Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 24
24 anib^iya Karlakórinn Heimir gerði sigurför suður yfir heiðar: ungu fyrir þúsundir Islendinga! Heimismenn á sviöinu á Hótel Islandi og á um heldur Stefán R. Gíslason. Viö píanóiö Thomas Higgerson og Jón St. leikur á harmóníku. DV-myndir Hari Siguröur Björnsson frá Stóru-Ökrum er í hópi elstu manna í kórn- um og hér er hann ásamt eiginkonunni, Maríu Helgadóttur. Aö baki henni situr Kristján Stefánsson frá Gilhaga. LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 - fylltu m.a. Háskólabíó og Hótel Island annað árið í röð Karlakórinn Heimir í Skagafiröi gerði góða ferð suður yfir heiðar um síðustu helgi. Hvar sem kórinn kom fylltust sal- ir og góður rómur var gerður að söng þeirra. Ferðin hófst með því að sungið var á fimmtudagskvöldi í Grindavíkur- kirkju, á föstudagskvöldinu sungu þeir í félagsheimilinu á Flúðum um leið og upptaka frá því fyrr um daginn var leik- inn í söfnunarþætti á Stöð 2 til stuðn- ings hjartveikum bömum. Á laugardeg- inum voru haldnir tónleikar i Háskóla- bíói og endað með skemmtun og dans- leik á „skagfirsku skemmtikvöldi“ á Hótel íslandi. Annað árið í röð tókst Heimisfélögum að fylla bæði Háskólabíó og Hótel Island sem verður að teljast mjög gott þegar um samkomusali er að ræða sem taka hátt í þúsund manns hvor. Því er óhætt að segja að á þremur dögum hafi þeir náö að syngja fyrir nokkur þúsund íslendinga og enn meira ef útsending Stöðvar 2 er tekin með. Kórinn fagnar 70 ára afmæli á þessu ári og í vinnslu er heimildarmynd þar sem sögu og starfi kórsins er fléttað saman við mannlíf í Skagafirði. Fyrir dyrum stendur einnig ferð til Græn- lands í sumar. Ljósmyndari DV var á Hótel íslandi og fangaði stemmninguna með meðfylgj- andi myndum. -bjb Þær stöllur Ingibjörg Magnússdóttir, Fanney Gunnarsdóttir og Linda Gunnarsdóttir skemmtu sér konunglega á íslandinu og fannst kórinn aö sjálfsögðu hreint æöi, enda Linda gíft einum kórfélaganum! .inní rvtojs tnnleikana. Mikið umstang hjá foreldrum ungra dansara: Förum alltaf á keppni með börnunum íslendingar hafa tekið miklum framförum i dansinum á und- anfómum árum. Miklu máli skiptir að ungir dansarar fái fulla aðstoð foreldra sinna því það kostar mikinn tíma og peninga að ná langt í dansinum. Foreldramir þurfa að sjá um að fatn- aður bamanna sé finn og fallegur og þeir þurfa einnig að sjá um aö greiða bömunum og snyrta þau. Sumar mömmumar sauma meira að segja skrautlega kjóla á dætur sínar. Meira umstang er yfirleitt í kringum þá sem eiga stelpur heldur en stráka því búningar þeirra em yfirleitt flóknari og íburðar- meiri. „Mér finnst þetta virkilega gaman, sérstaklega vegna þess að þetta gengur svo vel. Ég fer alltaf á keppni með dætrunum og einnig til Blackpool með þeim í vor. Móðir þeirra fer samt oft- ast nær með þeim til útlanda þegar þær eru að keppa,“ segir Hall- dór Lúð- víksson, faöir Hall- dóru Sifj- ar, 11 ára, og Emu, 8 Haildór Lúöviksson sinnir stelpunum sínum, Halldóru Sif og Ernu, en þær sigruöu báöar i sín- um aldursflokki um helgina. ára, sem báðar lentu í fyrsta sæti í sínum aldursflokki. Leikirnir snúast um dans Stelpumar vilja að foreldr- amir fylgist með þeim. Leikir þeirra hafa í langan tíma snú- ist um dans og Halldóra Sif hefur kennt Emu margt. Halldór segir að stelp- umar séu mjög duglegar sjálfar i fjáröflun. Halldóra Sif og Davíð Gill hafa einnig fengið styrki frá ýmsum fyrirtækjum. Móðir Gunnars Más Jónssonar, Margrét Gunnlaugsdóttir, segist taka þátt í allri fjáröflun til þess að styrkja dansarana til að keppa á erlendri grund. Mamman stressaðri „Gunnar Már er yfirleitt mjög rólegur fyrir keppni. Það má segja að móðirin taki þetta meira inn á sig. Það skiptir gríðar- lega miklu máli að bömin finni að foreldramir standi alveg við bakið á þeim,“ segir Margrét. Gunnar Már lenti í þriðja sæti í keppninni um síðustu helgi. „Ég á tvær stelpur og þær hafa báðar stundað dans í tvö ár,“ segir Margrét Guðjónsdóttir, móðir þeirra Hólmfríður og Margrét Guöjónsdóttir greiöir sjálf stelp- unum sínum, Hólmfríöi og Helgu Björns- dætrum, en þær eru báöar íslandsmeistar- ar í sínum aldursflokkum. Fjórir fræknir Heimisfélagar á góöri stund, frá vinstri: Jón Sig- urösson, Rúnar Pétursson, Grétar Geirsson og Einar Halldórs- son frá Kúskerpi sem er einn af einsöngvurum kórsins. son frá Kúskerpi sem er einn af einsöngvurum kórsins. Gunnar Már Jonsson ásamt móöur sinni, Margréti Gunnlaugs- dóttur, og dömunni sinni, Sunnu Magnúsdóttur. Helgu Bjömsdætra. Að sögn Margrétar æfa stelpumar fjórum til fimm sinnum í viku og þarf hún að keyra þær og sækja. Foreldri þarf að vera alltaf tilbúið til þess að skutla bömunum. Gaman að vera foreldri dansara „Stelpumar eru mjög efnilegar og mér heyrist þær eiga framtíðina fyrir sér. Það er mjög gaman að vera foreldri dans- ara og félagsskapurinn er góður. Dansinn er dýrt tóm- stundagaman en vonandi fá dansarar bráðlega styrki vegna þess að við emm að ganga inn í ÍSÍ. Annars þurfum við sjálf að fjármagna utanlandsferðir fyrir bömin okkar,“ segir Mar- grét. Að sögn Margrétar stendur til að krakkamir dansi og afli þannig fjár. -em -. »n» « j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.