Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasötuverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sundruð hreyfing Samningaviðræðumar á almenna vinnumarkaðinum hafa afhjúpað alvarlega veikleika í innviðum verkalýðs- hreyfmgarinnar sem skortir nú jafnt samstöðu sem sterka forystu. Þau fáheyrðu tíðindi að fjölmenn samn- inganefnd Dagsbrúnarmanna skyldi fella samkomulag, sem formaðurinn hafði haft forystu um og mælt mjög fyrir opinberlega, eru táknrænt dæmi um ástandið. Mörg undanfarin ár hafa stéttarfélögin innan Alþýðu- sambands íslands haft svokallað samflot við gerð kjara- samninga. Þótt það hafi auðvitað haft sína galla er þó ljóst að viðræður fjölmennra, sameinaðra aðila vinnu- markaðarins hvers við annan og sameiginlega við ríkis- valdið eru vænlegri til skynsamlegrar niðurstöðu en þegar tugir eða jafnvel hundruð stéttarfélaga eru að semja hvert í sínu homi. Þegar saman fer að samningaviðræðurnar em á slík- um breiðum grundvelli og að verkalýðshreyfmgin hefur sterka forystu em mestar líkur á að verulegur árangur náist án mikiíla átaka á vinnumarkaðinum. Mörg dæmi eru um slíkt frá fyrri árum, þegar Alþýðusambandið laut forystu manna á borð við Hannibal Valdimarsson. Nú skortir verkalýðshreyfmguna bæði samstöðu og forystu. Þótt Alþýðusambandið hafi lagt upp í yfirstand- andi samningaviðræður með sameiginleg markmið brást samstaðan strax í byrjun þessa mánaðar. Enda er svo komið að enginn spyr lengur hvað Alþýðusamband- ið hyggist gera til að koma samningunum í höfn; málin eru alfarið í höndum einstakra stéttarfélaga. Halldór Björnsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík, staðfestir í DV í gær áhyggjur sínar af veikri stöðu Alþýðusambandsins með þessum orðum: „Það verður að segjast eins og er að forystan mörg undanfarin ár hefúr ekki verið af þeim styrk sem hún var hér á árum áður. Þá voru menn sammála um að í forsetaembættinu væri sá sem þar ætti að vera. Það hefur ekki verið með síðustu þrjá forseta Alþýðusam- bandsins,“ segir hann og vísar þar auðsýnilega til Ás- mundar Stefánssonar, Benedikts Davíðssonar og núver- andi forseta, Grétars Þorsteinssonar. Síðustu árin var talað digurbarkalega um kraftmikið samstarf almennu verkamannafélaganna við Faxaflóa - það er Dagsbrúnar í Reykjavík, Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, en guðfaðir þeirrar fylkingar var fyrrverandi formaður Dagsbrúnar, Guðmundur J. Guðmundsson. Samstaða þessa hóps, Flóabandalagsins, virðist líka vera meira í orði en á borði þessa dagana. Á meðan Dagsbrún heldur fast við verkfallsboðun frá og með næstkomandi mánudegi hafa hin félögin tvö, í Hafnarfirði og á Suðumesjum, frestað sínum verkföllum fram yfir páska. Það er skynsamleg ákvörðun, en sú staðreynd að Dagsbrún fýlgir ekki með undirstrikar enn frekar sundrungu hreyfingarinnar. Ljóst er að meginlínumar hafa þegar verið lagðar í samningamálunum á hinum almenna vinnumarkaði. Þess vegna virðist ekkert tileöii til að efna til mikilla verkfalla til að ljúka máli sem er nánast í höfn. Ríkisvaldið hefur þegar lagt sín spil á borðið. Þar er fyrst og fremst um að ræða nokkra lagfæringu á afar ranglátu tekjuskattskerfi. Það er skref í rétta átt - en heföi mátt vera mun stærra. Tekjuskatturinn verður eft- ir sem áður þung