Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Qupperneq 24
36
FÖSTUDAGUR 20. JÚNt 1997
Grasrótarstarfið
hefur dvínað
„Kvennalistinn er orðinn meiri
stofnun. Núna fáum við svo og
svo mikinn pening sem þingflokk-
ur. En áður fyrr vorum við selj-
andi sultutau og gamlar flíkur.
Allar voru að leggja sitt af mörk-
um. Það var mikið grasrótarstarf
sem smátt og smátt hefur dvín-
að.“
Guðný Guðbjörnsdottir alþing-
ismaður, í Degi-Tímanum.
í sama farinu
„Núverandi menntamálaráð-
herra sker sig ekki úr miðað við
forvera sína í þessu embætti. Það
hefur ekkert nýtt komið frá Birni
Bjarnasyni i menntamálum á ferli
hans fyrir utan hinn illræmda
fallskatt."
Agúst Einarsson alþingismaður
í Morgunblaðinu.
Ummæli
Komnir úr fallhættu
„Það hefur verið rætt um að
við yrðum í fallhættu og ég held
sú umræða hafi hjálpað okkur og
vonandi halda menn áfram að
tala um fallhættuna. Ég er þó
sannfærður um að við erum
komnir úr fallhættu."
Sigurður Björgvinsson, þjálfari
Keflavíkurliðsins, sem ekki hefur
tapað stigi, í Morgunblaðinu.
Ólifnaður karla
„Karlarnir fá að leika lausum
hala, rækta ólifnað sinn og geð-
veiki, spreða peningum í einka-
neyslu og leikföng sem stækka
bara í réttu hlutfalli við vangetu
þeirra til að takast á við vand-
ann.“
Hlín Agnnarsdóttir, í Degi- Tím-
anum.
Dóri og vinir hans skemmta á Sir
Oliver í kvöld.
Vinir Dóra
og Laddi
Halldór Bragason, betur þekkt-
ur sem Dóri í Vinum Dóra, mun
leika annað hvert fóstudagskvöld
í sumar á Sir Oliver og hefur leik-
inn í kvöld. Þá mun vertinn á
staðnum, Laddi, einnig skemmta
gestum í kvöld.
S
Greip á Gauknum
Hljómsveitin Greip mun
skemmta á Gauki á Stöng í kvöld.
Hljómsveitin mun síðan flytja sig
til Keflavíkur annað kvöld og
leika á Staðnum.
Skemmtanir
Sól Dögg á Sauðárkróki
Hin vinsæla hljómsveit nýtur
þess nú að eiga lag á vinsældalist-
um landsins og fá gestir á Mæli-
felli á Sauðárkróki örugglega að
heyra Frið en Sóldögg leikur þar í
kvöld. Annað kvöld er hljómsveit-
in svo á Jónsmessuhátíð á Sel-
fossi.
Óperukjallarinn
Hljómsveitin Sixties leikur i
kvöld og DJ Klara verður í diskó-
tekinu. DJ Klara sér einnig um
tónlistina á laugardagskvöld.
Feiti dvergurinn
Hljómsveitin Babýlon leikur
fyrir gesti á Feita dvergnum í
kvöld og annað kvöld.
Súld með austurströndinni
Við vesturströnd Skotlands er 996
mb. lægð sem þokast suðaustur en
fyrir norðan Jan Mayen er 1025 mb
háþrýstisvæði.
