Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 22. MARS 1997
PHILIPS
17
Hann bar
strax af
okkur hinum
„í menntaskóla fengumst við
strax við að yrkja og skrifa. Og ekki
var að sökum að spyija; hann har
strax af okkur hinmn,“ segir Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra sem
var skólabróðir Ara Jósefssonar í
MA.
„Við vorum mjög nánir vinir á
menntaskólaárunum. Ari var
traustur og skemmtilegur félagi og
hafði góðan húmor. Hann var
drengur góður og er mér afskap-
lega kær í minningunni,“ segir
Halldór.
Að sögn Halldórs var Ari afar
þroskaður eftir aldri þegar hann
settist í þriðja bekk í MA og var þó
ári yngri en bekkjarfélagamir.
Hann hafði vel mótaöa lífsskoðun
og gott vald á íslensku máli.
Halldór Blöndal samgönguráöherra
var náinn vinur Ara Jósefssonar.
Ari hélt mjög mikið upp á Þor-
stein Erlingsson og Halldór Lax-
ness. Að sögn Halldórs Blöndal
hafði engin bók jafnmikil áhrif á
hann og Sjödægra Jóhannesar úr
Kötlum.
„Ari hafði líka dálæti á ljóðum
Steins Steinarrs og fylgdist vel með
þeim hræringum sem voru í skáld-
skapnum á þessum tíma. Hann var
róttækur í skoðunum og smekk,“
segir Halldór.
Að sögn Haildórs átti Ari létt með
að yrkja og var mjög lýrískur. Hann
hafði gaman af að yrkja í gömlum
anda um sveitarómantík eða stæla
Æra-Tobba. Hann var frumlegur í
skáldskap sínum og hafði gott vald
á myndmáli. Eftir að Ari kom í
menntaskóla gaf hann sig meira að
nútímaskáldskap og fitjaði gjama
upp á nýjvmgum sjálfur í myndmáli
og orðavali.
Hann ætlaði sér alltaf að verða
skáld og orti mikið á menntaskóla-
árunum. Halldór og Ari léku sér að
því aö yrkja saman lausavísur og
margvíslegan skáldskap.
„Ari stóð föstum fótum í þjóð-
legri menningu okkar og var kunn-
ugur nítjándu og tuttugustu aldar
skáldunum. Hann var líka vel að
sér í hefðbundinni ljóðagerð sem
var honum góður bakhjarl þegar
hann kastaði frá sér öllum formum
og fór að yrkja atómijóð," segir
Halldór.
Að sögn Halldórs höfðaði ljóða-
bókin Nei mjög sterkt til ungs fólks
á þeim tíma, og hún sýnir vel hvað
Ari var róttækur í skoðunum. Að
sögn Halldórs hafði Ari gott vald á
íslenskri tungu og var persónulegur
í stíl sínum, tjáningu og framsetn-
ingu. Hann átti auðvelt með að skír-
skota til lesandans.
frá
4980 kr.
Mikið úrval fyrir allar
fermingarstelpur
og stráka.
11,990 kr.
Fullkominn simboði með
tímastillingu, upplýstum
skjá, 30 nr. minni, titrara og
öryggiskeðju.
EKKERT AFNOTAGJALD!
□
th
x
o
n
*
m
unum e
•jtir jt
L
crmuujttroortuuuim
t
Heimilistæki hf
©
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt
íp
@
-em