Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 23 Iþróttir Iþróttir Fimleikar: Rúnar er í mikilli framför Eins og kom fram í DV í gær stóö Rúnar Alexandersson sig frábærlega á sænska meistara- mótinu í fimleikum sem haldið var í Stokkhólmi um helgina en hann keppti þar sem gestur. Rúnar sigraði í fjölþraut þar sem hann hafði betur gegn Norður- landameistaranum Magnusi Ros- engren. Rúnar hlaut samtals 49,15 stig og næstur á eftir hon- um varð Tobias Ekman frá Sví- þjóð með 48,09 stig. Rúnar sigr- aði á þremur áhöldum. Hann hafði mikla yfirburði í æfmgum á bogahesti og fékk hæstu ein- kunn í æfingum á tvíslá og í hringjum. „Þetta er mjög góður árangur hjá Rúnari og það er ljóst að hann er í mikilli framfór. Þessi sigur er gott veganesti fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer 1 Lausanne í september og fyrir smáþjóðaleikana heima,“ sagði Heimir Gunnarsson, þjálf- ari Rúnars, í samtali við DV í gærkvöldi. -GH Ince búinn að semja? Breskir flölmiðlar hafa komist á snoðir um að Paul Ince sé bú- inn aö ganga frá munnlegu sam- komulagi við Arsenal um að hann gangi til liðs við félagið frá Inter fyrir næsta tímabil. Liverpool og Arsenal hafa á und- anförnum vikum slegist um aö fá Ince í sínar raðir og nú virðist sem Arsenal ætli að hafa betur og þar vegur þungt að fjöld- skylda Ince vill búa i London. Yfirgefur Ronaldo liö Börsunga? Ronaldo, besti knattspyrnu- maöur heims, sagði í gær að hann gæti yfirgefið herbúðir Barcelona eftir tímabilið. „Ég gæti vel hugsaö mér að vera áfram með Barcelona en ég er atvinnumaður og verð að gera það sem ég tel best fyrir mig og þær kringumstæður gætu komið upp að ég færi frá fé- laginu,“ sagði Ronaldo. -GH Valencia tapaði Einn leikur var í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Sporting Gijon vann 2-1 sigur á Valencia. Montpellier í þriðja sæti Geir Sveinsson og félagar hans í Montpellier eru í þriðja sæti í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Um helgina sigr- aði Montpellier lið ACBB á úti- velli, 28-32. Irvy er í efsta sæti jneö 68 stig, Creteil 67, Montpelli- er 63 og París SG. 58. -GH Haukar mæta KA Haukar og KA mætast í und- anúrslitum 1. deildar karla í handknattleik í íþróttahúsinu við Strandgötu klukkan 20.15 í kvöld. Þessi liö áttust við í úrslit- um bikarkeppninnar fyrir skömmu og þá höföu Haukarnir betur. Spumingin er nú hvort KA menn nái að hefna ófaranna. -GH NBA-deildin í körfuknattleik: Nýtt met í óförum hjá liði Boston - LA Lakers vann Nets í nótt Einn leikur fór fram í NBA- deildinni í körfuknattleik í nótt. New Jersey Nets lék á heima- velli sínum gegn Los Angeles Lakers og lauk leiknum með sigri LA Lakers, 84-109. Nick van Exel átti mjög góðan leik fyrir Lakers og skoraði 23 stig, Travis Knight skoraði 18 stig og Eddie Jones var með 16 stig. Lið Lakers þótti leika mjög vel. Nýliðinn Kerry Kittler skoraði 17 stig fyrir New Jersey Nets. Úrslit í NBA-deildinni aðfara- nótt mánudagsins urðu þessi: Orlando-LA Lakers..........110-84 Boston-NJ Nets.............91-100 Toronto-Atlanta.............79-90 Minnesota-Miami ..........108-113 NY Knicks-Portland..........88-94 Utah Jazz-Denver .........120-103 