Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 22
34
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
Afmæli
Finnur Torfi Stefánsson
Finnur Torfi Stefánsson tónskáld,
Tungufelli, Lundareykjadalshreppi,
varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Finnur fæddist á Akranesi. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1967,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1972,
öðlaðist hdl.-réttindi 1974, lauk prófi
í stjómmálafræði frá háskólanum í
Manchester 1974, BA-prófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1986,
MA-prófi í tónfræði við Kalifomíu-
háskóla í Los Angeles 1989 og stimd-
aði framhaldsnám í tónsmíðum í
San Diego 1990. Þá lauk hann at-
vinnuflugmannsprófi 1980.
Finnur var popptónlistarmaður á
sínum yngri áram og lék þá m.a. á
gítar í hljómsveitinni Óðmönnum.
Hann stundaði lögfræðistörf á
eigin vegum 1974-78, var alþm. fyr-
ir Alþýðuflokkinn 1978-79 og
varaþm. 1980-81, umboðsfulltrúi
hjá dómsmálaráðuneytinu 1980-82,
lögfræðingur Félags íslenskra
hljómlistarmanna 1982-85, var
kennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík um skeið frá 1990. Þá
hefur hann verið tónlistargagnrýn-
andi við DV með hléum á síðustu
árum.
Finnur Torfi hefur verið tónskáld
frá 1990 en hann hefúr samið hljóm-
sveitarverk, óperur,
sönglög og kammertón-
list.
Fjölskylda
Sambýliskona Finns
Torfa er Sigfríður Björns-
dóttir, f. 17.4.1962, tónlist-
arkennari og tónlistar-
gagnrýnandi. Hún er
dóttir Bjöms Sigurðsson-
ar, kaupmanns í Ham-
borg, og Herdísar Egils-
dóttur, kennara og rithöf-
undar.
Dóttir Finns Torfa og Sigfríðar er
Herdís Steinunn, f. 1992.
Eiginkona Finns Torfa var Edda
Þórarinsdóttir, f. 11.11. 1945, leik-
kona. Þau skildu.
Sonur Finns Torfa og Eddu var
Fróði, f. 12.6. 1975, d. 1994, nemi og
tónlistarmaður.
Böm Finns Torfa frá því áður era
Gróa Margrét Finnsdóttir, f. 7.1.
1966, húsmóðir í Hafnarfirði en
maður hennar er Sveinn Ólafsson
og eiga þau þrjú börn; Jens Finns-
son, f. 2.7.1970, tónlistarskólanemi í
Reykjavík.
Systkini Finns Torfa, samfeðra:
Snjólaug Guðrún, f. 25.5. 1951, upp-
eldisfræðingur; Gunnlaugur Stefán,
f. 17.5.1952, alþm. og prestur í Heyd-
ölum; Guðmundur Ámi,
f. 31.10.1955, alþm. í Hafn-
arfirði; Ásgeir Gunnar, f.
11.11. 1969, flugmaður.
Hálfsystkini Finns Torfa,
sammæðra, eru Ingveldur
Guðrún Ólafsdóttir, f.
26.11. 1959, söngkona í
Hafnarfirði; Björn Jó-
hann Ólafsson, f. 5.1.1963,
búsettur í Kópavogi; Sig-
urður Ólafsson, f. 24.2.
1968, verslunarmaður í
Hafnarfirði.
Foreldrar Finns Torfa era
Stefán Sigurður Gunnlaugsson, f.
16.12.1925, fyrrv. bæjarstjóri í Hafn-
arfirði, og Gróa Margrét Kristín
Finnsdóttir, f. 24.9. 1924, húsmóðir.
Ætt
Stefán er sonur Gunnlaugs, kaup-
manns í Hafnarfirði Stefánssonar,
trésmiðs þar Sigurðssonar, bróður
Sigurðar, afa Salóme Þorkelsdóttur,
fyrrv. alþingisforseta. Móöir Stefáns
var Þorbjörg Jóelsdóttir, b. í Saur-
bæ, bróður Sigurlaugar, langömmu
Kristínar, ömmu Friðriks Sophus-
sonar fjármálaráðherra. Móðir
Gunnlaugs var Sólveig Gunnlaugs-
dóttir.
Móðir Stefáns var Snjólaug Áma-
dóttir, prófasts i Görðum Bjömsson-
ar, bróður Sigurðar brunamála-
stjóra, fóður Sigurjóns, fyrrv. lög-
reglustjóra í Reykjavík og afa Magn-
úsar Magnússonar hjá BBC. Móðir
Snjólaugar var Líney, systir Jó-
hanns skálds og Jóhannesar Bald-
vins, afa Benedikts Árnasonar leik-
stjóra. Líney var dóttir Sigurjóns, b.
