Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 Spurningin Hvaö ætlar þú aö boröa á páskadag? Hrafn Pálsson ráðnneytisstarfs- maður: Ég ætla að borða svínalæri með öllu tilheyrandi. Anna M. Hálfdánardóttir af- greiðslukona: Venjan er að borða lambahrygg eða lambalæri að göml- um góðum sið og ég á ekki von á að þar verði breyting á. Sigurberg Bogason: Ég á von á því að í matinn verði léttreyktur hangi- frampartur. Sigurður Guttormsson nemi: Ég veit ekki ennþá hvað ég fæ að borða. Pétur Darri Sævarsson nemi: Ætli ég láti ekki páskaeggið duga. Atli Freyr Friðbjörnsson nemi:Ég hef örugglega ekki lyst á mat eftir að hafa boröað páskaeggið. Lesendur Körfuknattleiks- lýsingar í sjónvarpi - RÚV hefur vinninginn Frá bikarúrslitaleiknum í kvennakörfuknattleiknum. Kolbrún Jónsdóttir skrifar: Ég er ein af mörgum körfubolta- manneskjum sem hef verið mjög óá- nægð með frammistöðu Stöðvar 2 og Bylgjunnar í vetur varðandi sýn- ingar og lýsingar af leikjum í ís- lenskum körfuknattleik. RÚV hefur sinnt handknattleikjum miklu bet- ur en Stöð 2 og Bylgjan. Körfuknatt- leikssambandið á að vita, að lýsing- ar og sýningar leikja eru eitt besta vopn útbreiðslustarfseminnar. í fyrsta lagi voru í vetur tveir fastir dagar í viku fyrir leiki í DHL- deildinni, þ.e. fimmtudagar og sunnudagar, og var aldrei lýst leikj- um sem fram fóru á fimmtudögum, og ekki einu sinni úrslitunum kom- ið að. - Þama hefur RÚV vinning- inn. 1 öðru lagi finnst mér lélegt að geta ekki verið með stutta þætti á Stöð 2 að kvöldi, eftir hvert leikkvöld, þar sem sýndir væru kaflar úr þeim leikjum sem hægt er að komast yfir að taka upp fýrr um kvöldið, líkt og RÚV gerir í hand- boltanum. Sá vikulegi þáttur sem sýndur er á sunnudegi ki. 13.00 er á óhentugum tíma, auk þess sem þá eru leikimir sem sýnt er úr, orðnir gamalt efni. - Þama hefur RÚV vinninginn. Kvennakörfuknatt- leiknum hefur ekkert verið sinnt í vetur utan hvað sýndur var síðari hálfleikur af bikarúrslitaleiknum. - Þama hefur RÚV einnig vinning- inn. Fram af mér gekk svo mánudags- kvöldið (17. 3.) þegar tveir leikir fóm fram í undanúrslitum í 1. deild kvenna. Ég settist spennt fyrir framan sjónvarpið rétt fyrir kl. 22.30 til að fylgjast með úrslitunum, enda Stöð 2 loks komin með kvöld- fréttatíma. Ég bjóst við umfjöllun um leikina. En nei; Stöð 2 sýndi kafla úr leik í úrslitakeppni í hand- knattleik karla en sagði ekki einu sinni frá úrslitum úr leiknum í und- anúrslitum kvenna í körfuknattleik. Ég beið eftir fréttum RÚV, þar var sagt frá þessum óvæntu úrslitum, sem hljóta að teljast markverð. - Enn hafði RÚV vinninginn. Að lokum vil ég rétt minnast á kvöldið þriðjud. 18. þ.m. Ég var að hlusta á lýsingu Valtýs Björns á Bylgjunni, á fyrri hálfleik í leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum í DHL- deildinni. Þar lýsir hann fjálg- lega stórglæsilegri troðslu Roney Eford á lokasekúndu fyrri hálfleiks, og segir jafnframt: „Ég skal lofa ykkur því að þessa troöslu fáið þið að sjá í kvöldfréttatimanum á Stöð 2 í kvöld, ég lofa ykkur því.“ En, í kvöidfréttatíma Stöðvar 2 voru sýndar u.þ.b. 30 sek. af lokakafla leiksins! - Með körfuboltakveðju og von um að Stöð 2 og Bylgjan fari að standa sig betur. Kæn Dagsbrúnarforysta Magnús Sigurðsson skrifar: Sumir hafa látið að því liggja að forysta Dagsbrúnar, einkum for- maðurinn, hafi gert glappaskot er hann lét kalla til hina svokölluðu stóru samninganefnd félagsins og Framsóknar inn eftir að undirrit- un samninga var afstaðin - til þess eins að fella samkomulagið - eins og þessir sumir kalla það. Hér er mikill misskilningur á ferð. Avallt er skrifað undir kjara- samninga með fyrirvara áður en þeir eru samþykktir endanlega. Það hefði verið hrein tímasóun að láta boða til stórfundar um málið. Samkomulagið hefði verið fellt þar. En hvers vegna var þá skrifað undir svona samning? spyrja menn. Formaðurinn gat ekki ann- að. Og með þessu einu móti gat hann sýnt fram á hversu óraun- hæft var að semja á þessum nót- um. Það er svo ókurteisi af fram- kvæmdastjóra VSÍ að nota orðið „úlfahjörð" um viðsemjendur sína. Raunar væri ástæða til að víta framkvæmdastjórann harðlega fyr- ir mjög óviðurkvæmilega fram- komu gagnvart viðsemjendum sín- um, einkum í orðavali, á opinber- um vettvangi. Fríkortið og notagildi þess: Hvað er fólk að kvarta? Parketið fyrir 180.000 kr. gaf hjónunum fría máltíð á veitingahúsi í kaupbæti. Elín Ragnarsdóttir skrifar: Undarlegt að fólk skuli ekki sjá kosti fríkortsins margumrædda. Ég fór á milli verslana til að kanna verð á parketi. Ekki er mikill verðmunur milli fyrirtækja. Útslagið gerði þó að hjá Húsasmiðjunni fékk ég frí- punkta. Eftir því sem þar er staðhæft fæ ég tvöfalda punkta fram að mán- aðamótum, þannig að fyrir hvern þúsundkall fæ ég 100 punkta. Parket- ið sem ég keypti á u.