Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 36
48 LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 f Dublin á Irlandi blómstrar sem aldrei fyrr: Landsmenn flykkjast heim á ný Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri S/L, Margrét Helgadóttir, tölvufulltrúi S/L, og Markús Pétursson frá Hugviti sýna hér útlit einnar síöu Sumarbæk- lings Samvinnuferöa-Landsýnar á veraldarvefnum. dv-mynd e.ói. vinnuferða og í fyrra var bætt þar við upplýsingum um Flakkferðim- ar, samstarfsverkefni S/L og Jafn- ingafræðslunnar. Beint samband Viðskiptavinir geta verið í beinu sambandi við S/L um veraldarvef- inn, gert þar fyrirspumir og bókað sérstök tilboð sem þar verða. Einfalt er að gera breytingar á eöii siðn- anna og gerir það S/L kleift að vekja athygli á sérstökum ferðum þar. Nú þegar er nokkur tilboð að finna á heimasíðu S/L. Þar geta viðskipta- vinir sent inn pantanir og verða af- greiddir í tímaröð. Rétt er að vekja athygli á nýrri þjónustu við viðskiptavini, spjallrás þar sem hægt er að leggja orð í belg um ferðir og annað það sem getur komið ferðalöngum að gagni. Það er hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit sem hefur hannað síðumar, en alls er um 120 síður að ræða. Margrét Helgadóttir, tölvufulltrúi S/L, hafði umsjón með verkinu og Markús Pétursson hjá Hugviti. Heimilisfang Samvinnuferða-Land- sýnar á veraldarvefnum er: www.ssunvinn.is -ÍS Einokun endar Grænland í sviðsljósi Grænland hefur verið tölu- vert í sviðsljósi fjölmiðla vegna þess að kvikmyndin „Miss Smilla’s Feeling for Snow“, sem | að mestu gerist á Grænlandi, | hefur verið tekin til sýninga víða um lönd. Þetta er sannköll- uð stórmynd með frægum leik- | urum í aðalhlutverki, Gabriel Byme og Juliu Ormond. Kvik- myndin var frumsýnd fyrir I stuttu og er nú til sýninga í ein- | um 25 löndum. Ferðamálayfir- | völd í Grænlandi ætla að fylgja ; þessu vel eftir og hafa prentað auglýsingabæklinga um Græn- 1 land sem dreift er ókeypis til kvikmyndagesta. Taugaveiki WHO, alþjóða heilbrigðis- málastofnimin, gaf út viðvörun um að taugaveikifaraldur gæti | brotist út í Tadjikistan. Nú þeg- I ar hafa verið skráð 5.000 tilfelli | í landinu og 46 hafa látist. Ótt- Íast er að tala smitaðra geti meira en tífaldast á skömmum tima. í fyrra kom upp tauga- veikifaraldur í landinu í kjölfar þess að víða flæddi upp úr skólpræsum sem mengaði drykkjarvatn. Ekkert flug Flugmenn hjá Air Zimbabwe í samnefhdu landi hafa undan- fama daga verið í verkfalli sem lamað hefur nánast allt flug til og frá landinu. Fyrir aðeins áratug vom horfurn- ar í fjármálum fyrir borgarbúa í Dublin vægast sagt dökkar. Fram- tíðaráætlanir gerðu ekki ráð fyrir neinum framforum og ekki bætti úr skák það verðfall sem orðið hafði á fjármálamörkuðum heims árið 1987 sem olli kreppu í efnahagslífi Vest- urlanda um nokkurra ára skeið. Tíu ámm síðar eru horfumar allt aðrar og Dublin blómstrar sem aldrei fyrr. Meir en 600 ný fyrir- tæki, fjöldamörg af þeim erlend, hafa flutt hluta eða alla starfsemi sína til borgarinnar. Þessi 600 fyrir- tæki hafa útvegað 4.000 borgarbúum vinnu. Flestir þeirra starfa reyndar í ýmiss konar sérhæfðri skrifstofu- vinnu eins og fjármála- og sjóða- stjórnun, en þrátt