Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
Fréttir
Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja leysa Brunabótafélagið upp:
Málið verður greinilega
þverpólitiskt á Alþingi
- eigendurnir eiga að ráða þessu sjálfir, segir Halldór Ásgrímsson
Sjálfstæðisflokksþingmennirnir
Einar Oddur Kristjánsson, Einar
K. Guðfinnsson, Pétur H. Biöndal
og Vilhjálmur Egilsson, leggja
fram frumvarp á Alþingi þess efh-
is að breyta lögunum um Bruna-
bótafélag íslands frá 1994, með það
að markmiði að leysa félagið upp.
Einar Oddur bendir á að eftir að
ákveðið hafi verið að Landsbank-
inn kaupi hlut Brunabótafélagsins
í VÍS fyrir 3,4 milljarða króna sé
eðlilegt að leysa félagið upp. Til-
gangur þess, að vera tryggingafé-
lag, sé ekki lengur fyrir hendi.
Það er greinilegt á viðræðum
við alþingismenn að þetta verður
þverpólitískt mál. í öllum þing-
flokkum er að finna þingmen bæði
með og á móti frumvarpinu.
Svavar Gestsson
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf öðru hvoru fengið hugmynd-
ir um að leysa Brunabótafélagið
upp. Þetta er því bara gamall
kunningi eða draugur úr fortið-
inni. Alþingi tók þá ákvörðmi,
með lagasetningu árið 1994, að
hafa Brunabótafélagið á sínum
stað. Það má vera að í ljósi síðustu
sviptinga sé eðlilegt að endur-
skoða það. Mér þykja það ekki
mikil tíðindi að fjórmenningarnir
skuli leggja þetta frumvarp fram.
Ég er hins vegar alltaf opinn fyrir
nýjum rökum,“ sagði Svavar
Gestsson, formaður þingflokks Al-
þýðubandalagsins, í samtali við
DV um málið.
Ágúst Einarsson
„Það hlýtur að koma til álita
fyrir eigendur Brunabótafélagsins.
Rökstyðja mátti að halda þessu
formi á meðan félagið var aðili að
tryggingum, þótt með óbeinum
hætti væri, sem eignaraðili að
VÍS. Nú eru þær forsendur breytt-
ar. Þá hljóta menn að endurmeta
stöðuna. Mér þykir það eðlilegt að
nú fái eigendurnir hlut sinn fyrst
félagið er á leið út úr trygginga-
umhverfinu. Það væri að mörgu
leyti sérkennilegt ef haldið væri
áfram að fjárfesta í óskyldum
rekstri með fé einstaklinga sem
byggt er á gömlum lögum. Þess
vegna þykir mér það koma til álita
að leysa félagið upp,“ sagði Ágúst
Einarsson, alþingismaður.
Halldór Asgrímsson
„Ég hef alltaf verið andvígm-
því að leysa eitthvað upp með lög-
um. Ég held að þeir aðilar sem
standa að Bnmabótafélaginu þurfi
fyrst og fremst að segja álit sitt á
því og þar hafa sveitafélögin í
landinu mestra hagsmuna að
gæta. Þarna eru verulegir fiár-
munir sem geta nýst sveitarfélög-
unum vel í framtíðinni. Þess
vegna eiga þau að hafa rétt á þvi
aö koma sínum málum vel fyrir
eins og aðrir í samfelaginu án
sérstakrar leiðsagnar Alþingis,“
sagði Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra.
-S.dór
Fíkniefnabaráttan:
60 milljóna
styrkur til
lögreglunnar
og tollsins
Lögreglan fær 35 milljónir króna og
Ríkistollstjóri 25 milljónir til umráða
í baráttunni gegn fíkniefnum. Þessi
peningaframlög eruliður í átaki ríkis-
sfiórnarinnar í fikniefnabaráttunni.
„Þessi 60 milljóna styrkur kemur
úr þriggja prósenta álagningunni sem
lögð var á tóbakssöluna. Við fáum 35
milljónir fyrir lögregluna sem aðal-
lega mun fara í tækjakaup fýrir fíkni-
efnadeild lögreglunnar og einnig til
eflingar mannafla hennar. Það á eftir
að ganga frá því hvernig þetta mun
skiptast nákvæmlega,“ segir Símon
Sigvaldason, skrifstofusfióri í dóms-
málaráðuneytinu.
„Þessir fiármunir eru mjög kær-
komnir og mikilvægir fyrir starf lög-
reglunnar varðandi fikniefnamisferli
og tengd brot. Mér er ekki kunnugt
um hvernig dómsmálaráðuneytið ætl-
ar að skipta þessari fiárhæð en lög-
reglan í Reykjavík hefur lagt fram
mjög skynsamlegar tillögur í þessu
efni og vona ég að eftir þeim verði far-
ið ,“ segir Guðmundur Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík. -RR
14 ára þjófar
handteknir
Lögreglan í Reykjavík handtók í
gærkvöld tvo 14 ára innbrotsþjófa í
Breiðholtsskóla þar sem þeir voru að
stela tölvum.
