Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 17. MARS 1997
Fréttir
Fiskistofa upplýsti kvótamisferli í Sandgerði og Garði:
Tugir tonna af þorski
skráðir sem ufsi
- tvö frystihús ásamt netabáti og togara aðilar að málunum
Fiskistofa upplýsti í síðustu viku,
samkvæmt heimildum DV, kvóta-
misferli í Garði og Sandgerði. Um er
að ræða misferli þar sem tugum
tonna af þorski var landað sem ufsa.
í Garði var áhöfn dragnótarbáts
staðin að verki á fostudag þar sem
landað var úr bát þeirra tæpum
tveimur tonnun af þorski sem falin
voru undir lagi af ufsa. Eftirlits-
menn Fiskistofu voru á bryggjunni
og stóðu menn að verki. Sérstaka at-
hygli vakti að ufsinn var ekki að-
eins ofan á fiskikörunum heldur
einnig í botni þeirra. í þessu tilviki
má útgerðin búast við að verða
svipt veiðileyfi í a.m.k. þrjár vikur.
í Sandgerði upplýsti Fiskistofa
um kvótamisferli þar sem tugum
tonna af þorski af togara frystihúss
á staðnum var skotið undan og
skráð sem ufsi. Grunur vaknaði um
misferlið þegar í ljós kom í skýrsl-
um að stór hluti vinnslunnar var
skráður sem ufsi en við eftir-
grennslan kom í ljós að stærstur
hluti þess hráefnis sem imnið var í
húsinu reyndist þorskur. Menn
Fiskistofu unnu að rannsókn máls-
ins í febrúar og mars. í þessu tilviki
má útgerðin búast við sviptingu
veiðileyfis í allt að 3 mánuði vegna
umfangs málsins.
Mál frystihúsanna beggja munu
fara fyrir dómstóla sem skera úr inn
refsingar. Málið í Sandgerði er með
stærstu málum sem Fiskistofa hefur
upplýst frá upphafi.
Hilmar Baldursson, lögfræðingur
Fiskistofu, vildi ekki tjá sig um
þessi mál þegar DV bar þau undir
hann. Hann sagðist hvorki vilja játa
né neita að umrædd mál hefðu kom-
ið upp. Mikil þorskveiði hefúr verið
við Reykjanes að undanfömu og
mörg skip kvótalítil. Af því tile&ii
hefur Fiskistofa hert eftirlit með
lönduðum afla. -rt/-ÆMK
Vík í Mýrdal:
Ferðamenn
kláruðu
DViVík:
„Það kom hingað hópur fólks
sem var á leiðinni austur á
Skeiðarársand og þau keyptu
alla nýmjólkina, léttmjólkina,
undanrennuna og rjómann",
sagði Áifheiður Gísladóttir, af-
greiðslukona í KÁ í Vik, við
fréttaritara DV. En fólkið sem
var úr Reykjavík hefur verið að
ná sér í mjólkurbirgöir vegna
verkfallsins í Mjólkursamsöl-
unni. Að sögn Álfheiðar koma
nýjar birgðir af mjólk austur í
dag, mánudag, en verslunin
væri lokuð á sunnudögum
þannig að heimafólk fyndi lítið
fyrir mjólkurskorti. -NH
Frumvarpsdrög ríkisstjómarinnar um lífeyrismál:
Hluti lífeyrisið-
gjalds fari á opinn
peningamarkað
- setti samningaviöræöur í uppnám
„Við komumst að því að á borði
ríkisstjórnarinnar lægju drög að
frumvarpi um lífeyrismál með al-
varlegum skerðingum fyrir al-
mennu lífeyrissjóðina. Til stóð að
takmarka peningainnstreymi inn í
kerfið eins og það er en beina pen-
ingunum yfir á þennan svokallaða
frjálsa fjármagnsmarkað. Þar átti
öllum að vera leyfilegt að keppa um
þessa peninga nema lífeyrissjóðun-
um. Vinnuveitendasambandið er
ekki með í þessu og þess vegna fór-
um við cameiginlega á fúnd forsæt-
isráðherra og fjármálaráðherra á
laugardaginn. Þar vorum við beöin
um að halda áfram viðræðum, svör
kæmu í dag, sunnudag. Við höfnuð-
um þessu og stöövuðum samninga-
viðræður. í morgun fengum við síð-
an svör. Þau eru ekki mjög ákveðin
en þó í rétta átt og því voru samn-
ingaviðræður teknar upp aftur. Það
verðm" hins vegar engum kjara-
samningum lokað nema þetta vil-
yrði veröi gulltryggt og að fyrir
liggi skýr svör frá ríkisstjóminni
hvað menn ætla að gera í lífeyris-
málunum,“ sagði Ari Skúlason,
framkvæmdasljóri Alþýðusam-
bands íslands, í samtali við DV í
gær.