fyrir það hafa þessi nýju störf verið grundvöllur- inn að minnkandi atvinnuleysi. Gylliboð Þessi framfaraspor sem stigin hafa verið era árangur af starfi framsýnna manna í stjóm borgar- innar, samtvinnun hvatningar og tilboða til utanaðkomandi aðila og fjársterkra fyrirtækja. Dublin býður einnig upp á hag- stæð ytri skilyrði, góða símaþjón- ustu, vel menntað og tiltölulega ódýrt starfsfólk og hagstætt skattaumhverfi fyrir fyrirtæki, sér- staklega bandarísk. Fjölmörg alþjóð- leg stórfyrirtæki hafa flutt stóran hluta starfsemi sinnar til Dublin- borgar. Þar má meðal annars telja fyrirtæki eins og bílaleiguna Hertz, American Airlines og tölvufyrirtæk- ið Gateway 2000. Hjá Gateway í Dublin starfa reyndar um 1000 manns en áformanir era um stækk- un fyrirtækisins sem þýðir 1300 ný stöðugildi. Aukning þjóðarframleiðslu Hin hagstæða þróun í Dublin er reyndar ekkert nýmæli á írlandi því uppgangurinn í landinu öllu hefur verið á svipuðum nótum. Þjóðar- framleiðsla jókst um heil 10,3% á ír- landi á árinu 1995 og þó að hún hafi heldur hægt á sér á árinu 1996 (aukning um 6,8%), þá er vöxtur þjóðarframleiðslunnar vel yfir með- altali Evrópuríkja. Þrátt fyrir uppganginn era ýmis vandamál sem steðja að þjóðinni. Stærstu vandamálin era þungar rík- isskuldir landsins, vaxtagreiðslur af þeim og tiltölulega hátt atvinnu- leysi. Ástandið var verulega alvar- legt í þeim málum fyrir nokkrum árum þó heldur hafi rofað til. Árið 1993 var atvinnuleysi á írlandi 16,7% sem er með því hæsta sem gerist í Evrópu. Tekist hefur að ná atvinnuleysis- tölunni niður í 12% af mannafla á vinnumarkaðinum, en það er enn þá hærra en Evrópumeðaltalið (10,8%). En samsetning aldurshópa í írlandi hefur einmitt stuðlað að þessu háa atvinnuleysi. Næstum því helmingur þjóðarinnar er undir 25 ára aldri og úr þessu vandamáli á eftir að draga þegar fólki á vinnu- Einokunin, sem gilt hefur síðastliðin 65 ár í flugi í Egypta- landi, er nú loksins liðin undir lok. Flugfélagið EgyptAir hefur setið eitt að flugmarkaðnum þar í landi en nú hefur markað- urinn verið opnaður fyrir fleiri flugfélög. ; •. , . Údýrir miðar Kínverska flugfélagið Air China, sem mun byrja flug milli Lundúna og Hong Kong þann 1. apríl næstkomandi, bauð nokk- ur hundruð flugmiða á hálfvirði eða um 28.000 krónur. Flugmið- amir seldust upp á örfáum mín- útum. Lendingargjöld Deilur standa nú yfir milli flugfélaga og aðstandenda nýja Chek Lap Kok-alþjóðaflugvall- arins við Hong Kong sem nú er í smíðum. Flugvöllurinn hefiu- reynst mjög dýr í byggingu og óttast er að lendingargjöldin verði allt að tvöfalt hærri en þau sem gilda fyrir flugvöllinn gamla við Hong Kong. Sam- komulag hefur ekki náðst enn um flugvallargjaldið. Tengiflug Flugfélögin Croatia Airlines og Virgin Air skrifuðu í vik- unni undir samstarfssamning félaganna um tengiflug milli Za- greb, London og New York. Flogið verður frá Zagreb til | London með vélum Croatia Air- lines og siðan skipt yfir í vélar Virgin frá London til New York. Verð á farmiðum á þess- ari flugleiö er mn 35.000 krónur og flogið verður 5 sinnum í viku. aldri fækkar. Töluvert hefur einnig borið á fíkniefnaneyslu ungs fólks og er það vaxandi vandamál. Það vandamál hefur þó frekar verið