Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Síða 7
MÁNUDAGUR 17. MARS 1997 7 DV Sandkorn Fréttir Kínvenknr pottréttwr jrk Fím<*hí IBBb kr./pakkinn Tpákkinn Umsjón: Gylfi Kristjánsson Nýtt leikhús á Akureyri: Ódýrara að byggja leikhús? Dy Akureyri: „Það er ein hugmynd að kaupa Nýja bió og breyta því í leikhús en það er aðeins hugmynd, enn sem komið er a.m.k. Það þarf að skoða hvað þetta kostar og hugsanlega er ódýrara að byggja nýtt hús fyrir Leikfélagið," seg- ir Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfúiltrúi á Akureyri. Húsnefnd Samkomuhússins, sem hýsir starfsemi Leikfélags Akureyrar, hefúr gert þá tillögu að Nýja bíó verði keypt og því breytt í leikhús og að aðliggjandi húsnæði við Ráðhústorg verði einnig keypt i þessu sambandi. Bæjarráð hefur samþykkt að hús- nefndin afli upplýsinga um heildar- kostnað við kaup hússins og endur- bætur sem gera þyrfti á þvi. Gísh Bragi Hjartarson segir að fleiri möguleikar hafi verið skoðaðir, m.a. að kaupa Sjallann og breyta honum í ieikhús en slíkt hafi ekki verið talið svara kostnaði auk þess sem húsnæð- ið myndi ekki henta Leikfélaginu. Hann segir ljóst að geysilegar endur- bætur þyrfti að gera á Nýja bíói eigi það að geta þjónað sem leikhús auk þess sem hugsanlega þyrfti að ráðast í viðbyggingar. „Bæjarráð hefúr ekki tekið neina af- stöðu til málsins aðra en að kostnaður við Nýja bíó verði kannaður en ég sé ekki neina ástæðu til að kaupa húsið ef sú könnun sýnir að um dýra fram- kvæmd verður að ræða, þá kæmi frem- ur til álita að mínu mati að kaupa lóð og byggja frá grunni," segir Gísh Bragi. Á næstu dögum verður hafist handa við endurbætur á Samkomuhúsinu þar sem Leikfélag Akureyrar hefur verið til húsa og er áætlað að þær framkvæmdir, sem snúast aðahega um endurbætur á kyndingu í húsinu, muni kosta um 20 mihjónir króna. Ljóst er að húsið getur ekki þjónað sem ffamtíðarhúsnæði Leikfélagsins, m.a. vegna þess að gera þyrfti á því endurbætur sem Húsffiðunamefhd heimhar ekki. „Það er á borðinu að Samkomuhús- ið er ekki framtíðarhúsnæði og því þarf að finna lausn á húsnæðismálum Leikfélagsins. Samkomuhúsið getur hins vegar nýst annarri starfsemi og ég sé t.d. að það gæti sem best nýst Tónlistarskólanum fyrir einhveija starfsemi," segir Gísh Bragi. -gk Misheppnuð framkvæmd Djöfuls... Þeir hafa ekki verið öfundsverðir sjómennimir okkar sem hafa verið að loðnuveiðum undanfamar vikur, þvi veöurfar hefur verið með af- brigðum slæmt. Segja má að óveiðandi hafi verið lengst af vegna brælu og ótíðar en menn hafa látið sig hafa þaö og barist um í óveðrunum sem dunið hafa yfir. Þeir eru hins vegar ekkert að skafa utan af því sjómennimir þeg- ar þeir tjá sig um þessar aðstæður eins og lýsir sér í eftirfarandi sem skipstjórnarmaður viðhafði um ástandið við sandkomsritara á dög- unum: „Heyrðu, það er þessi sami helvítis bræluskítur og druha eins og venjulega. Það er andskotans ómögulegt að vera við þetta helvítis helvíti en andskotinn hafi það, mað- ur lætur sig bara hafa það þótt það sé djöfull erfitt." Ný „orðabók" Útdráttur úr svokallaðri „nýrri orðabók“ hefur verið sendur á milli faxtækja landsmanna að undan- fómu og kennir þar ýmissa grasa. Sem dæmi um starfsheiti má nefna að nýtt orð yfír banka- stjóra er neit- andi, Qugmaður er flygill og fé- hirðir verður þjófur. Þá verð- ur spaghetti að pottormum, að afhenda þýðir að höggva hönd af einhverjum, bakpoki verður að herðakistli og nýtt orð yfir að vera feitur er kúlulegur. Auðvitað er að- eins farið „niður fyrir beltið“ og þá verður tíðarskarð að skauti konu og tryggur eiginmaður verður sam- kvæmt því heimskautafari. En þeir karlmenn sem era lauslátir fá heit- ið skautahlauparar. Eitthvert skýrasta dæmið um misheppnaða framkvæmd opinberra aðila á Akureyri í langan tíma er opnun göngugötunnar að hluta fyrir bílaumferð. Lát- ið var undan þrýstingi kaup- manna við göt- una sem töldu að verslun myndi aukast mjög ef umferð ökutækja yrði leyfð og sumir þeirra vora svo vissir um aö þetta myndi bjarga málunum að þeir krossuðu sig og signdu í velþóknun þegar fyrstu bílamir rannu eftir götunni. Nú hefur hins vegar komið á dag- inn aö framkvæmdin var gjörsam- lega misheppnuö, búin var til „renna" í götunni sem afinörkuö var með steinstólpum. Nær engin bilastæði vora útbúin og fram- kvæmdin því ekki til annars en að hægt væri að keyra þama í gegn, menga andrúmsloftið og valda gang- andi óþægindum. Rúsínan í pyláu- endanum verður svo e.t.v. aö leggja þarf í mikinn kostnað við viögerð á hellulagðri götunni þegar þessari misheppnuðu tilraun lýkur í vor. Hin hliðin Andstæða þessarar misheppnuðu framkvæmdar Akureyrarbæjar er svo sú vinna sem unnin hefur verið við strandlengjuna sunnan Strand- götu und- anfarin ár en gatan og um- hverfi hennar hafa tekið algjörum stakka- skiptum og svæðið er að verða skemmtilegt og fallegt göngusvæði. Þar hafa menn greini- lega hugsaö áður en þeir fram- kvæmdu og útkoman er glæsileg. Þótt um dýra framkvæmd sé að ræða sýnir útkoman hvemig veija á skattpeningum borgaranna en það verður seint sagt um vitleysisgang- inn i miðbænum, bæði varðandi opnun göngugötunnar tyrir bilaum- ferð sem og aðrar framkvæmdir í götunni og á Ráðhústorgi undanfar- in ár. ödúrt í MPPkafi víM • namnn, namm túkall VJtVI' betra sMpt lkr./kg frá .-irTnrifc i^íWTpakki n n kr./pakkinn Nýtt greiðslukortatímabil Tilboðin gilda mánudag og þriðjudag HAGKAUP Nýttogfer^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.