Það sem hér um ræðir er að i
frumvarpinu átti að leyfa að ákveð-
inn hluti af þeirri 10 prósenta
greiðslu, sem hver og einn greiðir í
lífeyrissjóð, mætti fara á frjálsan
markað. Þetta hefði þýtt umtals-
verða skerðingu á greiðslum til líf-
eyrissjóðanna. Samkomulagið sem
gert var í gær milli ráðherra og að-
ila vinnumarkaðarins er á þá leið
að 10 prósenta greiðslan verði
óskert. Þar sem meira er greitt í líf-
eyrissjóð, eins og hjá opinberum
starfsmönnum, megi hluti lífeyris-
greiðslunnar fara á fijálsan mark-
að.
„Það er greinilegt að hér eru fjár-
magnsöflin farin að gægjast yfir
sjónarrönd í átt til lífeyrissjóðanna.
Menn vita að það verður aukið
framlag til lífeyrismála í framtíð-
inni og fjármagnsöflin ætla að ná í
þá viðbót. Það er greinilegt að á
meðan launþegahreyfingin er að
frétta þetta á skotspónum eru fjár-
magnsöflin fúllkomlega upplýst í
málinu.
Það sýnir meðal annars kaup
Landsbankans á helmingseign í
VÍS. Að sjálfsögðu munum við
krefjast fundar með ríkissfjóminni
á næstunni vegna þessa máls. Við
viljum fá að vita hvemig þessi
rammalöggjöf um lífeyrismálin
snertir lífeyrissjóðina yfirleitt,"
sagði Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, í gær.
Lífeyrisgreiðsla opinberra starfs-
manna er 15,5 prósent. Þess vegna
gæti 5,5 prósent af þeirri greiðslu
farið frá lífeyrissjóði þeirra yfir á
fijálsan markað.
Ögmundur segir að sér þyki það
óeðlilegt að ekki skuli haft náið
samstarf við launþegahreyfinguna í
landinu þegar svona breytingar
eiga sér stað. Það verði ekki þolað.
-S.dór
Vinnuslys í
Vinnuslys varð í fiskverkunarfyr-
irtæki á Óseyrarbraut í gærdag þeg-
ar starfsmaður lenti með hendina í
flökunarvél og missti framan af
tveimur fingrum.
Hafnarfirði
Maðurinn fór í aðgerð á slysa-
deild þar sem læknar björguðu
fingrunum. Maðurinn fékk að fara
heim í gærkvöld.
-RR
Þú getur svaraö þessari spurningu með því að hringja í síma 9041800. 39,90 kr. mínútan Ji 1: Nol |i j röda FOLKSINS 904 1600 i kjarasamningar mandi?