byrði á þeim tiltölulega litla hópi landsmanna sem stendur undir öllum þunga hans. Þar þarf nauðsynlega að taka ný og stærri skref á komandi árum. Elías Snæland Jónsson „Þaö hefur sjaldan veriö eins mikilvægt og nú aö verkalýöshreyfingin komi fram sem órofa heild gegn vinnu- veitendum og ríkisvaldi", segir Margrét í lok greinar sinnar. Kröpp samstöðubeygja Staðan í kjaraviðræðum tók nýja stefnu þegar stóra samninga- nefnd Dagsbrúnar felldi drög að samningi á þriðjudagskvöld. Fyrir fundinn leit út fyrir að samningar væru almennt að takast en eftir að drögin voru felld, héldu aðrir við samningaborðið að sér spilunum. Þar sem Dagsbrúnarfélagar standa einir í aðgerðum þessa dag- ana hvílir á þeim mikil ábyrgð. Það er á vissan hátt þeirra að standa fast á þeim meginkröfum sem settar hafa verið fram í yfir- standandi viðræðum og annarra að standa að baki þeim. Landssambönd innan Alþýðu- sambandsins (ASÍ) hafa sett fram þá eðlilegu kröfu aö töluverðar leiðréttingar eigi sér stað á lægstu laununum. Stóra samninganefnd ASÍ hefur nú sýnt að henni er al- vara með kröfunni um 70 þúsund króna lágmarkslaun strax við und- irritun samninga. Nú þegar hafa nokkur verka- lýðsfélög gert samning sem hljóð- ar upp á minni kaupmáttaraukn- ingu en forsætisráðherra hefur lýst yfir að óhætt sé að semja um á næstu þremur árum. Ráðherr- ann hefur lýst því yfir að mögulegt sé að auka kaup- mátt um 15 til 20% á þessu tímabili, en sum félög hafa samið um 14% launahækkun þremur árum. Ósvífni ríkis- stjórnarinnar Ríkisstjómir Daviðs Oddssonar hafa sýnt að það er ekki hægt að treysta þeim til að breyta ekki for- sendum á bak við kjarasamninga og almennu umhverfi launafólks. Það er dæmigert fyrir ósvífni rík- isstjómarinnar að vera með frum- varp um gerbreytingu á lögum um lífeyrissjóði á sama tíma og kjara- viðræður standa yfir. Enn og aftur beitir ríkisstjómin þeim aðferðum að sækja að verkalýðshreyfing- unni úr mörgum áttum á sama tíma til að draga úr henni mátt- ínn. Útspil rikisstjórn- arinnar i skatta- og bótamálum er líka meingallað. Þær til- lögur virðast ekki settar fram til að ná fram þeim markmið- um að þeir sem mest þurfa á þeim að halda njóti þeirra. Þannig þýðir breyt- ing ríkisstjórnarinn- ar á útreikningi vaxtabóta að bæt- urnar lækka úr 72 þúsund krónum hjá einstæðri móður í 8 þúsund krónur. Þar er miðað við 150 þús- und króna mánaðar- laun og að hún búi í félagslegu húsnæði upp á 6,4 milljónir í fasteignamati. Breytingamar á bamabótakerf- inu koma sér einstaklega illa fyrir meðcdtekjufólk. Fólkið sem jaðar- skattanefnd var ætlað að finna lausnir fyrir en hefur gefist upp á þvi verkefni. Þá koma skattatillög- ur ríkisstjórnarinnar þannig út aö hátekjufólk fær tugþúsunda skattalækkun á meðan þeir lægst- launuðu lenda margir hverjir í skattheimtu í fyrsta sinn eða fá tvö til fjögur þúsund krónur í skattalækkun. Mikilvægi samstöðunnar Á þriðjudagskvöld leit út fyrir að ríkisstjóm og vinnuveitendum hefði tekist að ná fram því mark- miði að rjúfa samstöðu launafólks. Það var meginmarkmiðið með lög- um um stéttarfélög og vinnudeilur sem sam- þykkt vora á Alþingi síðastliðinn vetur. Stóra samninganefnd Dagsbrúnar snéri þeirri þróun við á þriðjudagskvöld og nú ríður á að einstök fé- lög innan ASÍ sem eiga eftir