Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 25 DV Fréttir Samþykktir Alþýðubandalags og Framsóknarflokks: Ingibjörg Sólrún verði borgarstjóra efni R-listans Alþýðubandalagið í Reykjavík samþykkti á laugardag að halda áfram samstarfi um Reykjavikur- iistann og að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir verði borgarstjóraefni R-list- ans. Hvort flokkarnir í samstarfinu efna til prófkjörs hefur ekki verið ákveðið. „Aðalatriðið er að ákveða að vinna áfram saman og að við mun- um ekki berjast innbyrðis um borg- arstjóratitilinn. Prófkjör eða upp- röðun á lista er tæknileg útfærsla sem er ýmist unnin innan flokk- anna eða sameiginlega. Það er bara handavinna," segir Guðrún Agústs- dóttir, fulltrúi Alþýðubandalags í borgarstjórn og forseti borgarstjórn- ar. Sama ályktun var samþykkt á fundi hjá Framsóknarflokki á laug- ardegi. Fulltrúar allra flokka sem standa að R-listanum höfðu áður ákveðið á sameiginlegum fundi að hver flokkur kæmi með sömu yfir- lýsingu. Ingibjörg Sólrún hefur ver- ið með í málinu frá upphafi, segir Guðrún. „Fyrst fannst mér að Ingibjörg Sólrún ætti að vera í 1. sætinu og Loðnuveiðar á lokastigi leiða listann en það kom fram í við- tali í DV að hún vilji vera áfram í 8. sætinu og standa og falla með því. Ég virði þá ákvörðun hennar og flnnst hún miklu djarfari," segir Guðrún Ágústsdóttir. -jáhj Bragðgóður simaleikur Svaraöu fjórum léttum spumingum í síma og þú getur unniö Ijúffenga fjölskyldumáltíð frá BK-kjúklingi KIi KJUKLINGUR Verö 39,90 minutan DV, Akureyri: Hver nýr dagur kann nú að vera sá síðasti á loðnuvertíðinni, en ver- tíðin er orðin ein sú allra besta hvað aflamagn varðar frá upphafi loðnuveiða hér við land. Skipum sem enn eru að veiðum hefur farið fækkandi undanfama daga, en þau sem enn eru að voru við veiðar grunnt út af Snæfellsjökli um helgina. Þar voru skipin að fá 50-70 tonna köst þegar best lét, en loðnan sem veiðst hefur er að lang- mestu leyti hængar. Fyrir helgina nam heildarloðnu- aflinn á vertíðinni rúmlega 1100 hundruð þúsund tonnum og voru þá óveidd um 160 þúsund tonn af út- gefnum kvóta. -gk Skíðavika 97 hafin Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri ísafjaröarbæjar, setti Skíða- viku 97 í íþróttahúsinu á Torfnesi á sunnudaginn og lýsti þeirri von sinni að fegurð daganna sem í vændum eru geri okkur öll að betri manneskjum. Ásthildur Cesil Þórðardóttir, for- maður Skíðavikunefndar, kynnti að því búnu ýmis skemmtiatriði sem boðið var upp á við þetta tækifæri, en hóf þá dagskrá með eigin söng á bráðskemmtilegum texta sem samin var um skíðaviku fyrir um 35 árum. Þá söng karlakór og sönghópurinn sem lengst af hefúr verið nafhlaus en heitir nú Söngfjelagið úr Neðsta. Einnig fluttu grunnskólakrakkar leikritið Flugferðin til ísafjarðar. í íþróttahúsinu voru einnig uppi sölubásar handverksfólks, auk þess sem boðið var upp á veitingar og um kvöldið fóru fram í húsinu tón- leikar með Emilíönu Torrini, KK og Stefáni Hilmars. „Undh-búningurinn hefur gengið mjög vel,“ sagði Ásthildur við blaðamann. „Það hafa engin meiri háttar vandamál komið upp, en þetta er alltaf erfitt starf. Það verð- ur mjög mikið um að vera á Skíða- viku og auk gömlu atriðanna, sem eru orðin að fóstum liðum á Skíða- viku, eru alltaf að bætast ný atriði við.“ - Er búist við mörgum gestum? „Já, ég á von á því. Fyrir helgina var orðið fullbókað í flug fram á miðvikudag." -HK Miðvikudaginn 9. apríl mun aukablað um vörubíla og vinnuvélar fylgja DV. Blaðiö veröur fjölbreytt og efnismikið en í því veröur fjallað um flest það er viðkemur vörubílum og vinnuvélum. MeÖal efnis verða kynningar á nýjungum í greininni. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsam- lega hafi samband við Gústaf Kristinsson í síma 550 5731. Umsjón efnis er í höndum Jóhannesar Reykdal og Sigurðar Hreiöars í síma 550 5000. Vinsamlegast athugiÖ aÖ síSasti skiladagur aug- lýsinga er fimmtudagurinn 4. apríl. Tóku dekk- in og vatns- kassann Þeir voru ekkert að tvínóna við hlutina þjófarnir sem stálu fiórum 38 tommu dekkjum, á felgum að sjálfsögðu, undan bíl við Borgartún um helgina. Eins og gefur að skilja hafa þeir nokkuð þurft fyrir því að hafa, en þeir létu þó ekki þar við sitja heldur tóku vatnskassann líka. -sv Loftpressa sprakk Litlu munaði að illa færi þegar loftpressa sprakk í Stálsmiðjunni í Reykjavík laust eftir hádegi í gær. Sprengingin var öflug og sprimgu rúður í húsinu við hvellinn. Húsið fylltist af reyk og voru lögregla og slökkvilið kölluð á vettvang. Enginn var nærri pressunni þegar hún sprakk en ljóst er að hefði svo verið hefði ilía getað farið. -sv y Taktu þátt í DEVIL’S OWN leiknum og þú getur unnið boðsmiða fyrir tvo á lokaða S forsýningu og forsýningarteiti í Stjörnubíó. HARRLSON FORD BRAD Rl I F DEVIL'S Ovvn mmmmmmmmmmmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.