Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 36
> C3 O FRÉTTASKOTIÐ CC r—> u_i — SÍMINN SEM ALDREI SEFUR ^ LTD *=C Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fuilrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. oo 1— LTD 1— 550 5555 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 'V Friðrik Sophusson: Bætur hækka í takt við almennar hækkanir „Mér líst auðvitað vel á að búið sé að leysa verkfallið og ná vinnu- friði með kjarasamningum til langs tíma. Það gefur auðvitað vonir um að hægt verði að halda efnahagsleg- um stöðugleika næstu árin. Sá stöð- ugleiki er forsenda þess að hægt sé að auka kaupmátt hér,“ segir Frið- rik Sophusson fjármálaráðherra. Aðspurður um hver kjör öryrkja og ellilífeyrisþega verði í kjölfar samninganna segir Friðrik að ríkis- stjómin hafi lýst því yfir að hún muni hækka bætur almannatrygg- ingakerfisins í takt við þá almennu hækkun sem verði í kjarasamning- um. „Það er ekki endanlega frágeng- ið i hvaða formi sú hækkun verður en það verður vafalítið gengið frá því á næstunni," segir Friðrik. -RR Halldór Ásgrímsson: Erfitt fyrir ríkissjóð „Mér list að sjálfsögðu vel á að það sé búið að semja. Þau verkfóll sem voru hafin hefðu ekki getað endað með öðru en að rýra tekjur fólks. Mér sýnist að um verulegar hækkan- ir sé að ræða á lægstu töxtunum sem mér finnst vera mjög jákvætt. Það er verið að semja um meiri kaupmátt- araukningu en oftast áður í íslenskri efnahagssögu," segir Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra. „Ég á von á að þessir samningar verði erfiðir fyrir ríkissjóð í sam- bandi við fjárlagagerð og gert er ráð fyrir verulegum skattalækkunum. Þessir samningar þýða áframhald- andi aðhald í ríkisbúskapnum og ekki víst að allir geri sér grein fyrir því. Það á eftir að fara yfir fjárhags- dæmi í sambandi við kjör örorku- og ellilífeyrisþega og þar skiptir nið- urstaða fiárlaga miklu máli. Ég get ekki svarað um það á þessari stundu,“ segir Halldór. -RR Bensín á ný Bensín var afgreitt á öllum bens- ínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu í morgun en unnið var við að dreifa bensíni til stöðvanna í alla nótt. Reyndar tókst ekki að stútfylla tankana en unnið verður að því í dag vegna páskaumferðarinnar sem fram undan er. Hjá Olíufélaginu var DV tjáð að bílar væru farnir austur yfir fiall og til Suðurnesja með bensín en bens- ínlaust var orðið frá Hvalfirði og austur til Hafnar í Hornafirði. -hlh Hreinsun á drasli úr Víkartindi hefst í dag: Stjórnvöld féllu á prófinu - segir Heimir Hafsteinsson, oddviti í Þykkvabæ „Þetta strand hefur verið ein sorgarsaga. Þeir sem áttu að gripa inn í atburðarásina hafa ýmist ekki gert það eða allt of seint. Ég segi að menn séu runnir út á tíma og þetta er búið, stríðið er tapað,“ segir Heimir Hafsteinsson, oddviti í Þykkvabæ, í samtali við DV í morgun. „Allt í sambandi við þetta strand hefur verið þvílík endileysa að manni blöskrar. Málið hefur snúist um krónur og aura og enginn hef- ur greinilega þorað að taka af skar- ið og gera nokkurn skapaðan hlut fyrr en eitthvert sérfræðingastóð hefur sagt álit sitt. Það sem mér gremst þó mest er að íslensk stjórnvöld skuli ekki frá fyrstu tíð hafa tekið af skarið með hvað gert yrði, hvernig að allri hreinsun og olíulosun yrði staðiö og þar fram eftir götunum. Þau gátu síðan sótt kostnaðinn til eigenda og trygging- araðila skipsins. Þetta gerðu þau ekki og standa uppi á nýju fótum keisarans og eru eitthvað að reyna að klóra yfir það,“ segir Heimir. Hann segir að hreinsun nú verði aldrei annað en yfirklór. Hreinsun