Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
.53 (kvikmyndir
4
Eitt magnaðasta tónlistaratriði sem í langan tíma hefur sést i kvikmynd
er í Undrinu (Shine) þegar hinn ungi píanósnillingur, David Helfgott,
leikur í tónlistarkeppni i London píanókonsert nr. 3 eftir Rachmaninov.
Áður hefur verið ljóst að Helfgott er smám saman að skríða í eigin skel,
farinn að haga sér undarlega og að geðveikin er á næstu grösum. Undir
sterkri og áhrifamikilli tónlist Rachmaninovs er komið að endapunktin-
um í þessu ferli. Þetta atriði er snilldarlega vel gert og í því nær leik-
stjórinn, Scott Hicks, einnig að minna okkur á það sem á undan er geng-
ið, að það ofurvald sem faðir hefur yfir syni símnn er orsök þess í
hvemig ástandi píanósnillingurinn er.
í Undrinu er rakin ævi Helfgotts frá bamsaldri og fram til ársins 1984
þegar hann hóf píanóleik aftur, en í tuttugu ár hafði hann verið vist-
maður á geðveikraspítala, eða allt frá því hann lék fyrmefndan píanó-
konsert Rachmaninovs og sigraði í keppninni. Hann er á lyfjum og hef-
ur verið bannað að leika á píanó. Þegar Helfgott kemst loks út í þjóðfé-
lagið era það fáir sem taka hann alvarlega, enda litið á hann sem stór-
skrýtinn en skemmtilegan karakter sem verður að passa eins og bam.
Heimsókn hans á lítinn bar markar þó upphafið að endurkomu hans.
Undrið er kvikmynd sem er einstaklega vel gerð, áhrifamikil og gefandi.
Frásagnarmáti Hicks er sérlega vel heppnaður. Það eru þrír leikarar
sem leika Helfgott og er Geoffrey Rush sem leikur hann eftir að hann
fær taugaáfallið eftirminnilegastur, þá helst fyrir það hvað hann er
sannfærandi í túlkun sinni á manni, sem er algjört flak tilfmningalega
séð, stam hans og endurtekningar er sannfærandi og á Rush skilið allar
þær viðurkenningar sem hann hefur fengið fyrir leik sinn. Noah Taylor
nær góðum tökum á Helfgott ungum og er sérlega góður í London-atrið-
unum þegar taugar Helfgotts em að gefa sig.
Leikstjóri: Scott Hicks. Handrit: Jan Sardi. Kvikmyndataka: Geoffrey
Simpson.Aðalleikarar: Geoffrey Rush, Noah Taylor, Armin Mueller- Stahl,
Lynn Redgrave og John Gielgud. Hilmar Karlsson
Regnboginn - Sú eina rétta
Bræður í tilfinningakreppu
Edward Burns vakti athygli fyrir tveimur
árum þegar fyrsta kvikmynd hans, The
Brothers McMullen, sló í gegn. í henni lék
hann aðalhlutverkið, leikstýrði og skrifaði
handritið. Hann endurtekur leikinn í Sú eina
rétta (She’s the One) og eins og í fyrri mynd
sinni er hann að fjalla um bræður. Nú era
það tveir í staðinn fyrir þrjá. Sem sagt einni tiifinningaflækju minna
þvi eins og McMullen-bræðumir þrír eiga Fitzpatrick-bræðumir í mikl-
um vandræðum með að koma hlutunum heim og saman, sérstaklega
hvað varðar kvenfólk. Sá eldri hefur afheitað lífsgæðakapphlaupinu og
hefur gerst leigubílstjóri í kjölfar þess að hann kom að kærastunni í
bólinu með öðmm. Einn daginn tekur hann upp farþega, unga fallega
stúlku, sem er á leið í brúðkaup vinkonu sinnar. Þegar því brúðkaupi
lýkur era leigubilstjórinn og farþeginn einnig gift. Yngri bróðirinn er á
fullu í lífsgæðakapphlaupinu og braskar í Wall Street. Hann er giftur en
þar sem hann vill ekki halda fram hjá viðhaldi sínu, sem er fyrram
kærasta bróður hans, vill hann ekki hafa samfarir við eiginkonuna.
