Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óhað dagblað
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
Helgarblað DV:
Upplifir sorgina
á sviðinu
I helgarblaði DV á morgun er birt
opinskátt einkaviðtal Silju Aðalsteins-
dóttur við Helgu Bachmann leikkonu
um sorgina eftir fráfall eiginmanns
hennar, Helga Skúlasonar leikara,
sem lést síðastliðið haust. Helga leik-
ur um þessar mundir i Ketti á heitu
blikkþaki í Þjóðleikhúsinu hlutverk
eiginkonu krabbameinssjúks manns
sem upplifir nánast það sama og hún
gerði með Helga. Til stóð að Helgi léki
á móti henni í leikritinu.
Umfjöllun og viðtöl eru i tilefni af
-v endurútkomu ljóðabókar Ara Jósefs-
sonar, Nei, sem kom fyrst út 1961 og
hefur verið ófáanleg í áratugi. Sjóari í
vesturbænum, sem safnað hefur að
sér merkilegum munum úr sjó-
mennsku og hernaði, er heimsóttur,
Björn Bjarnason skrifar um ástandið í
Rússlandi og margt fleira gott efni er
í blaðinu. -bjb/em
Eldur i bíl:
Áhyggjur af
eldhættu vegna
bensínbirgða
Eldur kom upp í bfl við Rauðalæk
-** í gærkvöld. í tUkynningu sem
slökkviðliðið fékk var talað um að
fuflir bensínbrúsar væru í bUnum
og var sérstakur viðbúnaður vegna
þess.
Þegar eldurinn hafði verið slökkt-
ur kom þó í ljós að bensínbrúsarnir
í bUnum voru tómir. BUlinn er tal-
inn ónýtur eftir eldinn en eldsupp-
tök eru talin hafa verið rafmagn í
mælaborði hans.
í samtali við slökkviliðið í morg-
un kom fram að þar hafa menn tals-
verðar áhyggjur af eldhættunni sem
myndast af bensínbirgðum, sem
fólk hefur víða verið að safna á
brúsa. SlökkvUiðið vUl koma þeim
tUmælum til fólks að það sýni mikla
^ varkámi og skynsemi við meðferð
og geymslu bensins. -RR
Samningar stranda á sjötíuþúsundkallinum:
Ríkisstjórnin sögö
andvíg svo mikilli
byrjunarhækkun
- vegna hækkunar á örorku- og ellilífeyri
Miklar viðræður hafa átt sér
stað miUi aðUa vinnumarkaðarins
og ríkisstjómar bak við tjöldin síð-
an stóra samninganefnd Dagsbrún-
ar feUdi nýgerðan kjarasamning á
þriðjudagskvöld. Það sem aUt snýst
um og strandar á núna er það sem
manna á miUi er kaUaður „sjötíu-
þúsundkaUinn".
DV hefur heimildir fyrir því að
vinnuveitendur séu tilbúnir tU að
ræða 70 þúsund króna lágmarks-
laun strax gegn því að taxtahækk-
anir verði þá minni á síðari hluta
samningstimabUsins. HeUdartaxta-
hækkunin á tímabUinu verði held-
ur ekki hærri en rætt hefúr verið
um eða 12 tU 13 prósent.
Ríkisstjórnin mun aftur á móti
vera andvíg því að svona mikU
hækkun komi strax vegna þess að
eUi- og örorkulífeyrir á að hækka tU
jafns við það sem verður í kjara-
samningunum. Ef lægstu laun
hækka í 70 þúsund krónur strax er
það nokkuð há tala í prósentum og
um þá prósentutölu mun eUi- og ör-
orkulífeyririnn hækka strax. Það
þykir ríkisstjóminni of mUdð.
Þá er verið að tala um enn frek-
ari lagfæringar á jaðarskattatiUög-
um ríkisstjómarinnar. Einnig um
hækkun skattleysismarka. Það eru
fyrst og fremst iðnaðarmennimir
sem hafa áhuga á skattamálunum
enda launataxtar þeirra mun hærri
en hjá verkafólki.
Loks er því haldið fram að sam-
komulag sé að verða um hin
svoköUuðu rauðu strik eða ígUdi
þeirra. Launþegaforystan er að
harðna i þeirri afstöðu sinni að
ekki sé gerlegt að semja til tveggja
og hálfs árs án þess að hafa upp-
tökurétt á samningnum inni.
