Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 14. MARS 1997
Fréttir *>v
Stækkun jámblendiverksmiðjunnar:
Hlutur ríkisins úr
55% í 35,5%
- Elkem eignast 51% í staö 30% áður
Samkomulag náðist um stækkun
jámblendiverksmiðjunnar milli ís-
lenskra stjórnvalda og Elkem í
Noregi seint í fyrrakvöld. Sam-
kvæmt því eignast Elkem 51%
meirihluta í íslenska járnblendifé-
laginu en átti áður 30%. Hlutur rík-
isins sem var 55% verður nú 38,5%
og hlutur Sumitomo sem áður var
15% verður 10,5%. Þá verður fyrir-
tækið gert að almenningshlutafé-
lagi og skráð á almennum hluta-
fjármarkaði strax á þessu ári og
hlutabréf ríkisins síðan seld í
áföngum. Þetta kom fram hjá Finni
Ingólfssyni iðnaðarráðherra á Al-
þingi í gær.
„Við almennir starfsmenn höfum
ekki verið spenntir fyrir því að El-
kem eignist meirihluta í félaginu.
Okkur hefur liðið ágætlega hingað
til og samskipti hafa gengiö vel. Við
vitum hvað við höfum og vitum líka
að það hafa verið ákveðnir erfiðleik-
ar í samskiptum í norsku verk-
smiðjunum sem okkur langar ekki
að verða fyrir,“ sagði Sigurður
Guðni Sigurðsson, formaður Starfs-
mannafélags jámblendiverksmiðj-
unnar, eftir starfsmannafund í jám-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga í gærmorgun í samtali við
DV.
Sigurður sagði að menn óttuðust
uppsagnir, en búið væri að skera
svo mikið niður í mannahaldi að
það yrði varla hægt að fækka fólki
meir. Hann sagði það þekkt að El-
kem vildi keyra verksmiðjur sínar
með sem minnstum mannskap. „Þá
óttumst við að Elkem flytji íjár-
magnið úr landi og að við þurfum
að kaupa þjónustu af þeim og þeir
verðleggi hana svo hátt aö hagnað-
„Samningurinn um stækkun
verksmiðjunnar á Grundartanga
felur í sér að Elkem skrifar sig fyr-
ir nýju hlutafé til að fjármagna
þriðja ofn verksmiðjunnar sem
eykur afkastagetu hennar úr 70
þúsund tonnum á ári í 110 þúsund
tonn,“ sagði Finnur Ingólfsson iðn-
aðarráðherra í gær þegar hann
kynnti samkomulagið á Alþingi.
Iðnaðarráðherra sagði að jafnframt
hefði verið samið um það við
Landsvirkjun að íslenska járn-
blendifélagið geti nýtt sér forkaups-
rétt á raforku til þriðja ofnsins með
þeim skilmálum sem kveðið er á
um í rafmagnssamningi milli ís-
ur af íslenska járnblendifélaginu
minnki," sagði Sigurður Guðni.
Samkvæmt fréttum norska ríkis-
sjónvarpsins NRK í gær mun Elkem
þurfa að reiða fram 2,7 milljarða til
byggingar á nýja otninum í jám-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga og samkvæmt sömu fréttum
hefur Elken gert samning við ís-
lenska rikið um ódýra orku til fram-
leiðslunnar næstu 20 ár. Reiknað er
með að ofninn komist í notkun 1999
og verður ársframleiðsla hans 40000
tonn.
Samningur ríkisins og Elkem um
stækkun járnblendiverksmiðjunnar
og meirihlutaeign Elkem í verk-
smiðjunni var kynntur á starfs-
mannafundi hjá íslenska járn-
blendifélaginu í gær. Hann var afar
daufur og ekki boðið upp á umræð-
ur. Engar fyrirspurnir voru leyfðar
og var starfsfólkinu nánast stillt
upp frammi fyrir orðnum hlut. Þá
var einnig haldinn fundur með
trúnaðarmönnum og svokallaðri
samstarfsnefnd. Þar lýstu menn yfir
áhyggjum vegna breytinganna.
-DVÓ
lenska járnblendifélagsins og
Landsvirkjunar frá 9. janúar sl.