á Laxamýri Jóhannessonar, ættföð-
ur Laxamýrarættarinnar Kristjáns-
sonar.
Gróa er dóttir Finns Torfa, skip-
stjóra og útgerðarmanns á Flateyri
Guðmundssonar, b. á Görðum í Ön-
undarfirði Jónssonar og Gróu, syst-
ur Finns í Hvilft í Önundarfirði,
föður Hjálmars, fyrrv. forstjóra
Áburðarverksmiðjunnar, Ragnheið-
ar, fyrrv. skólastjóra, og Gunnlaugs,
fyrrv. alþm. í Hvilft. Gróa var dóttir
Finns, b. í Hviift Magnússonar, b. í
Hvilft, bróður Ásgeirs, alþm. á Þing-
eyram, foður Jóns, b. og skálds á
Þingeyram. Annar bróðir Magnúsar
var Torfi, alþm. á Kleifúm. Systir
Magnúsar var Ragnheiður, móðir
Guðlaugar, ömmu Torfa, ríkissátta-
semjara og Snorra skálds Hjartar-
sonar.
Móðir Gróu var Steinunn, dóttir
Jóhannesar, b. á Hesti í Önundar-
firði, bróður skipstjóranna Bjama
Hermanns og Sæmundar Kristjáns-
sona. Móðir Steinunnar var Jónína
Sveinsdóttir, frá Ósi í Bolungarvík.
Finnur Torfi Stefáns-
son.
Sævar Logi Harðarson
Sævar Logi Harðarson rafvirki,
Borgarsandi 2, Hellu, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Sævar fæddist í Reykjavik og ólst
þar upp. Hann stundaði nám við
Iðnskólann í Reykjavík, læröi raf-
virkjun og lauk sveinsprófi í þeirri
grein 1980 en meistari hans var Þór-
hallur Ægir Þorgilsson.
Sævar Logi starfaði
hjá Hagvirki 1983 við
rafvirkjastörf á Sultar-
tanga og starfar nú á raf-
magnsverkstæðinu
Ljósá sf.
Fjölskylda
Eiginkona Sævars
Sævar Logi Haröarson.
Loga er Fjóla Lárusdótt-
ir, f. 30.9. 1957, starfs-
kona við dvalarheimilið
Lund. Hún er dóttir
Lárusar Jónassonar
verkstjóra og Auðar Ein-
arsdóttur, starfskonu á
dvalarheimilinu Lundi,
búsett að Laufskálum á
Hellu.
Dætur Sævars Loga og
Fjólu era Auður Erla, f. 27.6.1974 og
Lilja, f. 18.3. 1980.
Foreldrar Sævars Loga era Hörð-
ur Valdimarsson, f. 9.2.1925, aðstoð-
arforstöðumaður á Akurhóli i
Rangárvallahreppi, og Jórann Erla
Bjamadóttir, f. 25.6. 1930, aðstoðar-
matráðskona.
Sævar Logi er að heiman á af-
mælisdaginn.
Fréttir
Alþjóðlegt átak Amnesty International vegna flóttafólks:
Einkamarkmið íslandsdeild-
ar að bæta löggjöfina
- ástandið aldrei verra en nú, segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
„Við eram að vekja athygli á rétt-
arstöðu flóttamanna og hvemig á
þeim er brotið um allan heim.
Sömuleiðis minnum við á flótta-
mannasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna frá 1951 sem bannar þjóðum
að senda flóttafólk aftur til síns
heima en æ fleiri ríkissfjómir
brjóta. Við viljum loks vekja athygli
á því af hvetju fólk þarf að flýja,“
segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir,
framkvæmdastjóri íslandsdeildar
Amnesty International, en samtökin
hrintu í gær af stað alþjóðlegu átaki
undir yfirskriftinni Mannréttindi
era án landamæra.
Jóhanna segir 20 milljónir manna
þurfa að flýja í heiminum og að
ástandið hafi aldrei verið verra en
nú. Fjölmennasti hópur flóttafólks
séu konur og böm. í Evrópu fjalli
Amnesty mest um mál einstaklinga
en víða, t.d. í Afríku, snúist málið um
hópa fólks, oft í hundruð þúsunda vís.
Frá blaöamannafundi fslandsdeildar Amnesty International. DV-mynd E.ÓI.
„íslandsdeildin hefur sett sér
einkamarkmið í þessari herferð og
það er að settur verði sérstakur
kafli í útlendingalöggjöfina um rétt-
arstöðu flóttamanna. Nú er verið að
vinna í endurskoðun á löggjöfinni
en sú vinna hefur gengið allt of
hægt. Vinnan hefur staðið yfir í um
þrjú ár og enn liggur ekkert frum-
varp fyrir Alþingi."