Eru nýji VR viði
Paö var ekki mikill gangur í samningaviöræöunum i gærdag. Samningamenn úr rööum beggja gáfu sér tíma til aö
horfa á handboltaleik í sjónvarpinu síðdegis. í gærkvöldi voru samningamenn verkalý&shreyfingarinnar aö vonast
eftir einhverju nýju útspili vinnuveitenda. DV-mynd Pjetur
Ritt Bjerregaard, umhverfisstjóri ESB, í Norræna húsinu í gær:
Kom ekki til að segja
ykkur fyrir verkum
- sagði Ritt m.a. í samtali við DV
Ritt Bjerregaard, umhverfismála-
sfjóri Evrópusambandsins og fyrr-
um formaður danska Sósíal-
demókrataflokksins, hélt fyrirlestur
um umhverfismál í alþjóðlegu sam-
hengi fyrir fullu húsi í Norræna
húsinu síðdegis í gær. Að því loknu
hélt hún á fund Guðmundar Bjama-
sonar umhverfisráðherra. í millitíð-
inni náði DV tali af henni í Nor-
ræna húsinu.
Hún sagðist fyrst og fremst hafa
komið hingað til að upplýsa íslend-
inga um stöðu umhverfismála í
heiminum og hvemig ríki heims
hafa framfylgt samþykktum frá Ríó-
ráðstefnunni 1991. Áhrif sem veður-
farsbreytingar kunna að hafa á
næstu árum em henni ofarlega í
huga sem og að tengja umhverfis-
mál meira inn í umræðu um ^lþjóð-
leg stjómmál. Þá flutti hún tíðindi
frá Norðursjávarráðstefnunni í
Bergen í Noregi þar sem umhverfis-
og sjávarútvegsráöherrar rikja sem
liggja að Norðursjó ræddu umhverf-
ismál og fiskveiðar þjóðanna.
„Það er mikið að gerast í um-
hverfismálum á þessu ári og marg-
ar ráðstefnur á döfinni sem koma til
með að segja mikið um þróun mála
í framtíðinni. Evrópusambandið
hefur sett sér ákveðin takmörk í því
að draga úr mengun í andrúmsloft-
Ritt Bjerregaard í Norræna húsinu í
gær. DV-mynd S
inu og þótt ísland sé ekki meðlimur
að sambandinu þá er mjög mikil-
vægt að þið fylgist vel með og hagið
málum í samræmi við stefiiu Evr-
ópusambandsins. Ég mun forvitnast
um stefnu íslenskra stjómvalda í
þessu efni þegar ég hitti umhverfis-
ráðherra ykkar. Ég kom ekki til að
segja íslendingum fyrir verkum og
segja hvar væri vel gert í umhverf-
ismálum og hvar illa,“ sagði Ritt við
DV og bætti við að henni væri það
kappsmál að umræða um umhverf-
ismál tengdist meira efnahagsmál-
um og afkomu þjóða.
Aðspurð um stefnu stjómvalda
hér á landi í stóriðjumálum og
áformum um ný álver sagði Ritt að
það væri alfarið okkar vandamál.
Evrópusambandið gæti ekki skipt
sér af slíku. Mestu skipti að öll
ákvæði og reglur okkar í umhverfis-
málum væm uppfyllt og fariö eftfr-
Að loknum fýrirlestri fékk Ritt
fyrirspumir úr sal og sagði áhuga
gesta hafa verið mestan á mengun í
andrúmslofti og leyfilegu magni
koltvísýrings. Til að lækka slík
mörk gætu þjóðir t.d. þurft aö seija
á sérstaka umhverfis- og orku-
skatta. Slikt væri ávallt deiluefni í
stjómmálum. -bjb
Stuttar fréttir
Davíð til Fsreyja
Davíð Oddsson og kona hans,
Ástríður Thorarensen, halda í dag
til Færeyja í opinbera heimsókn í
boði landsstjómarinnar. Ferðinni
lýkur síðdegis á miðvikudag.
Hale-Bob sést ví&a
Að undanfomu hefur sést vel
til halastjömunnar Hale-Bob á
norðvesturhimni að kvöldi til-
Rétt er að nota tækifærið og kíkja
eftir henni því hún mun ekki láta
sjá sig aftur fyrr en eftir 3A þús-
und ár. -bjb