HaUdór Björnsson, formaður
Dagsbrúnar hefúr lýst því yfir að
það þýði ekki að sýna Dagsbrúnar-
mönnum kjarasamning þar sem
lægsti taxti er undir 70 þúsund
krónum. Hann endurtók það í
morgun og sagði að þetta væri
næstum oröin heUög tala hjá Dags-
brúnarfólki.
„Menn geta gleymt því að bjóða
okkur samninga ef 70 þúsund króna
lágmarkslaun era ekki þar inni í,“
sagði HaUdór í morgun.
Búist er við að boðað verði tU
samningafundar á morgun en flest-
ir eru sammála um að hæpið sé að
samningar takist um helgina.
-S.dór
I kvöld fer fram úrslitakeppni í Músiktilraunum Tónabæjar og þá verða valdir efnilegustu tónlistarmenn ársins. Páll
Óskar Hjálmtýsson kom fram sem gestalistamaður á Músíktilraunum og er það sennilega í síðasta sinn sem hann
kemur fram opinberlega áður en stigið verður á svið í Eurovision-söngvakeppninni í írlandi. DV-mynd Hilmar Þór
Piltur rédst á
leigubílstjóra
á sjötugsaldri
16 ára gamaU pUtur er i haldi lög-
reglu eftir að hann réðst á leigubU-
stjóra á sjötugsaldri á Kleppsvegi í
gærdag.
PUturinn fór inn í bakarí á Klepps-
vegi 52 og bað um að hringt yrði fyrir
sig á leigubU. Það var gert en á með-
an pUturinn beið veittist hann að af-
greiðslustúlku og hótaði henni en hún
slapp ómeidd. Skömmu síðar kom
leigubUlinn og eftir stutt orðaskipti
sló pUturinn bUstjórann ítrekað í and-
litið.
PUturinn flúði af vettvangi en lög-
reglumenn hófú þegar leit. PUturinn
fannst við bensínstöð á Langholtsvegi.
Hann var handtekinn. Að sögn lög-
reglu var hann undir áhrifum áfengis.
LeigubUstjórinn var fluttur á slysa-
deUd en fékk að fara að lokinni rann-
sókn. Hann var með áverka í andliti
en ekki alvarlega að sögn lækna. -RR
Samherji hf.:
Hlutabréfin
komin í sölu
DV, Akureyri:
„Það er varla að starfsmenn Lands-
bréfa hafi getað sinnt öðrum verkefn-
um undanfarna daga en svara fyrir-
spurnum varðandi hlutabréfin í Sam-
heija," sagði Sigurður Sigurgeirsson,
forstöðumaður Landsbréfa á Akur-
eyri, i gær.
í morgun hófst móttaka beiðna um
hlutabréfakaup í Samherja en í boði
eru hlutabréf að nafnverði 45 mUlj-
ónir króna á genginu 9,0 og stendur
þessi fyrsti hluti útboðsins fram á
miðvikudag.
Hámarksupphæð sem hver kaup-
andi getur skrifað sig fyrir er 100 þús-
und krónur að nafnverði. Verði eftir-
spurn meiri en sem nemur 45 mUljón-
um króna skerðist hlutur hvers og
eins, en allir hafa jafnan rétt til
kaupanna hvort sem þeir skrá sig í
dag eða t.d. á miðvikudag. -gk
Höfuðborgarsvæði:
Allt bensín að
klárast
Hjá Esso voru menn vissir um ein-
hverja dropa á Geirsgötu en hvergi
annars staðar fyrir víst. Hjá Skeljungi
er eitthvað enn tU í Öskjuhlíðinni og
hugsanlega á Vesturlandsvegi en hjá
Olís var „aUt að fjara út“ í morgun.
Bensín er búið hjá Orkunni á svæð-
inu.
Nægar birgðir munu vera af bens-
íni á Akranesi og nóg til á stöðvum
frá Akranesi og norður um og austur
og síðan suður og austur á HvolsvöU.
Telja menn að líklega sé búið að af-
greiða um mánaðarbirgðir á síðustu
dögum. -sv
L O K I
Veðrið á morgun:
Éljagangur
syðra
Á morgun er útlit fyrir austan-
átt, viða verður kaldi en þó stinn-
ingskaldi víða um landið norðan-
vert. Rigning eða slydda austan-
og norðaustanlands, éljagangur
syðra en úrkomulítið verður um
landið vestanvert. Hiti verður 1-3
stig á Austurlandi en annars um
eða rétt undir frostmarki.
Veðrið í dag er á bls. 36
Kvöld- og
helgarþjónusta
:ier.
tölvu-
límmiða-
prentari
Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443