Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 Samstarfsslit UTRF við (slenskar sjávarafurðir hf. á Kamtsjatka: Verkefnið skilaði tæpum fjórum milljörðum í fyrra - gengi hlutabréfa lækkar og áfall blasir við ÍS Rússneska útgerðarfyrirtækið UTRF á Kamtsjatka hefur sagt upp samstarfssamningi sínum við ís- lenskar sjávarafurðir hf. Samstarf fyrirtækjanna tveggja hefur staðið í tæp fjögur ár en þau gerðu með sér nýjan tveggja ára samning sl. haust. Ljóst er að samningsslitin eru mikiö áfall fyrir ÍS. Verkefni fyrir- tækisins á Kamtsjatka skilaði því tæpum 4 milljörðum króna á síðasta ári eða 18% af veltu fyrirtækisins. Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, segir að ástæðan fyrir samningsslit- unum sé fyrst og fremst ágreiningur um rekstur og stjómun verkefnisins og sú krafa ÍS að hafa fulla stjórn á því eins og samningurinn hljóðar upp á. Töluvert hefur gengið á í samskiptum fyrirtækjanna tveggja og oft verið tekist á. Benedikt segir það ekkert launungarmál að for- ráðamenn ÍS hafi orðið að sýna mikla festu í samskiptum við Rúss- ana. 700 milljónir enn ytra Við þessar slæmu fréttir, sem samningsslitin augljóslega eru, bæt- ist við að vörueignir ÍS, að verð- mæti allt að 700 miiljónum króna, samkvæmt heimildum DV, eru enn í Kamtsjatka. Um er að ræða þús- undir tonna af flski sem eru í togur- um ytra auk olíu o.fl. Engin upp- Einn af togurum rússneska útgerðarfyrirtækisins UTRF sem hefur nú slitiö samstarfssamningnum við íslenskar sjávarafuröir hf. (t*' /• 1 T «-■' Solkrossinn Tákn fýrir trúna á hið jákvæða Séretæður silfurkross með kúptum steini (grænum, rauðum eða bláum) Verð með festi kr. 4.850 Stærð 2,8 cm Hönnuður: Axel Eiríksson QULL-ÚRIÐ AXEL EIRÍKSSON Álfabakka 16, Mjbddinni, s. 5S7-0706 ASalslriti 22, ísafirSi, s. 456-3023 skipun hefur farið fram ennþá á afl- anum. Að sögn margra sem þekkja vel til á þessum slóðum er mikil hætta á að þessi verðmæti verði kyrrsett þar ytra. UTRF er mjög illa statt fjárhagslega og mjög skuldsett fyrir- tæki. Viðskiptahættir í Rússlandi eru ólíkir því sem gerist á Vestur- löndum og mörgum vestrænum fyr- irtækjum hefur gengið mjög iila að sækja fé til rússneskra fyrirtækja, jafnvel fyrir dómstólum þar í landi. Erfitt verkefni „Uppsögn samningsins er vissu- lega áfall fyrir okkur og hefur mik- il áhrif á rekstur ÍS. Þæma er um að ræða stórt verkefni, veltu og tekjur. Við teljum að þessi einhliða upp- sögn samningsins sé brot á honum. PASKAEGGIN eru komin í barnaboxin á <0i nm # •< '► ■ v Á 1 >• i -Hutl 't "tt" g 533 2000 Kringlan • Hótel Esja Fréttaljós Róbert Róbertsson Það var alltaf vitað að þetta væri erfitt og áhættusamt verkefni. Við munum leita réttar okkar í þessu máli og stefnt er að því að funda með forráðamönnum UTRF í Moskvu í næstu viku. Við vonumst til að geta leyst þessi mál þar,“ seg- ir Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS. Aðspurður um eignirnar, sem enn eru í Kamtsjatka, segist Bene- dikt ekki hafa trú á öðru en þær séu í öruggri stöðu og Abramov hafi staðfest það. Benedikt segir að vör- umar verði væntanlega seldar og af- greiddar og innkoman muni nýtast til að greiða það sem er útistand- andi. Að sögn Benedikts er enginn ágreiningur á milli fyrirtækjanna út af eignarhaldsrétti í vörunum. Benedikt ber sig vel og segir að samningsslitin geri engan gæfumun Tamara llicina Suturina, aðstoöar- forstjóri UTRF, hefur átt f ástar- sambandi við Ólaf Magnússon, verkefnisstjóra ÍS. fyrir ÍS. En þrátt fyrir bjartsýnistal forstjórans er ljóst að staðan er mjög alvarleg hjá ÍS og þá sérstak- lega ef eignir fyrirtækisins verða kyrrsettar í Kamtsjatka eins og margir viðmælendur DV telja að geti hæglega gerst. Ef svo mundi fara yrði það mikið reiðarslag fyrir ÍS og hefði mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir fyrirtækið. Hlutabráf lækka Gengi hlutahréfa í ÍS hafa lækkaö um 13% eftir að fréttir bárust af samningsslitunum. Á mánudag var gengi hlutabréfanna á opna gegnis- markaðnum 4,8 en í gær var gengi þeirra 4,2. Benedikt er sem fyrr bjartsýim á stöðuna og segist ekki hafa neinar áhyggjur af hlutabréf- unum þegar til langs tíma er litið. Hann segir að þetta fall hlutabréf- anna sé eðlilegt miðað við þær slæmu fréttir sem hafi borist alveg eins og bréfin hækkuðu þegar samningur var gerður á sínum tíma. Alexander Abramov, forstjóri UTRF, segir að ekki hafi verið hægt að halda samstarfinu áfram á þeim grundveflí sem fyrir var því það hefði stefnt rússneska fyrirtækinu í gjaldþrot. Hann segist hafa reynt að fá samningnum breytt en það hafi forráðamenn ÍS ekki viljað. Abramov segir að það hafi ekki ver- ið ólöglegt að segja samningnum upp því í honum hafi verið ákvæði um að svo mætti gera ef breytingar yrðu á rússneskri löggjöf. Breyting- ar urðu einmitt nýlega á gjaldeyris- lögum í landinu. Abramov segir ennfremur að erfitt hafi verið að starfa með ís- lendingum á Kamtsjatka. Helming- ur af starfsmönnum ÍS þar hafi ekki verið starfi sínu vaxnir og þá hafi einnig verið mikil vandræði á ís- lendingunum vegna drykkjuskapar og virðingarleysis við rússneskar hefðir. íslendingarnir hafi m.a. setið fint klæddir inni á skrifstofu með lappir upp á broðum en það striði algerlega gegn rússneskum hefðum. Þeir hafi vitað það en ekki breytt samkvæmt því. Topararnir á nauðungar- söiu UTRF er eins og áður sagði mjög skuldsett fyrirtæki. Það missti m.a. tvo nýtísku togara á nauðungarsölu fyrr í vetur þegar þeir voru í slipp í Kína og voru þeir seldir upp í skuld- ir fýrirtækisins. Samkvæmt heim- ildum DV voru þetta bestu skipin í flota UTRF og samið hafði verið um útgerð þeirra til þriggja ára. Það var því mjög slæmt fyrir fyrirtækin tvö og verkefnið í heild þegar skip- in voru gerð upptæk. Samstarf ÍS og UTRF hefur aðal- lega byggst á því að íslendingamir leggja Rússunum til fjármagn og þekkingu. ÍS hefur lagt fram mest- allt það fjármagn sem þarf í þennan rekstur og er það að sjálfsögðu mest lánsfé. ÍS er m.a. með afurðalán í Landsbankanum upp á 350-450 miiljónir sem nú er bundið í farmi fyrirtækisins ytra. Astin blómstrar samt En það hafa ekki bara verið átök og deilur í samskiptum íslendinga og Rússa í verkefninu á Kamtsjatka. Fyrr í vetur hófst ástarsamband Ólafs Magnússonar, verkefnisstjóra ÍS, og Tamöru Ilicinu Suturinu sem er aðstoðarforstjóri UTRF. Ólafur hefur ekki viljað tjá sig um sam- band sitt við Tamöru. Aðspurður sagði h£mn þó að það hefði ekki komið samningsslitunum neitt við og sé málinu algerlega óviðkom- andi. Ólafur og Tamara búa nú sam- an í Petropavlovsk sem er stærsta borgin á Kamtsjatka. Fyrrverandi starfsmenn ÍS, sem DV ræddi við, segja að mjög tor- tryggilegt andrúmsloft hafi myndast meðal margra starfsmanna fýrir- tækisins eftir að ástarsambandið hófst. Starfsmenn hafi ekki treyst á hvað var að gerast og það aukið á spennu þeirra í hinum erfiðu að- stæðum í Kamtsjatka. Enn eru 24 íslendingar í Kamt- sjatka á vegum ÍS og svo auðvitað eignimar dýrmætu. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvert fram- haldið verður en það skýrist vænt- anlega þegar forráðamenn fyrir- tækjanna hittast í Moskvu í vik- unni. Alexander Abramov, forstjóri UTRF, segir að erfitt hafi verið að starfa meö íslendingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.