bundið við norðurhluta Dublinborgar, en ferða- menn hafa sótt meira í suðurhlut- ann. írar hafa jafnan verið mikið á far- aldsfæti og undanfama áratugi hef- ur unga fólkið streymt til annarra landa að loknu námi, og í flestum tilfellum ílenst þar. Þetta er að breytast. Fólksflótti frá írlandi var um 27.000 manns á ári fyrir áratug en á síðasta ári fluttu aðeins 6000 manns búferlum frá landinu. írar, sem áður fluttu af landi brott, kjósa nú margir hverjir að koma heim aft- ur og taka þátt í efnahagsundrinu sem á sér stað í þeirra heimalandi. Gjörbreytt hverfi Dublinborg hefur tekið miklum breytingum á síðasta áratug. Hverf- ið Temple Bar sem margir íslend- ingar þekkja (eitt hótela Samvinnu- ferða-Landsýnar í Dublin heitir Temple Bar Hotel) var í mikilli nið- urníðslu fyrir 10 árum. Áin Liffey skiptir borginni í tvennt og Temple íslendingar þekkja vel hve iöandi af lífi verslunar- göturnar í Dublin eru í mánuðunum fyrir jólahátíð- ina. DV-mynd ÍS Samvinnuferðir á veraldarvefinn Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- Landsýn hefur látið gera heimasíðu á veraldarvefinn og komið þar fyrir öllum upplýsingum sem er að finna í sumarbæklingi ferðaskrifstofúnn- ar fyrir árið 1997. Hægt er að fletta upp upplýsingum um ferðir, verð og gististaði og gera fyrirspumir beint tfl ferðaskrifstofunnar. Á síðunum era myndir af áfangastöðum og gististöðum og spjallrás fyrir við- skiptavini. Samvinnuferðir-Landsýn var fyrsta ferðaskrifstofan hérlendis sem haslaði sér völl á veraldarvefn- um árið 1995 meö upplýsingar á ensku um innanlandsdeild Sam- Ferðamenn kunna vel að meta þá írsku krármenningu sem boðið er upp á I Dublin. Bar hverfið er rétt sunnan árinnar. Fyrir áratug voru uppi áform um að rífa meginhluta hverfisins og byggja jafnvel miðstöð langferðabif- reiða á því svæði. Til allrar ham- ingju varð ekkert úr þeim áformum. Nú era hin þröngu stræti í Temple Bar iðandi af lífi, veit- ingastaðir og krár eru þar á h v e r j u götuhorni. Þ a n g a ð kemur unga fólkið og ferðamenn á kvöldin til að skemmta sér. íslend- ingar þekkja vel þá vinalegu stemn- ingu sem þar ríkir á kvöldin. Fram að þessu hafa ferðir til Du- blinborgar í beinu flugi frá íslandi aðeins staðið til boða á mánuðunum í kringum áramótin, en ekki að sumarlagi. Hins vegar er hægt að komast til írlands eða Dublin að sumarlagi án þess að kosta miklu til. Fiölmörg flugfélög fljúga á milli Lundúna og Dublin og ef keyptir era ódýrastu farmiðar á þeirri flug- leið, ættu þeir að fást á 9-10 þúsund krónur. Meðal flugfélaga á þessari leið, má nefna Aer Lingus, British Midland, Ryanair, British Airways og CityJet. Þýtt og endursagt úr Business Traveler. Spánapfanar athugið Ertu á leiö til Spánar? Þá vil ég veita athygli á þjón- ustu sem viö veitum. Flytjum fólk til og frá ALICANTE-flugvelli. Erum meö 8 manna bíl, sjáum um eftirlit, þrif, leigumiðlun (aöallega á Las Mimosas svæðinu) og alla almenna þjónustu fyrir ferðamanninn allt árið, allan sólarhringinn. Sjáum einnig um ferðir til og frá diskótekum, veitingahúsum og margt fleira. Hafið samband til að fá nánari upplýsingar. Sími og fax: 00 34 6532 8367 Farsími: 00 34 0966 3710
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.