Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997
41
Þeir sem hyggja á ferðalag frá ís-
landi halda flestir suður á bóginn
eða vestur um haf til Bandaríkjanna
eða Kanada. Víða annars staðar er
að finna fýsileg lönd til ferða-
mennsku og eitt þeirra er í næsta
nágrenni ef svo má að orði komast.
Töfra Grænlands eiga margir eftir
að uppgötva en sífellt fleiri íslend-
ingar gera sér þó ferð þangað.
Nýlega gerðu Flugleiðir og Green-
landair með sér samstarfssamning
um flug milli landanna. Bætt hefur
verið við einum degi á flugleiðinni
Reykjavík-Narssarssuaq en þangað
verður flogið alla fimmtudaga yfir
sumartímann. Ferðamálayfirvöld
Grænlands ætla að gera stórátak í
sínum ferðamálum og hyggja á mik-
ið samstarf milli landanna. íslensk-
ir aðilar sem skipuleggja ferðir til
Grænlands eru fjölmargir: Flugleið-
ir, Úrval-Útsýn, Samvinnuferðir-
Landsýn, Guðmundur Jónasson,
Ferðaskrifstofan Nonni og Ferða-
skrifstofa íslands.
Aukið gistirými
Heimastjórnin í Græniandi hefur
á fjárhagsáætlun sinni að eyða um
160 milljónum króna í kynningu á
landinu. Að auki verða veittar yfir
30 milljónir króna í styrki fyrir að-
ila sem vinna í ferðaþjónustu. Fram
að þessu hefur gistirými verið held-
ur af skornum skammti. Árið 1995
gátu landsmenn ekki tekið á móti
fleiri en 16.000 ferðamönnum á ári
en í áætlun er gert ráð fyrir að sú
tala verði komin upp í 60.000 árið
2005.
Gefinn hefur verið út fjöldinn all-
ur af nýjum bæklingum og settar
upp ævintýraferðir af öllu tagi. Oft-
ast er miðað við eins til tveggja
vikna ferðir.
Straumur ferðamanna til Græn-
lands hefur vaxið mjög á undan-
fómum árum og yfirvöld sjá fram á
vemlega aukningu á næstu áram.
Flestir ferðamenn koma frá Þýska-
landi, ef Danir eru ekki taldir með.
Ferðamenn frá Bandaríkjunum,
Kanada, Bretlandseyjum, Ítalíu,
Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Jap-
an koma þar á eftir.
Vetrarferðir
Átakið í kynningarmálum teng-
ist ekki aðeins ferðum yfir sumar-
tímann heldur færist einnig í vöxt
að fólk komi þangað að vetrarlagi.
Vinsælustu mánuðirnir að vetrar-
lagi em mars, apríl og fyrri hluti
maí. Flestir sem koma á þeim tíma
eru á höttunum eftir hundasleðaæv-
intýrum norðan heimskautsbaugs.
í þeim hluta landsins eru
hundarnir fleiri en mannfólkið.
Ferð með hundasleða og vönum
grænlenskum veiðimanni er ævin-
týri sem seint gleymist. Hægt er að
velja um mislangar ferðir, tveggja
tíma sleðaferðir eru vinsælastar, en
ekkert mál er að panta lengri ferðir.
Margir sameina hundasleðaferö og
dorgveiði niður um ís en hana hafa
Grænlendingar stundað um
aldaraðir.
Ferðamynstrið er einnig að breyt-
ast. Áður fyrr var algengt að ferða-
menn kæmu til Grænlands, veldu
sér fyrsta flokks gistingu og vildu
lítið fyrir lífinu hafa. Þessi ferða-
máti er hins vegar á undanhaldi.
Nú vill fólk komast í ævintýri,
leggja minna upp úr gistingunni og
eyða meiri peningum í skoðunar-
ferðir og minjagripi. Margir eru
ferðamennirnir virkt fólk sem kom-
ið er á eftirlaunaaldur eða ungir of-
urhugar.
Það færist í vöxt að ferðamenn
kjósi fábreyttar vistarverur, enda
eru fæstir þeirra sem ferðast til
Grænlands i leit að þægindum held-
ur vilja þeir fyrst og fremst komast
í góð tengsl við ósnortna náttúru.
Gisting er reyndar af öllu tagi -
hægt er að gista á fyrsta flokks hót-
elum niður í að deila vistcirverum
með hundasleðastjómanda og allt
þar á milli.
Upplýsingar um ferðir til Græn-
lands em nú komnar á netið og íjöl-
margir nota sér þá þjónustu. Frá
því alnetið um Grænland tók til
starfa í ágúst síðastliðnum hafa
26.500 manns fengið upplýsingar
þaðan. Veffangið á netinu er: http:
//www.greenland-guide.dk -ÍS
Ferð með hundasleða og vönum grænlenskum veiðimanni er ævintýri sem
seint gleymist.
