Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Qupperneq 36
Tvöf&ldur
I, vinningm
IfTli
/*V* 5iI mltó/* od Vinnö
Vinningstölur
3.2/97
18}(27}(30j
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
„ Reykjavík:
Ofremdar-
ástand
> vegna hálku
„Það fóru bUar frá okkur með öU
tæki klukkan 4 í nótt tU að ryðja göt-
ur. Það er hins vegar ekkert saltað í
svona frosti en við gerum það um leið
og slaknar á frostinu. Þetta er afar
sérstakt og erfitt ástand og óvenju-
mikil hálka. Við gerum eins og við
getum en ég á von á að ástandið skáni
þegar líður á morguninn," segir Sig-
urður Skarphéðinsson gatnamála-
stjóri.
Algert ófremdarástand myndaðist í
umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í
morgun þegar þúsundir bílar komust
vart leiðar sinnar vegna snjóþunga
eða hálku á götum borgarinnar. Dæmi
CS*- voru um að fólk væri aUt að klukku-
stund með strætó úr Breiðholti niður
á Hlemm.
Töluvert var af umferðaróhöppum í
morgun vegna hálkunnar en ekkert
þeirra var talið alvarlegt. -RR
Hafísinn kom-
inn fram hjá
Kolbeinsey
------------------------
DV, Akureyri:
Hafísjaðarinn norður af landinu
er kominn fram hjá Kolbeinsey og
hefur verið að þokast nær landinu
undanfarna daga. í gær var ísinn
ríflega 40 sjómUur norður af Gríms-
ey.
Einar Sveinbjömsson veðurfræð-
ingur sagði í morgun að útlit væri
fyrir óhagstæða vindátt næstu daga,
en það er norðanátt. Einar sagði þó
ómögulegt að spá fyrir um fram-
haldið, menn hefðu ekki mikla
reynslu tU að setja slíkar spár fram
auk þess sem veðurfar væri mjög
stór þáttur varðandi framvindu
mála.
í Grímsey eru menn við öUu bún-
ir ef „landsins forni fjandi" skyldi
gera vart við sig. Sjá nánar á bls. 27.
-gk
Bruni í
Súðavík
Eldur kviknaði í einbýlishúsi við
Nesveg í Súðavík í nótt. Ein kona
var í húsinu en hún komst sjálf út.
Hún var flutt á sjúkrahús með snert
af reykeitrun.
Slökkvilið Súðavíkur slökkti eld-
inn og gekk slökkvistarf greiðlega.
Húsið, sem stendur á snjóflóða-
hættusvæði, er töluvert skemmt.
j».Rannsókn á eldsupptökum stendur
nú yfir.
-RR
PAÐ HAFA EINHVERJIR'
orðid SALTVONDIR í
UMFERÐINNI!
24 ára maður viðurkennir að hafa skotið að Hlöðveri Aðalsteinssyni:
Segir Hlöðver hafa
misnotað sig áður
- ætlaði að hefna sín vegna kynferðislegrar áreitni á unglingsárum
24ra ára Hafnfirðingur, sem
viðurkenndi i gærkvöldi að hafa
hleypt af haglabyssu í átt að Hlöð-
veri heitnum Aðalsteinssyni að-
faranótt 29. desember, segir að
ástæða verknaðarins sé sú að
þegar hann var á unglingsárum
hefði Hlöðver leitað á sig kynferð-
islega. Því hafi verið um hefndar-
aðgerð að ræða sem þó hefði ekki
átt að enda með því að Hlöðver
hlyti bana af.
Hinn ungi Hafnfirðingur viður-
kenndi jafnframt í gærkvöldi að
hafa farið með Hlöðveri á Lödu-
jeppa hans um nóttina að Krýsu-
víkurvegi. Hann hafi til margra
ára verið ósáttur við Hlöðver og
hefði viljaö ræða fortíðina við
hann. Nokkru áður hafði komist
á samband á milli þeirra sem
leiddi til hinnar örlagaríku ferðar
þeirra á jeppa Hlöðvers að Krýsu-
víkurvegi.
Maðurinn segir að er þeir
komu á vettvang hefði hann beint
byssunni í átt að Hlöðveri til að
hræða hann í hefhdarskyni fyrir
hina kynferðislegu áreitni forð-
um. Síðan hafi hann ætlað að
hleypa af fram hjá honum. Hann
viðurkennir því ekki ásetning
um að hafa ætlað að bana
Hlöðveri.
Eins og fram hefur komið í DV
var tæki í sima Hlöðvers heitins
sem skráði tugi símtala aftur í
tímann. Þannig bárust böndin að
framangreindum manni en hann
vísaöi því á bug við fyrstu yflr-
heyrslur að hafa vitað um ferðir
Hlöðvers heitins nóttina sem
honum var banað. Haglabyssa
fannst hins vegar í fórum hans.
Rannsókn RLR leiddi síðan í ljós
að högl sem fundust við Krýsu-
víkurveg voru úr byssu manns-
ins. Einnig fundust „lífssýni" úr
manni í jeppa Hlöðvers heitins -
sýni sem send voru í DNA-rann-
sókn í Noregi. Niðurstaða hennar
barst síðan í gær - sýnið var úr
hinum grunaða. Hann var þá
leiddur til yflrheyrslu þar sem
hann viðurkenndi að hafa skotið
úr byssunni í átt að Hlöðveri
heitnum.
Farið verður fram á langt
gæsluvarðhald yfir manninum í
dag. Málið telst reyndar að miklu
leyti upplýst hjá RLR en þó á eft-
ir að ganga frá ýmsum lausum
endum.
-Ótt
Bullandi oanægja rikir meö nýjan kjarasamning í loðnuverksmiöjunum. Jóhann Arnarson og Einar Einarsson,
starfsmenn í loðnuverksmiðju Hraðfrystihúss Eskifjaröar virða fyrir sér þennan umdeilda samning. Gengið verður
til atkvæðagreiðslu um samninginn um næstu helgi. Sjá nánar á bls. 5.
DV-mynd Þórarinn
Samræmd próf:
Tíð manna-
skipti
stærsta
vandamálið
- segir skólastjóri
„Við höfum verulegar áhyggjur af
þessu en vandi okkar liggur fyrst og
fremst í tíðum mannaskiptum. Kenn-
arar stoppa hér gjarna í einn til tvo
vetur og það hefur auðvitað áhrif á
langtímaskipulag. Að auki náðum við
ekki að fullmanna skólann í vetur og
því er hver og einn að kenna mjög
mikið," segir Skarphéðinn Jónsson,
skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík,
en skólinn er með lægstu meðalein-
kunn úr samræmdum prófum I 10.
bekk 1996.
Skarphéðinn segir meðaltalsút-
reikninga mjög vafasama í svona fá-
mennum skólum þar sem útkoman
geti orðið nokkuð ýkt mynd af raun-
veruleikanum.
„Við leitum leiða til úrlausna og
skólanefndin hefur m.a. óskað eftir
fundi með hreppsnefndinni til þess að
ræða það hvemig megi stuðla að
betra skólastarfi á Hólmavík."
- Sjá nánar á bls. 2 -sv
Veörið á morgun:
Snjókoma
og skafrenn-
ingur
Á morgun verður hvöss aust-
læg átt og snjókoma og skafrenn-
ingur um mestallt land. Frost
veröur á bilinu 0 til 8 stig, kald-
ast í innsveitum norðaustan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 36