Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997 Vréttir __________________________________________________________ Heimilisofbeldi verulegt vandamál hér á landi: Miklu meira en ég haföi gert mér í hugarlund - segir Ingólfur V. Gíslason á Skrifstofu jafnréttismála „Skýrslan sýnir skuggalega mik- ið heimilisofbeldi á íslandi því um 1.100 konur virðast hafa orðið fyr- ir ofbeldi af hendi fyrrverandi eða núverandi maka á síðasta ári. Þar að auki segir 454 prósent kvenna að þeim hafi verið nauðgaö ein- hvem tímann á llfsleiðinni. Það er miklu hærri tala heldur en ég hafði gert mér í hugarlund," segir Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður á Skrifstofu jafnréttismála, um niðurstöður úr könnun á heimilis- ofbeldi á íslandi. Hagvangur gerði könnunina sem hér um ræðir í apríl á síð- asta ári og er hún símakönnun þar sem hringt var í 3.000 manna úrtak úr þjóðskrá, 1.500 karla og 1.500 konur. Kanna átti umfang heimilisofbeldis gegn konum og körlum í samfélaginu, tengsl þeirra sem verða fyrir ofbeldinu og þeirra sem beita því, skoða átti hvort konur verði í meira mæli fyrir ofbeldi af völdum nú- verandi eða fyrrverandi maka og loks veltu menn fyrir sér afleið- ingimum. Ofbeldi m 60% gegn konum - hlutfall giftra kvenna og fráskilinna 50 40 30 20 10 0 Núverand! maki Fyrrverandi makl Annar Innan fjölsk. Ókunnugur Uppkomiö barn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hrinti, hristi eða sló H Sló meö krepptum hnefa B Hrinti á húsgögn Beitti grófu ofbeldi Annar utan fjölsk. Fleiri karlar í heildina Ingólfur segir að í heildina séu fleiri karlar beittir ofbeldi og þar komi til götuofbeldið. Á heimilum eru 650 karlar beittir ofbeldi árlega en að sögn Ingólfs verður að taka með í dæmiö að karlar beita mun grófara ofbeldi en konur og yfirleitt sé ógnunin af löðrungi miklu meiri af hendi karla en kvenna. Karlar séu yflrleitt sterkari en konumar og því séu brot þeirra yfirleitt alvar- legri. í niðurstöðum könnunarinnar má sjá að algengast er að fyrrver- andi maki hafi beitt konumar of- beldi. Af þeim konum sem hefur veriö hrint, slegið til eða þær hristar er það í 37% tilvika fyrr- verandi maki og í um 24% tilvika núverandi maki sem var að verki. Eins er með grófara ofbeldi. Konur sem greina frá því aö þær hafi verið beittar ofbeldi hafa í mn 70% tilvika þekkt ofbeldismann- Handlaug á vegg 43x55 cm WC í vegg eða gólf með vandaðri harðri setu í sama lit. tryggtng Baðkar Stærð 170x70 cm. oin»wr““em sama ao»a,» try99ir«aUt áferð 09 W- RAÐGREIÐSLUR veröú V/SA SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) • SÍMI 588 7332 OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-14 inn og algengast er að það hafi verið fyrrverandi maki. Sjaldnast kært „Mér fmnst mjög athyglisvert að í fæstum málunum er lögregla kvödd til eða kæra lögð fram á ofbeldis- manninn. Það virðist vera þannig í sambandi við nauðgunarmálin að ef ura grímuklæddan, óþekktan mann er að ræða leggja konumar fram kæru, annars ekki. „Mér finnst vera dregin upp mynd af miklu ofbeldisfyllra þjóðfélagi en ég reiknaði með og mín skoöun er sú að íslendingar þiufi nú að uppfylla ýmsar al- þjóðaskuldbindingar sem þeir hafa gengist undir. Kalla á að einu borði þá sem að þessu máli koma og smíða þjóðaráætlun, t.d. til fimm ára, um hvað eigi að gera. Það er hægt að gera margt án þess að það kosti of mikið fé. Karlanefndin hefúr barist fyrir því í nokkurn tíma að boðið verði upp á sálfræðimeðferð fyrir þá sem of- beldinu beita. Það hefur sýnt sig erlendis að það skilar árangri og við vitum aö menn vilja gjarna losna úr þessu,“ segir Ingólfur V. Gíslason. -sv Hvers vegna ofbeldi? - skýringar kvenna 0 10 20 30 40 50 60 70% Áfengl 71,4 Afbrý&iseml Skllnaöur eða belöni um skllnaö 30,4 Ágrelnlngur um fjármál 25,9 Ágrelnlngur um börnln g Alvarleg veiklndl 62,5 Atvinnumlssir 6,3 Me&ganga 4,5 Atvinnuástandið: 5,2% atvinnuleysi í janúar - var 5,9% á sama tíma í fyrra Atvinnuleysi í janúarmánuði sl. jafngildir því að 6754 manns hafi að jafhaði verið á atvinnuleysis- skrá en það er 5,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Þaö eru að meöaltali 936 fleiri atvinnulaus- ir en voru fdesembermánuði sl. en hins vegar 943 færri en í janúar í fyrra. í frétt frá vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins kemur fram að atvinnuástandiuð versnaði nokk- uð á öllum atvinnusvæðum frá því í desember. Hlutfallslega jókst það mest á Suðumesjum en hins vegar eykst fjöldi atvinnulausra mest á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallslegt atvinnuleysi er mest á Norðurlandi vestra en minnst á Vestfjörð- um. At- vinnuleysi kvenna jókst um 15,7% milli desember og janúar en karla um 16,5%. Á landinu öllu fjölg- aði atvinnulausum konum um 515 en körlum um 421. -SÁ Atvinnuleysi um allt land - frá jan. '96 til jan. '97 - 5 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.