Vafasamir bíiar
Mikið hefur borið á því að ráðist
hafi verið á farþega leigubifreiða í
Mexíkóborg að undanfömu og þeir
rændir. Yfirvöld hafa bent ferða-
mönnum á að nota helst leigubíla
með skráð atvinnuleyfi, en þannig
megi forðast atvik af þessu tagi. Því
er heitið af hálfu borgaryfirvalda
að herör verði skoriö upp gegn rétt-
indalausum leigubílstjórum.
Eftirspurn
Fimm evrópsk og arabísk flugfé-
lög hafa sótt um leyfi hjá Samein-
uðu þjóðunum fyrir að hefja flug til
íraks til að fljúga með birgðir í
tengslum við nýgerðan samning SÞ
við íraka um olíu og matvæli. Olíu-
sölubann á írak hafði verið í gildi í
sex ár frá Persaflóastríðinu en ný-
lega var því aflétt að hluta og írök-
um leyft að selja einhverjar olíu-
birgðir í skiptum fyrir brýnustu
nauðsynjar, eins og mat og lyf.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
neita að upplýsa hvaða flugfélög
þetta eru.
Hættulegur farþegi
Farþegi um borð í flugvél Amer-
ican Airlines á leið frá Sevilla á
Spáni til Miami í Bandaríkjunum
gekk af göflunum þegar honum var
neitað um leyfl til þess aö reykja á
leiöinni. Hann hótaði öllu illu,
sagðist vera hryðjuverkamaður og
myndi sprengja upp vélina en allt
kom fyrir ekki. Farþeganum, hinni
57 ára gömlu Sally Ann Stein frá
Bandaríkjunum, var stungið beint í
steininn í Miami og á hún yfir
höfði sér verulega þungar fjársekt-
ir.
Járnbraut
Tyrkir og grannar þeima, Georg-
íumenn, undirrituðu í vikunni
samkomulag um lagningu járn-
brautar á milli landanna. Hún mun
tengja saman tyrknesku borgina
Kars og höfuðborg Georgíu, Tbilisi.
Viðgerð hafin
8
IEitthvert mesta stolt Feneyj-
ar er hinn 15. aldar kirkjuturn
á St. Mark’s torgi í miðbæ borg-
arinnar. Hann hefur aila tíð
dregið að sér fjölda ferða-
manna, en hefur látið nokkuð á
sjá í gegnum aldirnar. Nú
standa yfir umfangsmiklar við-
gerðir á turninum, sem eru
undir yfirstjórn klukkufram-
leiðandans Piaget. Áætlað er að
viðgerðum verði lokið árið
1999, þegar haldið verður upp á
500 ára afmæli tumsins. Kirkju-
turninn er talin ein merkasta
bygging Renaissance tímabils-
ins.
Aðvörun
f Fólk sem á ferð til Grikk-
lands á næstunni, má búast við
i leiðinda töfum á ýmsum svið-
um ferðaþjónustunnar. Tíð
Iverkfóll undanfarnar vikur
hafa gert ferðamönnum lífið
leitt og ekki er útlit fyrir að úr
rætist á næstu vikum. Verk-
fallssinnar boða allshverjaverk-
fall þann 4. febrúar sem standa
á til óákveðins tíma.
Banna reyk
Indverjar eru þekktir fyrir að
reykja meira en aðrar þjóðir og
hingað til hafa reykingamenn
að mestu verið látnir í friði
með siði sína. En nú er farið að
þrengja að þeim, því í vikunni
voru sett í gildi lög í Nýju Del-
hi sem banna reykingar i leik-
húsum, strætisvögnum, opin-
berum stöðum og almennings-
görðum. Einnig er bannað að
setja upp sígarettuauglýsingar
innan borgarmai'kanna. Þetta
er fyrsta borgin í landinu sem
grípur til aðgerða gegn reyk-
ingamönnum. Þeir sem brjóta
þessi lög, geta átt von á sektum,
frá 200 krónum fyrir fyrsta
brot, upp í rúmar 1.000 krónur
fyrir endurtekin brot. Það
þykja ekki háar upphæðir á ís-
landi, en eru þeimur meiri í
Indlandi.
Afpantanir
Árásir heittrúaðra múslima
I á feröamenn í vesturhluta Úg-
!! anda á síðustu mánuðum hafa
skaðað mjög ímynd landsins
sem ferðamannaland. Flestar
áráshnar hafa verið gerðar í
vesturhluta landsins, meðal
annars í Rwenzori þjóðgarðin-
um, sem vinsæll er af ferða-
mönnum. Um 7 af hverjum tíu
ferðamönnum, sem pantað hafa
ferðir til Úganda í þjóðgarðana
í vesturhluta landsins, hafa af-
pantað.
Meira fyrir pundið
Fastlega er búist við því að
; straumur ferðamanna frá Bret-
landi eigi eftir að aukast mjög í
ár. Sterk staða pundsins ræður
þar mestu um, en vegna þess
hve pundið er skráð óvenjuhátt
s gagnvart helstu gjaldmiðlum
heims, fá ferðamennirnir meira
fyrir peningana erlendis.