Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
Fréttir
Bjargvættur
forsetavaldsins
„Ég fann til vanmáttar míns yfir
því að geta ekki gert neitt og fór að
leita að kúbeini eða einhverju til að
spenna upp hurðina. Það sem mér
fannst óþægilegt var að það eru eng-
ar merkingar eða annað sem segja
manni hvað maður á að gera,“ segir
Edda Möller, framkvæmdastjóri
Skálholtsútgáfunnar. Hún var einn
af bjargvættum forseta íslands,
herra Ólafs Ragnars Grímssonar, og
hinna handhafa forsetavaldsins,
þeirra Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra, Ólafs G. Einarssonar, for-
seta Aiþingis og Haraldar Henrys-
sonar, forseta Hæstaréttar. Þeir fest-
ust í 20 mínútur í lítilli lyftu í Bisk-
upsstofu ásamt Baldri Kristjánssyni
biskupsritara en Edda þvingaði
lyftudyrnar upp ásamt Júlíusi Haf-
stein og bílstjóra forsetans.
„Ég heyrði þá kalla á mig innan
úr lyftunni að hringja í 112. Ég
hringdi þangað og var mér sagt að
þeir myndu senda tækjabíl. Svo
hringdi ég aftur þegar ég geröi mér
grein fyrir því að auk forsætisráð-
herrans, sem ég hafði séð í gegnum
rifu á lyftudyrunum, voru forsetinn
og aðrir handhafar forsetavalds
einnig í lyftunni.
Þegar þeir í 112 heyrðu það sögð-
ust þeir ætla að senda tvo sjúkra-
bíla líka. Sagði ég þeim þá að gjöra
svo vel að gera þetta virðulega og
nota ekki sírenur. Svo komu tveir
sjúkrabílar og stóri bíllinn frá
slökkviliðinu keyrandi virðulega
niður Laugaveginn inni í bílaröð-
inni án háreysta eða ]jósa,“ sagði
Edda.
Edda með herðatréð sem notað var til að spenna upp lyftuhuröina.
Lyginni líkast
„Mig minnir að ég hafi kynnt mig
þegar ég hringdi í 112 og sagt að ég
væri í alvarlegu vandamáli. Ég var
mjög róleg og myndi vilja hlusta á
þetta samtal því það hlýtur að hafa
verið hryliilega fyndiö. Ef einhver
hringir í Neyðarlínuna og segir að
þessir menn séu fastir í lyftu á Bisk-
upsstofú þá er það náttúrlega frekar
ótrúlegt.“
Lyftan í Biskupsstofú er á að
giska lxl metri að gólffleti þannig
að það mætti segja að þröng hafi
verið á þingi.
„Það sem mér fannst aðdáunar-
vert var hvað þeir héldu ró sinni
inni í lyftunni, alveg ískaldri ró. Ég
held að það hafi verið viss hætta á
ferðum þegar maður hugsar irni það
hvað þetta gerist seint að degi. Við
erum með opið hér til sex og vorum
þijár á staðnum. Tuttugu minúhnn
seinna hefðum við verið famar.“
Að sögn Eddu eiga Júlíus Haf-
stein og forsetabílstjórinn heiður
skilinn.
„Við stóðum saman í þessu og
náðum að spenna rifu á hurðina
utanverða með stóru herðatré og
biskupsritarinn að innanverðu en
var hálfmn metra of neðarlega
þannig að hún opnaðist ekki. Júlíus
náði að spenna hana aðeins meira
en þá small hún allt í einu upp. Þá
náðum við í herðatré og Þorláks-
sögu helga til að halda hurðinni op-
inni.
Þetta var mjög stressandi meðan
á því stóð og maður upplifði sig allt
í einu sem hluta af íslandssögunni."
-sf
Erindiö sem ráðamennirnir áttu á Biskupsstofu var undirbúningsfundur
vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar áriö 2000. DV-mynd Pjetur
Öryggismál æðstu ráðamanna:
Engar
„Það eru í sjálfú sér ekki neinar
skriflegar reglur um þetta. Það eru
til dæmis engar reglur til um að
þessir menn geti ekki farið saman í
lyftu,“ segir Ólafur Davíðsson, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráöuneytinu.
