Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 46
54
fréttir
LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1997
Nesfiskur og Njáll í Garði: Til hamingju með
Metár 1996 með 1 Q afmælið 2. febrúar
þúsund tonn upp úr sjó
DVSuðumesjum:
„Við unnum um 10 þúsund
tonn af fiski upp úr sjó í fyrra
sem er það mesta hjá okkur.
Þetta hefur gengið vel síðustu
árin og höfum við alltaf verið
réttum megin við núllið,“ sagði
Bergþór Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Nesfisks hf. og
Njáls hf. í Garði, í samtali við
DV.
Fyrirtækin, sem eru í eigu
sömu fjölskyldu i Garðinum,
velti 1650 milljónum króna í
fyrra. Velta frystihúss Nesfisks
var rúmar 1100 milljónir og afla-
verðmæti báta Njáls, sem eru sjö
talsins, var rúmar 500 milljónir
króna.
Fyrirtækin hafa yfir að ráða
3800 þorskígildistonna kvóta.
Um 250 manns vinna hjá fyrir-
tækjunum og var launakostnað-
ur í fyrra 438 milljónir sem er
1,2 milljónir á dag. Bergþór seg-
ir að ekki sé eins bjart í sölumál-
um þessa fyrstu daga ársins 1997
miðað við sama tíma i fyrra.
„Það er lakara markaðsútlit
og lægra afurðaverð. Verð á salt-
fiski lækkaði og erfiðara er að
selja hann. Þá er ekki eins bjart
I sölumálum á loðnunni en við
frystum 600 tonn í fyrra og
reiknum með sama magni í ár,“
sagði Bergþór.
-ÆMK
Bergþór Baldvinsson
framkvæmdastjóri.
DV-mynd ÆMK
Snæfellið til rækjuveiða við Namibíu
DV, Dalvík:__________________________
Togarinn Snæfellið SH 740 í
eigu Njarðar, dótturfyrirtækis
Útgerðarfélags Dalvikinga og
Snæfellings, er nú á leið til
rækjuveiða á ókunnum slóðum.
Reynt verður að veiða rækjuna
við Namibíu á suð- vesturströnd
Afríku. Þangað er 3-4 vikna sigl-
ing. Reiknað er með að skipið
verði þar um miðjan febrúar.
Að sögn Valdimars Bragasonar
er um tilraunaverkefni að ræða
og það skilyrði sett fyrir leyfi að
reynt yrði við rækjuna í tvo mán-
uði hvort sem eitthvað veiddist
eður ei. Þeir bjartsýnustu reikna
þó með að Snæfellið verði þarna
í 2% ár. Gert er ráð fyrir að afla
verði landað í Namibíu sem fari
síðan að mestu til Spánar. í raun
liggja litlar upplýsingar fyrir um
veiðisvæðin og því um nokkurs
konar þróunarverkefni að ræða.
Samkvæmt upplýsingum DV
er í landhelgi Namibíu stór og
góð rækja þar sem ekkert hefur
þó verið reynt að veiða frá því
landhelgi Namibíu var færð út
fyrir 6 árum og rússneskum og
spænskum togurum vísað úr
landhelginni. Þeir höfðu veitt þar
rækju en upplýsingar um það
litlar. Auk Snæfells mun Siglfirð-
ingur stunda rækjuveiðar við
Namibíu og er á leið þangað.
-HIÁ
fólk í fréttum
Lokað
. ídag
Barbra Streisand
geislar af hamingju
Utsalan yfir nýju ástinni sinni
hefst á morgun,
kl. 8.00
oppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg
Barbra Streisand var vinnualki,
alltof feit og einmana og tróð sig út
af ruslfæði þegar hún kynntist
James Brolin. Sálfræðingurinn
hennar, Linda Tatum, átti ekki til
orð yfir því hvernig Streisand fór
með sjálfa sig. Þetta átti allt eftir að
breytast þegar hún kynntist hinum
56 ára James Brolin í haust en þá
tók hún sér tak. Þau urðu yfir sig
ástfangin
3**.»,. en það
kom
Sumarhús óskast til leigu
Verkstjórafélag Reykjavíkur óskar eftir að taka á leigu sumar-
hús fyrir félagsmenn sína, tímabilið júní-ágúst, í uppsveitum
sunnanlands eða í Borgarfirði. Önnur staðsetning kemur einnig
til greina.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félassins í síma 562 7070 frá
kl. 9-14. Myndriti 562 7050.
vinum Börbru á óvart þegar Brolin
flutti fljótlega inn á heimili hennar
í Malibu þar sem hún eldar fyrir
hann og hagar sér að öflu leyti eins
og ung brúður.
