonarson blaðamaður sem gekk í
Blaðamannafélagið árið 1948 og er
enn þá starfandi blaðamaður á DV.
„Tilviljanir ráða oft miklu í lífi
manns. Við Svavar heitinn Gests
vorum æskuvinir og hann var mik-
ill örlagavaldur í mínu lífi. Við lék-
um okkur saman, hlupum saman,
áttum báðir íslandsmet í frjálsum
íþróttum, og við spiluðum saman.
Svavar fékk þá hugmynd í KK-
sextettinum haustið 1947 að gefa út
tónlistarblað og ég var til í slaginn.
Jazzblaðið kom út í nokkur ár og ég
er enn stoltur þegar ég fletti þessu
litla, fallega blaði sem við gáfúm út -
rétt tvítugir strákarnir. Næsta sum-
ar varð ég blaðamaður á Tímanum
og lífsstarfið var ráðið,“ segir Hallur.
Hallur átti þriggja mánaða frí á
Vísi sumarið 1975 sem fór að mestu
í spil, - fyrst á Norðurlandamótinu
i bridge, síðan á Evrópumeistara-
mótinu. Þegar heim kom voru ein-
hverjar vikur eftir af fríinu og fór
hann þá fljótt að vinna með Jónasi
Kristjánssyni að undirbúningi Dag-
blaðsins.
„Það var stórkostlegur tími - sá
skemmtilegasti sem ég hef átt sem
blaðamaður. Mikill lærdómur að sjá
hvernig Jónas vann að undirbún-
ingi blaðsins. Allt lék í höndum
hans. Við vorum fyrst í þessu tveir
í nokkurn tíma en síðan bættust
fleiri við, meðal annars Hallur
Hallsson, sonur minn, sem þar hóf
sinn blaðamannsferil,“ segir Hallur.
Þegar blaðið kom út í fyrsta sinn
streymdu þúsundir íslendinga nið-
ur í Austurstræti til að berja blaðið
augum og kaupa það. Mesta spreng-
ing 1 íslenskri blaðaútgáfu.
„Þó vinna mín á blaðinu snerist
þá mest í kringum sportið hannaði
ég opnuna frægu í DV daginn eftir
um mannfjöldann í Austurstræti.
Næstu vikur og mánuði snerist allt
um blaðið - áhuginn mikill og ekk-
ert talið eftir. Meira að segja spilin
urðu að vikja þó ég endaði ferilinn
með enn einum íslandsmeistaratitl-
inum í bridge 1976.
Það er skemmtileg tilviljun að í
fjóra vetur vorum við bekkjar-
systkin í Ágústarskólanum Ella
Pálma á Mogganum, ívar Jónsson,
Þjóðviljanum, og Bragi Sigurðsson,
lögfræðingur og blaðamaður á DB.
Þau héldu yflr Lækjargötuna upp í
skólann þar í brekkunni en ég var
orðinn pabbi, - Símonar Hallsson-
ar, núverandi borgarendurskoð-
anda Reykjavíkur. Þá skildi leiðir
okkar flögmra um tima en endur-
nýjuðust aftur í blaðamannafélag-
inu,“ segir Hallm• sem hefur verið
endurskoðandi Blaðamannafélags-
ins í 37 ár.
I
»
I
Úskrifandi um sjötugt
Gísli J. Ástþórsson hélt til Banda-
rikjanna síðla árs árið 1942 og út-
skrifaðist frá blaðamennskudeild
University of North Carolina í árs-
lok 1945. Gisli hefur starfað sem
blaðamaður á Mogganum, sem rit-
stjóri og helmingseigandi Vikunnar,
sem ritstjóri Alþýðublaðsins, á dag-
skrárdeild Ríkisútvarpsins og aftur
sem blaðamaður á Morgunblaðinu.
Hann starfaði þar til sjötugs.
„Þegar menn eru sjötugir verða
þeir á einni nóttu óalandi og óferj-
andi og mikið hvort þeir eiga að
heita færir um að skrifa nafnið
sitt,“ segir Gísli J. Ástþórsson,
blaðamaður og fyrrum ritsljóri.
Háskalegur krataum-
hverfinu
„Ég tók við ritstjóm Alþýðublaðs-
fólk
ins í upphafi fyrsta þorskastríðsins
og þar var líf i tuskunum. Þar til
einn góðan veðurdag að ég var allt í
einu orðinn háskalegur krataum-
hverfinu. Ég fékk pokann minn í
skoplegri senu niðrí Stjómarráði
með þáverandi forsætisráðherra á
aðra hönd og utanríkisráðherra á
hina. En þeir stungu í posann sex
mánaða kveðjulaunum, hvað gerði
þetta allt langtum bærilegra," segir
Gísli.
Gísli hefur ekki alltaf stundað
blaðamennskuna en hann fór á síld
og kenndi ensku í gagnfræðaskólan-
um í Kópavogi auk þess að stunda
eigin ritstörf. Hann hefur skrifað
nokkrar skáldsögur auk þriggja
sjónvarpsleikrita.
„Ég hef átt blessunarlega annríkt
og verið svo hundheppinn að þessar
hliðargreinar minar hafa verið af-
þreying fremur en erfiði. Sigga
Vigga varð til á Alþýðublaðinu og
hélt síðan áfram í nokkur ár á
Morgunblaðinu. Hún var einnig gef-
in út í fjórum kiljum og trónar á
mynd í Alfræðibókinni. Þankastrik-
ið sem nú er í DV sá hins vegar
dagsins ljós á Morgunblaðinu. Sum-
ir halda að myndir af þessu tagi eigi
að vera eintómt grín en því fer auð-
vitað víðs fjarri. Þegar best tekst til
em þær á við vænan leiðara," segir
Gísli.
-em
Einkaþjálfuni
Því ekki að fá íslandsmeistarann
i vaxtarækt til að hjálpa þér að
komast í gott form?
Hafið samband í síma 555-4356
á milli kl. 20 og 22 á kvöldin.
Nína Óskarsdóttir.
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 568 6044
Nú er komið nýtt,ferskt og betra bragð í baráttunni
við reykingarávanann; Nicotinell nikótíntyggjó.
Ferska bragðið í Nicotinell nikótíntyggjóinu er
einmitt bragðið sem þú þarft til þess að hætta að
reykja. Nicotinell hefur sömu eiginleika og venju-
legt tyggjó og fæst bæði með ávaxta- og pipar-
myntubragði. Komdu í næsta apótek og fáðu
bækling um það hvernig Nicotinell tyggjóið
hjálpar þér best í baráttunni við tóbakið!
Tyggðu frá þér tóbakið
með Nicotinell!
Nicotinell tygglgúmmí er lyf sem er nolað sem hjálparefni til þess að hætta reykingum. Aðeins má nota lyfið ef reykingum er hætt. Það inniheldur nikótin sem losnar úr því þegar tuggið er, Irásogast í
munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn en ekki má
tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfiö lengur en i 1 ár. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragði og f 2 styrkleikum, 2 mg og 4 mg. Nikótfniö i Nicotinell getur valdið
aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði og hiksta. Einnig erfingu í meltingarfærum. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicotinell tyggigúmmí án samráðs við lækni. Bamshafandi konurog
konur með bam á brjósti eiga ekki að nota nikótínlyf. Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota Nicotinell án þess að ráðfæra sig við lækni. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á
fylgiseðii sem fylgir lyfinu. Varúð - Geyma skai lyfið þar sem börn ná ekkl tll.