Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 26. APRIL 1997 Eyddi fermingarpeningunum í íslandsferð fyrir 16 árum: Þetta eru hvorki galdrar né kraftaverk - segir Rikke Schultz, danskur dýralæknir í Skagafirði, sem beitir nýstárlegum aðferðum DV. Skagaíirði: / Rikke Schultz er einn þeirra mörgu útiendinga sem heillast hafa af íslenska hestinum. Hún er fædd í Danmörku og byrjaði sex ára gömul að umgangast íslensk hross. Hún eyddi fermingarpeningunum árið 1981 í íslandsferð og það varð fyrsta ferð hennar af mörgum milli landanna. Rikke lauk dýralæknanámi árið 1991 og þá um sumarið starf- aði hún í Skagafírðinum um skeið og fluttist svo al- farið í héraðið ásamt eig- inmanni sínum, Höskuldi Þráinssyni, árið 1992. Árang- ur Rikke við lækningar á hrossum hefur vakið talsverða athygli og er nú svo komið að fólk hvaðanæva af landinu kemur með hesta til hennar. Blaðamaður kom viö á Hjalla í Blönduhlíð hjá Rikke og Höskuldi á dögunum og tók dýralækninn tali: „Já, meðan ég var í dýralækna- náminu heima í Danmörku fékk ég mikinn áhuga á óhefðbundnum lækningaaðferðum, svo sem nála- stungu og hómópatískri lyfjagjöf. Síðasta námsárið tók ég hestalækn- ingar sem valgrein og dvaldi þá m.a. í Kanada þar sem ég lærði hest- anudd. Einnig var ég um tíma á hestasjúkrahúsi í Bandaríkjunum Rikke er ekki bara dýralæknir heldur tekur hún einnig þátt i keppni á hestamótum. Hér er hún meö verðlaunagripi sem hún hlaut á einu slíku. þar sem var pláss fyrir 80 hross. Dvölin á sjúkrahúsinu var mjög lærdómsrík og því er ekki að neita að Bandaríkjamenn, og þá ekki síst Texasbúar, gera ólíkt meira að því en íslendingar að lækna hrossin og reyna að komast að því hvað angrar þau og veldur vanlíðan. Þessa kunn- áttu sem ég öðlaðist þarna hef ég svo verið að þróa síðustu ár. Með það að markmiði hef ég farið nokkrar ferðir utan á námskeið undanfarin ár, m.a. í þeim tilgangi að afla mér alþjóðlegra sérfræðirétt- inda í nálastungu á dýrum.“ Ég spyr Rikke við hvaða kvillum hún beiti helst nála- stungu: Afcta— „Við nautgripi er þetta mest notað gegn ófrjósemi, við erfíðan burð, við kýr sem geta ekki staðið upp eftir doða og sam- hliða lyfjagjöf við júgur- bólgu. Varð- andi hross eru það vöðvabólga, sem mest kemur fram í baki og hálsi, og lið- skekkja sem oft- ast er í háls- og hryggjarliðum. Ástæður vöðvabólgu geta verið margar. Ein sú algengasta er að notaðir eru skakkir og illa stoppaðir hnakkar. Þeir geta verið jafnt nýir sem gaml- ir. Ég er þeirrar skoðunar að mjög margir hnakkar séu of langir og ég tek spaðalausa hnakka fram yfir hnakka með spöðum,“ segir Rikke. En hvemig finnur hún hvað er að þegar sjúklingurinn getur ekki tjáð sig við lækninn? „Flest hross sem ég fæ til með- ferðar eru reiðhross eða hross í tamningu. Ástæður þess að grun- semdir vakna um að eitthvað sé að geta verið margar. T.d. verða þau stíf i tauminn, hrekkjótt, láta illa að stjóm, slá til taglinu, em spennt o.fl. Ég byrja á að spyrja hesteigand- ann eða knapann nákvæmlega út í einkenni hestsins til að átta mig á hvað ástandið hafi varað lengi, hvenær það er verst og hvað geti or- sakað það. Síðan þukla ég alla stóra vöðva vandlega og athuga hvort ég finn eymsli í ákveðnum nálastungu- punktum sem eru í líkama hrossa, líkt og manna. Nudd og nálarstunguað- ferð Þegar sjúkdómsgreiningin liggur fyrir meðhöndla ég punktana með nálastungu. Þegar stungiö er í nála- stungupunkt gerist það meðal ann- ars að losnar um ákveðin efni í heil- anum sem virka