Iðnaðarráðherra sagði að í samn-
ingunum væri hlutafé ríkisins met-
ið á rúma 2,5 milljarða króna. Hið
nýja hlutafé frá Elkem yrði 932,5
milljónir króna en fjárfesting
vegna nýja ofnsins verði 2,7 millj-
arðar. Það sem á vantar eða um 1,8
milljarðar verði fjármagnað með
lánsfé, en þetta tryggi mjög hátt
eiginfjárhlutfall íslenska járn-
blendifélagsins. Frá hlutafjáraukn-
ingunni verði formlega gengið á
næsta aðalfundi félagsins í apríl
nk. Þar verði einnig kjörin ný
stjórn og fái Elkem fjóra fulltrúa í
stjórn, ríkið tvo og Sumitomo einn.
Iðnaðarráðherra sagði að vegna
stækkunarinnar yrði að gefa út
nýtt starfsleyfi fyrir verksmiðjuna
á Grundartanga og í þvi verði gerð-
ar ítrustu körfur um mengunar-
vamir og þeim fylgt eftir. Hann
sagði að með samningnum heföi
tekist að tryggja rekstrarstöðu
Jámblendifélagsins til frambúðar,
samkeppnisstaða þess heföi verið
tryggð, svo og atvinnuöryggi starfs-
fólksins. í þriðja lagi kæmi inn er-
lent áhættufé í atvinnurekstur á ís-
landi og í fjórða lagi væri skotið
styrkari stoðum undir rannsóknir
og þróun í iðnaði. -SÁ
Sturla Böðvarsson:
Miklir
möguleikar
opnast
Sturla Böövarsson, Sjálfstæð-
isflokki, fagnaði samningunum
við Elkem um stækkun járn-
blendiverksmiðjunnar og sagði
að með þeim hefðu opnast mögu-
leikar til áframhaldandi upp-
byggingar.
„Það er mitt mat að stækkun
um þriðja ofn og heimild til að
undirbúa stækkun um fjórða ofn
og yfírlýsing Landsvirkjunar um
samninga um fimmta ofninn
skapi þvílíka möguleika fyrir
okkur íslendinga á iðnaðarapp-
byggingu að það sé fyllilega for-
svaranlegt að gera þessa samn-
inga,“ sagði Sturla.
í sama streng tóku Stefán Guð-
mundsson og Magnús Stefánsson
Framsóknarflokki og Ágúst H.
Einarsson Þjóðvaka, að hluta.
Ágúst taldi þó að kostir samn-
ingsins yfirgnæföu gallana. -SÁ
Elkem:
III var þín
fyrsta ganga
- sagði Svavar Gestsson
„Mér finnst að um Elkem
megi segja, - ill var þín fyrsta
ganga,“ sagði Svavar Gestsson
alþingismaöur um Elkem-samn-
ing iðnaðarráðherra.
Svavar kvaðst ekki treysta sér
til að taka afstöðu til samnings
iðnaðarráðherra og Elkem þar
sem hann hefði engin gögn séð
um hann. „Við hljótum að horfa
á raforkusamninginn, mengun-
armálin, umhverfismálin, en
starfsleyfi liggur ekki fyrir. Við
hljótum að líta á skattastöðu fyr-
irtækisins, eignarhaldið sem
slíkt, á byggðaþróun og einnig á
sambýli jámblendiverksmiðj-
unnar við aðra stóriðju," sagði
Svavar um afstöðu þingflokks
Alþýðubandalagsins til hans.
Svavar sagði að reynslan af
samskiptum við Elkem væri
ekki góð og honum sýndist í
fljótu bragði að framlag íslands
tU járnblendiverksmiðjunnar,
sem í heild nemur um íjórum
milljöröum króna, sé í samn-
ingnum metið á 1,3 milljarða. ís-
land hafi því gefið eftir i öllu
dæminu 2,7 milljarða króna til
að ná þessum samningi sem nú
liggur fyrir. -SÁ
Stækkunin:
Bæði kostir
og gallar
- sögðu alþingismenn
„Þessum samningi fylgja vissu-
lega stórir kostir en einnig nokkr-
ir gallar, en ég tel að kostimir
vegi miklu þyngra á vogarskálun-
um,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son á Alþingi í gær og flestir þing-
manna sem til máls tóku um
samninginn tóku í svipaðan
streng með misjafnlega mikilli
áherslu á ókosti samningsins.