á rusli sem borist hef- ur úr Víkartindi síðan hann strandaði i Háfsfiöru sunnan Þykkvabæjar hefst í dag að sögn Friðjóns Guðröðarsonar, sýslu- manns Rangárvallasýslu. Sýslu- maður sagði í morgun i samtali við DV að þetta heföi verið ákveð- ið á fundi í gærdag. Ingólfur Waage lögreglumaður var á vakt á strandstað Vikartinds í nótt. Hann sagði að halli skipsins væri óbreyttur frá því sem var í gærkvöldi en fleiri gámar á þilfari skipsins hefðu losnað í nótt en ekki farið í sjóinn enn þá. „Þeir hanga nánast á lyginni, en í það minnsta einn hefur opnast og draslið úr honum er að berast á land,“ sagði Ingólfur. „Ég hef látið þau skilaboð fara frá mér að mér finnist aðgerðir á strandstað ganga með ólíkindum rólega og ég skil ekki af hverju, því að nokkuð er síðan samið var við ákveðinn verktaka um að fara í hreinsun á rusli. Mér var síðan sagt það seint í gærkvöldi að hreinsun hæfist í dag, en án skýr- inga á því hvers vegna það hófst ekki I gær. Það var í vikunni samið við aðila um að reyna að losa farm- inn. Út af fyrir sig hefur aOtaf eitt- hvað verið að gerast, en allt of hægt.“ sagði Guðmundur Bjarna- son umhverfisráðherra. -SÁ Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, hringir hér í fyrirtæki sitt og tilkynnir að dælubílarnir megi fara af staö þar sem verkfallinu sé lokiö. Viö hliö hans er Siguröur Pálmason, Hagkaupi. DV-mynd Hilmar Þór Mjólkurfræðingar: Sömdu í nótt á svipuðum nótum og aðrir „Við sömdum á svipuðum nótum og hin stéttarfélögin eða til febrúar 2000. Grunnkaupshækkanirnar eru svipaðar og hjá öðrum - heildarút- koman er í sömu prósentutölu á bil- inu 12-14 prósent. Þeir yngri fá meira en það er nánast hægt að kópera þennan samning miðað við aðra,“ sagði Geir Jónsson, formaður Mjólkurfræðingafélags íslands, við DV í morgun en skrifað var undir samninga við félagið skömmu fyrir klukkan átta. Þá var Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari búinn að vaka í 48 klukkutíma. Hann sagði þá við DV að samningalotan með mjólk- urfræðingunum hefði verið erfið en almennt séð hefði gengið vel í nótt. Eftir að Þórir lauk samtalinu við DV sagðist hann ætla heim að sofa. -Ótt Léttmjólk og nýmjólk í verslanir í dag „Við leggjum allt kapp á að koma léttmjólk og nýmjólk í verslanir í dag. Vinnan við átöppun hófst í gærkvöldi og heldur áfram í dag. Líklega eru það um 150 þúsund litr- ar sem þarf að dreifa í verslanir," segir Baldur Jónsson, framkvæmda- stjóri sölusviðs Mjólkursamsölunn- ar. Baldur segir að eitthvað af rjóma komi í verslanir á morgun en ekki sé vitað hvað mikið. Hann segir að þar sem mjólkurfræðingar hafi sam- ið í nótt muni ástand á mjólkur- markaði verða eðlilegt mjög fljót- lega en það taki tíma að koma sér- vöru í verslanir á ný. -jáhj Alvarlegt um- feröarslys Ekið Vcir á þrítuga konu sem var á gangi yfir Kringlumýrarbraut norðan Miklubrautar um kl. 21.30 í gærkvöld. Konan var flutt á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur og síðan meðvitundarlaus á gjörgæslu. Hún var í rannsóknum í nótt og er hald- ið sofandi. Konan mun hafa hlotið höfuðáverka og var eitthvað brotin á hrygg sem læknir á slysadeild sagði menn þurfa að skoða betur í dag. Hann sagði konuna ekki lífs- hættulega slasaða. -sv L O K I Veðrið á morgun: Léttir til syðra Á morgun verður norðan stinningskaldi eða allhvasst og snjókoma eða él á norðanverðu landinu en léttir til syðra. Vægt frost verður víðast hvar. Veðrið í dag er á bls. 36 Kvöld- og helgarþjónusta brother. tölvu- límmiöa- prentari Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.