LA Clippers-SA Spurs.......106-91 Vancouver-Seattle..........92-106 Alonzo Mourning, miðherjinn sterki hjá Miami Heat, er farinn að leika á ný með liðinu eftir langvarandi meiðsli. Mourning var í aðalhlutverkinu þegar Miami sigraði Minnesota og skoraði 21 stig. Að auki tók hann 8 fráköst. Tim Hardaway skoraði 22 stig fyrir Minnesota og það sama gerði Voshon Lenard. „Það var gott að fá Mouming aftur í lið- ið. Hann lék mjög vel og við þörfn- umst hans í þeim verkefnum sem fram undan em í deildinni," sagði Pat Riley, þjálfari Miami, eftir leikinn Minnesota. Stephan Marbury var bestur í liði Minnesota og skoraði 27 stig. Tom Gugliotta var með 25 stig og 14 fráköst. Patrick Ewing er óstöðvandi þessa dagana með liði New York Knicks. Hann skoraði 35 stig gegn Portland og var allt í öllu hjá lið- inu. Það dugði þó ekki til og Portland vann 12. sigur sinn í 13 leikjum og vantar nú aðeins einn sigur enn til að komast í úrslita- keppnina 15. árið í röð. Kenny Anderson skoraöi 24 stig fyrir Portland gegn Knicks og Isaiah Rider 23 stig. Orlando átti ekki í neinum erf- iðleikum með að sigra LA Lakers. Nick Anderson skoraði 21 stig og tók 13 fráköst fyrir Orlando, Penny Hardaway 21 og Horace Gr- ant var með 16 stig og jafnmörg fráköst. Karl Malone skoraði enn einu sinni meira en 30 stig í leik í vet- ur er Utah Jazz vann auðveldan sigur gegn Denver. Malone skor- aði 35 stig. John Stockton skoraði 22 stig og gaf 15 stoðsendingar. Antonio McDyess skoraði 24 stig fyrir Denver og LaPhonso Ellis 22. Leikmenn Seattler Supersonics skoraðu 34 stig í fyrsta leikhluta gegn Vancouver og eftirleikurinn reyndist auðveldur. Shawn Kemp og Gary Payton fóru fyrir liði Seattle að venju. Payton skoraði 31 stig, tók 6 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Kemp skoraði 18 stig og tók 6 fráköst. Mookie Blaylock skoraði 18 stig fyrir Atlanta gegn Toronto, Steve Smith var með 17 stig og Christi- an Laettner 15. Hjá Toronto var nýliðinn Marcus Camby stiga- hæstur með 37 stig og var yfir- burðamaður hjá Toronto. Sam Cassell skoraði 30 stig fyr- ir New Jersey Nets gegn Boston. Hiö fomfræga stórveldi, Boston Celtics, hefur nú tapað 57 leikjum á tímabilinu og hefur aldrei geng- ið eins illa í sögu félagsins. -SK Rasheed Wallace í liði Portiand reynir að verja skot frá Larry Johnson í leik Portland og New York Knicks sem Portland vann. Símamynd Reuter Undanúrslitin í 1. deild karla í handknattleik: „Kjúklingarnir“ sterkir - deildarmeistararnir áttu ekki í vandræðum með Framara í fyrsta leik liðanna Afturelding(U) 23 Fram (7) 17 2-0, 2-1, 5-2, 8-4, 9-5, 9-7, (11-7), 13-7, 13-8, 16-9, 19-10, 20-15, 22-17, 23-17. Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson 9, Sigurjón Bjamason 4, Ingimundur Helgason 4, Páll Þórólfsson 4, Sigurður Sveinsson 1, Gunnar Andrésson 1. Varin skot: Bergsveinn Berg- sveinsson 14. Mörk Fram: Njörður Ámason 4, Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 3, Páll Þórir Beck 3, Oleg Titov 2, Daði Hafþórsson 2, Ármann Þór Sigurvinsson 1, Guðmundur Helgi Pálsson 1, Sigurður Guðjónsson 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 11. Brottvlsanir: Afturelding 4 mín., Fram 4 mín. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, höfðu góð tök á leiknum. Áhorfendur: Um 500. Maður leiksins: Bjarki Sigurðs- son, Aftureldingu. Næsti leikur liðanna er í Fram-húsinu annað kvöld klukkan 20. Mosfellingar, sem komu til að sjá sína menn taka á móti Frömurum í gærkvöldi, höfðu ástæðu til að fagna í lokin. Heimamenn sýndu geysilega góðan leik, tóku strax forystuna með fyrsta marki leiksins og má segja að þeir hafi aukið við hana jafnt og þétt allt til loka leiksins. Framarar byrjuðu vamarleikinn með 5-1 vörn en heimamenn áttu ekki í vandræðum með að spila sig í gegnum hana og skapa sér opin færi sem þeir nýttu vel. Afturelding spilaði síðan mjög sterkan vamarleik, var fóst fyrir og gekk eins langt og dómaramir leyfðu. Á sama tíma var sóknarleikur gestanna engu betri en vamarleikur þeirra og þeir gerðu aðeins 3 mörk fyrstu 15 mínútur leiksins. Þeir breyttu síðan vöminni í 6-0 en þá tóku bara skyttur heima- manna við sér. Þeir höfðu því góða forystu í leikhléi, 11-7. Síðari hálfleikur hófst síðan nákvæmlega eins og sá fyrri endaði. Heimamenn héldu áfram af fúllum krafti á meöan FramclrcU• fundu engan veginn rétta taktinn í spil sitt og áttu í miklum erfiðleikum og þá sér í lagi í sókninni. Heimamenn færðu vöm sína framar og náðu að klippa algjörlega á spil og leikkerfi gestanna og uppskára oftar en ekki hraða- upphlaup í stað þess að Framarar kæmu skoti á markið. Mestur varð munurinn á liðunum 9 mörk í stöðunni 19-10, um miðjan síðari hálfleik, og sigur heimamanna nánast í höfn. Gestimir gáfust þó ekki upp og náðu að minnka aðeins muninn og lokastaðan varð 23-17 Aftureldingu í vil. Góöur varnarleikur heimamanna Heimamenn spiluð allir vel í þessum leik. Þeir áttu aldrei i neinum vandræðum með gestina og lögðu grunninn að öraggum sigri sínum með mjög góðum varnarleik. Bjarki Sigurðsson var þeirra atkvæðamestur með 9 mörk og mörg hver stór- glæsileg. Bergsveinn varði einnig vel í markinu. Framarar náöu ekki saman Það er hins vegar ýmislegt sem Framarar þurfa að laga fyrir næsta leik liðanna ef þeir ætla sér að mæta aftur í Mosfellsbæinn í þriðja leikinn. Eins og fyrr segir var vandræða- gangur bæði í sókn og vörn og liðið náði engan veginn jafnvel saman og það hefur oft gert og sýnt. Liðið getur miklu meira og betur og ætlar sér örugglega stærri hluti á heimavelli í næsta leik þar sem það er enn taplaust í vetur. Atkvæðamestur Framara í gærkvöldi var Njörður Árnason með 4 mörk og Reynir var ágætur í markinu. -ÖB Afturelding-Fram 1-0 Páll Þórólfsson hefur leyst skyttuhlutverkið vel með Aftureldingu. Hann er hér að skora eitt af fjórum mörkum sínum gegn Fram að Varmá í gærkvöldi. Oleg Titov er til varnar og Bjarki Sigurðsson, besti maöur leiksins, fylgist spenntur með. DV-mynd Brynjar Gauti Liverpool gefur ekkert eftir - í toppbaráttuni eftir sigur á Arsenal, 2-1 Liverpool ætlar að vera með á fullu í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspymu en liðið minnkaði forskot Manchest- er United niður í þrjú stig í gær- kvöldi með því að leggja Arsenal að velli í toppslag úrvalsdeildar- innar á Highbury, 2-1. Leikurinn var hraður og fjörug- ur og bæði lið spiluðu stíft til