Sighvatur sagði að kostirnir
væru þeir að starfsemi verksmiðj-
unnar væri tryggð, að störfum
muni fjölga í stað þess að fækka
og að markaður fyrir afurðir
verksmiðjunncir tryggðir. Stærsti
gallinn væri hins vegar sá að
samningurinn væri við Elkem, en
reynsla af samskiptum við það
fyrirtæki væri sú að þar færa
mjög harðvígir aðilar, Elkem ætti
í deilum við starfsfólk í öllum
verksmiðjum sínum. Þá sagði Sig-
hvatur að stjórn Elkem hefði tek-
ið upp á þeim sið að rukka verk-
smiðjur sem á vegum þess starfa
um stjórnunargjöld. „Það er
þeirra aðferð til þess að flytja fjár-
muni úr rekstri verksmiðjanna og
til aðalstöðvanna í Ósló,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson.
Hjörleifur Guttormsson, Alþýðubandalagi:
150 þúsund tonn af
koltvíoxíði í viðbót
- brunum fram úr skuldbindingum
„Hvemig ætli þær ítrustu um-
hverfisvarnir verði ef litið er á það
sem til stendur í tengslum við ál-
bræðslu á Grundartanga," sagði
Hjörleifur Guttormsson Alþýðu-
bandalagi um Elkem-samninginn
og stækkun járnblendiverksmiðj-
unnar á Grandartanga á Alþingi í
gær.
Hjörleifur sagði að meö stækkun
járnblendiverksmiðjunnar væri
ætlunin að bæta í losun á koltví-
oxíði frá íslandi um 150 þúsund
tonn á ári og nýlegar skógræktar-
áætlanir næðu hvergi að upphefja
áhrif slíkrar viðbótarlosunar.
„Hvernig standa samningar hæst-
virts umhverfisráðherra í tengsl-
um við þetta stóra mál sem tengist
loftslagsbreytingum? ísland er að
bruna fram úr skuldbindingum
sínum. Með þessari ákvörðun er
verið að þrengja að öðru atvinnu-
lífi í framtiðinni þegar það verður,
ef til vill í lok þessa árs, lagalega
skuldbindandi fyrir íslendinga að
draga úr þessari losun. Hver á að
draga úr henni? Fiskveiöar? Ferða-
þjónusta," spuröi Hjörleifur Gutt-
ormsson. -SÁ
Finnur ingólfsson iönaöarráöherra kynnti þingheimi í gær nýjan samning
um stækkun Járnblendiverksmiöjunnar á Grundartanga. Svavar Gestsson
taldi reynsluna af samstarfinu viö Elkem ekki góöa. Umhverfisáhrif vegna
stækkunar verksmiðjunnar koma til kasta Guömundar Bjarnasonar um-
hverfisráöherra. DV-mynd E.ÓI.
Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista:
Er full tortryggni
„Ég er full tortryggni. Hverju
mun þessi samningur skila til fram-
tíðar, hvert er það verð sem fæst
fyrir orkuna og hver verður hagn-
aðurinn þegar upp verður staðið?"
spurði Kristín Halldórsdóttir í um-
ræðu um Elkem-samninginn.
Kristín minnti á þau orð við-
skiptaráðherra eftir að upp úr við-
ræðum við Elkem slitnaði að 55%
meirihluti ríkisins í Járnblendifé-
laginu væri einskis virði vegna
þess hve vel réttindi minnihlutans
væru tryggð. Það væri því spum-
ing nú hvort aðrir eigendur Jám-
blendiverksmiðjunnar heföu metið
hlutina á annan hátt eöa hvort svo
hefði verið búið um hnútana að
dregið hafi verið úr réttindum
minnihlutaeigenda í fyrirtækinu.
Kristín sagði að samningurinn
staðfesti enn eitt dæmið um rangar
áherslur ríkisstjómarinnar i at-
vinnumálum sem í raun vinna
gegn þeim möguleikum sem fyrir-
finnast í atvinnumálum, sérstak-
lega þeim sem byggja á hreinleika
og lítt menguðu umhverfi og hins
vegar á virkjun hugvits og þekk-
ingar. „Það er hart aö á sama tíma
og hæstvirtur iðnaðarráðherra, í
nafni ríkisstjómarinnar, vinnur af
alefli að aukningu og eflingu meng-
andi stóriðju i landinu, þá er upp-
lýst að atvinnukostir sem byggja á
hugviti, þekkingu og rannsóknum
eru afskiptir og vanræktir,“ sagði
Kristín Halldórsdóttir. SÁ
Járnblendiverksmiðjan:
Starfsmenn
óttast aukin
áhrif Elkem
- óttast að Elkem flytji fjármagn úr landi
DV, Akranesi: