Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Side 11
DV LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 11 Minjar eftir norræna menn í Eiríksfiröi. Talið er aö grænlenskt fólk af íslenskum ættum hafi skipt nokkrum þúsundum þegar velgengni nýlendunnar var sem mest. En svo rofnuöu tengsl- in milli landanna og þegar norrænir menn héldu loks aftur vestur yfir hafið til Grænlands var „íslenska" þjóöin horfin meö öllu. DV-mynd EJ Lesið í jökulinn Skrif í erlendum fjölmiðlum hafa enn á ný vakið athygli á óleystri gátu sem óneitanlega hef- ur leitað sterkt á marga íslend- inga fyrr og síöar. Þetta er spum- ingin: Hver urðu örlög afkomenda íslensku landnemanna á Græn- landi? Talið er að grænlenskt fólk af íslenskum ættum hafi skipt nokkrum þúsundum þegar vel- gengni nýlendunnar var sem mest. En svo rofnuðu tengslin milli landanna og þegar norrænir menn héldu loks aftur vestur yfir hafið til Grænlands var „ís- lenska" þjóðin horfin með öllu. Landnám Grænlands var skil- getið afkvæmi þeirrar ákaflega sterku útþrár norrænna manna sem einkenndi víkingaöldina svokölluðu, en þá leituðu þeir á tiltölulega skömmum tíma til fjöl- margra annarra landa, sumra mjög fjarlægra. Þeir sóttu jafnt til austurs, suðurs og vesturs - til Rússlands og þar eftir vatnaveg- unum miklu til Miklagarðs, suður eftir Evrópu til Frakklands, Eng- lands og írlands og vestur til Orkneyja, Færeyja, íslands, Grænlands og loks Vinlands á ströndum þess meginlands sem síðar fékk nafnið Ameríka. Sumir sagnfræðingar hafa haldið því fram að á tímum þessara miklu norrænu þjóðflutninga hafi í það minnsta tvö hundruð þúsund Norðmenn og Danir siglt á haf út og haldið til annarra landa. Og víða höfðu þeir veruleg áhrif sem enn má sjá merki um í menning- ararfleifð margra þjóða. Land Eiríks rauða Eiríkur rauði Þorvaldsson kom reyndar ekki fyrstur norrænna manna til Grænlands, en hann gaf landinu nafn, settist þar að og skipulagði ferðir annarra íslend- inga þangað, ef marka má fornar íslenskar heimildir. Þessi útlægi sakamaður, sem hraktist frá íslandi vegna víga- mála, var því frumkvöðull land- náms á Grænlandi, svipað og Ingólfur Arnarson á íslandi, og höfðingi norrænna manna á höf- uðbóli sínu í Brattahlíð. Og af- komendur hans settu mark sitt á grænlenskt þjóðlíf um nokkurra alda skeið. Víkingamir voru síður en svo eingöngu drápóðir villimenn, eins og sumir hafa viljað lesa út úr samtímafrásögnum í Evrópu og jafnvel ýmsum íslendingasögum. Þótt vafalaust hafi þeir unnið margt grimmdarverkið á mæli- kvarða nútímans voru margir víkinga fyrst og fremst bændur sem vildu eignast sitt eigið land, yrja það og verja. Grænt land? í íslendingabók segir svo frá því að Grænland hafi fundist og byggst frá íslandi: „Eiríkur hinn rauði hét maður breiðfirskur er fór út héðan þangað og nam þar land er siðan er kallaður Eiríks- fjörður. Hann gaf nafn landinu og kallaði Grænland og kvað menn þaö myndu fýsa þangað farar að landið ætti nafn gott. Þeir fundu þar manna vistir bæði austur og vestur á landi og keiplabrot og steinsmíði það er af því má skilja að þar hafði þess konar þjóð farið er Vínland hefir byggt og Græn- lendingar kalla Skrælingja. En það var er hann tók byggja landið fjórtán vetrum eða fimmtán fyrr en kristni kæmi hér á íslandi." Margir hafa orðið til að gantast með hversu nafn það sem Eiríkur rauði gaf eyjunni miklu í vestri sé fjarri veruleikanum. En rann- sóknir vísindamanna hin síðari ár gefa til kynna að ef til vill hafi hann ekki verið jafn siölaus aug- lýsingaskrumari og ætla mætti. Þegar hann sigldi til Grænlands fyrsta sinni hafði verið hlýinda- skeið á þeim slóðum í nokkur hundruð ár. Þær merku rann- sóknir sem gerðar hafa verið á borkjömunum sem sóttir voru í Grænlandsjökul staðfesta þetta. Þótt mestur hluti landsins hafi auðvitað þá sem nú verið þykk og mikil jökulbreiða er talið senni- Elías Snæland Jónsson aðstoðanitstjórí legt að Eiríkur hafi komið að verulegu undirlendi sem hafi ver- ið grænt og búsældarlegt í augum víkinga sem komu frá íslandi sem þá þegar var numið að verulegu leyti. Hvað sem því líður þá tókst Ei- ríki rauða á fá fjölmarga íslend- inga með sér til landnámsins. Heimildir segja að fyrir 1010 árum hafi tuttugu og fimm skip lagt upp í leiðangur vestur yfir hafið með um 300 landnema, búslóð þeirra og kvikfénað, og komust ellefu skipanna alla leið. íslendingarnir festu byggð á suðvesturströndinni - annars vegar í svokallaðri Eystribyggð, þar sem höfðingjar landnemanna héldu sig gjarnan, en hins vegar í Vestribyggð þar sem nú heitir Nuuk. Fleiri íslend- ingar fylgdu í kjölfarið, líklega um eitt þúsund manns. Sagnfræð- ingar hafa áætlað að líklega hafi þrjú eða fjögur þúsund norrænir menn átt heima á Grænlandi þeg- ar ríki þeirra stóð með mestum blóma. Er þá talið að í Eystri- byggð hafi verið um 190 bæir, en um 90 í Vestribyggð. Sambandið rofnar Grænlensku víkingamir gengu að mörgu leyti sömu braut í stjórnmálum og íslendingar. Þannig tóku þeir kristna trú um árið 1000 og komu sér upp svip- aðri stjórnskipun og löggjöf. Kirkjan náði þar líka miklum áhrifum, eins og á íslandi, og eignaðist með tímanum mikinn hluta jarðanna. Þá gengu Græn- lendingar á hendur Noregskon- ungi um sama leyti og íslenskir valdsmenn, eða árið 1261. Á næstu áratugum urðu sigl- ingar milli Grænlands, íslands og Noregs strjálar af ýmsum ástæð- um, en þó alveg sérstaklega eftir hamfarir Svartadauða í Noregi upp úr miðri fjórtándu öldinni. Á sama tima gerðist tvennt í senn; tíðarfar hélt áfram að kólna og inúítar, sem höfðu komið frá Kanada yfir til Grænlands um svipað leyti og víkingarnir sigldu að landinu úr austri, sóttu sifellt lengra suður á bóginn. Er frá því skýrt í rituðum íslenskum heim- ildum að til átaka hafi komið á milli norrænu landnemanna og inúítanna og mannfall orðið veru- legt. Talið er að Vestribyggð hafi verið yfirgefin um miðja fjórt- ándu öldina, en að norrænir menn hafi tórt lengur í Eystri- byggð eða fram undir árið 1500. Síðasta skip sem vitað er að kom- ið hafi frá byggðum norrænna manna á Grænlandi til íslands sigldi árið 1410. Það sem síðan gerðist veit enginn með vissu, en þegar trúboðinn Hans Egede sigldi til Grænlands árið 1721 í leit að norrænum mönnum fann hann þá hvergi. Þeir voru horfnir. Margar kenningar Gátan mikla um örlög nor- rænna manna á Grænlandi hefur lengi verið vinsælt umfjöllunar- efni fræðimanna og rithöfunda. Margar kenningar hafa séð dags- ins ljós. Þar má nefna að inúítar, sem víkingamir kölluðu reyndar skrælingja, hafi útrýmt þeim í bardögum. Að norrænir menn hafi blandast inúítum og horfið með þeim hætti sem norrænn kynstofn. Að þeir hafi hreinlega drepist úr hungri og vesöld. Að þeir hafi flutt til annarra landa í leit að betri lífskjörum. Eða þá að afkomendur íslensku landnem- anna hafi verið hnepptir í þræl- dóm af sjóræningjum frá Evrópu. Það er sem sagt af nógu að taka. Þeir sérfræðingar sem undan- farin ár hafa lesið í jökulinn með því að rannsaka gaumgæfilega borkjamana frá Grænlandi hafa fengið fyrir þvi staðfestingu að þegar líða tók á dvalartíma nor- rænna manna hafi loftslag kólnað svo mjög frá því sem var á land- námstímanum að það hafi vafa- laust ógnað lífsafkomu þeirra. Við þær aðstæður hefðu afkomendur víkinganna ekki getað komist af nema með því að aðlaga sig lífs- háttum inúítanna sem kunnu þá list að lifa af landi sem var í helj- argreipum kuldaskeiðsins. Vil- hjálmur Stefánsson landkönnuður sýndi það í verki í byrjun aldar- innar að gestir á breiðunum hvítu gátu lært þá kúnst af inúítum og bjargað sér árum saman. Það var aðeins spurning um vilja. En þrátt fyrir nýjar upplýs- ingar úr innviðum Grænlandsjök- uls er gátan um örlög norrænna manna á Grænlandi að sjálfsögðu enn óráðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.