Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997 Neytendur „Þetta eru þvtlíkar sjónhverfmgar að það tekur ekki nokkru tali, eintóm- ur blekkingaleikur," segir Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri Neyt- endasamtakanna, um Fríkort Hag- kaups, Flugleiða, Skeljungs, Húsa- smiðjunnar og íslandsbanka. Jóhann- es segir að Fríkortið hvetji til aukinn- ar neyslu og sé að þvi leyti neikvætt. Auk þess hafi venjulegt fólk ekki möguleika á að safha punktum fyrir utanlandsferð og þótt svo væri þyrfti viðkomandi að greiða gistingu og ann- an kostnað sjálft. Við nánari skoðun á Fríkortinu virðist ekki möguleiki fyrir hinn al- menna neytanda að ná i utanlandsferð á þeim tíma sem upp er gefinn í aug- lýsingum um Fríkortið. Eitt slíkt dæmi er birt hér á síðunni. Fríkortið - eyðsla 4ra manna fjölskyldu í 5 fyrirtækjum á ári - krónur Hagkaup/matur Hagkaup/sérvara Húsasmiöjan stgr. 0 Skeljungur/bensín ^ Skeljungur/sérvara Islandsbanki/debet/kredit Flugleiðir/pakkaferð, 1.000 3.000 520.000 50. ^ 114.000 'jr io.ooo ooo 100.000 f punktar 2.600 1.300 2.500 2.250 500 1.000 1.000 1.346.000 11.150 Sumarfrí í París árið 2017 - 4ra manna fjölskylda - 216.000 punktar Aukapunktar fyrii fyrirtækjum með jcrai Frípunktar fimm fyrirtækja: Sjónhverfingar - segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna A einu ári í Bónus? í því dæmi er gert ráð fyrir að fiöl- skylda eyði 10.000 krónum á viku (sem er há upphæð) í mat að meðaltali eða 520 þúsund krónum á ári. Bónus er að lágmarki 10% ódýrari verslun en Hag- kaup samkvæmt verðkönnunum. Ef aðeins er skipt við Bónus en ekki Hag- kaup lækkar matarreikningur upp á 520.000 um 52.000 krónur sem er rúm- lega eitt fargjald til útlanda, jafiivel fleiri þegar tUboð eru hjá ferðaskrif- stofunum (Heimsferðir auglýsa Parísarferð á 17.070 kr. á manninn miðað við hjón með 2 höm) Landsbyggðin Frikortið hefúr verið sent til 180.000 manns til sjávar og sveita. Hagkaup hefur verslanir í Reykjavík, Garðabæ, Njarðvik og á Akureyri. Húsasmiðjan er með verslanir í Reykjavík. Fyrir venjulegt fólk eru það matarinnkaup- in sem skipta máli í heildarinnkaup- um en fiölskyldan á ísafirði á enga möguleika á að gera sín reglulegu inn- kaup í Hagkaup. Sama fiölskylda fer 1-2 á ári tft og frá Reykjavík með Flug- leiðum. En því miður fyrir lands- byggðarfiölskylduna, engir punktar fást í innanlandsflugi, aðeins í milli- landaflugi. Sérvaran gefur meira Hagkaup er fyrirtæki sem selur matvöru og sérvöru. í punktasöfhun í Hagkaup fást fimmfalt fleiri punktar fyrir hvem þúsundkall sem eytt er í sérvönma. Jafnvel þótt fiölskyldan eyddi 100 þúsund krónum í fatnað og snyrtivörur á ári í Hagkaup fengi hún aðeins 2.500 punkta. Staðgreidd milljón í Húsasmiðjunni fást 50 punktar fyrir hvem þúsundkall sem er stað- greiddur en 20 punktar fyrir þúsund- kallinn í nýjum reiknisviðskiptum. Viðskiptavinur sem kæmi inn og stað- greiddi eldhúsinnréttingu og pafket fyrir eina milljón króna næði ekki einu sinni ferð til Parísar í sumarfrí- inu fyrir einn hvað þá aðra í fiölskyld- unni. Hann fengi 50.000 punkta en þarf 54.000 punkta til Parísar, Frankfúrt eða Glasgow að sumarlagi. Ástæðan fyrir því að sumarið er notað sem við- miðun er að flestir fara í frí á þeim árstíma. Skilmálarnir í bæklingi með kortinu er setning- ar eins og „flogið frítt“ „þegar þér hentar" og „punktamir þinir hrann- ast upp“. Það er ekki að öllu leyti rétt að viðkomandi geti flogið þegar hon- um hentar því í smáa letrinu segir: „Engar ferðir í miHilandaflugi em mögulegar frá 15. des.