að semja standi saman. Reynslan sýnir að rík- isstjómum Davíðs Oddssonar er ekki treystandi, hvað þá fyrir samningum sem gilda eiga eitt ár fram á næsta kjörtímabil. Það er því eðlileg krafa að forsendur samninga verði tryggðar með e.k. rauðum strikum eða uppsagnará- kvæðum. Það þarf líka að liggja fyrir samkomulag um lífeyrismál- in, vaxtabætumar og útfærslu bamabóta áður en skrifað er und- ir samninga. Að öðrum kosti er hægt að haga þeim málum þannig að þeir sem lægst hafa launin í landinu missi allar umsamdar launahækkanir á samningstímanum. Ef vinnuveit- endur trúa því að ríkisstjórnin mimi með aðgerðum sínum, það sem eftir er kjörtímabils, viðhalda stöðugleika og hagvexti, ætti að vera auðvelt fyrir þá að sam- þykkja einhveijar tryggingar fyrir forsendum samninga. Og ef ríkis- stjómin trúir eigin loforðum og þeim stöðugleika sem hún hreykir sér af, þá ætti það að reynast henni auðvelt að skrifa undir lof- orð um að breyta ekki því lands- lagi sem kjarasamningar koma til með að byggja á. Ég skora á þau verkalýðsfélög sem eiga eftir að semja að standa saman í þeim aðgerðum sem em ffamundan. Það hefur sjaldan ver- ið eins mikilvægt og nú að verka- lýðshreyfingin komi fram sem órofa heild gegn vinnuveitendum og ríkisvaldi. Margrét Frímannsdóttir „Ef vinnuveitendur trúa því að rík• isstjórnin muni með aðgerðum sínum, það sem eftir er kjörtíma- bils, viðhalda stöðugleika og hag- vexti, ætti að vera auðvelt fyrir þá að samþykkja tryggingar fyrir for- sendum samninga.“ Kjallarinn Margrét Frímannsdóttir formaöur Alþýðubanda- lagsins Skoðanir annarra Ríkisfjölmiðlarnir „Skjaldborgin um ríkismiðlana grípur aftur og aft- ur til staðhæfinga um að frjálsu miðlunum sé ekki treystandi til hlutlægrar umfiöllunar ... Hvemig stendur þá á því, að ríkismiðlamir skjóta sér hjá því að fialia ítarlega um sakargiftir með því að ganga á þá sem ábyrgöina bera, og leyfa borgurum landsins að hlusta á viðbrögð þeirra og andsvör við ásökun- um? Er það ekki hlutverk ríkismiðlanna?" Úr forystugrein Alþbl. 20. mars. Landsbankinn og VÍS „Það hefur lengi verið í undirbúningi hjá Lands- bankanum að bregðast við aukinni samkeppni frá tryggingafélögum og verðbréfafyrirtækjum á lána- markaði. Skilin á miili bankanna og tryggingafélag- anna, sem áður vom mjög skörp, hafa verið að eyð- ast ... Hins vegar má spyija um afstöðu ríkisstjóm- arinnar sem hingað til hefur haft þá stefhu að draga úr þýðingu ríkisfyrirtækja á fiármagnsmarkaði, en þetta er náttúrlega ekki í samræmi við þá stefnu ... Mun ríkisstjómin hraða einkavæðingu bankans í kjölfar þessa eða hvemig mun hún samræma kaup- in stefnu sinni?" Sighvatur Björgvinsson i Viðskiptabl. 19. mars. Skattalegt misrétti „Samtök verslunar hafa sannarlega ekki legið á liði sínu við tillögugerð til stjórnvalda, enda verkefn- in næg. Verslunarfyrirtæki á íslandi búa enn við skattalegt misrétti sem ítrekað hefur verið tíundað í ræðu og riti. Vömgjöld sem lögð era á af tilviijana- kenndri hentistefhu, sérskattar á verslun, hár virð- isaukaskattur, ytri tollar, allt em þetta atriði sem torvelda eðlilega þróun verslunar í landinu ... Hér væri verðugt verkefni fyrir stjómvöld að leiðrétta mismunun ...“ Stefán S. Guðjónsson í Mbl. 20. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.