Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 Herratískan í algleymingi í París: Aðsniðin jakkaföt áberandi - og áhersla á óvenjuleg efni Það kenndi margra grasa í vetrar- og haust- tískunni fyrir herra sem sýnd var í París á dög- unum. Einkenn- andi voru þó að sniðin jakkaföt sem ýmist voru ur óttu, röndóttu eða skræpóttu efni. Munstrað- ar, grófprjónað- ar peysur áttu einnig upp á pallborðið og við þær voru notaðir grófir jakkar í líflegum litum. Áhersla a óvenjuleg efni Á heildina litið voru fót- in ekki svo óvenjuleg heldur frekar lögð áhersla á óvenjuleg efni. Þannig var mikið um flauel, stretch, glansandi efni og flos með mjög svo litríkum tónum. Áberandi var að enginn hönnuðanna lagði áherslu á að fínu, dýru merkin sæust á fatnaðinum. Þess í stað gerði hönnuðurinn Ver- onique Nichanian hinn sígilda frakka t.d. úr leðri eða bleksvörtu rúskinni. Krúnurakaðir pönkarar Hönnuðurinn Jean Paul Gaultier vakti einna mesta at- hygli fyrir fyr- irsæturnar sín- ar. Mennirnir stormuðu inn eins og pönk- arar útlits, í þröngum bux- um yfír þykk og mikil stígvél og í stuttum jökkum með krúnurakaða kolla þar sem málað hafði verið „ást“ eða „friður". Áhersla Gaultiers var á þröngar útl- ínur, aðsniðnar buxur og köflótt efni. Annað sem einkenndi Gaultier voru jakkar með loðkraga sem oftar en ekki voru úr glans- andi og litríku efni. Jakkafötin fá nýtt líf Síðir, teinóttir jakkar sáust einnig á sýning- unni, eins konar „frjakkar" því útlitið og síddin gat bæöi átt við frakka og jakka. Eric Bergere var á sýn- ingunni Þessi fallegi fatnaður ætti t a 1 i n n aö henta vel á íslandi og er hafa gætt greinilega framleiddur þrískipt með notagildi í huga. jakkaföt nýju lífi köfl Síðar og vandaðar úlpur með loökraga eru aftur að komast í tísku. með því að hneppa jökkunum hátt við bringubeinið, bæta kraga á vest- ið, hálsklút um hálsinn og nota mynstruð efni. Hátískusportfatnaður fyrir karl- ana telst í dag vera þröngur toppur við hólkvíðar her- mannabux- og strigaskór með vígtönnum á sólcm- um vöktu einnig mikla hrifningu. Flestir hönnuðanna sóttu einhverj- ar hugmyndir til einkennisbúninga og má þar nefna stóra og áberandi vasa á fatnaðinum og silfurlitar tölur. Hér má sjá afturhvarf til eldri tíma, langar ermar á skyrtum og teinótt jakkaföt. Jakkar eru fjölbreyttir, ýmist beinir og síöir eöa styttri og aöskornir í mittið. Bleksvart rúskinn, þröngar flauelsbuxur og dökk sólgleraugu verða áber- andi í sumar. -ingo Dýrasti kjóll, sem sýndur hef- ur verið í tískuhúsi í París, er „Fæðing Venusar", hannaður af Serge Lepage. í kjólnum voru 512 demantar og er hann metinn á um 1,5 þúsund milljónir króna. Hann var fyrst sýndur á Schiaparelli vor- og sumartísku- sýningunni í janúar 1977. Dýrasta efnið Dýrasta efni sem selt hefur verið er efni í kvöldklæðnað, 102 sm breitt, úr ekta silfri með hand- saumuðu, s i 1 f u r - skreyttu klassísku b 1 ó m a - mynstri. í því var 21 ör- smár silfur- þráður á h v e r j u m sm2. Efnið var hannað af AlanHers- hman í Duke St. London og kost- aði hver metri um 67 þúsund krónur i maí 1977. Mesta hárkolian ÍMesta hárkolla sem seld hef- ur verið var 4,57 metra síð. Hana framleiddi Bergmann í ■ 5th Avenue, NY, árið 1975. I Dýrasti hatturinn Hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir einn hatt er um 4,6 milijónir króna. Hattinn keypti Moét et Chandon á uppboði hjá Maitres Liery í Rheims et Laur- in árið 1970. Sá sem síðastur bar þennan hatt var Napóleon I. keisari (1769-1821) þann 1. janú- ar árið 1815. Dýrustu skórnir Dýrustu skór sem fengist hafa eru golfskór framleiddir af Stylo, Matchmakers International Ltd. í Nort- hampton á Englandi. Skórnir eru fóðraðir með minkaskinni, “ skreyttir með 18 karata gulli og hafa rúbina á oddunum í sólan- um. Þeir kostuðu á Englandi Ium 900 þúsund krónur en um 1,3 milljónir í NY. Nylongarn Finasta nylongam sem frem- leitt hefur verið er af grófleikan- um 6 denier. Það var notað í sokka sem vom til sýnis á nylon- sýningu í London árið 1956. Minnsti grófleiki sem notaður er | í sokka sem seldur era í verslun- um eru 9 denier. Til samanburð- t ar má geta þess að eitt mannshár | er yfirleitt um 50 denier. Fínasti vefnaður Fínasti vefnaður, sem þekkt- ur er, eru -2.490 hnútar á hverj- : um sm2. Teppið er hluti af Imperial Mughal bænateppi frá 17. öld og er nú með Áltman safninu i Metrópolitan lista- safriinu í New York. IDýrasta teppið Stórkostlegasta teppi sem búið hefur verið til er „Vor“ teppið frá Khusraw en það var gert fyrir áhorfendasvæðin í Sassan-höllinni í Ctesiphon í írak. Það var um 620 m2 og í því var silki, gullþráður og það þak- ið verðmætum steinum. Teppið er upphaflega talið hafa verið þúsund milljón punda virði. Hæsta upphæð sem greidd hefur veriö fyrir teppi á upp- boði er um 38 milljónir króna. Það var gamalt, persneskt teppi, 2,7x3,8 m, selt úr dánar- Íbúi Emily Stifel í Vestur-Virgi- niu í Bandaríkjunum. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.