Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Side 32
40
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997
**rt
Skíðaferð S/L til Basalt í Colorado
A fimmta tug
stólalyftna
Aspen/Basalt Snowmass skíöasvæðiö er frægt fyrir aö vera meö léttan púð-
ursnjó.
I síðari hluta febrúarmánaðar,
nánar tiltekið 21. febrúar, verður
farin tveggja vikna skíðaferð á veg-
um Samvinnuferða/Landsýnar til
Basalt í Colorado með Þóri Jónssyni
skíðakappa. Basalt er i nágrenni
Aspenskíðasvæðisins fræga. Dvalið
verður í bænum Basalt, skammt frá
Snowmassskíðasvæðinu. Flogið er
um Baltimore og gist á Best
Westem hótelum. Á þeim eru heitir
nuddpottar sem notalegt er að hvíla
sig í eftir erfiðan dag í fjöllunum.
Aspen/Basalt Snowmass skíða-
svæðið er með eftirsóttustu skíða-
svæðum Bandaríkjanna. Ein meg-
inástæða þess er sú að snjórinn er
oftast nær þurr og léttur í sér og
brekkur eru þarna við allra hæfi.
Biðraðir þekkjast varla, enda er
hægt að velja um einar 270 skíða-
leiðir og 45 stólalyftur eru á svæð-
inu. Skíðað er um skóglendi en
skógurinn nær til efstu skíðasvæð-
anna.
Dæmigert verðdæmi í þessa ferð
er 115.000 krónur á mann. Innifalið
í því verði er flug, gisting með
morgunmat í 13 nætur á Best
Western, bílaleigubíll (fjórir saman
i bíl) og íslensk fararstjóm.
-ÍS
Þaö hafa allir gott af því aö fá leiðsögn fyrstu sporin á skíöum, hvort
sem þeir eru ungir eöa gamlir.
Skíðakennsla í Bláfjöllum:
Lítil fyrirhöfn að læra á skíði
Margir eru smeykir við að
bregða sér á skíði vegna þess að
þeir telja sig enga kunnáttu hafa á
því sviði. En slíkur ótti er ástæðu-
laus fyrir þá sem bregða sér á
skíðasvæði BláfjaUa því þar er
starfræktur skíðaskólinn Snæfríð-
ur sem kennir fólki á öllum ald-
ursskeiðum tæknina á skíðum.
Jafnvel er hægt að koma þama án
þess að hafa skíðin meðferðis því
skólinn hefur skíði á sínum snær-
um til að lána nemendum sínum.
Einar Þór Karlsson er skíðakenn-
ari hjá skólanum.
„Skólinn er nú á sínu eUefta ári.
Hann er eingöngu starfræktur um
helgar en er opnaður aðra daga
vikunnar ef áhugi er á kennslu
hjá hópum eða fyrirtækjum. Það
er aUtaf eitthvað um sérhópa sem
panta tima hjá okkur. í vetur bæt-
um við skíðagöngu við kennsluna
hjá okkur og þá er öU skíðaiðkun
kennd hjá okkur nema bretta-
kennsla. Við forum aUavega ekki
út í kennslu á skíðabrettin í vetur,
hvað sem síðar verður,“ sagði Ein-
ar Þór.
„Það þarf lítið að hafa fyrir því
að nota þjónustu okkar. Engin
nauðsyn er að panta tíma fyrir-
fram. Þegar skiðamenn koma í
Bláfjöll um helgar labba þeir inn á
skrifstofu tU Dossa (Þorsteinn
Hjaltason) í Bláfjallaskálanum
sem skráir menn á námskeiðin og
útbýtir merkjum. Síðan hefjast
skíðakennslutímar við byrjenda-
lyftuna klukkan 11, 13 og 15 og
hver kennslutími er 1V2 klst. Við
tökum fólk í kennslu á öllum getu-
stigum, ekki aðeins byrjendur
eins og margir halda.
Það eru 6 kennarar á okkar
snærum, sjá sjötti er Auður Krist-
ín Ebenesersdóttir, margfaldur
methafi sem ætlar að kenna skíða-
göngu. Allir kennararnir hafa
fengið úrvalsþjálfun í Kerlingar-
fjöUum eða Austurríki," sagði
Einar Þór. -ÍS
Sumarleyfisfargjöld Flugleiða:
Helmingsfjölgun
áfangastaða
Sumarleyfisfargjöld Flugleiða eru
nú í boði til fimmtán borga í stað
átta síðasta sumar. Fargjöldin eru
lægri en samsvarandi fargjöld sem
boðin voru í fyrra. Sala sumarleyfis-
fargjalda Flugleiða hófst miðviku-
daginn 22. janúar.
Gildistími þessara fargjalda er frá
15. aprU til 30. september, það er að
ferðast skal á þeim tíma. Hægt er að
festa kaup á ferð á slíku fargjaldi frá
og með 22. janúar til 30. júní á þrem-
ur sölutímabUum. Sem dæmi má
nefna að sumarleyfisfargjöld til
Kaupmannahafnar, Óslóar og
Stokkhólms á fyrsta sölutímabUi,
sem er frá 22. janúar til 28. febrúar,
er nú 25.500. Sams konar fargjöld
síðastliðið sumar voru 27.500 krón-
ur og 28.300. Lægsta sumarleyfisfar-
gjaldið í ár er tU Glasgow, 19.000
krónur, en var 19.500 síðastliðið
sumar (taka verður fram að flug-
vaUarskattar bætast við fargjöldin).