kvalastillandi, slakandi og bólgueyðandi. Síðan hefur aðferðin hamlandi áhrif á hvemig taugakerfið sendir heilan- um skilaboð um kvalir og þar af leiðandi virkar aðferðin mjög vel á langvarandi kvalir í dýrum eins og mönnum. Til þess að koma í veg fyr- ir að kvillamir komi aftur verð ég að reyna að finna og leiðrétta orsak- imar. Það er ekki alltaf vinsælt ef ég kenni knapanum um. Þegar ég er búin að beita nálastungunni i 3-4 skipti með nokkurra daga millibili vil ég fara að sjá árangur. Auðvitaö heppnast þetta ekki alltaf og stund- um þarf að stinga oftar en flest hross ná fullum bata ef hægt er að leiðrétta orsökina.“ dýralæknir Rikke og Höskuldur meö gæöingsefni í hesthúsinu á Hjalla. DV-myndir Örn Þórarinsson Þegar um vöðvabólgu er að ræða beitir Rikke oft nuddi og þá jafnvel með nálastungunni. Hún segir að þegar hún taki hrossin hebn til sín til meðferðar, sem er í þeim tilfell- um þegar gripir koma langt að, nuddi hún hestinn sjálf en annars kenni hún eigandanum handtökin. Rikke segir að nálastungan sé mjög gömul kínversk aðferð sem hefur verið vísindalega sannað að virkar mjög vel og er nú viður- kennd .um allan heim. Þetta em hvorki galdrar né kraftaverk heldur taugafræði á háu plani og hún telur mjög mikilvægt að við beitum okk- ur fyrir þessari náttúrlegu lækn- ingaaðferð og notum hana með hefð- bundinni lyfja- og læknisfræði. Vísir að dýraspítala Þau Höskuldur og Rikke eignuð- ust jörðina árið 1994. Þau em bæði á kafi í hestamennsku og ræktim og því lá beinast við að komast yfir bú- jörð. En Hjalli hafði fleiri kosti en íbúðarhús, tún og bithaga því þar var um 140 fermetra nýbyggt iðnað- arhúsnæði, aö mestu óinnréttað. í því er nú kominn vísir að dýraspít- ala. Þar er t.d. ágæt aðstaða til myndatöku á dýrum og margs kon- ar aðgerða. Hins vegar er enn ekki aðstaða til að vista dýrin í húsnæð- inu en að því er stefnt i framtíðinni, segir Rikke, og á þar ekki síst við aðstöðu fyrir gæludýr sem talsvert er um að sé komið með til aðgerða. Hross sem hún tekur heim til meö- ferðar era hins vegar sett í hesthús- iö. En nú fleygir lækningum á fólki sífellt fram. Rikke er spurð hvort það sama eigi við um lækningar á dýrum: „Já, það er mikil þróun í dýra- lækningum. Það er t.d. stutt síðan farið var að sónarskoða hryssur þó að það sé ekki beint lækning. En sónarskoðun gefur eigandanum möguleika á að koma hryssu sem ekki hefur fengið fyl aftur til fola en áður hefði þessi hryssa í Qestum til- fellum orðið geld það árið. Til að fylgjast með því sem er að gerast hef ég sótt nokkur námsekið erlendis. Nú er hins vegar kominn nýr sam- skiptamöguleiki milli dýralækna sem er Intemetið. Með því móti hef ég orðið samband við marga kollega erlendis og þannig getum við miðl- að ýmsum nýjungum á milli, auk þess að ráðfæra okkur varðandi ýmis vandamál sem alltaf eru að koma upp í þessu starfi," sagði Rikke Schultz að lokum. -ÖÞ Vantar punk Matvara 1.000 Sérvara 1.000 25 Yfir 40 }nisunci keimili nota nú I ríkortiá a6 staðaldri ogf fleiri kætast við dagflegfa. Ef i>ig vantar Fríkort eða þú liefur t.cl. ákuga á að fá aukakort kanda unglingunum á keimilinu er Jjað auðsótt mál. Umsóknareyðuklöð liggja frammi á öllum afgreiðslu- og sölustöðum Fríkortafyrirtækjanna og einnig kægt að kringja í Jjjónustusímann 5Ó3 9000. Muntlu að |>ú færð Fríkortið \>ér algjörlega að kostnaðarlausu, en notkun Joess getur skilað |>ér ríkulegum ávinningi. uww*“« mmma ismtmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.