Sagan viröist nokkuö ruglingsleg en Bums kann listina að láta hlutina
falla saman án þess að vera með of miklar flækjur og hann hefúr einnig
húmor fyrir mannlegum titfinningum og þar með gerir hann myndina
einkar mannlega og skemmtilega þótt hún sé nánast eitt samtal frá upp-
hafi til enda. Leikarahópurinn, sem í em þrír sem vom í The Brothers
McMullen, Bums, Maxine Bahns og Mike McGlone, ásamt ungstimun-
um Jennifer Aniston og Cameron Diaz, er einkar aðlaðandi og áhuga-
verður og stuðlar að því að gera myndina að góðri skemmtun.
Leikstjóri og handritshöfundur: Edward Burns. Aðalhlutverk: Edward
Burns, Jennifer Aniston. Cameron Diaz, Maxine Bahns og Mike
McGlone. Hilmar Karlsson
Sam-bíóin og Stjörnubíó — Turbulence
★★x
Flugrán á aðfanga-
dagskvöld
irtrk
Ray Liotta sýndi það í Unlawful Entry, þar
sem hann lék löggu sem undir felldu og
sléttu yfirborðinu var sálsjúkur morðingi,
að hann á einkar auðvelt með að fá áhorf-
endur til að meðtaka tryllingslegan hugs-
anagang án þess að sleppa brosinu. í Turbu-
lence leikur hann ekki ósvipaða persónu,
sálsjúkan fjöldamorðingja sem lítur alls ekki
út fyrir að vera fjöldamorðingi. Myndin gerist á aðfangadagskvöld um
borð í Boeing 747 á fimm tíma flugi milli New York og Los Angeles. Að-
eins ellefu farþegar em um borð og er meirihlutinn lögreglur og tveir af-
brotamenn sem flytja á til Los Angeles.
Flugfreyjur sinna venjubundnum skyldustörfum, búast við þægilegu
flugi þar sem lítið verður að gera. Annað á þó eftir að koma í ljós og fyr-
ir þá sem eftir lifa verður þessi flugferð að hreinni martröð, að undan-
skildurn fjöldamorðingjanum sem skemmtir sér á kostnað hinna.
Ekki veit ég hversu öragg og fullkomin flugvél Boeing 747 er en sam-
kvæmt þeim hremmingum sem vélin lendir í og hvemig sjálfvirknin
bregst við aðstæðum mætti halda að ömggara væri að engin mannleg
handtök kæmu nálægt stjómtækjum vélarinnar. En hvað um það, Tur-
bulence er mikil keyrsla frá upphafi til enda og tæknilega séð geysivel
gerð. Handritið er ágætlega skrifað þótt ekki sé það hrein listasmíð en
er vitrænna en í mörgum stórslysamyndum.
Ray Liotta fær ágætan mótleik frá Lauren Hofly sem leikur flugfreyju
sem fólk niðri á jörðinni reiðir sig á. Era átakaatriði þeirra á milli vel
útfærð. Þegar grannt er skoðað má sitthvað finna að Turbulence og
dramatikin á jörðu niðri er öll mun stirðari en í háloftunum. Það kemur
þó ekki að mikilli sök. Myndin heldur áhorfandanum vel við efniö en
trúlega verður Turbulence aldrei sýnd um borð í flugvélum.
Leikstjóri: Robert Butler. Handrit: Jonathan Brett. Kvikmyndataka: Lloyd
Ahern. Tónlist: Shirley Walker.
Aðalleikarar: Ray Liotta, Lauren Hoily, Hector Elizondo, Ben Cross og
Rachel Ticotin. Hilmar Karlsson
Enski sjúklingurinn frumsýndur í Regnboganum eftir viku:
Epísk kvikmynd um
örlög fjögurra persóna
jcrr
. • :
-
The English Patient gerist að miklum hluta í Sahara-eyðimörkinni.
Það er víst
óhætt að
segja að The
English
Patient er
umtalaðasta
kvikmynd í
heiminum i
dag og
ástæðan er
tólf óskars-
tilnefningar.
