Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997 Stuttar fréttir Utlönd Nýr í forsæti Forsætisráðherra Suður- Kóreu hefur skipað nýjan for- sætisráðherra landsins sem sagður er vera stálheiðarlegur. Geimflaug á loft Rússar skutu í morgun á loft fyrstu geimflauginni frá nýjum skotstöðvum í austasta hluta Rússlands. Geröi ekkert rangt A1 Gore, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í ga:r að hann væri stoltur af hlutverki sinu i að safna fé í kosninga- sjóöi Clintons forseta og it- rekaði að hann hefði ekki brotið nein lög í því sambandi. Hjálpin kemur Sveitir viðgerðar- og hjálp- arsveitamanna streymdu til Arkansasríkis í Bandaríkjunum í gær til aö aðstoða íbúa við upp- bygginguna eftir að hvirfilbyljir gerðu mikinn usla þar um helg- ina og urðu 25 manns að bana. Til í hörku Leiðtogar Evrópusambands- ins segjast reiöubúnir að grípa til frekari hertra aðgerða í fjár- lagamálum til að tryggja að fleiri lönd uppfylli skilyrði sam- eiginlegs myntbandalags. Svipti sig lífi Sjötug kona í Ástralia hefur tekið eigið líf, í samræmi við umdeild lög sem gilda í nyrsta héraði Ástralíu. Hún var fjórða manneskjan til að nýta sér heimildina til líknardráps. Fjölþjóöaliö í Saír Kofi Annan, aðalfram- kvæmda- stjóri Sam- einuðu þjóð- anna, sagði í gæt að hann teldi að fiöl- þjóðlegt her- lið gæti orðið að liði við að flóttamanna f Japan skelfur Hundruð minni háttar jarð- skjálftar skóku enn land í orlofs- bæ suður af Tokyo, höfuðborg Japans, í morgun. Minni háttar skemmdir urðu og umferö jám- brauta stöðvaðist um tíma. 136 látnir Að minnsta kosti 136 manns týndu lífi í versta járnbrautar- slysi Pakistans í gær þegar stjómlaus lest fór út af sporinu. Viö sprengdum Útlægur talsmaður uighur- þjóðernissinna I vesturhluta Kína sagði í gær að hópur sinn hefði staðið fyrir sprengjutil- ræði í strætisvagni í gær í hefndarskyni fyrir aögerðir stjómvalda gegn hópi múslíma. Ræöst á herstjórnina Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðis- sinna í Burma, veitt- ist harkalega aö herstjórn landsins í gær fyrir kúgun á stjórnarand- stæðingum og hét því að halda baráttunni fyrir lýöræöi áfram. Gagnrýna Renault Frönsku bílaverksmiðjurnar Renault sættu haröri gagnrýni fyrir þá ákvörðun sína að loka verksmiðju sinni nærri Bmssel og þúsundir verkamanna efndu tO mótmæla. Reuter lina þjáningar Saír. Bandaríkin harma setningu neyðarlaga í Albaníu: Albaníustjórn hótar að skjóta mótmælendur Bandarísk stjórnvöid sögðu í gær að þau hörmuðu mjög að Albaníu- stjórn skyldi grípa til neyðarlaga til að kveða niður óeirðir i landinu og jafnframt að þing landsins skyldi hafa kosið Sali Berisha forseta til embættis á ný. Albanskur stjómarer- indreki viðurkenndi að nokkur svæði í suðurhluta landsins væru stjórnlaus. Eftir margra vikna óeirðir sem blossuðu upp þegar fjárfestingar- svikamyllur fóru á hausinn fyrir- skipuðu albönsk stjórnvöld í gær að óeirðaseggir skyldu skotnir á færi. Þá var lýst yfir útgöngubanni frá sól- arlagi til sólarupprásar og settar voru hömlur á tjáningarfrelsi fjöl- miðla. Skriðdrekar sáust á götum bæjar- ins Giirokaster í suðurhluta iandsins og öðm hverju mátti heyra þar sköt- hríð úr sjálfvirkum vopnum í gær, að sögn grískra stjómarerindreka og sjónarvotta. „Að minnsta kosti fimm eða sex skriðdrekar em nú í bænum og hafa komið sér fyrir á lykilstöðum. Einnig hafa öðru hverju heyrst skothvellir úr sjálfvirkum byssum," sagði starfs- maður grísku ræðismannsskrifstof- unnar í bænum. Heimildarmaður innan albanska hersins sagði í höfúðborginni Tirana að skriðdrekar væru nærri Giirok- aster en staðfesti ekki að þeir væru komnir inn í sjálfan bæinn. 