sig- urs. Eftir markalausan fyrri hálf- leik kom Stan Collymore Liver- pool yfir snemma í síðari hálfleik og náði þar með að bæta fyrir þrjú gullin færi í fyrri hálfleik sem hann misnotaði. Collymore skoraði af stuttu færi eftir að Dav- id Seaman hafði misst skot Stigs Inge Bjömebyes frá sér. Það var síðan Jason McAtaeer sem kom Liverpool í tveggja marka forystu. Liverpool fékk dæmda mjög vafasama víta- spyrnu þegar Robbie Fowler féll í vítateignum eftir að hafa leikið boltanum fram hjá David Seam- an. Dómarinn benti á vítapunkt- inn þrátt fyrir mikil mótmæli frá leikmönnum Arsenal og ekki var að sjá betur en að Fowler geröi slíkt hið sama. Fowler tók spym- una sem Seaman varði en McAteer náði frákastinu og skor- aði. Eftir markið þyngdist sókn Arsenal jafnt og þétt og 10 mínút- um fyrir leikslok minkaði Ian Wright muninn þegar hann vipp- aði laglega yfir David James, markvörð. Það stefnir því allt í einvígi Manchester United og Liverpool um meistaratitilinn og ekki ósennilegt að úrslitaleikurinn verði þegar þessi lið mætast á An- field Road í Liverpool þann 19. apríl. Á hinum enda stigatöflunnar gerðu Middlesbrough og Notting- ham Forest 1-1 jafhtefli í miklum fallbaráttuslag þar sem Norður- landabúar vora á skotskónum. Normaðurinn Alf Inge Háland kom Forest yfir eftir þunga sókn Forest en Daninn Mikkel Beck jafnaði metin eftir frábæran und- irbúning Juninhos. -GH Jason McAteer skoraði síðara mark Liverpool gegn Arsenal. Titillinn í sjónmáli hjá Grindvíkingum - Suöurnesjastúlkur lögöu KR-inga ööru smni DV, Suöumesjum: Kvennalið Grindvíkinga, sem komið hefur svo skemmtilega á óvart, hélt sig- urgöngu sinni áfram í gær þegar liðið lagði KR í öðrum úrslitaleiknum um ís- landsmeistaratitilinn. Þar með era Grindavíkurstúlkur komnar með tvo vinninga gegn engum og íslandsmeist- aratitillinn er því í sjónmáli hjá liðinu en með sigri í næsta leik er titillinn þeirra. „Það er enn og aftur gamla góða vöm- in sem er að skila okkur sigrinum. Viö ætlum okkur að klára þetta í næsta leik og sá leikur verður erfiðastur af öllum. Það hefur ekki gengið vel hjá okkur í vet- ur en nú erum við að toppa á réttum tíma,“ sagði Stefanía Ásmundsdóttir, leikmaður Grindvíkinga, sem spilað hef- ur geysilega vel í úrslitakeppninni. Grindvíkingar byrjuðu leikinn mjög vel með öflum vamarleik og á eftir fylgdi skemmtilegur sóknarleikur sem endaði með hverri glæsikörfúnni á fætur annarri. Grindvíkingar komust í 5-0 og síðan komu sex 3ja stiga körfúr í röð á 7 mínútna kafla og staðan 23-8. Þessi góða byrjun setti KR-inga út af laginu og þeir náðu aðeins að gera 10 stig á 17 minút- um. KR-ingar náðu að gera 11 stig í röð í upphafi síðari hálfleiks og minnka mun- inn í 4 stig. KR-stelpumar dekkuðu mun framar með góðri vöm og náðu að stöðva fyrir 3ja stiga skotin sem þær gerðu ekki í fyrri hálfleik. Penni Peppas tók þá til sinna ráða og upp á sitt eindæmi skoraði hún körfúr fyrir Grindvíkinga. Grinda- vík skoraði 10 stig í röð eftir að KR hafði minnkað muninn í 4 stig og eftir það var sigurinn í höfii. „Það var mjög erfitt að fá 6 þriggja stiga körfúr í röð á sig og það fór mikil orka í að vinna muninn upp. Þær vinna okkur ekki 