„Við lækkuðum ferðirnar í ár til
þess að vera samkeppnisfærari á
markaðnum. Verðið var einfaldlega
of hátt í fyrra miðað við framboð á
markaðnum en er mun lægra í ár.
Frá því að nýju sumarleyfm voru
sett fram hefur eftirspurn verið
mikU og bókanir þegar mun fleiri
en í fyrra. Það gerist þrátt fyrir að
sumarleyfisfargjöldin hafi ekki ver-
ið mikið auglýst, til dæmis kemur
bæklingurinn okkar, Út í heim,
ekki út fyrr en 9. febrúar," sagði
Ama Ormarsdóttir, sölustjóri hjá
Flugleiðum.
Panta með fyrirvara
Sumarleyfisfargjöldin þarf að
bóka með minnst 14 daga fyrirvara.
Gengið skal frá greiðslu um leið og
bókað er en nú býðst fólki nýr
greiðslumöguleiki, svokaUað ferðal-
Sumarleyfisfargjöld Flugleiða eru nú til 15 borga og á lægra verði en í fyrra.
Þessi mynd var tekin í Hamborg sem er einn af áfangastöðum Flugleiða.
DV-mynd ÍS
án, þar sem heildarupphæð er
greidd með raðgreiðslum á greiðslu-
korti á aUt að 24 mánuðum.
Án efa eiga margir íslendingar
eftir að notfæra sér þessi hagstæðu
fargjöld og greiðslukjör og ættu aU-
ir að finna áfangastaði við sitt hæfi.
Alveg frá því fargjöldin vom aug-
lýst hefur eftirspum verið mikU.
Borgirnar sem sumarleyfisfar-
gjöld eru í boði tU era: Kaupmanna-
höfh, Ósló, Stokkhólmur, London,
Glasgow, Amsterdam, Lúxemborg,
París, Hamborg, Frankfurt, MUanó,
Barcelona, Vín, Zúrich og
Manchester. Síðastnefnda borgin er
nýr áfangastaður í sumaráætlun
Flugleiða og flug þangað hefst þann
27. júní.
„í fyrra vora sumarleyfisfargjöld
í boði tU skandinavísku borganna
þriggja og London, Glasgow, Amst-
erdam, Lúxemborgar og tU Færeyja.
Færeyjar eru ekki inni í sumarleyf-
isfargjöldunum í ár. Nýju borgim-
ar, MUanó, Barcelona, Vín, Zúrich
og Manchester, eru fyrst og fremst
sumarstaðir hjá okkur. Við fljúgum
ekki þangað í áætlunarflugi á vet-
uma,“ sagði Arna. -ÍS
Merkur fundur
Frá Grikklandi bámst nýver-
ið fregnir af einum merkasta
fomleifafundi síðari ára. Fund-
ist hafa rústir heimspekiskóla
Aristótólesar, Lyceum í mið-
borg Aþenu. Aristótóles var
sagður hafa prédikað þar frá 49
ára aldri þar tU hann varð 62
ára, þegar hann lét af störfum.
Kennslan fór fram á 3 öld fyrir
krist. Búast má við því að rúst-
imar muni í framtíðinni hafa
mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn.
Stöðvar vöxt
Einn af forstjórum Boeing
flugvélaverksmiðjanna hélt því
fram að vöxturinn sem undan-
farið hefur verið í flugvélaiðn-
aðinum, gæti stöðvast ef slysa-
tíðni heldur áfram að aukast.
Miðað við aukninga slysa á
undanfórnum árum, gæti orðið
alvarlegt flugslys á viku fresti
að meðaltali árið 2005.
Frakkland á toppnum
Ekkert land státaði af komu
fleiri ferðamanna en Frakkland
á síðasta ári. Þangað komu
hvorki meira né minna en 61,5
milljónir ferðamanna, sem er
aukning um 2,5% frá því árið á
undan. Það sem eru jafnvel enn
betri fréttir fyrir Frakka, er að
ferðamennimir eyddu 5%
meira fé í Frakklandi, en árið á
undan.
Leiga mótorhjóla
Loksins er tekin til starfa ný-
stárleg „leigubílastöð" í París.
Þar era ekki notaðir bílar, held-
ur mótorhjól til þess að komast
milli bæjarhluta. Umferð er
mikið vandamál í þessari
heimsborg og ökumenn stöðv-
arinnar hafa nóg að gera, síðan
stöðin tók til starfa. Viðskipta-
vinir geta fengið lánaðan leður-
jakka og hjálm. Meirihluti við-
skiptavina eru menn úr at-
vinnugeiranum sem vilja
ógjama eyða miklum tíma í
umferðina.
Umferðaröryggi
Vegna tíðra umferðaslysa í
Ítalíu, stendur nú yfir umfangs-
mikil rannsókn á umferðarör-
yggi á helstu þjóðvegmn lands-
ins. Þegar þær tölur liggja fyrir,
verður gripið til aðgerða til að
stemma stigu við vandanum.