Veðrið í dag
I dag verður norðvestangola eða
kaldi. Rigning eða súld verður með
austurströndinni en annars að
mestu þurrt. Það léttir til um vest-
anvert landið og á Suðausturlandi
en á Norðausturlandi verður skýjað
með köflum. Hiti verður á bilinu 5
til 10 stig norðaustanlands en ann-
ars 10 til 17 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustan- og síðdegis norðvestan-
gola og léttir til. Hiti verður 11 til 16
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 0.04
Sólarupprás á morgun: 2.54
Síðdegisflóð f Reykjavík: 18.18
Árdegisflóð á morgim: 6.35
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö 8
Akurnes úrkoma i grennd 9
Bolungarvík léttskýjað 7
Keflavíkurflugv. skýjaó 9
Kirkjubkl. skýjað 8
Raufarhöfn þokumóða 5
Reykjavík skýjað 10
Stórhöfði rign. á síð. klst. 7
Helsinki skýjað 16
Kaupmannah. skýjað 14
Ósló skýjaó 16
Stokkhólmur léttskýjað 16
Þórshöfn rigning 9
Amsterdam þokumóða 12
Barcelona léttskýjað 18
Chicago skýjaó 26
Frankfurt Glasgow rigning 13
Hamborg London skýjað 14
Lúxemborg alskýjað 10
Malaga léttskýjað 18
Mallorca París skýjaö 19
New York heiðskírt 22
Orlando hálfskýjað 24
Nuuk léttskýjaó 4
Vín skýjað 16
Washington Winnipeg heióskírt 22
Árni ísleifsson, píanóleikari og djasshátíðarhaldari:
Fyrst kemur Jónsmessa, síðan djassmessa
„Djasshátíðin hér á Egilsstöðum
er nú haldin í tíunda sinn og ber
afmælið upp á sama tíma og Egils-
staðakaupstaður er fimmtíu ára. í
fyrstu var djasshátíðin alltaf í
kringum Jónsmessuna en þetta
stangaðist á við messur sem
haldnar eru árlega um Jónsmess-
una þannig að við færðum okkur
um eina viku. Nú segjum við að
fyrst komi Jónsmessa, síðan djass-
messa,“ segir Árni ísleifsson, djas-
skóngur Austurlands, sem skipu-
leggur djasshátíðina í tíunda sinn
og með sama myndarskapnum og
verið hefur undanfarin ár. Meðal
þeirra sem koma fram í þetta sinn
er sjálfur Svend Asmussen,
ókrýndur konungur djassfiðlara i
heiminum. Mun hann leika á opn-
unartónleikum á miðvikudags-
kvöld.
Maður dagsins
Ámi segir að djasshátíðin hafi
núorðið nokkuð fast form: „Þetta
tók mjög fljótt við sér, stækkaði
fljótt og er óhætt að segja að þetta
hafi gengið framar vonum. Auk
djassáhugamanna á Austfjörðum
sem koma hingað kemur fólk alls
staðar aö og sumir koma árlega.
Þá er mikið af sumarhúsum hér í
kring og fólk kemur þaðan á tón-
leikana. Djasshátíðinni í ár lýkur
ekkert þótt formleg dagskrá taki
enda. Við ætlum okkur að spila
djass daglega á pöbbum og
skemmtistöðum á Egilsstöðum út
allan júlímánuð - gerum kaupstað-
inn að djassbæ.
Það eru fleiri stjömur en Svend
Asmussen sem koma fram á djass-
hátíðinni: „Til okkar kemur pí-
anistinn Sunna Gunnlaugsdóttir
sem starfar í Bandaríkjunum.
Sama kvöld og hún leikur munu
stúlkur úr Djassballettskóla Báru
dansa. Saxófónleikarinn og tónlist-
arskólastjórinn á Seyðisfirði, Ein-
ar Bragi Bragason, mun stjórna 18
manna stórsveit sem skipuð er
hljóðfæraleikurum á Austfjörðum,
sérstakt trommukvöld verðm- og
kvöldið sem hátíðinni lýkur mun
Léttsveit Ólafs Gauks frumflytja
sérstakt afmælisstef, auk þess sem
sveitin leikur hefðbundna djas-
standarda. Þá má nefna að Dóri
„vinur" ætlar að koma hingað og
leika með mér í smátíma."
Ámi segist yfirleitt byrja upp úr
áramótum að skipuleggja hátíð-
ina: „Það þarf að þefa uppi pen-
inga því allt kostar þetta eitthvað,
það eru komnir fastir styrktaraðil-
ar hér á Austurlandi og svo er
ekki verra að vera kominn á fjár-
lög ríkisins."
Ámi er ekkert á því að hætta
þessari iðju sinni þótt hann sé að
verða sjötugur: „Það væri synd ef
hátíðin drappaöist niður ef maður
tæki upp á því að drepast. Annars
er ég við hestaheOsu og RúRek
stefnir að því að halda upp á sjö-
tugsafmæli mitt í Súlnasal. Ég er
svo heppinn aö afmælisdagiu-inn
minn er í september, akkúrat þegar
RúRek-hátíðin stendur yfir.“ -HK
Myndgátan
Skiprúm
Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingaroröi.