1 hafnarbænum Vlore í suðurhluta landsins, þar sem óeirðaseggir brutu allt og brömluðu og kveiktu í í gremju sinni yfir að tapa öllu sparifé sínu í hendur fjárglæfrafyrirtækj- anna, vora 35 útlendingar teknir um borð í þyrlur og fluttir til ítölsku hafnarborgarinnar Brindisi. Að sögn starfsmanna italska utanríkisráðu- neytisins vom í hópnum tuttugu ítal- ir, fjórir Þjóðverjar og hollenskur ríkisborgari og að minnsta kosti þrír Grikkir. Tíu þessara manna vom fréttamenn. Fregnir herma að tólf manns að minnsta kosti hafi látið lífið í átökum sem urðu um helgina eftir að íbúar i nokkrum bæjum í suðurhluta Alba- níu fóm ránshendi um vopnabúr og tóku að skjóta og ræna og rupla. ítalska stjómin hefur hvatt til þess að Evrópusambandið haldi fund um Albaníu og Romano Prodi forsætis- ráðherra sagði við Sali Berisha Alba- níuforseta í gær að hann vonaði að pólitísk lausn fyndist. ítalir óttast að áframhaldandi ófremdarástand i Albaníu, sem er fá- tækasta land í Evrópu, muni leiða til mikils flótta Albana yfir Adríahafið. Reuter íbúar í bænum Vlore í suöurhluta Albaníu efndu til mótmæla á götum úti í gær til aö lýsa yfir óánægju sinni meö að hafa glatað öllu sparifé sínu í hendur fjárglæframanna. Miklar óeiröir hafa veriö í Albaníu undanfarnar vikur vegna þessa og hefur stjórn landsins af þeim sökum lýst yfir neyðarástandi í landinu. Simamynd Reuter Mótmælendur gegn flutningi kjarnorkuúrgangs: Notuðu sement til að reyna að stöðva lestina Lest, hlaðin sex gámum með kjarn- orkuúrgangi frá suðurhluta Þýska- lands, kom í nótt til borgarinnar Dannenberg í norðurhluta landsins eftir um 20 klukkustunda ferð. Um fimm þúsund kjarnorkuandstæðing- ar tóku á móti lestinni með slagorð- um og köllum. Ráðgert er að flytja farminn yfir á vörabíla síðar í dag og verður þeim síðan ekið, líklega á morgun, til geymslustöðvar í Gorleben sem er í 20 kílómetra fjarlægð frá Dannen- berg. Kjamorkuandstæðingar hafa efnt til mótmæla viðs vegar þar sem lest- in hefur farið um. Tveir mótmælend- ur grófu holur undir lestarteina ná- Oeirðalögreglumenn beita sög til að lægt Dannenberg. Settu þeir sement í l°sa mótmælanda frá járnbrautar- holurnar og tróðu síðan handleggj- teinum nálægt Dannenberg. unum ofan í. Olli þetta talsverðri töf. Símamynd Reuter Kjarnorkuandstæðingar höfðu að sem gert er ráð fyrir að vörubílamir engu bann yfirvalda við mótmælum aki um. þar sem lestin fór um og nokkrir Þúsundir kjarnorkuandstæðinga köstuðu gijóti að óeirðalögreglu. hafa komið sér fyrir í Gorleben þar Sumir komu fyrir vegatálmum, sem sem þeir bíða komu vörubílanna. þeir kveiktu síðan í, á vegunum þar Reuter Clinton gagnrýnir byggingaráform Bill Clinton Banda- ríkjaforseti gagnrýndi í gær ákvörðun ísra- els um að reisa nýjar íbúðir fyrir gyðinga i arabíska hlutanum í Jerúsalem á fimdi með Yasser Arafat, forseta Palestínu. Arafat sagði í við- tali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN að hann teldi að Clinton myndi ræða málið við Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels. „Hann sagði að hann myndi reyna því að það var Net- anyahu sjálfur sem tók þessa ákvörðun," sagði Arafat. Hann kvaðst vonast til þess að bandarísk yfirvöld myndu gegna hlutverki í því að stöðva bygg- ingaframkvæmdirnar. Helsti samningamaður Arafats, Nabil Shaath, varaði við þvf að ef ekki tækist að koma í veg fyrir framkvæmdirnar væri hætta á blóð- baði. Sjálfur sagði Clint- on ekkert opinber- lega um það hvort hann myndi reyna að hafa áhrif á ísra- ela til þess að þeir breyttu ákvörðun sinni. Ríkisstjórn ísraels ákvað í síðustu viku að reisa 6.500 nýjar íbúðir fyrir gyðinga í arabíska hluta Jerúsalem. ísrael- ar hertóku austurhluta Jerúsalem í sex daga stríðinu 1967 og líta á borgina sem höfuðborg sína. Pa- lestinumenn vilja að Austur-Jerú- salem verði framtíðarhöfuðborg þeirra sjálfra. Reuter Yasser Arafat Palestínu- forseti í Bandaríkjunum í gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.