Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
25
Fréttir
Islenskir hestar:
Fara 3100
kílómetra
með boðkefli
- frá Slóveníu til Noregs
Þann 16. janúar hófst í Slóveníu
boðreið á íslenskum hestum sem
endar á heimsmeistaramótinu í
hestaiþróttum í Seljord i Noregi 5.
ágúst.
Á siðasta heimsmeistaramóti í
Sviss var farin svipuð ferð frá Nor-
egi til Sviss en önnur leið verður
farin nú.
Lagt var af stað með boðkefli
þann 16. janúar hjá Giselu Ross
Pantelic í Slóveníu og riðu Slóven-
amir 160 kílómetra að austurrísku
landamærunum.
Austurrískir knapar tóku þar við
keflinu og ríða um 300 kílómetra að
þýsku landamærunum, meðal ann-
ars yfir Alpana þar sem er mikill
snjór. Þjóðverjar munu ríða 1600
kílómetra að dönsku landamærun-
um og er búist við að þeir verði þar
í apríl.
Danir fara yfir danskt land með
boðkeflið og hugsanlega á víkinga-
skipi yfir til Svíþjóðar þar sem Sví-
ar taka við og ríða með keflið til
Noregs og þaðan verður leiðin greið
til Seljord.
Leiðin sem farin verður með
keflið er um það bil 3100 kílómetrar
og verður farin á 27 vikum. Meðal-
reið á viku er 120 til 130 kílómetrar.
í samsvarandi ferð árið 1995 tóku
um 1000 hestar og knapar þátt og er
það lengsta boðreið sem farin hefur
verið í heiminum og vakti hún
mikla athygli.
Danir ætlað að auglýsa íslenska
hestinn þegar þeir verða með keflið
með ýmiss konar uppákomum á
leiðinni, meðal annars í Kaup-
mannahööi. -E.J.
slenskir knapar munu keppa á heimsmeistaramótinu í Noregi í ágúst.
Hemmi Gunn í Áhrifum, tímariti um vímuefnamál:
Iþróttafélögin ekki
tilbúin í forvarnir
Hermann Gunnarsson, Hemmi
Gunn, segir í nýlegu tímariti um
vímuefnamál, Áhrifum, að íþróttafé-
lögin séu ein og sér ekki tilbúin til
að sinna forvamarstarfi. Þau eigi
frekar að einbeita sér að því sem
þau geri best, þ.e. að þjálfa upp
íþróttamenn, en leyfa öðrum að ein-
beita sér að fræðslu um skaðsemi og
áhrif vímuefnaneyslu. Hreyfmgin
geti engu að síður lagt þar lið.
í tímaritinu er fjallað um úthlut-
un úr Forvamarsjóði þar sem hæsta
Á
einstaka framlagið rann til íþrótta-
sambands íslands, ÍSÍ, og Ung-
mennafélags íslands, UMFÍ, eða 4
milljónir króna. Samtökin hafa
sameiginlega komið á fót nefnd sem
vinna á að skipulagningu forvarnar-
starfs innan íþróttahreyfíngarinnar.
I Áhrifum er velt upp nokkrum
spumingum og rætt við forystu-
menn úr íþróttahreyfmgunni.
„Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé
ekki sú hreyfing sem eigi að vinna
mest að forvömum í landinu, með
fullri virðingu fyrir þeim ágætu
mönnum sem þar starfa. Það eru svo
margir aðrir sem ég tel færari um
þessa hluti. Þeir gætu síðan virkjað
einhverja úr íþróttahreyfingunni með
sér. Það er allt annar hlutur. Það hef-
ur meiri áhrif að fara inn í skólana og
klíkurnar með fræðslu frá fólki sem
hefur reynslu og svo öðrum með enga
reynslu en hafa aldrei notað vímuefni.
Þá er ég að tala um íþróttahetjur sem
krakkamir líta upp til,“ segir Hemmi
í viðtalinu við tímaritið Áhrif. -sv
Formannsskipti í Náttúruverndarráði:
Náttúruverndarþing gegn stóriðju
Amþór Garðarsson prófessor lét
af formennsku í Náttúravemdar-
ráði á náttúruvemdarþingi sem
lauk um helgina og við tók Ólöf
Guðný Valdimarsdóttir. Ólöf Guð-
ný fær það hlutverk að móta starf
ráðsins undir nýjum lögum sem
tóku gildi á síðasta ári.