Flóki án takmarka
í Hafnarborg stendur nú yflr
norræna farandsýningin Flóki án
takmarka, sex lönd - tíu raddir.
Tiu textíllistakonur frá sex lönd-
um sýna þar fjölbreytt verk sem
eru öll unnin úr flóka. Sýningin
var fyrst sett upp í Noregi á síð-
asta ári, en hingað kemur hún frá
Norðurlandahúsinu í Færeyjum.
Sýningin fer siðan til Danmerkur.
Á sýningunni geft kostur á að
sjá hvernig tíu
norrænir lista-
menn hafa
unnið flóka úr
ullinni og síð-
an notað efnið
til að skapa
ótrúlega fjöl-
breytt verk.
Verk sem gefa
okkur vísbend-
ingu um það
að mörguleik-
ar efhisins séu
ef til vill „án
takmarka" eins og segir í yfir-
skrift sýningarinnar, eða takmark-
ist einna helst af hugmyndaauðgi
listamannsins.
Sýningar
Fulltrúi fslands í þessari sam-
sýningu er Anna Þóra Karlsdóttir
sem lengi hefúr unnið meö flóka '
og sýnt verk sín bæði hér heima
og erlendis. Anna Þóra hefur
einnig kennt flókagerð við textíl-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Aðrir listamenn sem eiga
verk á sýningunni eru Ása Hátún,
Færeyjum, Gunnilla Pateau og
Britta Jacobsen, Svíþjóð, Silja
Puranen og Tuula Nikulainen Isj-
unno, Finnlandi, May Jacobsen
Hvistendahl og Ann-Heidi Ny-
brott, Noregi, Charlotte Buch og <
Lene Nielsen, Danmörku. Sýning-
in stendur til 30. júní.
Eitt verkanna í
Hafnarborg.
Bridge
Bandarikjamenn spila ávallt út-
sláttarkeppni til þess að ákvarða
hvaða sveitir skipi landslið Banda-
ríkjanna í heimsmeistarakeppni.
Bandaríkjamenn senda tvö landslið til ‘
keppni á næstu heimsmeistarakeppni (
sem haldin verður í Túnis í október
næstkomandi. Keppnin hefur þegar
farið fram og lið þeirra verða skipuð
annars vegar Seymon Deutsch, Mich-
ael Rosenberg, Zia Mahmood, Chip
Martel og Lew Stansby og hins vegar
Nick Nickell, Dick Freeman, Bob
Wolff, Bob Hamman, Jeff Meckstroth
og Eric Rodwell. Elsti spilarinn í út-
sláttarkeppninni var án efa George
Rapee, (82ja ára) en hann komst alla |
leið í undanúrslitin. Spil dagsins er úr j
landsliðskeppninni og Rapee og félagi
hans, John Solodar, sátu NS. Norður
var gjafari og enginn á hættu:
♦ 6543
963
♦ 72
♦ ÁG107
♦ D8
V ÁK
♦ KG64
♦ 96542
4 92
* D8542
* 10953
* D8
4 ÁKG107
«» G107
♦ ÁD8
* K3
(
i
(
Norður Austur Suður Vestur
1 ♦ pass 1 4 pass
1 Grand pass 2 4 dobl
pass pass 3 ♦ pass
34 pass 4 * pass
4 «4 pass 64 p/h
Tveggja laufa sögn Solodars var
svokallaður „check-back“ til að kanna
hönd norðurs. Framhaldið var þægi- t
legt eftir dobl vesturs, þrír tíglar var
geimkrafa og tígulstuðningur og (
Rapee gat með góðri samvisku tekið
undir spaðann með drottninguna
aðra. Vestur spilaði út trompi í upp-
hafi en Solodar var ekki í vandræðum
með þennan samning, trompaði hjarta
í blindum og fékk tólfta slaginn
þannig. Á hinu borðinu í leiknum var
samningurinn 6 grönd. Ekki var hægt
að beita neinni trompun í þeim samn- £
ingi og laufásinn varð að liggja á aust-
urhendinni til að hann stæði. Sveit í
Rapees græddi 14 impa á spilinu. i
ísak Örn Sigurðsson