„Þetta er einfaldlega ákveðið
hverju sinni eftir því hvemig skyn-
samlegt er að haga sér. Handhafar
forsetavalds ákveða það sjálfir. Það
hefur ekki verið rætt um að setja
neinar aðrar reglur en þær sem em
í gildi um að þeir fari varlega. Ann-
ars er þetta allt á vegum lögreglu
þegar um opinbera atburði er að
Öryggið í
„í öllu sem snýr að hlutverki lög-
reglu við öryggisgæslu þjóðhöfö-
ingja er öryggið að sjálfsögðu í fyr-
irrúmi," segir Guðmundur Guðjóns-
son yfirlögregluþjónn.
„Um þetta lyftumál get ég ekkert
sagt og er það ekki í tengslum við
öryggisgæslu lögreglu, en þegar ósk-
að er öryggisgæslu lögreglu veljast
til þeirra verka vel þjálfaðir lög-
reglumenn, með mikla þekkingu á
þessum málum enda getur á margt
reynt. Má í þvi sambandi nefna þeg-
ar lögreglunni tókst að koma þjóð-
reglur
ræða.
Það era ekki heldur neinar
ákveðnar reglur varðandi flugferöa-
lög. Það er kannski ekki ástæða til
að vera með nákvæmlega skrifaðar
reglur um þetta. Ég held að það hafi
gefist ágætlega að menn fari einfald-
lega varlega.
Allir handhafar forsetavalds hafa
sína staðgengla þannig að það er
alltaf einhver sem tekur við þeirra
embættum. Það liggur nákvæmlega
fyrir og er ljóst á hverjum tíma,“
segir Ólafur. -sf
fýrirrúmi
höfðingjum allra Norðurlandanna
hindrunarlaust frá hátíðarhöldun-
um á Þingvöllum 1994, þrátt fyrir
umferðaröngþveiti i tengslum við
hátíðina.
Það varð síðan tilefhi þess að lög-
reglan var opinberlega gagnrýnd
fyrir að láta þjóðhöfðingjana njóta
forgangs að þessu leyti. Þá leiddu
fáir hugann að því hvað gerst hefði
ef þjóðhöfðingjamir hefðu setið fast-
ir í umferðaröngþveiti eins og svo
margir aðrir.“
-sf
Sigurdagur hjá íslandi
íslenska bridgefólkið átti góðu
gengi að fanga á EM í bridge á ítal-
íu í gær. Vann það alla 4 leiki sína.
í kvennaflokki vann ísland Sviss,
21-9, og Portúgal, 25-5, og er í 13.
sæti 24 þjóða.
í opna flokknum vann ísland
Rúmeníu, 23-7, og Grikkland, 16-14.
Keppnin þar er mjög hörð. Staða
efstu landa: Ítalía 248, Noregur 229,
Spánn 218, Pólland 217, ísland 216,
Danmörk 216, Bretland 215,5 og
Holland 212 stig. -hsím
Stuttar fréttir
20 fölsuð málverk
Kært hefúr verið til rannsóknar-
lögreglunnar vegna 20 vatnslita-
mynda og málverka sem talin em
vera falsanir. Myndimar em
merktar sem höfúndaverk helstu
stórmálara islands á fyrri hluta
aldarinnar og hafa nýlega verið
seld fyrir stórfé. Morgunblaöið
segir frá.
Kinkel kom og fór
Klaus Kinkel,
utanríkisráð-
herra Þýskalands,
kom í opinbera
heimsókn í gær
og fór aftur sam-
dægurs. Hann
segir íslendinga
geta samið sérstaklega við ESB um
Schengen landamæramáhð þó það sé
orðið hluti af einni af stoðum ESB.
Borgin græðir
Útsvarstekjur borgarinnar og
fasteignaskattar hafa ekki verið
meiri í fimm ár. Skuldir stóðu í
stað í fyrsta sinn í áratug milli ár-
anna 1995 og 1996. Morgunblaðið
segir frá.
Lús í Reykjavík
Apótekari i borginni segir við
Morgunblaðið að fjórar lúsafarald-
ursbylgjm- hafi verið í borginni frá
áramótum. Hann segir lúsina hafa
myndað þol gegn lyfjum og sápum
sem eiga að drepa hana.
Kópavogur skuldugur
Heildarskuldir Kópavogs námu
4,6 milljörðum króna í lok síðasta
árs. Mhmihlutinn segir þetta
háskalegt og of hraðri uppbygg-
ingu um að kenna. RÚV sagði frá.
-SÁ