-5. jan.“ Hafa verður í huga að punktamir fymast á 4 árum. Og í grein 5.5. (al- mennir skilmálar) segir að útgefandi kortsins hafi rétt til að leggja það nið- ur eða breyta skilmálunum án fyrir- vara og „án þess að tilkynna korihöf- um það sérstaklega." Samkvæmt því gæti neytandi samviskusamlega streð- að i tvö ár í von um ferð fyrir fiögurra manna fiölskyldu þegar útgefendur kortsins tæku ákvörðun um að hætta leiknum. í þvi tilviki ætti neytandinn engar kröfur á bótum. Miðað við að 4ra manna fiölskylda eyddi 1.346.000 krómnn í þessum fimm fyrirtækjum nær hún 12.842 punktum á ári (sjá dæmi). Saman kæmist hún til Parísar árið 2017 - að þvi gefnu að engin fymingarregla væri í gangi - en í ferðina notar hún 216.000 punkta. Miðað við að fiölskyldan eyddi þriðj- ungi af allri sinni innkomu í þessum fyrirtækjum þarf hún að hafa heildar- tekjru upp á liðlega 4 milljónir á ári fyrir skatta eða 336.000 krónur á mán- uði. Þessa dagana era Dagsbrúnar- menn sem kunnugt er að berjast fyrir 70 þúsund króna lágmarkslaunum á mánuði. -jáhj Framsetningin er blekking frá upphafi til enda - segir formaöur Neytendafélags Akureyrar og nágrennis DV, Akureyri: „Öll ffamsetning á þessu er blekk- ing ffá upphafi til enda. Sem dæmi má nefna að það tekur um það bil mannsævi fyrir vísitölufiölskylduna að vinna sér inn Kaupmannahafnar- ferð sé kortið eingöngu notað til mat- arinnkaupa í Hagkaup. Þá hefúr einnig komið i ljós að fýrirtækin geta tekið kortin úr gildi sýnist þeim svo, og það án þess að bæta fólki þá punktastöðu sem það hefði unnið sér inn,“ segir Vilhjálmur Ingi Ámason, formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis um FRÍ-kort Hagkaups, Flugleiða, Húsasmiðjunnar, Shell og íslandsbanka sem send vora inn á hvert heimili í landinu fyrir nokkrum dögum. Samkvæmt könnun Hagstofu ís- lands frá árinu 1990 á matvörakaup- um vísitölufiölskyldunnar námu þau kaup rúmlega 503 þúsund krónum á ári. Vilhjálmur Ingi hefur hins vegar fúndið út aðra upphæð í dag, ekki síst vegna þess að stærð vísitölufiölskyld- urmar hefur minnkað úr 3,6 árið 1990 í 2,8 og samkvæmt útreikningum hans nema matarkaup vísitölufiölskyldunn- ar í dag 391.502 krónum á ári sem gæfi 1.958 punkta út á Fríkort. Áfram hefúr Vilhjálmur Ingi reiknað og fær út að það taki vísitölufiölskylduna 95,8 ár að safna sér punktum í Hagkaup fyrir Kaupmannahafnarferðinni. Hann bendir hins vegar á að ef vísi- tölufiölskyldan gerði öll sín matarinn- kaup í Bónus eða KEA-Nettó þar sem matvaran sé um 20% ódýrari en í Hag- kaup og færi síðan í Kaupmannahafn- arferð eftir 95,8 ár hefði fiölskyldan sparað sér 7,5 milljónir króna sem ým- ist væri hægt að nota sem gjaldeyri eða til kaupa á nýrri íbúð. „Mér firmst einna alvarlegast að Flugleiðir sem er einokunarfyrirtæki noti einokunaraðstöðu sína til að hygla fiórum öðrum fyrirtækjum á þennan hátt, það gengur ekki,“ segir Vilhjálmur Ingi. -gk * ^ I P „íslendingar eiga sterkasta jjclk í heimi" - enda t>örum við létt með að byggja óterk og vönduð mannvirki íilenók tramleiðila itemt hullkomlesa 5 "690581"111100" samanburð við erlenda. Framteiðendur vita að íslemkir neytendur vilja eingöfigu vandaðar og sterkar vörur. Berðu alltaþ saman verð og gcedi. ísleiukur iðnaður á heitnómœlikvarða SAMTÖK IÐNAÐARINS i I I I ( i ( I I ( < I ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( <1 ( ( (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.