Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
5
I>V
Fréttir
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir:
Tæp 3 prósent fara í
meðferð fyrir tvítugt
Kynning a Sœlkera
eggjum frá Gudrun
laugardaginn 22. Mars 1997.
Verslunin Vtnberið - Laugavegi 43
V, Akureyri:
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
og yfirlæknir SÁÁ sagði á ráðstefnu
um áfengis- og vímuefnanotkun
unglinga á Akureyri í gær, að nið-
urstaða samkvæmt samkeyrslu á
gögnum sýni að 2,5% allra fæddra
íslendinga komi til meðferðcu- á
Vogi áður en þeir ná tuttugu ára
aldri. Þórarinn sagði að af þeim
sem fæddust árið 1972 hafi 82 ein-
staklingar komið til meðferðar. Sú
tala hafi hækkað verulega, því úr
árganginum 1976 hafi komið 112 til
meðferðar fyrir tvítugt og út frá
þessum tölum og fleirum lesi menn
að 2,5% íslendinga þurfi að leita eft-
ir meðferð áður en þrítugsaldrinum
er náð. Sé svo litið til 25 ára aldurs-
ins, hafi 7% pilta leitað meðferðar.
Þórarinn gerði grein fyrir ýms-
um tölulegum upplýsingum um
meðferðarstarf SÁÁ og fyrir því
hvaða fíkniefni eru mest notuð.
Hann sagði að amfetamín sé í dag
algengasta, ólöglega fíkniefnið hér á
landi, en sé litið til 20 ára og yngri
séu kannabisefni í fyrsta sæti.
„Við höfum safnað saman ná-
kvæmum upplýsingum um neyslu-
venjur fólks á aldrinum 14-19 ára
og þar kemur fram að 95% þeirra
sem til okkar leita hafa notað ólög-
leg vímuefni. 83% hafa prófað
kannabisefni, 80% hafa prófað am-
fetamín, 47% hafa prófað helsælu,
45% hafa notað sveppi sem vímu-
efni, 30% hafa notað LSD, kókaín
25% og 2% heróín, en á síðasta ári
heyrðum við í fyrsta skipti sann-
færandi sögur um að heróín væri
hér eitthvað á sveimi," sagði Þórar-
inn.
Hvað forvarnir varðar sagði
hann að nauðsynlegt væri að svara
fjórum lykilspurningum. í fyrsta
lagi hvort nægu fé væri varið til
þeirra. „Ég segi nei. 50 milljónir til
forvarna er ekki neitt, ég vil sjá 500
milljónir á ári sem fara i þetta,“
sagði Þórarinn. 1 öðru lagi hvort
fénu væri veitt til þeirra sem væru
í mestri þörf fyrir það, en þá pen-
inga sagðist hann ekki sjá hjá SÁÁ.
í þriðja lagi þyrfti að svara þeirri
spumingu hvort stefnan væri rétt,
en henni svaraði hann á þá leið að
hún væri nokkuð góð. Fjórðu og
síðustu spumingunni um hvort
peningunum væri vel varið sagðist
hann svara þannig að stundum
fyndist sér svo ekki vera. „Ég held
að fénu sé best varið ef því er beint
til þeirra sem hafa unnið að þessum
málum og munu vinna að þessum
málum og sitja eftir með vandann
þegar átakið er búið. Það er allt of
mikið um það að menn eru að búa
til ný apparöt,“ sagði Þórarinn.
-gk
Patreksíjörður:
Sýslumaður
kærður
Sigurður Ingi Pálsson, veit-
ingamaður á Felgunni á Patreks-
fírði, hefúr kært sýslumanninn
á Patreksfírði, Þórólf Halldórs-
son, til dómsmálaráðuneytisins
fyrir vanhæfni í starfi.
í stjómsýslukærunni er þess
krafist að áminning sýslumanns
á hendur Sigurði verði felld úr
gildi og einnig að ráðuneytið
skipi nýjan sýslumann til að
fara með mál embættisins og
Sigurðar.
-RR
ÆHmu
tesa/
Solignum
málning
Litupinn
er sérverslun með málningarvörur þar sem
þú nýtur persónulegrar þjónustu fagfólks,
sem hugsar a&eins um þarfir þínar.
Prufudás
á 100 kr. léttir leitina a& rétta litnum!
1977-1997
...réfti liturinn, rétta verðið, rétta fólkið
Síbumóla 15, sími 553 3070
Fagnaðu með Litnum!
afmæHsafsláttin*