Alls hafa verið framin 10 innbrot í
skólann frá áramótum og stolið þaöan
ýmsum búnaði. Annar piltanna, sem
handteknir voru, viðurkenndi aðild
að öllum 10 innbrotunum. Málið er í
frekari rannsókn. -RR
Bæjarstarfsmenn á Akureyri vinna nú aö því höröum höndum aö fullgera margra metra háan snjókari á Ráöhústorg-
inu, en oröiö er árvisst aö snjó sé ekið á torgiö fyrir páskana og byggöur snjókari þar. Karlinn er eins konar tákn
páskahátíðar í bænum sem ýmsir aöilar í feröaþjónustu í bænum standa aö og er margt í boöi fyrir ferðamenn sem
leggja leiö sína til Akureyrar næstu daga. DV-mynd gk
Loðnuveiðar
á lokaspretti
DV, Akureyri:
Nær öruggt má nú telja að
loðnuveiðamar séu á lokastigi,
en veiðin hefur dottið nokkuð
niður síðustu sólarhringa og
talsvert verið um „hrygnt síli“ í
aflanum sem gefist hefur eins og
einn sjómanna sem DV ræddi
við í gær orðaði það.
Samkvæmt upplýsingum Sam-
taka fiskvinnslustöðva nam
heildaraflinn á vertíðinni í gær-
morgun rúmlega 1100 þúsund
tonnum og voru þá óveidd tæp-
lega 170 þúsund tonn samkvæmt
útgefnum kvóta. Þó má reikna
með að heildaraflinn sé eitthvað
meiri, því vitað var um skip á
landleið með afla í gær og ein-
hver veiði var þá á miðunum i
Faxaflóa.
-gk
Stuttar fréttir
Sigrar skattmann
Sr. Valgeir Ástráðsson vann
mál gegn skattsfióra í héraðsdómi
Reykjavíkur. Samkvæmt dómnum
má hann draga kostnað við auka-
verk frá tekjum af þeim. Ef hæsta-
réttardómur fellur á sömu leið má
búast við miklum kröfum presta á
hendur ríkissjóði. Stöð 2 sagði frá.
íslendingar verstir
íslendingar ofnýta náttúruna
mest allra þjóða heims samkvæmt
niðurstöðum rannsókna sem
kynntar voru á ráðstefnu í Ríó ný-
lega. Um er að ræöa bæði landið
og miðin, að sögn RÚV.
Mesta orkuþjóðin
íslendingar verða mesta raf-
magnsframleiðsluþjóð heims mið-
að við höfðatölu þegar þeim virkj-
uparframkvæmdum sem verið er
að byrja á lýkur.
Iðja vill ekki hámark
Iðja, félag verksmiðjufólks átel-
ur hugmyndir ríkissfiómar um að
lögbinda hámarksgreiðslur í sam-
eignarlifeyrissjóði og krefst að
þær verði lagðar á hilluna.
Bankinn stöndugur
Finnur Ingólfsson segir að sögn
RÚV að Landsbankinn eigi fyll-
ilega fyrir því að kaupa hálft VÍS
án þess að eiginfiárhlutfall hans
fari undir lögbundin mörk.
Fjaran hreinsuð
Á mánudag verður fiaran þar
sem Víkartindur strandaði
hreinsuð. Tekið hefúr verið tilboði
bandaríska fyrirtækisins Titan í að
tæma og fjarlægja skipið. -SÁ
„Halló Akureyri" ekki nema
á forsendum sýslumannsins
DV, Akureyri:
Björn Jósef Arnviðarson, sýslu-
maður á Akureyri, sem er einnig
lögreglustjóri bæjarins, hefur
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Ji m Nel 2
/ rödd
FOLKSINS
904 1600
Verður Afturelding
íslandsmeistari í handbolta?
ákveðið að sefia fiögur skilyrði
fyrir því að leyfi verði veitt fyrir
útihátíð í bænum um verslunar-
mannahelgina í líkingu við „Halló
Akureyri" sem haldin hefur verið
undanfarin ár. Þetta tilkynnti
hann í ræðu sinni á ráðstefnu um
áfengis- og vímuefnanotkun ung-
linga sem hófst á Akureyri í gær.
„í fyrsta lagi verður litið á slíka
uppákomu sem útihátíð en það
hefur ekki verið gert hingað til.
Það að líta á samkomuna sem úti-
hátíð hefur í för með sér að mun
strangari kröfur eru gerðar til
mótshaldara varðandi skipulagn-
ingu, aðstöðu og margt fleira er að
samkomunni lýtur,“ sagði sýslu-
maður.
Hann sagði að mun fleiri lög-
reglumenn yróu kallaðir til starfa
og þeir sem að hátíöahöldunum
stæðu myndu greiða þann auka-
Frá ráöstefnunni á Akureyri.
DV-mynd gk
kostnað sem af því leiddi en hann
væri verulegur. Nefndi Björn
Jósef upphæðina 1,5 milljónir
króna sem hugsanlega tölu í þvi
sambandi.
Þá sagði sýslumaður það líklegt
að bannað yrði að unglingar yngri
en 16 ára kæmu á tjaldsvæði í
bænum nema í fylgd með forráða-
mönnum. í fiórða lagi yrði það
skilyrði væntanlega sett að í öllum
auglýsingum um hátíðina kæmu
greinilega fram allar takmarkanir
og skilmálar sem embætti hans
setti sem skilyrði fyrir því að leyfi
yrði veitt.
Magnús Már Þorvaldsson, sem
verið hefur framkvæmdastjóri
„Halló Akureyri" undanfarin þrjú
ár, sagði að þessi skilyrði yrðu
ekki til þess að „slá hátíðina af‘.
Hann spurði sýslumann hins veg-
ar þeirrar spurningar hvernig
brugðist yrði við ef unglingar
yngri en 16 ára kæmu einir síns
liðs til bæjarins, hvort þeir yrðu
sendir heim. Sýslumaður svaraði
því til að í þeim tilfellum kæmi vel
til álita að leita aðstoðar
bamavemdamefndar. -gk