Á örfáum mánuðum breyttist
Barbra úr ljóta andarunganum í fal-
legan og hamingjusaman svan eins
og í sögunni. Hún lítur út fyrir að
vera tíu árum yngri en hennar 54 ár
segja til um. Fitan er horfin og
meiri hlýja einkennir persónuna en
hefur gert lengi, segja þeir sem tfl
þekkja. Margir segja að hún hafi
loks fundið hamingjuna með Brolin.
Hann er stór og sterkur og menn
eru farnir að velta því fyrir sér
hvenær kirkjuklukkumar fari að
hringja en Brolin er tvífráskilinn.
Barbra hefur verið orð-
uð við Ryan O’Neal,
Kris Kristoffer-
son, Warren
Beatty, Sam
Elliott,
Liam
Neeson og
framleið-
andann
Elliot Gould
sem allir
eru mikl-
ir
kvenna-
menn.
Söngkonan Barbra Streisand, sem er 54 ára, hefur
sjaldan litiö betur út en eftir aö hún varð ástfangin af
James Brolin.
Guðfinna Einarsdóttir,
Dalalandi 12, Reykjavík.
85 ára
Ólafur Björnsson,
Aragötu 5, Reykjavík.
Ólafur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Jónína Þórðardóttir,
Háteigsvegi 18, Reykjavík.
80 ára
Stefán Ágústsson,
Faxastíg 24, Vestmannaeyjum.
Lilja Vigfúsdóttir,
Holtagerði 52, Kópavogi.
75 ára
Hildur Jónsdóttir,
Dalbraut 23, Reykjavík.
70 ára
Óli Magnús Þorsteinsson,
Kárastíg 13, Hofshreppi.
Jóna Margrét Júlíusdóttir,
Hásteinsvegi 56a, Vestmanna-
eyjum.
60 ára
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Víðigrund 55, Kópavogi.
Björg Gunnarsdóttir,
Faxabraut 32b, Reykjanesbæ.
Guðmundur Hólm,
Blesugróf 29, Reykjavík.
Elsa Guðmundsdóttir,
Vogabraut, Aki'anesi.
Helga Heiðbjört Bjömsdóttir,
Marbakkabraut 12, Kópavogi.
50 ára
Pálmi Þorsteinsson,
Sólbrekku 29, Húsavík.
Sigrún Bjamadóttir,
Vesturási 23, Reykjavík.
Unnur Hrönn Sigurgeirsdótt-
ir,
Vesturbergi 85, Reykjavík.
Snæbjörn Magnússon,
Grensásvegi 58, Reykjavík.
Guðni Agnarsson,
Engihjalla 9, Kópavogi.
Einar Ingólfsson,
Grundarhúsum 42, Reykjavík.
Hrefna Þórarinsdóttir,
Neðstaleiti 4, Reykjavík.
Hans Sigurbjörnsson,
Öldugranda 5, Reykjavík.
Hjördís Guðmundsdóttir,
Heiðarbraut 8, Reykjanesbæ.
Ragnheiður Guðmundsdótt-
ir,
Klébergi 10, Þorlákshöfn.
Ragnhildur Ólafsdóttir,
Hrauntungu 109, Kópavogi.
Þórir Steingrímsson,
Breiðvangi 52, Hafnarfirði.
Pétur I. Pétursson,
Hjarðarlundi 9, Akureyri.
Sunneva Traustadóttir,
Víðgrand 23, Kópavogi.
40 ára
Sigríður Marteinsdóttir,
Viðarrima 25, Reykjavík.
Svava Loftsdóttir,
Jöklaseli 3, Reykjavík.
Unnur Gunnarsdóttir,
Hlíðabyggð 11, Garðabæ.
Hafþór Harðarsson,
Lyngholti, Leirár- og Mela-
hreppi.
HeUen Magnea Gunnarsdótt-
ir,
Kvisthaga 13, Reykjavík.
Ingimar Amdal Árnason,
Hörgshlíð 2, Reykjavik.
Bryndís Torfadóttir,
Salthömrum 12, Reykjavík.
Kristín Elísabet Guðjónsdótt-
ir,
Skildinganesi 50, Reykjavík.
Indriði Þorkelsson,
Veghúsum 11, Reykjavík.
Þorsteinn Guðnason,
Spóahólum 14, Reykjavík.
Rögnvaldur Othar Erlings-
son,
Hrauntungu 27, Kópavogi.