þ.b. 180 þúsund kr. gefur mér hvorki meira né minna en 18.000 punkta fyrir vikið. Ég og maðurinn minn fengmn því kaup- bæti og forurn bæði út að borða um helgina. Þetta kostar okkur 15.000 punkta, og því eigum við 3000 punkta eftir. Auk þessa erum við hjónin í ís- landsbanka, sem gefur punkta í hvert sinn sem við notum kortin. (við not- um eingöngu kort). Allt stefnir þvi í að við munum safna hratt og örugg- lega, og náum að fara reglulega út aö boröa. - Munaður sem við höfum ekki getað leyft okkur til þessa. Það er þvi hreinn bónus að versla þar sem við fáum frípunkta. Og annað mál: það virðist vera stórfurðulegur hugsunarháttur hér á landi gagnvart svona fyrirtækjum. Við bjuggum í Bandaríkjunum um tíma, og þar fagnar almenningur ef fyrirtækjum gengur vel, og þess held- ur ef þau verðlauna viðskiptavini sína. Hér virðist hins vegar hlakka í fólki ef fyrirtækin ganga illa, og orð- ið „hagnaður" er eins og hvert annað blótsyrði. Fólk áttar sig ekki á því að fyrirtækin sem gengur vel halda uppi framþróun, atvinnu og velmegun I þjóðfélaginu. Ég lít á framtak þessara fýrirtækja sem af hinu góða, og í þágu neytenda. H>V Á brúsa og tunnur: Gagnslaus laga- setning Reynlr hringdi: Ég man ekki betur en lög mæli svo fyrir að ekki megi geyma bens- ín í hýbýlum manna. Þó horíir lög- reglan á að menn kaupi bensín þessa dagana á brúsa, tunnur og hvers konar ílát sem finnast. Fólk- ið fer með þetta heim og geymir í kjöllurum, skúrum eða bara í bíln- um. Ljótt er að sjá menn kaupa bensín á marga brúsa, setja þá í skottið og aka svo af stað, jafnvel með barn í bílnum. Ekki þarf að spyrja að leikslokum ef á þennan bU yrði keyrt harkalega. Herleiðing ís- landsbanka Gunnar Kristjánsson skrifar: Ekki linnir uppákommn hjá ís- landsbanka. Segja má að flest verði honum að vopni ógæfunnar. Kona lokast í anddyri hans tU lengri tíma, fólk kvartar yfir röng- um gjörningum bankans og nú er hann kominn í afar slæma klípu að mínu mati er hann hvetur neyt- endur tU að versla við viss fyrir- tæki. íslandsbanki, og reyndar hvaða annar banki sem er, er Ula í stakk búinn tU að hvetja fólk ttl viðskipta við eitt fyrirtæki um- fram annað. Bankinn ætti nú að taka sér verulegt siðferðUegt tak. Ferðamálaráð og Flugleiðir í morgunþættí Hannes Jónsson skrifar: Ég hlustaði á viðræður miUi talsmanns Flugleiða og Ferða- málaráðs á Rás 2 sl. fostudags- morgun. Ég bjóst við málefnaleg- um umræðum undir stjóm hins glögga fféttamanns, Gissurar Sig- urðssonar, um hagsmuni íslenskra neytenda. En, æ, hvað var nú þetta: Þátturinn varð létt en Ijúft karp miUi talsmanna Flugleiða og Ferðamálaráðs um eðli og gUdi kynningar Flugleiða/Ferðamála- ráðs á erlendri grundu. Hvers vegna er aldrei rætt mál málanna, hin háu gjöld sem íslendingar verða að greiða til að komast úr landi? Snýst ekki málið um neyt- endur? En þátttakendumir þrír létu sér vel líka umræður.ar. Út úr þeim kom ekkert bitastætt. Og átti kannski bara að vera þannig? Pétur, Júlíus - og báturinn Hafstein Sigurður Magnússon skrifar: Það er ekki einleikið hvað Dag- ur-Tíminn tekur upp hanskann fyrir aUa sem hafa eftirnafhið Haf- stein. Ritstjórinn, einn „Hafstein- inn“ er svo yfir og aUt um kring og bætir aUt upp með góðum leiður- um, sem eru oft bæði smellnir og stinga á mörgu kýlinu. Hitt, að „umsorga" sérstaklega fyrir Pétri, Júlíusi - og meira að segja björg- unarbátnum Hafstein, það eru svona eins konar eftirsleikjur ætt- arveldisáranna. AUs ekki óalandi, bara skemmtUeg skrumskæling. Ríkisstjórn ætíð ábyrg Þórir skrifar: Ýmist er hvatt tU að ríkis- stjómin komi beint að samninga- málunum eða hún haldi sig tU hlés. Auðvitað er það rétt sem Guömundur Bjarkarpabbi sagði: Við verðum að vita hvað ríkis- stjómin ætlar að gera eftir samn- inga, hún getur hrifsað aUt tU baka með nýjum sköttum. Ég segi: Ríkisstjóm er ætíð ábyrg, ekki síst í slíku krísuástandi og nú. Og enn hefur hún aðeins spU- að út lágspilum. Hún gæti gert miklu meira og unnið sér veru- legt traust borgaranna væri hún verulega samstæð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.