„Hið nýja Náttúruvemdarráð
hefúr ekki tekið til starfa enn þá, en
ég mun kalla það saman fljótlega og
ég reikna með því að álversmálið í
Hvalfirði komi upp á vettvangi
ráðsins. Starfið er hins vegar ekki
hafið,“ segir nýr formaður Náttúm-
vemdarráðs í samtali við DV, en á
náttúruvemdarþinginu var sam-
þykkt ályktun þar sem lagst er gegn
frekari stóriðjuáformum í Hvalfirði
Samkvæmt fyrmefndum lögum
um náttúmvemd hefur ný stofnun
verið sett á stofii, Náttúruvemd rík-
isins, en hún tekur að nokkra leyti
við því hlutverki sem Náttúru-
vemdarráð hafði áður. Níu manns
skipa nú Náttúravemdarráð en sex
þeirra era skipaðir af umhverfis-
ráðherra, einn þeirra, formaðurinn,
án tilnefningar, en fimm eftir tillög-
um Náttúrufræðistofnunar, Háskól-
ans, Bændasamtakanna, Ferða-
málaráðs og Skipulagsstjóra ríkis-
ins. Þrír fulltrúanna eru kosnir af
Náttúravemdarþingi.
Náttúravemdarráð á nú að vera
umhverfisráðherra og Náttúra-
vemd ríkisins til ráðgjafar um frið-
lýsingu svæða og náttúravemdar-
aðgerðir og veita faglega ráðgjöf í
málum sem varða náttúravemd.
-SÁ
Sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð:
Forsendur breyttar fýrir sameiningu
DV Ólafsfíröi:
Ólafsfirðingar hafa dregið sig út
úr viðræðum um sameiningu sveit-
arfélaga við utanverðan Eyjafjörð
vegna þess að allar forsendur fyrir
henni séu breyttar.
Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæj-
arstjómar Ólafsfiarðar, leggur
áherslu á að ekki sé farið of geyst í
málinu. Beðið sé fram yfir næstu
sveitarstjómarkosningar en mönn-
um ekki stillt upp við vegg og
ákveðið strax hvort kjósa skuli um
sameiningu í haust. Dalvíkingar
hafa haft forastu um að sameina
Ólafsfiörð, Dalvík, Svarfdælahrepp
og Árskógsstrandarhrepp í eitt
sveitarfélag.
„Við teljum mikilvægt að Siglu-
fiörður sé með í þessu dæmi og þá
horfúm við til þess að jarðgöng
verði gerð milli Ólafsfiarðar og
Siglufiarðar. Það er auðvitað for-
sendan," sagði Þorsteinn.
Málið er flókið og þeir sem frétta-
maður DV hefur rætt við era allir
sammála um nauðsyn þess að halda
umræðunni opinni enda sé samein-
ing í einhverju formi hagkvæm -
jafnvel nauðsynleg. Flestir líta til
þess að meiri samvinna verði milli
fyrirtækja á Ólafsfirði og Siglufirði
næstu árin, jafnvel á næstu mánuð-
um. Bent er á í því sambandi að
Þormóður rammi eignaðist á síð-
asta ári 20% í Sæbergi, stærsta fyr-
irtækinu á Ólafsfirði.
Byltingarhreyfing
lýsir ábyrgð á
skemmdarverki
Byltingarhreyfingin Rauöa
stjarnan hefur lýst fullri ábyrgð á
skemmdarverki sem unnið var á
skilti á Miðnesheiði aðfaranótt sL
fostudags. Skiltið, sem merkt var
„Varnarstöð", var eyðilagt og í stað-
inn var ritað á það „Morðingjar“.
Byltingarhreyfingin sendi
fréttatilkynningu til fiölmiðla þar
sem hún lýsir fullri ábyrgð á að-
gerðum sínum. Með þessu segjast
samtökin vera að mótmæla
heimsvaldastefnu Bandarikjanna
og hersetu þeirra á íslandi. Hreyf-
ingin segist berjast fyrir betri
heimi og vill sníkjudýr kapítal-
ismans burt. Málið er í rannsókn
hjá rannsóknardeild lögreglunn-
ar í Keflavík.
-RR
Hagstœö kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
o\\t mllli hlrriif^
Smáauglýsingar
550 5000
-HJ