Meðal
þeirra er
besta mynd-
in, besta
leikkona í
aðalhlut-
verki (Krist-
in Scott
Thomas),
besti leikari
í aðalhlut-
verki (Ralph
Fiennes),
besta íeik-
konan í
aukahlut-
verki (Juli-
ette Bin-
oche), besti
leikstjóri og besta handrit (Anthonu
Minghella), besta kvikmyndataka
(John Seale) og besta tónlist
(Gabriel Yared), sem sagt í öllum
aðalflokkum.
Allt frá því The English Patient var
fmmsýnd I Bandaríkjuniun fyrir
þremur mánuðum hefur hún jafnt
og þétt verið 'að vinna á hjá banda-
riskum áhorfendum og gagnrýnend-
ur tóku henni fagnandi hendi og töl-
uðu um afturhvarf til rómantíkur-
innar. Það má til sanns vegar færa
eins og einn greinarhöfundur sagði:
„The English Patient er kvikmynd
eins og þær eru ekki gerðar nú til
dags.“
Örlagasaga
The English Patient
hefet seint á árinu
1942 þegar flugvél
flýgur yfir Sa-
hara-eyöi-
mörkina. Inn-
anborðs er
maður og
kona. Þýskar
herflugvélar
gera árás á
flugvélina og
skjóta hana nið-
ur. Flugmaðurinn
fellur til jarðar í
fallhlíf ásamt farþega
sínum sem er dáinn.
Flugmaðurinn er flutt-
ur í nær yfirgefið
ítalskt klaustur þar sem
hann fær hjúkmn hjá
ungri ítalskri hjúkran-
arkonu sem hefur farið
halloka í stríðinu og á
engan að. Hún leggur því
allt í sölumar fyrir sjúkling
sinn, flugmanninn sem hef-
ur misst minnið og er
mjög illa særður.
Til sögunnar
kemur
einnig þjófur en hæfileikar hans í
þeim efhum hafa gert hann að hetju
í stríðinu. I klaustrinu er einnig
ungur innfæddur liðsforingi í her
Breta en stríðið hefur kennt honurn
að treysta engum nema sjálfum sér.
Öll hafa þau sögu aö segja hvert
öðra og í sögunum er aðalpersónan
evrópskur aristókrati, Count Alma-
sy, sem leiðir alþjóðlegcm leiðangur
í eyðimörkinni.
The English Patient er gerð eftir
skáldsögu Michaels Ondaatje sem
fékk hin eftirsóttu Booker-verðlaun
Breta. Hand-
ritið
skrifaði aftur á móti leikstjórinn
Anthony Minghella. Auk leikar-
anna, sem tilnefnd era til ósk-
arsverðlauna, leika í myndinni
Willem Dafoe, Colin Firth, Júrgen
Prochnov og Naveen Andrews.
Verðlaunað leikskáld
Anthony Mingella skrifaði leikrit og
sjónvarpshandrit í tíu ár áður en
hann gerði sína fyrstu kvikmynd,
Truly, Madly, Deeply, árið 1991, sem
einnig er ástarsaga. Sú kvikmynd
vann til margra verðlauna og var
hann meðal annars valinn besti ný-
liðinn af gagnrýnendum í London.
Tveimur árum síðar leikstýrði hann
sinni annarri mynd, Mr. Wonderfúl
með Matt Dillon og Mary Louise
Parker í aðalhlut-
verkum
Minghella fæddist árið 1954 og
eru foreldrar hans af ítölsku
hergi brotnir. Eftir að hafa
lokið háskólanámi við há-
skólann í Hull hóf hann
skrif leikrita og 1984 var
hann valinn efnilegasti
leikritahöfundurinn af
gagnrýnendum í
London fyrir þrjú leik-
rit, A Little Like Drown-
ing, Love Bites og Two
Planks and a Passion.
Tveim árum síðar var
hans Made in
Bangkok valið besta
leikrit ársins. í sjónvarp-
inu skrifaði hann fyrstu
handritin í þáttaröðinni
Inspector Morse. Hann
samdi síðan alla þætt-
ina í þáttaröð Jim Hen-
son, Storyteller. Hann
starfar enn sem leiðbein-
andi hjá Jim Henson
Production.
-HK
Ralph Fiennes hefur fengið tilnefningu til óskarsverðlauna fyrir leik sinn.