3-0,“ sagði Helga Þorvalds- dóttir, fyrirliði KR. Peppas átti frábæran leik í sterkri liðs- heild Grindvíkinga en KR-stúlkumar náðu sér ekki fyllilega á strik og vora ekki með sjálfstraustið í lagi. -ÆMK Grindavíkurstúlkur hafa haft ástæðu til að fagna að undanförnu og nú stefnir allt í að Grindavík verði íslandsmeistari í 1. deild kvenna eftir sigur á KR-ingum í gærkvöldi. DV-mynd Ægir Már IA vill fá 56 milljónir fyrir Bjarna í textavarpi Sky Sport fréttastofunnar í gær kom fram að Skagamenn vilja fá 500 þúsund pund fyrir Bjama Guðjónsson eða um 56 milljónir króna. Ekki þykir líklegt að Skagamenn fái sínu framgengt. Liklegt er að Newcastle sé reiðubúið að greiða milli 10 og 15 milljónir króna fyrir Bjama og sú tala getur síðan hækkað standi hann sig hjá félaginu. Á Sky sport var einnig greint frá því að Kenny Dalglish, fram- kvæmdastjóri Newcastle, væri í þann veginn að ganga frá sínum fyrstu leikmannakaupum síðcm hann tók við liðinu af Kevin Keegan. Þar er átt við Bjarna og haft er eftir Dalglish að hann hafi hrifist af frammistöðu hans þegar hann var hjá félaginu til reynslu fyrir skömmu. „Við eigum von á honum fljótlega til okkar og þá verður vonandi gengið frá samningum," sagði Dalglish. Bjami mun þvi væntanlega skrifa undir hjá Newcastle á næstu dögum en þó svo að félögin gangi frá samningum á hann eftir að ganga frá sinum samningi við félagið. Hann er staddur í Skotlandi í keppnisferöalagi meö ÍA og ráðgert er að hann fari þaðan til Newcastle -GH Hlynur.skoraði fyrir Orebro Hlynur Birgisson skoraði eitt af mörkum Örebro þegar liðið lagði Gimonese, 1-4, i 16-liða úr- slitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í fyrrakvöld. Örebro er því komið áfram í keppninni svo og Elfsborg, lið Kristjáns Jónssonar, sem sigraði Grimsos, 0-1, og Örgryte, lið Rúnars Kristinssonar sem vann 0-1 sigur á Nacka. -GH iHOIAND Arsenal-Liverpool.......1-2 0-1 Collymore (50.), 0-2 McAteer (65.), 1-2 Wright (78.) Middlesbrough-Nott. Forest . . 1-1 0-1 Haland (4.), 1-1 Beck (56.) Man. Utd 31 18 9 4 61-33 63 Liverpool 31 17 9 5 53-26 60 Arsenal 32 16 9 7 52-28 57 Newcastle 30 15 7 8 59-36 52 Sunderland 32 8 9 5 29-48 33 Middlesbr 31 9 8 14 44-52 32 Nott. Forest 33 6 13 14 28-49 31 Coventry 32 6 12 14 27-46 30 Southampton31 6 9 16 39-51 27 Gríndavík (32) 59 KR (17) 47 5-0, 5-2, 11-2, 20-8, 26-8, 28-10, 28-15, (32-17), 32-28, 42-28, 44-34, 51-34, 51-56, 55-36, 57-43, 59-47. Stig Grindavíkur: Penni Peppas 20, Stefania Ásmundsdóttir 11, Anna Dís Sveinbjömsdóttir 9, Rósa Ragn- arsdóttir 9, Sandra Guðlaugsdóttir 6, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2, María Jó- hannesdóttir 1, Christine Buchhholz 1. Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 14, Kristín Jónsdóttir 11, Kristín Magn- úsdóttir 8, Sóley Sigþórsdóttir 6, Ge- orgia Olga Kristiansen 4, Guöbjörg Norðijörð 3, Sólveig Ragnarsdóttir 1. Fráköst: Grindavík 38, KR 38. 3ja stiga körfur: Grindavík 16/7, KR 13/1. Vítanýting: Grindavík 23/18, KR 24/12. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Kritján Möller, dæmdu vel. Áhorfendur: 450. Maður leiksins: Penni Peppas, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.