Jóhanna segir að brýnast sé að
sefja inn í löggjöftna skilgreiningu
á hugtakinu flóttamaður. Nauðsyn-
legt sé að tryggja að þegar flótta-
fólk komi til landsins fái það rétt-
láta meðferö og skrifleg svör ef um
neitun sé að ræða. Hún segir að
áftýjunarréttur verði að vera fyrir
hendi og að upplýsa þurfi fólk um
rétt þess þegar það kemin- til lands-
ins.
„Við höfum ekki getað fengið
upplýsingar um hversu mörgum
hefur verið neitað um landvist og
viljum að íslendingar taki sjálfir að
sér að rannsaka hvert mál og hætti
aö nota sk. fyrstulandsreglu þar
sem fólki er vísað til þess lands sem
það kom frá. Við þurfúm að kanna
hvert einstakt mál og skera úr um
það hvort um flóttamann er að ræða
eða ekki,“ segir Jóhanna.
Karl E. Loftsson
- leiðrétting
í afinælisgrein um Karl E.
Loftsson bankaútibússtjóra sex-
tugan, þann 2.3. sl„ kom fram
meinleg villa í upptalningu á
systkinum Karls. Þar var sagt um
Sigvalda, bróður Karls, að hann
og kona hans ættu fimm börn auk
þess sem hann ætti son, Ingi-
mund Tryggva. Þetta er ekki rétt.
Sigvaldi fæddist 17.10. 1930, er
búsettur á Akranesi og kvæntur
Sigrúnu Ólafsdóttur en þau eiga
fimm böm. Auk þess á hann eitt
bam frá því áður. Ingimundur
Tryggvi, f. 5.10. 1932, d. 4.2. 1937,
var hins vegar bróðir Karls og
Sigvalda.
Viðkomandi era beðnir velvirð-
ingar á þessum leiðu mistökum.
DV
Til hamingju með afmælið 21. mars
95 ára
Guðrún Diðriksdóttir, Dvalarheimilinu Höfða, Akra- nesi.
85 ára
Aðalgeir Halldórsson, Dvalarheimilinu Höfða, Akra- nesi. Dagrún Friðfinnsdóttir, Suðurgötu 15, Keflavík.
80 ára
Guðný Benediktsdóttir, Garði, Aðaldælahreppi. Guðni Ingibjartsson, Hlíf I, Torfnesi, ísafirði. Jóna Sigurgeirsdóttir, Efstasundi 29, Reykjavík. Jónheiður Kristin Lárusdótt- ir, Hátúni 10 A, Reykjavík.
75 ára
Margrét Þorsteinsdóttir, Borgarholtsbraut 72, Kópavogi.
70 ára
Áslaug Alexandersdóttir, Ljósheimum 22, Reykjavík.
60 ára
Eggert Guðmundsson, Melabraut 5, Blönduósi. Bjöm B. Steffensen, Hæðargarði 7 C, Reykjavík.
50 ára
Jóhanna S. Guðmundsdóttir, Sólvallagötu 42 D, Keflavik. Gyða Björg Elíasdóttir, Dvergabakka 22, Reykjavík. Sigurjón Kristófersson, Dyngjubúð 3, Hellissandi. Valgeir Matthíasson, Timguseli 10, Reykjavík. Hildur Eiríksdóttir, Ásvallagötu 59, Reykjavík. Valgerður Albertsdóttir, Hryggjarseli 4, Reykjavík. Hjördís Gísladóttir, Kjarrmóum 16, Garðabæ.
40 ára
Árni Guðmundsson, Norðurbraut 23 B, Hafnarfirði. Kolbrún Þorgeirsdóttir, Bröttuhlíð 7, Hveragerði. Ólöf Ágústína Stefánsdóttir, Kögurseli 20, Reykjavík. Kolbrún Ögmundsdóttir, Háholti 14, Haftiarfirði. Sigurlaug Jónsdóttir, Borgar- holti 2, Ólafsvík. Björgvin Karlsson, Byggðarholti 13, Mosfellsbæ. Reynir Ragnarsson, Traðarlandi 17, Bolungarvík. Margrét Þorkelsdóttir, Boðagranda 5, Reykjavík. Hildur Guðlaug Albertsdóttir, Svöluhrauni 11, Hafnarfirði. Katrín Hermannsdóttir, Stamýri 4, Reykjavík. Margrét Sverrisdóttir, Hrosshaga I, Biskupstungna- hreppi.
d\t mllll him/n'
'S (
Smáauglýsingar
rF^
550 5000